Morgunblaðið - 21.08.1992, Side 35

Morgunblaðið - 21.08.1992, Side 35
- MðRGUNBMÐIÐ: 4&STUDAGUR--2L 4992''' - - Larry og Steve fá „lánaöan" Rolls Royce til að leita að draumastelpunni sinni en vita ekki að í skotti Rollsins er fullt af illa fengnum $$$ og að í Palm Springs er Super Model-keppni. Eldfjörug og skemmtileg mynd. Aðalhlv: Corey Feld- man, Zach Galligan og kynbomban Rowanne Brewer. Sýndkl. 5,7, 9og11. Ath.: Miðaverð kr. 300 kl. 5 og 7. Bönnuðinnan 12ára. Á STÓRU TJALDI í UULPg^.STEBÍoJlX] sinfónía af gríni, spennu og vandræðum." Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Ath. kl. 5 og 7 í A-sal. TILBOÐ Á POPPI OG KÓKI HRIIXIGFERÐ TIL PALM SPRINGS STOPP EÐA MAMMA HLEYPIR AF Óborganlegt grín og spenna. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Miðav. kr. 300 kl. 5 og 7. REGNBOGINN SÍMI: 19000 Hisashi Igawa, Richard Gere og Toshie Negishi í hlutverkum sinum í Rapsódíu í ágúst sem leikstýrt er af Akira Kurosawa. Háskólabíó Rapsódía í ágúst í leiksljórn Kurosawa HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýn- inga kvikmyndina Rapsódía í ág- úst með Richard Gere, Hisashi Igawa og Toshie Negishi í aðal- hlutverkum. Leikstjóri er Akira Kurosawa. Myndin gerist í Japan og fjallar um fjögur börn sem eyða sumrinu hjá ömmu sinni. í upphafi myndar fær amman bréf frá bróður sínum sem fluttist til Hawaii sem ungur maður. Hann liggur fyrir dauðanum og vill endilega hitta systur sína áður en hann deyr. Gamla konan átti meira en tíu systkini og man ekkert eftir bróður sínum sem fór frá Japan fyrir langalöngu. Barna- börnin gleðjast þó yfir tilhugsuninni um ferð til Hawaii. Amman fer síðan að segja sögur af systkinum sínum og sökkvir sér ofan í minningarnar. Hún minnist eins bróður síns sem byggði sér kofa uppi í fjöllunum og bjó þar með skósmiðskonu sem flýði með honum. Yngri bróðir hennar lokaði sig inni í herberginu sínu og teiknaði augu. Dag einn var hann nærri drukknaður í á þegar honum var bjargað af vatnapúka. Þá minnt- ist hún einnig dagsins sem atóm- sprengjan féll og eiginmaður hennar dó. Barnabörnunum fundust sögur ömmunnar skrítnar, sorglegar og skemmtilegar. Nokkrum dögum síð- ar kom bróðursonur hennar í heim- sókn til hennar en þá var hjarta gömlu konunnar að því komið að springa þar sem hún var á valdi minninganna. Ólafur Benedikt sýnir í Galleríi 11 o g á Laugavegi 22 ÓLAFUR Benedikt Guðbjarts- son hefur opnað sýningar í innra herbergi Gallerís 1 1 og í kaffihúsinu á Laugavegi 22. Þetta eru fyrstu einkasýningar Ólafs hér á landi en hann út- skrifaðist úr Myndlista- og hand- íðaskóla íslands vorið 1988 og hefur unnið að list sinni síðustu fjögur ár. Ólafur hefur sótt framhaldsnám í Kína og hefur verið búsettur undanfarið í París. Ólafur hefur haldið eina einkasýningu erlendis, í Galleria via corso Mazzini, Ost- uni á Suður-Ítalíu, í ágúst 1991. (Fréttatilkynning) Eitt verka Ólafs, Innsiglin fimm, 1991, 171x100 cm. Nýaldarsamtökin Hefja starf að loknu sumarleyfi NÝ ALD ARS AMTÖKIN hefja starfsemi að nýju eftir sumar- leyfi á næstu dögum. Miðillinn Maijory Kite starfar hér frá 24. ágúst til 4. september. Hún býð- ur úpp á skyggnilýsingar, bæna- hringi og einkatíma. Dagana 6.-12. október heldur bandaríski miðillinn Dr. José Ste- vens kynningarnámskeið um Mikael fræði, helgarnámskeið um heilun, orkustöðvar og sköpunar- mátt manna, auk þess sem hann býður upp á einkatíma. Breski miðillinn og teiknarinn Rita Taylor starfar hér frá 12.-23. október. Hún heldur námskeið í árulestri, áruteiknun og heilun. Einnig býður hún upp á einkatíma, þar sem hún teiknar myndir af framliðnum. Margrét Elíasdóttir kennir á nám- skeiði sem hefst 11. september og hún nefnir „Að vekja ljóslíka- mann“. Það er byggt á kennslu- efni miðluðu af bandaríska miðlin- um Sanaya Roman. Guðrún G. Bergmann gengst fyrir námskeiði um sjálfsrækt og hefst það 19. september. Skrif- stofa Nýaldarsamtákanna er að Láúgavegi 66 og þar er tekið á móti bókunum. (Fréttatilkynning) Finnsk listakona sýnir í FIM-salnum Niðjamót að Laugalandi í Holtum NIÐJAMÓT hjónanna Guðfinnu Bárðardóttur og Guðna Odds- sonar frá Hvammi í Holtum verður haldið að Laugalandi í Holtum helgina 21.-23. ágúst. Guðfinna var fædd 27. ágúst 1862 og dó í Hvammi 1941. Guðni var fæddur 22. febrúar 1858 og lést í Hvammi 1934. Þau eignuð- ust alls 9 börn, tvo drengi og 7 stúlkur og af þeim er ein á lífí, nýlega orðin níræð. Afkomendur þeirra hjóna eru orðnir 180 og er þetta í fyrsta skipti sem þeir koma saman á niðjamóti. Á niðjamótinu er ætlunin að minnast forfeðranna með ýmsum hætti og gleðjast saman að Lauga- landi, sem er steinsnar frá Hvammi. Á laugardaginn verður farið í Marteinstungukirkjugarð kl. 15.00 að leiði Guðfínnu og Guðna. Um kvöldið verður sam- eiginlegur málsverður og fjöl- breytt dagskrá. Síðan er ætlunin að syngja og dansa fram á nótt. Um hádegið á sunnudeginum verður m.a. farið í skoðunarferð að Hvammi. Búið er taka saman niðjatal um alla afkomendur þeirra hjóna. Á Laugalandi er bæði hægt að tjalda á ágætu tjaldstæði og gista í svefnpokaplássi. Vænst er þátt- töku sem flestra niðja Guðfínnu og Guðna. LENA Pyyhtiá-Viljanen frá Finnlandi opnar sýningu á olíumálverkum í FÍM-salnum, Garðastræti 6, laugardaginn 22. ágúst kl. 14.00. Lena Pyyhtiá-Viljanen hefur haldið allmargar einkasýningar í Finnlandi og tekið þátt í enn fleiri samsýningum. Hún á verk á söfnum og í opinberum stofn- unum og árið 1991 hlaut hún styrk frá finnska menntamála- ráðuneytinu. Sýning Lenu stendur til mánu- Eitt verka Lenu PyyhtiS-Viljan- en. dagsins 7. september. Opið er alla daga frá kl. 14.00 til 18.00.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.