Morgunblaðið - 21.08.1992, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C/D
188. tbl. 80. árg.
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
gengnr um með
hríðskotariffil
Reuter
Hjónadjöfull á ferð?
Fjölmiðlamenn umkringja bandaríska milljónamæringinn John Bryan við
heimili hans í Chelsea í gær. Fyrr um daginn birti breska dagblaðið
Daily Mirror myndir af honum og Söru, hertogaynju af Jórvík, sem hafa
vakið mikla athygli og hneykslan i Bretlandi.
Sjá frétt á bls. 18.
Nairobi í Kenya. Frá Huga Ólafssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
MATARSENDINGAR frá hjálparstofnunum ná nú til hundraða þús-
unda sveltandi manna í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, en anna þó
ekki þörfinni. Algert stjórnleysi og ringulreið blasti við Morgunblaðs-
mönnum þegar þeir heimsóttu borgina í gær og Rauði krossinn virð-
ist vera það sem kemst næst því að vera yfirvald á staðnum.
Segja má að nær annar hver
karlmaður í Mogadishu gangi um
með hríðskotariffil. Við leigðum
okkur bíl með tveim vopnuðum
vörðum, annar virtist vera um ferm-
ingaraldur, en farartæki eru eink-
um tvenns konar: Annars vegar
bílar með blaktandi fánum Samein-
uðu þjóðanna og hjálparstofnana,
hins vegar Toyota-pallbílar með
áföstum vélbyssum, sem eru kjör-
vopn stríðandi ættbálka.
Kristín Davíðsdóttir, íslenskur
hjúkrunarfræðingur sem vinnur við
Keynaney-sjúkrahúsið í Mogadishu,
segir að 80-90 sjúklingar, flestir
með skotsár, komi þar á viku.
Blaðamenn litu inn í tvö af rúmlega
200 eldhúsum Rauða krossins í
Mogadishu. Börn og fullorðnir, sem
voru nýkomin til borgarinnar á
flótta úr nágrannasveitum, voru
Reuter *
Gæsla við matvælin
Vopnaður Sómali gætir matar-
birgða frá Bandaríkjunum.
mjög illa á sig komin. Þau sem
höfðu fengið nokkra aðhlynningu
voru þó orðin mun bragglegri.
Víðtækasta einkavæðing í heimi
AllirRússar
fá ávísun á
sameignina
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph. 1 ^
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, steig stórt skref í átt til mark-
aðsbúskapar í landinu þegar hann tilkynnti í fyrrakvöld að öllum
Rússum, 150 milljónum að tölu, yrði afhent „einkavæðingarávísun"
upp á 10.000 rúblur. Fyrir hana geta þeir síðan keypt hlut í ríkis-
fyrirtækjunum. Efnahagssérfræðingar á Vesturlöndum segja að
svo virðist sem margboðuð einkavæðing í Rússlandi sé nú að líta
dagsins ljós.
Hér er um að ræða lið í heims-
ins mestu einkavæðingu. Mark-
miðið er að reisa við efnahagslífið
og gera Rússa að sönnum kapítal-
istum á fimm árum.
Fyrstu ávísanirnar verða sendar
út í október og hafa menn áhyggj-
ur af að fresturinn sé fullstuttur
því enn er mikið verk óunnið.
Marína Veijabína, einkavæðing-
arsérfræðingur við rannsókna-
stofnun í Moskvu, segist einnig
vantrúuð á að auðvelt sé að glæða
með fólki skilning á markaðs-
hyggju. Rússar hafi aldrei þekkt
einkaeign, ekki einu sinni fyrir
byltinguna 1917.
Sjá einnig frétt á bls. 18.
Reuter
Þinghús Sarajevo brennur, slökkviliðsmenn gátu ekkert aðhafst af
ótta við leyniskyttur.
Mesta sprengjuregn
yfír Sarajevo í mánuð
Sanyevo, Washington, Brussel, Pristína. Reuter.
SPRENGJUM rigndi yfir miðborg Sarajevo í gærkvöldi í hörðustu
árásum fjórða mánaðarins sem barist er í Bosníu-Herzegóvínu. Leyni-
skyttur drápu úkraínskan hermann úr liði Sameinuðu þjóðanna fyrr
um daginn. Serbar og múslímar börðust í úthverfum borgarinnar
en flugvöllurinn var opnaður aftur í gær. 26 vélar lentu með mat-
væli og lyf handa þeim 380.000 íbúum sem lokast hafa inni vegna
stríðsins. Ottast er að bardagar hefjist senn í Kosovohéraði í Serbíu.
togar hefðu vitað svo mánuðum
skipti hvað fram færi en ekkert
aðhafst. Silajdzic hafði eftir Eagle-
burger að Bandaríkin væru alger-
lega mótfallin hugmyndum um að
skipta Bosníu niður að svissneskri
fyrirmynd, slíkt væri ómannúðlegt
Utanríkisráðherra Bosníu, Haris
Silajdzic, sagði eftir fund með
bandarískum starfsbróður sínum,
Lawrence Eagleburger, í Washing-
ton í gær að þjóðir heims væru
meðsekar um grimmdarverk í
fangabúðum Serba í landinu. Leið-
og rangt, fólk af ólíkum uppruna
byggi hlið við hlið í landinu.
Atlantshafsbandalagið (NATO)
hefur fækkað í liði hermanna sem
fyrirhugað er að senda til Bosníu
úr 100.000 í 10.000. Ætlunin er
að þeir verndi bíla með hjálpargögn
á leið frá hafnarborginni Split til
Sarajevo. Til að þetta gangi þarf
loforð stríðandi fylkinga um að
hleypa bílalestinni hjá og vonast
NATO til að þau fáist á ráðstefnu
um ástandið í Bosníu í næstu viku.
Stjórnarerindrekar segja líklegast
að hersveitirnar verði undir yfir-
stjórn SÞ, þannig verði komist hjá
árekstrum NATO og V-Evrópusam-
bandsins.
Bandaríkin
Bushað
síga á?
Houston. Reuter.
NÝ skoðanakönnun í Bandaríkj-
unum gefur til kynna að George
Bush forseti hafi unnið mjög á
síðustu dagana, en flokksþingi
repúblikana er nú að ljúka.
Munurinn á fylgi Bush og demó-
kratans Bills Clintons hefur að und-
anförnu verið um og yfir 20% en
könnunin sem birt var í gær gaf
Clinton aðeins 5% meira fylgi.
Umrædd könnun var gerð fyrir
dagblaðið Houston Chronicle en í
síðustu viku sýndi könnun blaðsins
16% mun. Að þessu sinni fékk Clint-
on 48% en Bush 43%.
Sjá ennfremur frétt á bls. 19.
Afganistan
Barist við
Hekmatyar
Islamabad. Reuter.
HARÐIR bardagar geisuðu í út-
hverfum Kabúl, höfuðborgar
Afganistans, í gær og í fyrradag
milli skæruliða Gulbuddins Hek-
matyars og þeirra hreyfinga,
sem standa að núverandi stjórn
í landinu.
Árás skæruliða Hezb-I-Islami-
hreyfingar Hekmatyars á Kabúl
kom í kjölfar mikillar eldflaugahríð-
ar alla aðfaramótt miðvikudagsins
og voru mestu átökin við Bala His-
ar, fornt virki í suðurhluta borgar-
innar. Einnig voru miklir bardagar
í námunda við varnarmálaráðuneyt-
ið.
Hekmatyar krefst þess, að sveit-
ir Uzbeka, sem eru ein þjóðanna,
sem byggja Afganistan, verði
sendar frá Kabúl en þær studdu
áður kommúnista.
Stjórnleysi og hungursneyð ríkja í Mogadishu
Annar hver karl