Morgunblaðið - 22.08.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.08.1992, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1992 Ríkisendurskoðun um sölu Þormóðs ramma hf. Jafnræðissjónarmiða var ekkigætt við söluna YFIRSKOÐUNARMENN ríkisreiknings telja brýnt að settar verði með formlegum hætti samræmdar almennar reglur um það hvernig standa skuli að sölu á eignum ríkisins með sama hætti og settar hafa verið reglur um hvernig standa skuli að opinberum innkaupum. Tilefni þeirr- ar athugasemdar er m.a. sala fjármálaráðherra á meirihluta hlutabréfa ríkisins í Þormóði ramma hf. á Siglufirði. í skýrslu Rikisendurskoðunar um rikisreikning 1990 kemur fram að stofnunin telur að almennra jafn- ræðissjónarmiða hafí ekki verið gætt í nægilega ríkum mæli við sölu hlutabréfa í Þormóði ramma hf. Hafí hvorki sala hlutabréfanna né heldur skilmálar og skilyrði fyrir sölunni verið auglýst opinberlega. í skýrslu sinni rekur Ríkisendur- skoðun aðdraganda og sölu hluta- bréfanna í Þormóði ramma hf. Fram kemur að hlutafé ríkisins í fyrirtæk- inu hafi verið 16,5 milljónir kr. í árs- lok 1989. Á árinu 1990 hafi verið ákveðið að breyta 383,5 milljónum kr. af skuldum félagsins við ríkissjóð og Endurlán ríkissjóðs í hlutafé en lán þessi fékk félagið á árunum 1982 til 1983 til að byggja nýtt frystihús. Eftir skuldbreytinguna nam hlutafé ríkisins í Þormóði ramma hf. 399,8 milljónum kr. eða 98,17% af heildar- hlutafé. í desember sama ár var síðan undirritaður samningur milli íjár- málaráðherra og stjóma Þormóðs ramma hf., Drafnar hf. og Egilssíldar hf. um sölu á 58,17% af hlutabréfum ríkissjóðs í Þormóði og sameiningu fyrirtækjanna þriggja. Við sölu hluta- bréfanna var hlutafé Þormóðs ramma hf. fært niður í 150 milljónir kr. og söluverð hins selda hlutar því 87,3 milljónir. Með þessu móti var hlutafé ríkissjóðs í Þormóði ramma hf. fært niður um 264,7 milljónir kr. á árinu 1990. Ríkisendurskoðun minnir á að í skýrslu sinni um sölu hlutabréfanna hafi komið fram að stofnunin teldi verðmæti alls hlutafjár í Þormóði ramma hf. vera á bilinu 250 til 300 milljónir kr. Við sölu bréfanna hafi verðmætið hins vegar verið metið á 150 milljónir. Þá er minnt á það mat Ríkisendurskoðunar í áðumefndri skýrslu að virði hlutafjár í Þormóði ramma hf. eftir sameiningu við hin tvö fyrirtækin væri 421 milljón kr. Til samanburðar því mati er rifjað upp að á síðasta ári hafí 30 milljóna kr. hlutafé verið selt á genginu 2,15 sem svari til þess að heildarhlutafé væri metið á 430 milljónir kr. Ríkisendurskoðun telur að þó svo að í lögum sé ekki að fínna bein fyrir- mæli um hvemig standa skuli að sölu fyrirtækja í eigu ríkissjóðs hafi almennra jafnræðissjónarmiða ekki verið gætt í nægilega ríkum mæli við sölu hlutabréfa í Þormóði ramma hf. Þar komi einkum til að hvorki sala hlutabréfanna né heldur þeir skilmál- ar og skilyrði sem sett vom fyrir sölunni vom auglýst opinberlega. VEÐUR ÍDAGkl. 12.00 Helmild: Veðurstofa íslands (Byggt é veðurspé kt. 16.151 gaar) VEÐURHORFUR I DAG, 22. AGUST YFIRLIT: Skammt suðvestur af Reykjanesi er 990 mb lægð sem mun þokast suðsuðvestur og grynnast, en 1.020 mb hæð yfir Norður-Græn- landi. Um 300 km vestur af frlandi er vaxandi 1.005 mb lægð sem hreyf- ist norður og síðar norðvestur. SPÁ: Austlæg átt, víðast katdi og skýjað. Súld eða skúrir um sunnan- og austanvert landið en annars þurrt að mestu. Hiti 7-15 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAQ OG MÁNUDAG: Austgn- og norðaustanátt, talsverður strekkingur og rigning um norðanvert landið, en mun hægari syðra og allvíða skúrir, Fremur svalt. Svarsími Veðurstofu fslands - Veðurfregnir: 990600. O tik & & Skýjað Alskýjað V ^ V Skúrir Slydduél Él Heiðskírt Léttskýjað r r r * / * / r * r r r r r * r Rigning Slydda Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindsfyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka 5tig FÆRÐA VEGUM: 00.17.30 ígær) Allir helstu vegir um landið eru greiðfærir. Vegna vegagerðar má búast við umferðartöfum á Hafnarfjarðarvegi, á milli Engidals og Flatahrauns, fram yfir helgi. Vegna ákeyrslu hefur brú á Jökulsá á Dal, við Brú, lok- ast um ófyrirsjáaniegan tíma. Vegfarendum er bent á Norðausturveg. Brú yfir Norðfjarðará hefur verið opnuð smærri bílum en stórum bílum er fært á vaði. Fjallabílum er fært um allar leiðir á hálendinu. Athygli má þó vekja á að vegur um sunnanverðan Sprengisand er orðinn mjög gróf- ur og seinlegur yfirferðar. Uxahryggir og Kaldidalur eru opnir allri um- ferð. Ferðalangar eru hvattir til að leita sér nánari upplýsinga um færð áður en lagt er af stað í langferð til að forðast tafir vegna fram- kvæmda. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91- 631500 og á grænni llnu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA kl. 12.00 í UM HEIM ísl. tíma h'rtl veður Akureyri 12 rigning Reykjavík 12 skúr Bergen 18 skýjað Helsinki 13 alskýjað Kaupmannahöfn 17 rigning Narssarssuaq 8 léttskýjað Nuuk vantar Ósló 18 skýjað Stokkhólmur 18 léttskýjað Þórshöfn 13 skúr Aigarve 24 léttskýjað Amsterdam 21 mlstur Barceiona 27 léttskýjað Beriín 22 skúr Chicago 11 heiðskirt Feneyjar 31 þokumóða Frankfurt 23 skýjað Glasgow 1S skýjað Hamborg 17 skúr London 21 skýjað LosAngeles 18 heiðskírt Lúxemborg 20 skýjað Madríd vantar Malaga 32 léttskýjað Mailorca 28 léttskýjað Montreal 13 léttskýjað NawYork 17 heíðskírt Orlando 23 þoka Parls 20 skýjað Madelra 23 skýjað Róm 28 heíðskfrt Vín 31 léttskýjað Washington 19 léttskýjað Winnipeg 8 léttskýjað Póstur og sími Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir Ingólfur þrifinn Þær Marsibil Sæmundsdóttir og Hrönn Harðardóttir hafa það verk- efni með höndum í sumar að þrífa og bóna styttur í Reykjavík á veg- um Ásmundarsafns. Þær segja að nóg hafi verið að gera, enda eru þær búnar að þrífa 40-50 styttur í sumar. Skemmtilegasta verkefnið fannjt þeim að þrífa styttuna af Ingólfi Arnarsyni, enda segja þær að hann hafi ekki verið mjög skítugur. Styttur við mestu umferðargöt- urnar séu hins vegar afar óhreinar. Lagning sæstrengs rétt á eftir áætlun LAGNINGU sæstrengs umhverfis landið á að Ijúka upp úr miðjum september, að sögn Páls Jónssonar, tæknifræðings og umsjónarmanns með lagningu sæstrengsins. Síðastliðinn sunnudag varð að hverfa frá lagningu í Hvalfirðinum vegna veðurs. Þess vegna og einnig vegna byrjunarörðugleika er verkið nú einum til tveimur dögnm á eftir áætlun. Aætlun hljóðar upp á einn streng á dag og hver þeirra er vanalega í kringum fjórir til fimm kílómetrar. Páll segir að ef það takist að leggja tvo strengi einn daginn verði þeir aftur komnir á áætlun. „í byijun reyndist erfítt að halda skutnum á skipinu föstum. Skipið var viðkvæmt fyrir hliðarvindi, sem virðist vera algengur í þessum fjörðum en Bret- arnir, sem sjá um verkið, stungu upp á nokkrum lagfæringum og þetta er komið í lag núna,“ sagði Páll. „Strengurinn var keyptur ásamt lagningu hans í nokkra fírði og kapalframleiðandinn fékk fyrir sig undirverktaka, sem sér um að setja hann niður. Upp úr miðjum septem- ber verður búið að leggja það, sem samið var um við Bretana. Eftir það þá þurfum við að leggja sjálfír nokkra strengi, meðal annars í Ham- ars- og Álftafírði fyrir austan, Gils- firði og Tálknafirði á Vestfjörðum. Samningurinn við þessa aðila hljóðar upp á um það bil 200 milljónir. Þeg- ar þessu er lokið verður búið að leggja ljósleiðara umhverfís allt land- ið og í lok næsta árs er áætlað að búið verði að koma upp búnaði við alla strengina svo hægt sé að taka þá í notkun." Töf á hafnarfram- kvæmdum á Húsavík Húsavfk. MIKLAR hafnarframkvæmdir voru fyrirhugaðar á Húsavík á þessu sumri sem felast I því að reka niður stálþil og þar með breikka Norðurgarðinn og svo að dýpka höfnina. Vel hefur gengið að reka niður stálþilið en dýpkunin hefur ekki tekist með þeim tækjum, sem til var ætlast. Verktakinn Hagvirki/Klettur hefur séð um að reka niður stálþil- ið en til dýpkunar hafnarinnar var samið við Dýpkunarfélagið hf. á Siglufírði. Nú hefur komið í ljós að tæki þau, sem nota átti, dugðu ekki til að vinna á hörðum botni hafnarinnar og gæti orðið sprengja hann upp. Málið er nú í frekari athugum hjá viðkomandi aðilum og ekki vitað hver lausnin verður, en þetta nýja viðhorf hefur orðið til þess að tefja framkvæmdimar. - Fréttaritari Píló við bæna- stund páfa HÓPUR frá kaþólska ungmenna- félaginu Píló var viðstaddur bænastund páfa í sumarhöll hans á Ítalíu fyrir skömmu. í ávarpi sinu óskaði páfi hópnum frá Reykjavík velfamaðar. Unglingamir sautján komu til sumarhallar páfa þann 15 ágúst sl. Páfí hefur tekið fyrir allar heimsókn- ir vegna veikinda og gat hópurinn þess vegna ekki fengið einkaáheym. Hins vegar fengu íslensku ungmenn- in að vera viðstödd bænastund páfa í litlum hallargarði ásamt nokkrum öðmm pílagrímum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.