Morgunblaðið - 22.08.1992, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐJÐ, LAUGARDAGUR 22- ÁGÚST 1992
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
★
*
*
*
SPECTRal hecoRDING .
nni DOLBYSTEREO iBffl
16 500
STEPHEN KING STEPHEN KING STEPHEN KING
í A og B sal
NÁTTFARAR
T E P H\E\NV k I N G'
SANNKALLAÐUR SUMARHROLLUR!
1 NÝJASTA HROLLVEKJA
« STEPHENS KING.
* - SKUGGALEG!
Sýnd kl. 5, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
OÐURTIL
HAFSINS
Sýnd kl. 9.
Bönnuði. 14ára.
BORN NATTURUNNAR
Sýnd kl. 7 í A-sal,
sýnd kl. 5 f B-sal.
ENGLISH SUBTITLE KL. 5.
HNEFALEIKAKAPPINN
Sýnd kl. 11.15. b.í.16.
INGALO
Sýnd kl. 7.05.
ENGLISH SUBTITLE
Gammar leika á Púlsinum á sunnudagskvöld.
GAMMAR A PULSINUM
DJASSHLJÓMSVEITIN Gammar heldur tónleika á Púls-
inum nk. sunnudagskvöld, 23. ágúst.
Tónleikamir eru haldnir í
tilefni af útgáfu á nýjum
geisladisk hljómsveitarinnar.
Geisladiskurinn heitir „Af
Niðafjöllum" en áður hafa
komið út tvær hljómplötur
með hljómsveitinni.
Gammar hafa verið starf-
andi með hléum frá 1980.
Meðlimir hljómsveitarinnar
eru Bjöm Thoroddsen gítar-
leikari, Stefán S. Stefánsson
saxófónleikari, Þórir Bald-
ursson píanóleikari, Bjarni
Sveinbjörnsson bassaleikari,
Halldór Hauksson trommu-
leikari og Marteen van der
Valk ásláttarhljóðfæraleik-
ari.
Hljómleikarnir hefjast ki.
22.00.
(Fréttatilkynning)
Kór Öldutúnsskóla vel tek-
ið á listahátið í Aberdeen
Kór Öldutúnsskóla syngur í Mitchell Hall 11. ágúst sl.
KÓR Öldutúnsskóla tók
þátt í alþjóðlegri listahátið
æskufólks í Aberdeen sem
haldin var dagana 5.-15.
ágúst sl. Kórinn, sem hélt
bæði sjálfstæða tónleika og
kom fram með öðrum, hlaut
mjög góðar viðtökur og
fékk lofsamlega umfjöllun
í dagblöðum. Söngur kórs-
ins var tekinn upp af BBC-
útvarpsstöðinni og kom
kórinn einnig fram í sjón-
varpi.
Að sögn Egils Friðleifsson-
ar, stjómanda kórsins, var
kómum geysilega vel tekið
og margt skemmtilegt dreif á
daga hópsins á listahátíðinni.
Egill nefndi sem dæmi að
kórinn hefði komið nokkrum
dögum eftir setningu hátíðar-
innar og þegar hópurinn hefði
mætt í fyrsta skipti til morg-
• unverðar hefðu allir í matsaln-
um staðið upp og sungið fyrir
hann íslenska þjóðsönginn.
En þess má geta að á hátíð-
inni voru 20 hópar frá 14
löndum.
Einn af þessum hópum var
Saiga-ballethópurinn frá Jap-
an. Egill sagði að kórinn hefði
fylgst með sýningu hjá þess-
um hópi á afmælisdegi Tosh-
iko Saiga, stjómanda hans.
Saiga, sem varð sextug þenn-
an dag, dansaði hlutverk í
sýningunni. Egill sagði að á
eftir sýninguna hefði kórinn
fært Saiga blóm og plötu í
tilefni dagsins og sungið fyrir
hana á japönsku.
Þijátíu stúlkur tóku þátt í
þessari ferð kórs Öidutúns-
skóla. Að sögn Egils hélt kór-
inn bæði sjálfstæða tónleika
og kom fram með öðrum.
Einnig söng hann með hátíða-
kór listahátíðarinnar og tók
þátt í ýmiss konar uppákom-
um á götum úti og á listasöfn-
um.
Tónleikar sem kórinn hélt
í Mitchell Hall, hátíðasal há-
skólans í Aberdeen, ásamt
Strasbourg Conservatoire
Chamber Orchestra voru
teknir upp af ÖBC-útvarps-
stöðinni og fluttir á rás þijú.
Einnig kom kórinn fram í
sjónvarpi. Kórinn fékk lof-
samlega umfjöllun í dagblöð-
um, t.d. sagði gagnrýnandi
blaðsins Press and Journal
eftirfarandi: „Aðalsmerki
þessa kórs var hve svífandi
sópraninn og djúpur altinn
sungu af frábæru öryggi
furðulega flókin verk, ef haft
er í huga aldur söngvaranna.“
Egill benti á í þessu samhengi
að á verkefnaskrá kórsins
væm samtímaverk eftir bæði
íslensk og erlend tónskáld en
það væru sárafáir bamakórar
sem fengjust við slík verk.
Egill sagði að kórinn hefði
jafnframt á þessari listahátíð
fengið boð um þátttöku á
kóramótum víða um heim, t.d.
á Filippseyjum, í Tyrklandi,
og Frakklandi.
Þetta var í 19. skipti sem
þessi listahátíð æskufólks var
haidin í Aberdeen og sagði
Egiil að stöðugur stígandi
væri í umsvifum hennar.
Hann sagði að þetta væri
ekki í fyrsta sinn sem íslensk-
ur hópur tæki þátt í listahátíð-
inni. Hamrahlíðarkórinn og
Strengjasveit Tónlistarskól-
ans í Reykjavík hefðu sótt
hátíðina heim og hefði kór
Öldutúnsskóla notið þess góða
orðs sem hinir hópamir hefðu
getið sér.
Á hátíðinni komu fram leik-
hópar, kórar og hljómsveitir
sem fluttu klassíska tónlist
og djass. Einnig komu fram
danshópar sem sýndu ballet,
þjóðdansa og nútímadans.
Egill sagði að á kvöldin eftir
tónleika hefðu hópamir sam-
einast og sungið, spilað og
dansað. Hann sagði að þessar
stundir hefðu verið stórkost-
legar og ógieymanlegar.
STÆRSTA BIOIÐ ÞAR SEM
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS
HASKOLABIO SÍMI22140
iwaigai iia «.'Bi
Nýjasta meistaraverk japanska snillingsins AKIRA KUROSAWA.
Myndin keppti um GULLPÁLMAIMN í CAIMIMES 1991.
Umsagnir: „Hrífandi, fyndin og hugljúf."
„Hreinskilin og stórkostleg mynd.“
Aðalhlutverk: SACHICO MURASE, HIDETAKA YOSHIOKA, RICHARD
GERE, TOMOKO OHTAKARA og MIE SUZUKI.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
FRUMSYIMIR TRYLLIIMIM
ÁSTRÍÐUGLÆPIR
SEAIM YOUIMG OG PATRICK
BERGIN í EINUM MEST EGGJ-
ANDI TRYLLI ÁRSINS.
HANN NÆR ALGJÖRU VALDI
Á FÓRNARLÖMBUM SÍNUM.
HANN ER DRAUMSÝN ALLRA
KVENNA.
HANN ER MARTRÖÐ HVERR-
AR KONU.
Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05.
Bönnuð innan 16 ára.
W ýf ýf -ýt /\ | Mbl. * * * * GAMANMYNDSUMARSIMS
GRÍN, SPENNA, SVIK OG * * * * Bíólínan F.l. BÍÓLÍIMAN.
PRETTIR’ Synd kl. 5, 7.30 og 10. Sýndkl. 5.05, 7.05,9.05
Synd kl. 5.05,7.05, 9.05 og 11.05. og 11.05.
Metsölub/aó á hverjum degi!