Morgunblaðið - 21.07.1992, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992
35
Stýr mínu fari heilu heim
í höfn á friðarlandi,
þar mig í þinni gæslu geym,
6, Guð minn allsvaldandi. (V. Briem)
Álfhildur Hallgfrímsdóttir.
Góður vinur minn og æskufélagi,
Stefán Þórir, lést að kvöldi 11. þ.m.
á Landspítalanum eftir erfiða bar-
áttu við sjúkdóm, er varð honum
að lokum yfirsterkari.
Með sanni má segja að þar sé
genginn sérstæður persónuleiki og
góður drengur. Um hann mætti
heimfæra orð skáldsins:
Hreifur fram á hinstu stund,
hann um mein sín þagði,
faldi sína opnu und
undir glöðu bragði. (stefán &)
Ég man fyrst eftir Stefáni úr
Miðbæjarbarnaskólanum en við
lentum þar í sama bekk. Þetta var
glaðvær og skemmtilegur piltur er
vildi öllum vel og lagði alltaf gott
til málanna. Seinna urðum við sam-
ferða inn í Gagnfræðaskóla Reyk-
víkinga. Þar kynntumst við miklum
ágætismanni, Ólafi heitnum
Georgssyni, og tókst með okkur vin-
átta sem aldrei bar neinn skugga
á. Um tíma skildu leiðir, en er ég
kom heim eftir síðari heimsstyrjöld-
ina lágu leiðir okkar aftur saman.
Það var okkur Stefáni mikið áfall
er félagi okkar og vinur, Ólafur,
lést langt um aldur fram.
Stefán batt einlæga vináttu við
fjölskyldu mína, sérstaklega við son
okkar Gunnar. Hann var ávallt
kærkominn gestur á heimili okkar,
enda fróður og skemmtilegur, og
var margt skeggrætt og oft mikið
hlegið. Hjálpsemi hans og greiðvikni
í okkar garð verður seint fullþökk-
uð. Stefán var maður sérstæður á
marga lund, skapfastur og keppnis-
maður á yngri árum og hafði fast-
mótaðar skoðanir í landsmálum,
enda mikill sjálfstæðismaður alla
tíð. En hann átti líka til mildi, nær-
gætni og hjálpsemi gagnvart þeim
er hann vissi að bágt áttu, svo og
höfðingsskap og gjafmildi gagnvart
þeim er hann vissi að halloka höfðu
farið í lífinu, það svo að á stundum
sást hann vart fyrir svo að litið var
eftir fyrir hann sjálfan, en bjartsýn-
in þó alltaf söm og jöfn, og var þá
jafnan orðtak hans: „Þetta kemur
allt.“ Stefán var greindur vel og
kunni skil á mörgu og stálminni
hans fleytti honum oft vel, svo og
jafnlyndi hans og langlundargeð,
sem ég oft undraðist og dáðist að.
Á yngri árum var Stefán mikið í
íþróttum og þó aðallega í frjáls-
íþróttum og var mikill KR-ingur.
Jafnframt þessum áhugamálum
vann hann í mörg ár að fasteigna-
viðskiptum og þá lengi í fasteigna-
sölu Péturs heitins Jakobssonar.
Síðari árin var hann starfsmaður á
skrifstofu verðlagsstjóra. Stefán
Þórir var vinmargur og fáa hefí ég
þekkt sem Stefán, er hér fyrr á
árum þekkti svo til hvern einasta
mann í bænum og vissi meiri og
minni deili á sérhveijum, enda Reyk-
víkingur svo mikill að hann fór sjald-
an út fyrir bæjarmörkin, nema
nauðsyn ræki til.
Stefán hugsaði og ræddi oft um
lífið og tilveruna á góðum stundum
og varðveitti vel sína barnatrú, þótt
enginn væri hann einstefnumaður í
andlegum málum, en reyndi þó að
rækta sinn garð og hafa alltaf blóm
til að gefa öðrum.
í bókinni „Spámaðurinn“ eftir
Kahlil Gibran, segir svo á einum
stað: „Þú skalt ekki hryggjast, þeg-
ar þú skilur við vin þinn, því að það
sem þér þykir vænst um í fari hans,
getur orðið þér ljósara í fjarveru
hans, einis og fjallgöngumaðurinn
sér íjallið best af sléttunni.“
Ég trúi því að vinur minn, Stef-
án, sé nú laus úr viðjum erfiðleika
og þjáninga og genginn á vit annarr-
ar og bjartari tilveru.
Nú þegar kveðjustundin er komin
og leiðir skiljast að sinni, biðjum
við, vinir Stefáns, honum fararheilla
í leit hans að Ijósi og sannleika
undir handleiðslu Hans sem öllu
ræður. I trausti þessa og að tekið
verði á móti vegmóðu jarðarbarni
af ástúð og kærleika, vil ég fyrir
hönd ijölskyldu minnar þakka Stef-
áni Þóri samfylgdina og tryggðina
og biðja honum Guðs blessunar á
þeim leiðum sem hann nú hefur lagt
út á.
Við vottum eftirlifandi systur
hans, frú Guðrúnu Nielsen, svo og
öðrum ættingjum innilega samúð
en minningin um góðan mann mun
lifa hjá þeim er hann þekktu.
Blessuð sé minning Stefáns Þóris
Guðmundssonar.
Geir R. Tómasson
og fjölskylda.
Stefán Þórir Guðmundsson fædd-
ist í Eskihlíð í Reykjavík, en foreldr-
ar hans voru þá nýfluttir þangað
frá Reykjum í Mosfellssveit. Þegar
Stefán var níu ára fluttist fjölskyld-
an að Óðinsgötu 4 í Reykjavík. For-
eldrar Stefáns voru Guðmundur
Helgason bóndi og járnsmiður frá
Miðfelli í Hrunamannahreppi og
kona hans Ingibjörg Jónsdóttir frá
Útverkum á Skeiðum. Systkinin
voru sex. Stefán var yngstur þeirra.
Hin voru Jón, Helga, Helgi, Ingveld-
ur og Guðrún Bjamþóra sem er nú
ein á lífi systkina sinna.
Stefán tók gagnfræðapróf frá
Gagnfræðaskóla Reykjavíkur. Hann
starfaði lengst á fasteignasölu Pét-
urs Jakobssonar, en var eftir það í
lausamennsku í fasteignasölu. Síð-
ast vann hann hjá Verðlagsstofnun.
Stefán var ókvæntur og barnlaus.
íþróttir voru meðal áhugamála
Stefáns. Hann var í sveit íslenskra
fijálsíþróttamanna á Ólympíuleik-
unum í Berlín 1936. Hann starfaði
í Góðtemplarareglunni og gegndi
embætti þar um skeið. Hann var
alla tíð mikill sjálfstæðismaður og
hafði ærnar áhyggjur af flokknum
þegar á móti blés. Verst þótti honum
að flokkurinn skyldi ekki eiga neitt
málgagn.
Stefán bragðaði aldrei áfengi, en
gat unnt öðrum þess meðan hóf var
á. Guðrún systir hans minnti hann
á að þegar hann ásamt öðrum ferm-
ingarbörnum hafi gengið til altaris
hlyti hann að hafa drukkið messu-
vín. „Ég saup ekki á því“, var svar
Stefáns. Það kom nokkuð á Stefán
þegar Guðrún dró þá í efa að ferm-
ingin væri fullgild.
Stefán var afar hjálpsamur og
greiðvikinn og mikið af tíma hans
fór í að leysa vanda annarra. Hann
átti marga skjólstæðinga. Um eigin
hag sinnti hann ekki.
Meðal þeirra mörgu sem Stefán
lét sér annt um var systursonur
hans, Alfreð Flóki, en á nána vin-
áttu þeirra bar aldrei skugga. Stef-
án fylgdi Flóka til síðustu stundar
og uppörvaði hann og hvatti jafnt
í lífi sem list. Flóki kynnti mig fyrst
fyrir Stefáni og fór fljótlega vel á
með okkur. Ávarp hans var jafnan:
„Skáldið mitt“.
Þegar okkur Flóka langaði í hvít-
vínslögg var það stundum stór-
templarinn sem greiddi götu okkar.
Ég fór snemma að skrifa greinar
um bókmenntir og aðrar listir. Sum-
ar þeirra birtust í tímaritum, aðrar
í blöðum. Stefán átti þátt í að ég
var ráðinn til að skrifa fyrir Morg-
unblaðið, en að skrifa í blaðið á
sjötta og sjöunda áratugnum var
allt að því dauðadómur yfir ungum
rithöfundi. Ég lét mig það litlu
skipta þótt gamlir samheijar og vin-
ir sneru við mér baki, en það skal
játað að viðbrögð sumra komu mér
á óvart.
Stefán kunni mikið af ljóðum og
vitnaði til þeirra við ýmis tækifæri.
Það gat verið gott að grípa til þeirra
ef setið var að spjalli við nógu róm-
antískar konur, á aðrar verkuðu þau
oftast sem stílbrot. Það er aldrei
hörgull á fólki sem stendur dyggan
vörð um hversdagsleikann.
Stefán var einhver mesti sóldýrk-
andi sem sögur fara af. Sæi hann
sólskinsblett var hann óðara sestur
þar. Hann lagði mikið upp úr því
að vera brúnn og hraustlegur og
snyrtimennska var honum í blóð
borin. Á yngri árum var hann líkast-
ur Hollywoodstjörnu.
Sagt er að kona nokkur hafi dáðst
að því hve Stefán var brúnn í and-
liti og fengið svarið: „Svona er ég
allur.“ Sum tilsvör Stefáns urðu
landsfræg, enda gat hann verið
mjög orðheppinn og vandaði jafnan
mál sitt.
Hann kom stundum heim til mín
í því skyni að hlusta á Jussi Björling
syngja um fegurð Vermlands. Stef-
án var fagurkeri, en lét ekki mata
sig á hvetju sem var í listum. Hann
hafði sínar skoðanir á listum sem
öðru, en var sjaldan einstrengings-
legur. Umburðarlyndi var honum
eiginlegt.
Meðal þeirra ljóða sem Stefán fór
oft með var þýðing á tyrknesku ljóði.
Ljóðið höfðaði sterkt til hans. Það
er svona í öllum sínum einfaldleik:
Fyrr en þú elskar
lærðu að hlaupa yfir snjóinn
án þess að skilja eftir spór.
Stefán Þórir Guðmundsson verður
samferðamönnum sínum minnis-
stæður. Kannski þekkti hann eng-
inn, en margir nutu vináttu háns
og umhyggju. Glaðværð hans og
gamansemi voru með sérstökum
hætti.
Jóhann Hjálmarsson.
Að Stefáni Þóri Guðmundssyni
gengnum er hin mannlega flóra fá-
tæklegri og mannlífið í Reykjavík
snauðara.
Stefán Þórir lífgaði upp á um-
hverfi sitt hvort sem var á vinnu-
stað eða annarsstaðar og setti mark
sitt á bæjarlífið. Sumum þótti hann
vera kynlegur kvistur og víst er um
að að hann var ekki eins og almúg-
inn.
Hann var með eindæmum greið-
vikinn, vildi leysa vanda hvers
manns og mátti ekkert aumt sjá.
„Get ég gert eitthvað fyrir þig“,
spurði Stefán gjarna. Segir setning-
in mikið um það hvern mann hann
hafði að geyma.
Stefán Þórir hafði ákveðnar skoð-
anir á mönnum og málefnum. Hann
var rammasta íhald að eigin sögn,
andsnúinn hvers kyns tæknibreyt-
ingum og nýskipan. Setti hann skoð-
anir sínar fram tæpitungulaust og
voru röksemdir hans oft frumlegar
og skemmtilegar. Var stundum líf-
legt á kaffistofunni þegar Stefán
Þórir lét gamminn geysa.
Við samstarfsmenn Stefáns Þóris
erum þakklátir fyrir að hafa fengið
að kynnast honum. Kynnin af hon-
um hafa víkkað sjóndeildarhring
okkar. Hann hefur auðgað anda
okkar.
Stefáns Þóris verður sárt saknað.
Blessuð sé minning hans.
Samstarfsfólk
á Verðlagsstofnun.
Verð frá: 1.548.000,-
Greiðslukjör við allra hæfi
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24
virka daga kl. 9:00 — 18:00,,
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
0] j
Sturtudælur,
aflúttök,
stjórnlokar
QHverslun
Klettagörðum 11, Reykjavík
91-68 21 30-68 15 80
®BÚNA1)ARBANK1
ÍSLANDS
SPARISJOÐIRNIR
-fyrir pig og pína
KAUPÞING HF
Kringlunni 5, simi 689080
/ rigu Búnaðarbanka tslands og sparisjódanna
samanburð .
tækifærið
Berðu saman þá ávöxtunarmöguleika sem bjóðast.
jðu þér hagstæða ávöxtun með því að fjárfesta í Einingabréfum.
Raunávöxtun Einingabréfa
síðastliðna 3 mánuði:
Einingabréf I 7,9%
Einingabréf 2 I 1,6%
Einingabréf 3 7,8%