Morgunblaðið - 21.07.1992, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JULI 1992
31
Minning:
Laura H. Proppé
Fædd 27. júní 1905
Dáin 12. júlí 1992
Laura Proppé, eins og hún var
jafnan nefnd, andaðist sunnudag-
inn 12. júlí síðastliðinn. Hún hafði
risið úr rekkju um morgunin sam-
kvæmt venju og að loknum morg-
unverði tók hún til við þau morgun-
verk sem góðar húsmæður láta
ekki bíða, klæddi sig og snyrti eins
og hæfði sólbjörtum sumar- og
drottinsdegi, settist út á svalir og
naut sumarblíðunnar og ræddi við
nábýliskonu sína, en hafði þá orð
á því að hún ætlað að halla sér
smávegis áður en hádegisverður
yrði fram borinn. Þegar hún kom
ekki á tilsettum tíma var farið að
vitja um hana, en hún var þá sofn-
uð svefninum langa og virtist hafa
kvatt þetta líf án þjáninga. Oft
hafði hún óskað þess að fá að
kveðja lífið með þessum hætti og
sú bæn var heyrð.
Með Lauru Proppé er hin mæt-
asta kona til moldar gengin. Hún
fæddist á Þingeyri 27. júní 1905
og var elst átta systkina. Foreldrar
hennar voru Carl Proppé - þá
verslunarstjóri á Þingeyri - og
Jóhanna Jósafatsdóttir frá Kirkju-
felli í Eyrarsveit. Laura Proppé sleit
bamsskónum í faðmi Dýrafjarðar,
en fyrr en varði kvaddi hún æsku-
stöðvarnar og fiuttist með foreldr-
um sínum og systkinum til Reykja-
víkur þar sem hún gekk í Kvenna-
skólann. Hún var með afbrigðum
íjölfróð og minnug og fylgdist
Mót Orðs lífs-
• •
ins í Olveri
KRISTNA samféjagið Orð lífsins
heldur mót að Ölveri í Borgar-
firði um verslunarmannahelgina,
31. júlí til 1. ágúst.
í fréttatilkynningu segir, að á
mótinu verði mikil biblíufræðsla,
bæn og lofgjörð. Kennarar verða
Stig Petrone frá Livets Ord í Upp-
sölum í Svíþjóð og Simon Jakobsen
frá Lífsins Orði í Færeyjum.
Skráning á mótið fer fram hjá
Orði lífsins, Grensásvegi 8, á mánu-
dögum og miðvikudögum kl. 14-17.
^wtwiuiO
GÆÐA
VERKFÆRI
G/obus?
-heimur gæba!
lAgMÚLA 5 • REYK|AV(K - SÍMI 91 • 661555
langa ævi með öllu með gerðist á
líðandi stund. Það skorti aldrei
umræðuefni þar sem hún var. Enda
þótt sjón hennar væri farin að dap-
rast undir ævilokin fylgdist hún
með því sem gerðist á leiksviði lífs-
ins.
En það átti ekki fyrir Lauru
Proppé að liggja að lifa sín mann-
dómsár í höfuðstaðnum. Hinn 14.
ágúst 1925 gekk hún að eiga Garð-
ar Jóhannesson kaupmann á Vatn-
eyri við Patreksfjörð. Það sannaðist
á Lauru að römm er sú taug sem
dregur fólk á fornar slóðir. A Pat-
reksfirði beið hennar húsmóður-
starf á stóru heimili þar sem reyndi
á stjómsemi og persónutöfra hús-
freyjunanr. Garðar Jóhannesson
rak umsvifamikinn atvinnurekstur.
Á Vatneyri var togaraútgerð og
önnur umsvif. Hann var hvergi
nærri heill heislu svo að Laura
varð jafnan hið berandi afl í lífi
hans, svo að vitnað sé til orða
manns sem vel þekkti til á heimili
þeirra. Það hefur löngum verið
aðal góðra eiginkvenna að vera
mönnum sínum stoð og stytta og
Laura brást hvergi í því hlutverki.
Á Patreksfirði eignuðust þau fimm
börn, fjórar dætur og einn son, og
þar var ævistarfið unnið. En
tímarnir breyttust og heilsu hús-
bóndans var ofboðið. Því fór svo
að fjölskyldan fluttist frá Patreks-
firði og til Akraness þar sem Garð-
ar stjómaði útgerðarfélagi bæjar-
ins um skeið. Síðan lá leiðin til
Reykjavíkur og þar starfaði Garðar
hjá Síldarútvegsnefnd ríkisins með-
an kraftar entust. Hann andaðist
14. janúar 1970. Eftir andlát Garð-
ars bjó Laura um hríð með yngstu
dóttur sinni, en síðustu árin var
Hjálmar Þorsteins-
son sýnir á Akranesi
HJÁLMAR Þorsteinsson, listmál-
ari, hefur opnað málverkasýn-
ingu í Upplýsingamistöð fyrir
ferðamenn á Akranesi.
Á sýningunni, sem er sölusýning
og stendur fram í miðjan ágúst, eru
nokkur olíumálverk. Hjálmar fædd-
ist á Siglufirði 1932, en fluttist
ungur til Akraness, þar sem hann
bjó til 1981, er hann fluttist til
Danmerkur. Hann hefur haldið
Qölda sýninga, bæði hér heima, í
Danmörku og á hinum Norðurlönd-
unum. Sýningin er opin virka daga
frá kl. 10.30 til 12 og frá 13 til 17.
í sama húsnæði hefur til sam-
lengdar annar borinn Siglfirðingur,
Margrét Jónsdóttir, sett upp nokkr-
ar ljósmyndir úr Fljótum í Skaga-
firði.
hún á dvalarheimili aldraðra þar
sem hún lést.
Laura Proppé var fríð kona og
aðlaðandi. Það fylgdi henni alltaf
heiðríkja hvar sem hún fór. En hún
var jafnframt mikil þrekkona sem
best mátti sjá þegar þungbærir
atburðir urðu í fjölskyldu hennar.
Hún var gædd miklu jafnvægi og
sálarstyrk allt til hinstu stundar.
Ég hygg að hún hafí hlotið þetta
í arf frá foreldrum sínum sem urðu
að yfírgefa franska jörð af trúará-
stæðum og flytjast til norrænni
landa og síðast út til íslands. Hvað
sem því leið var hún um margt
óvenjuleg og sérstæð og svipaði
um margt til þeirra sem byggja
suðrænni og sólríkari lönd og það
fylgdi henni jafnan sólskin. Hún
naut þeirrar ánægju að sjá afkom-
endur sína vaxa úr grasi eina kyn-
slóðina af annarri. Hún gat því
gengið til hinstu hvílu með hugarró
eftir langan ævidag og merkilegt
ævistarf. Eftir lifir minning mæt
þó maðurinn sjálfur hverfi.
Aðalgeir Kristjánsson.
STEINAR WAAGE
SKÓVÉBSLUN
CWM^IWPlA^'rjáBÖP)
Minibel
Fagi
Verð nú
1.195,-
Verð nú
1.195,-
Áður.^99^>
Áður: 3.995,-
Litir: Blár, brúnn og
Ijósgrænn.
Stærðir: 24-34.
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsiuafsláttur.
Litur: Blár.
Stærðir: 22-30.
Döftiys
íýk&tsl
úm 18519
Krfagfam^
émWJXl
Allir ARMSTRONG dúkar með 30% aíslœtti í eina viku!
ARMSTRONG dúkar eru löngu landsþekktir fyrir mýkt, styrk og fallega liti. Þeir fást
í 2, 3 og 4 metra breiðum rúllum, í fjölda lita og mýnstra. ARMSTRONG dúkar eru
sérhannaðir fyrir norrænan markað. ARMSTRONG dúkar fást nú með
RfflNOGUARD slithúð sem gefur enn betra þol gegn álagi og rispum. Við bjóðum 4
gerðir og yfir 40 liti frá ARMSTRONG.
TEGUND
MAGNUM
SPECTRUM
REFLECTION
BOUTIQUE
ÞYKKT
4mm þykkur
3mm þykkur
2,5mm þykkur
2mm þykkur
VERÐAÐUR
kr. 1741.-
kr. 1576.-
kr. 1576.-
kr. 1269.-
VERÐNU
kr. 1219.-
kr. 1103.-
kr. 1103.-
kr. 888.-
LÆKKUN
30%
30%
30%
30%
A
Ath: ARMSTRONG dúka þarf ekki að líma!!
TEPPABUÐIN
(D
GÓLFEFNAMARKAÐUR • SUÐURLANDSBRAUT 26. • SÍMI 91-681950