Morgunblaðið - 21.07.1992, Page 42

Morgunblaðið - 21.07.1992, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992 * MIÐAVERÐ KR. 350 A ÓÐ TIL HAFSINS, KRÓK OG BUGSY HNEFALEIKAKAPPINN IWs&KtswfctaaiSÉÍs fe«akrartÍB*kia>|MX<* ÉIHÍMmHI ■:>&* ( .-L''« • tHu » ;4. ' , r :,t. Hnefalcikakappinn - .skemmtilegur kokkteill af göniluni brýnum og nýju hœfileikafólki kemur nianni þægilcgsi á óvart. Ekki spill ir f yrir þétt og hröd tónlistin seni spiluö er in eö. þaö veröur enj;inn svikiiin af kvöldstund i Stjörnu- bíói. ★ ★ ★ FI BÍÓLÍNAN Aðallilutverk: Brian Dennehy, Robert Loggia, Ossie Davis, Cuba Gooding jr. (Boyz'n the Hood) og Ja- mes Marsball (Tvídrangar). Leikstjóri er Rowdy Herr- ington (Road House). Sýnd kl. 5, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. * Neskaupstaður: Norræn ráðstefna Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Frá fundi norrænu ráð- stefnunnar í Hótel Egils- búð. Neskaupstað. NÝLEGA var haldin hér norræn ráðstefna um breytilega kennsluhætti í fullorðinsfræðslu. Ráð- stefnugestir voru um 50 talsins þar af 30 frá hinum Norðurlöndunum og einn gestur frá menntamála- ráðuneyti Eistlands. Ráðstefnan er hluti af verk- efni á vegum Norrænu ráð- herranefndarinnar og nefnist Voks ut. Þátttakendur starfa allir að nýjungum á sviði full- orðinsfræðslu. Það var Far- skólinn á Austurlandi sem fyrir íslands hönd tók þátt í ráðstefnunni sem haldin var á Hótel Egilsbúð. Gestir ráð- stefnunnar gistu í hinu nýja heimavistarhúsi Verkmennta- skóla Austurlands sem Egils- búð rekur nú sem sumarhótel. Ráðstefnugestir settu svip á bæjarlífið hér og höfðu á orði að þetta væri öðruvísi ráðstefna. Þeir hefðu verið í miðri hringiðu bæjarlífsins en ekki lokaðir inni í hinum hefð- bundnu ráðstefnusölum. - Ágúst. Morgunblaðið/Björn Blöndal Frá þinginu í Stapa í Njarðvík þar sem þvaglekavandamál kvenna voru efst á dagskrá. Kvensjúkdómaþing í Keflavík og Njarðvík: Þvaglekavandamál efst á baugi Keflavík. FIMMTÍU OG SEX kven- sjúkdómalæknar af Norð- urlöndum sátu ráðsstefnu sem.fram fór í Keflavík og Njarðvík fyrir skömmu. Að sögn Konráðs Lúðvíkssonar yfirlæknis við fæðingadeild Sjúkrahússins í Keflavík voru þvaglekavandamá kvenna aðalega rædd á þinginu en um 14% kvenna þjáðust af þessu vandamáli og væru margar konur ein- angraðar af þessum sökum. Þingið hófst í Sundmiðstöð- inni í Keflavík þar sem þing- fulltrúum var boðið uppá sundsprett og síðan morgun- verð í boði bæjarstjómar Keflavíkur. Sjálft þinghaldið fór fram í samkomuhúsinu Stapa í Njarðvík og var farið í skoðunarferð um Suðurnes þar sem komið var orkuverið við Svartshengi var skoðað og einnig var farið að Hafna- bergi. -BB Haraldur Jóns- son sýnir á Mokka OPNUÐ hefur verið á Mokka við Skólavörðustíg sýning á verkum Haraldar Jónssonar. Þetta eru teikn- ingar unnar á pappír á und- anförnum mánuðum. Haraldur er fæddur í Hels- inki, Finnlandi, árið 1961 en stundaði nám \ Myndlista- og handíðaskóla íslands á árun- um 1984-87, Kunstakademie í Dusseldorf 1987-1990 þar sem hann útskrifaðist í maí. Síðastliðinn vetur dvaldi hann í París, Frakklandi, sem styrkþegi _ við Institut des Hautes Études en Arts Plastiques með öðrum Evr- ópubúum. Haraldur hefur haldið sýn- ingar á ýmsum stöðum í Evr- ópu og síðast sýndi hann á sýningunni Islensk högg- myndalist á Listahátíð í Kringlunni í sumar. Haraldur Jónsson með eitt verka sinna. Ss. Ingvi Þór Kormáksson/Þegar þið eruö nálægt: A suðrænum nótum Hljómplötur Sveinn Guðjónsson Það er án efa mannbæt- andi og af hinu góða að nálgast bamið í sjálfum sér ■ og til þess eru margar að- ferðir. Tónlistarmaðurinn Ingvi Þór Kormáksson hefur til dæmis farið þá leið að semja bráðskemmtileg lög við ljóð, sem tengjast upplif- un barna á tilverunni. Þessi tónlist er nú kominn út á plötu, sem gefin er út I sam- vinnu við Bamaheill og rennur allur ágóði til sam- takanna. Efni af þessu tagi er vissulega vandmeðfarið, en Ingvi Þór sleppur vel frá verkinu enda nýtur hann aðstoðar valinkunnra tón- listarmanna, sem sumir em í hópi hinna sjöllustu hér á landi á sínu sviði. Og það skal tekið fram strax, að hér er ekki um hefðbundna barnaplötu að ræða heldur hefur hún að geyma tónlist sem ætti að höfða til fólks á öllum aldri. Þetta er fjórða hljómplat- an sem Ingvi Þór Kormáks- son sendir fá sér og af þeim sem ég hef heyrt er þessi sú besta. Lögin eru flest í suðrænum, latneskum anda. Þarna bregður fyrir boss- anova-stemmningu og ryt- mískum sömbum og sölsum og á mörgum laganna er fágaður, djasskenndur blær, enda flestir flytjenda tónlist- arinnar úr djassdeildinni. Að þessu leyti er platan afar óvenjuleg af íslenskri hljóm- plötu að vera. Stefán S. Stefánsson annaðist útsetningar og stjóm upptöku, auk þess sem hann leikur á saxafón og þverflautu. Stefán er vel skólaður tónlistarmaður og verkinu vaxinn, þótt ef til vill megi deila um hljóð- blöndunina á stöku stað. En það yrði bara sparðatíning- ur enda sýnist sjálfsagt sitt hveijum í þeim efnum. Aðr- ir flytjendur á plötunni eru Matthías Hemstock tromm- ur, Gunnar Hrafnsson bassi, Þórir Baldursson hljómborð, Björn Thoroddsen gítar, Pétur Grétarsson slagverk, Ásgeir H. Steingrímsson trompet og flygilhom, Eirík- ur Orn Pálsson trompet, Sigurður Þorbergsson bás- úna og Ólafur Flosason óbó. Sönginn annast Berglind Björk Jónasdóttir, Egill Ólafsson og Guðrún Gunn- arsdóttir, auk Jóhanns Helgasonar í bakröddum. Ekki er ástæða til að gera hér upp á milli frammistöðu einstakra flytjenda, en þó langar mig að nefna ágætar rispur Þóris Baldurssonar á píanó, eins og til dæmis í laginu „Við djúpan fjörð", en í því má ennfremur að heyra fallegan tón í saxa- fóni Stefáns Stefánssonar. Bassaleikur Gunnars Hrafnssonar setur einnig skemmtilegan svip á plöt- una og má sem dæmi nefna tilþrif hans í laginu „Kondu". Þá fannst mér þægilegur tónn í gítar Björns Thoroddsen, ekki síst í laginu „Hvað?“ og vissu- lega mætti nefna margt fleira sem gleður eyrað á þessari plötu. Söngvaramir sleppa vel frá sínum hlutverkum og ekki ástæða til að gera þar upp á milli. Lögin sem Egill syngur skera sig dálítið úr hvað stíl varðar og eitt þeirra, „Sonardilla/föð- urdilla, fannst mér eins og út í hött miðað við annað efni á plötunni. Ljóðið við það er hins vegar gott, eins og vænta mátti þegar Þór- arinn Eldjám er annars veg- ar. Önnur Ijóð á plötunni em eftir Steinunni Sigurðar- dóttur, Jóhann S. Hannes- son, ísak Harðarson, Hann- es Pétursson, Heiðrek Guð- mundsson og Geirlaug Magnússon, auk þess sem Ingvi Þór á þarna nokkra texta og einn í samvinnu við Dagrúnu Ársælsdóttur. Þegar á heildina er litið getur Ingvi Þór verið án- gæður með sitt framlag til íslensks tónlistarsumars, því að á plötunni em mörg ágæt lög. Besta lagið að mínum dómi er titillagið „Þegar þið eruð nálægt", við ljóð Hann- esar Péturssonar, vel samið lag, vel flutt og piýðilega sungið af Guðrúnu Gunn- arsdóttur. Hins vegar hefur platan í heild þann ann- marka að lögin á henni flokkast hvorki undir popp né rokk, eða aðra hefð- bundna dægurtónlist og því er hætt við að hún fari fyr- ir ofan garð og neðan hjá þorra fólks, nema auðvitað að plotusnúðar útvarps- stöðvanna átti sig og gefi einhveijum laganna tæki- færi til að hljóma á öldum ljósvakans. Þar heyrast vissulega mörg lög sem em verri en þessi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.