Morgunblaðið - 21.08.1992, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 21.08.1992, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 21. AGUST 1992 „ Si/O þetta. &r Cirxkcis takan. þitx. L L eikh.Ú£Ínu. (" Með morgnnkaffinu Ast er... .. .að tárast við fjarveru hans. TM Reg. U.S Pat Oft — all rights reserved ® 1992 Los Angeles Times Syndicate ZZ2 7S3 154 Hún er bara sæt dúkka! Við vitum að hann var á leið á grímuball. HOGNI HREKKVISI BREF TIL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 / „Alþing hið nýja“ „ hann br ao /EPa siizkusköst. " Frá Bjarna Valdimarssyni: Hörðum höndum vinnur hölda kind, ár og eindaga. Siglir særokinn, sólbitinn slær stjömuskininn stritar. (Jónas Hallgrimsson) Nú stendur yfir fjárlagagerð. Með ári hverju verður erfíðara að ná endum saman. Ómegð mikil. Afætur margar. „Niðurskurðar- hnífínn" á skrifræðisbáknið. Það sóaði auk alls annars, þrem millj- örðum í tölvur. Reiknigrindur hefðu dugað og bilað minna. Hafíð þið fengið áður greidda innheimtu? I glugga gíró með refsivöxtum og upphæð, sem ekki má breyta? Sambærilega hæfur píanóleikari er reyndi að tjá Chopin, fengi á sig egg og tómata, og yrði borinn út úr eignaríbúð með fógetavaldi af armsterkum lögregluþjónum. Skólastjóri nyrðra telur dagvistun sína þýðingarmeiri, en landið allt og miðin. Hann telur þann vinnu- kraft einan nothæfan, er sætt hef- ur langri innrætingu og heilaþvotti inni á stofnun. Það má Iengi bæta við spamaðarlið. Kerfíð er sprungið. Framleiðslu- getan er langt umfram markaði. Engar sorpur ráða við umbúðafjall- ið. Göfugasta menntun og listrænt innsæi, hafa engan veginn undan að búa til nýjar gerviþarfír. Og auk þess er urmull fjársterkra aðila „í startholunum", að yfirfylla hveija markaðsglufu, er kann að opnast. Þetta ástand er að viðbættu at- vinnuleysi, traust og varanlegt, eins og Esjan. Ekkert mál að tengj- ast Evrópubandalagi. Hlutabréf í fýrirtæki sem rambar, eru oftast föl, á mjög hagstæðum kjörum. Á eftir kreppu kemur visthrun. Verðmætustu fiskstofnar eru í .út- rýmingarhættu, í þrem heimshöf- um. Að falsa aflaskýrslur og um- róta uppeldisstöðvum er regla, frekar en hitt. Hvað gera sannir heiðursmenn, breskir lordar og stangveiðimenn í Elliðaánum í málum dýrastofna? Þeir selja veiðileyfí á gangverði. Banna afkastamikil veiðarfæri og alla umframorku eins og olíu og rafmagn. Takmarka veiðitíma. Áskilja jafnvel notkun gerviflugu er gefur laxi tækifæri til áframlíf- is. Lax og silungur er eina bráðin sem vex og þyngist, eftir að hún er veidd. Öll séríslensk menning er hand- mennt, skinnhandrit, sem ljóð Jón- asar og lög Bjama Þorsteinssonar, að ekki sé talað um burstabæi, hannyrðir og kvenskart. Lokum hagkerfínu hið bráðasta. Skömmt- um gjaldeyri. Bönnum innflutning á fullunninni vöru. Eingöngu vöru- viðskipti við lönd sem selja hrá- efni. Að þessu uppfylltu, frjálsa samkeppni og fullt atvinnufrelsi innanlands, ákvæði um umhverfís- vemd. Einfaldar reglur, engar leyf- isveitingar. Allir eiga að sjá tak- mörk sín sjálfír. Innsiglum vélar í réttri röð. Fyrst þær sem valda mestum umhverfísspjöllum og at- vinnuleysi. Enga íþrótt í þágu gagnsleysis. Það er hollt trimm að skokka með byrði, hlaupa fyrir rollur, elta stygga hesta, róa með ámm til fískjar o.s.frv. Lýsum landið allt og miðin vistvænan þjóðgarð, þar sem maðurinn verður hluti af náttúmnni með „endurnýj- anlegt“ afrán. Þá loksins tækist að vekja áhuga umheimsins á stórri eyju, sem væri eins konar „lifandi Árbæjarsafn". Vísinda- menn fengju áhuga. Þjóðgarðs- gestir kæmur þúsundum saman með fullar hendur fjár, „og Eyjólf- ur tæki að hressast." BJARNI VALDIMARSSON, Reykjavíkurvegi 22, Hafnarfirði. * * A sauðkindin Island? Frá Gunnlaugi Sveinssyni: í APRIL í vor birtist merkileg frétt um nefnd í Ölfusi til stuðnings banni við lausagöngu búfjár. Lesa mátti að nefndin hefði gert áætlun um stöðvun á neyslu lambakjöts í viku til að leggja áherslu á að lausagöngu búfjár yrði hætt. Hér er um tímamótafrétt að ræða. For- vitnilegt væri að vita hvemig til tókst með framkvæmdina. Islendingar hafa því miður snúið sannleikanum við. Þeir sem vilja græða upp ísland verða að girða lönd sín af fyrir sauðfé. Hvers vegna er sauðféð sjálft ekki lokað inni í girðingu? Hvers vegna er eytt stórfé af sameiginlegum tekj- um landsmanna til að girða af gróðurreiti fyrir sauðfé? Á sauðk- indin ísland? Halldór Laxness hef- ur bent á að íslands flóra sé ekki gerð fyrir sauðfjárrækt og á Is- landi eigi ekki að rækta sauðfé — til þess sé „vegitasjón" of lítil og veikburða. Vilji menn endiiega rækta skepnur eins og t.d. mink og sauðfé, á að loka dýrin inni i girðingum eða búrum. Slíkt myndi bæta kjör bláskínandi fátækrar alþýðunnar. Óskandi væri að Ög- mundur Jónasson, sá dugmikli bar- áttumaður, hefði forystu um þetta. Það er landbúnaðaróráðssían sem heldur niðri lífsgæðum í landinu. Eg skora á forystumenn BSR og verkalýðshreyfinguna að taka að sér forystu í því að bijóta á bak aftur landbúnaðarmafíuna sem vill að Island sé rekið sem hirðingja- þjóðfélag. í tilvísaðri frétt sagði: „I Ölfusinu hefur nú nefnd til stuðnings banni við lausagöngu búfjár gert áætlun um átak gegn neyslu lambakjöts í eina viku til að vekja athygli sauðfjárbænda á að nauðsyn sé á að taka tillit til kröfu neytenda um gróðurvernd. Nefndin bendir á að allir þurfi að girða sig af frá kindunum. Þeim sé sleppt út á afrétt þaðan sem þær komast hvert sem er.“ Gaman væri að fá frétt af þessu merka átaki og vonandi sameinast þjóðin öll um að hætta lambakjöts- áti þar til misþyrming íslenskrar náttúru verður stöðvuð. GUNNLAUGUR SVEINSSON rithöfundur Víkverji skrifar Vinkona Víkverja skrapp fyrir skömmu til Tálknafjarðar og flaug til Bíldudals, á vegum ís- landsflugs. Hún ákvað hins vegar að fara með Flugleiðum heim aftur og þá frá Patreksfirði, til að njóta allra þægindanna um borð í nýju Fokker-vélunum, sem margoft hafa verið auglýst. Fargjaldið var um 900 krónum hærra en ferðin vestur hafði kostað, en hún lét það ekki á sig fá, vegna væntanlegra þæginda og öryggis. Mikil varð því undrun hennar, þegar lítil Twin Otter flugvél, merkt Flugfélagi Norðurlands, lenti á flugvellinum á Patreksfírði og var þar komin flugvélin, sem átti að flytja konuna suður á vegum Flugleiða. Þegar konan kom til Reykjavíkur spurðist hún fyrir um það, hveiju það sætti að hún hefði þurft að greiða um 900 krónum meira fyrir ferðina með Flugleiðum, þegar farkostur- inn var svipaður og sá, sem hún fór með vestur á vegum íslands- flugs. Ekki var þjónustunni fyrir að fara um borð, enda fékk hún þau svör, að ekki væri skylda að hafa flugfreyjur í svo litlum vélum. Verðmunurinn fælist enda alls ekki í flugfreyjunni, eða veitingum um borð. Þegar hún var enn ósátt við svörin sagði starfsstúlka Flugleiða, að hún hefði getað spurst fyrir um það, þegar hún keypti farmiðann, hvemig flugvél yrði notuð til ferð- arinnar. Víkveija hefði þótt eðli- legt, að Flugleiðir hefðu tekið að sér upplýsingaskylduna í þessu til- felli, óumbeðið. Og ekki er það síð- ur eðlilegt að fólk greiði lægra fargjald, ef ferðast er með litlum flugvélum, án nokkurrar þjónustu. Það er áhættusamt að standa í útgáfustarfsemi ýmiss konar og hefur margur brennt sig á því. Bæði er hætta á að innihaldið mis- skiljist og eins er fólk ófeimið við að benda á rangfærslur, prentvillur og annað sem mætti betur fara. Nú er Víkveiji allajafna hrifínn af laxi. En þegar hann þarf að velja milli tegundanna „graf lax,“ og „birki reyktur hafbeitar lax“ er ekki laust við að hann fái óbragð í munninn. Hér hefði auðvitað átt að rita „graflax“ og „birkireyktur hafbeitarlax.“ Þessi orðskiptinga- sýki heijar ekki aðeins á físka, svo sem laxa og „krydd síldir", sem einnig hefur sést bregða fyrir, því „smur kæfu“ hefur Víkvetji einnig séð sig knúinn til að leggja sér til munns þrátt fyrir nafngiftina. Geta „útgefendur“ ekki varað sig á þessu? Það fylgir því mikil ábyrgð að skrifa texta sem koma á fyrir augu alþjóðar, hvort sem er á aug- lýsingum eða á miða úr prentvog- um verslana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.