Morgunblaðið - 22.08.1992, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIf) LAUGARDAGUB 22. ÁGÚST 1992
27
Minning
Anna S. Guðmunds-
dóttir frá Lambanesi
Fædd 7. nóvember 1908
Dáin 13. ágúst 1992
Anna móðursystir mín fæddist á
morgni þessarar aldar, má segja.
Þá var aðeins tekið að rofa til.
Framfarir að ryðja sér rúms. Hillti
undir frelsi og fullveldi. Enn var
þó allt unnið með gömlu handverk-
færunum í sveitum þessa lands og
lítið um að unglingar nytu fram-
haldsnáms. Barnaskólinn látinn
nægja, og varla það. Farkennsla
algengust í sveitum. Sá sem þetta
ritar, og er fæddur á þriðja áratug
þessarar aldar, naut aðeins stopull-
ar farkennslu. Kona sú, sem ég
minnist hér við leiðarlok hennar hér
í heimi, sat ekki lengi á skólabekk.
Lífið beið hennar strax að lokinni
fermingu með skyldum sínum og
önn dagsins.
Hún fæddist í Skollatungu í
Gönguskörðum í Skarðshreppi, ná-
lægt Sauðárkróki, hinn 7. nóvember
1908, og var skírð Anna Sigríður
af sóknarprestinum, síra Árna
Bjömssyni á Sauðárkróki. Voru for-
eldrar Önnu hjónin Guðmundur
Þorleifsson og Lilja Kristjánsdóttir,
sem þá bjuggu búi sínu í Tungu,
en höfðu flust þangað fyrir skömmu
frá Heiðarseli, nú Dalsá, sem verið
hefur í eyði lengst af síðan. Anna
var áttunda bamið sem þeim fædd-
ist. Síðar fæddust þeim tvö börn.
Er nú Sigurlaug húsfreyja í Þor-
lákshöfn ein á lífí af þessum mörgu
systkinum. Anna ólst upp í Tungu,
en fór snemma að vinna utan þess
heimilis. Hún var í farskóla í Stað-
arhreppnum og var fermd frá Sauð-
árkrókskirkju, af síra Hálfdani Guð-
jónssyn prófasti i fyllingu tímans.
Sá ágæti kennimaður skírði mig,
er ég var rétt eins árs gamall. En
það er önnur saga.
Anna dvaldi um skeið á æsku-
heimili mínu sem unglingur, og man
ég hvað við systkinin, og raunar
öll á bæhum Sneis á Laxárdal,
hörmuðum burtför hennar. Ég og
systir mín grétum hástöfum, þegar
hún fór frá okkur, við vissum ekki
hvert, en mun hafa verið norður í
Skagafjörð. Anna var alltaf svo létt
í lund og lífgaði upp á heimilislífið.
Örlög Önnu réðust, er hún hélt
norður í Fljót, en þangað höfðu
foreldrar hennar flust árið 1927,
ásamt Sigurjóni syni sínum. Hún
réðist sem kaupakona og ráðskona
að Lambanesi 1930. Þau Anna og
Gunnlaugur Kristjánsson, ungur
bóndasonur á bænum, felldu hugi
saman og hófu sambúð það ár.
Bjuggu þau þar síðan félagsbúi með
Valgarði, bróður Gunnlaugs, þar til
Auður Agnes Sigurð-
ardóttir - Minning
Aðfaranótt föstudagsins 14. ág-
úst lést á heimili sínu í Reykjavík
Auður Agnes Sigurðardóttir, en
Auður var fædd þann 10. mars
1942. Með fáeinum orðum langar
mig að minnast Auðar, með hjart-
ans þökk fyrir góð kynni og samver-
una síðustu árin.
Ég kynntist Auði sem eiginkonu
Sigga Johnie, en hann hefur verið
okkar traustasti heimilisvinur í
meira en 30 ár. Ég rifja upp í hug-
anum þær góðu stundir sem við
áttum saman í Fuglavík, en þar
undu þau sér vel Siggi og Auður í
barnslegum leik i fijálsri náttúru.
Auður var hæglát og sönn í fram-
komu, en það var stutt í glettni sem
oft brá fyrir í augum hennar.
Elsku Siggi minn, það er dýr-
mætt að eiga fagrar minningar, þær
ylja örugglega, það er auðlegð sem
enginn getur tekið frá manni.
Hvað er hel?
Öllum líkn, sem lifa vel,
engill, sem til lífsins leiðir,
ljósmóðir, sem hvflu breiðir.
Sólarbros, er birta él,
heitir hel.
Þögla gröf,
þiggðu duftið, þína gjöf.
Annað er hér ekki’ að trega,
andinn fer á munarvega,
þekkir ekki þína töf,
þögla gröf.
Eilíft líf,
ver oss huggun, vöm og hlíf,
líf í oss, svo ávallt eygjum
æðra lífið, þó að deyjum.
Hvað er allt, þá endar kíf?
Eilíft líf. (Matthías Jochumsson.)
Góður Guð bjessi minningu Auð-
ar. Við Steini, Óli og Danni vottum
Sigga og öllum ástvinum dýpstu
samúð og biðjum um blessun og
styrk þeim til handa.
Anna Heiðdal.
Ég vildi minnast nokkrum orðum
kynna okkar hjóna af Auði, sem
andaðist skyndilega 14. þ.m. langt
fyrir aldur fram. Er ég var í 50 ára
afmæli Auðar 10. mars í vor leyndi
sér ekki gleði og hamingja Auðar,
er ættingar og vinir sóttu hana
heim af þessu tilefni. Hún giftist
heimilisvini okkar til fjölda ára, Sig-
urði J. Þórðarsyni, og var það til
sýnilegrar hamingju í lífi hans.
Hjónaband þeirra virtist gera Sig-
urð að nýjum og betri manni, þar
sem hann gat aftur farið að nota
hæfileika sína sem skemmtikraftur,
en eins og alþjóð veit er Sigurður
frábær söngvari og er framkoma
hens í sjónvarpsþættinum „Manstu
gamla daga“ þar sem hann ljómaði
af lífsgleði lýsandi dæmi.
Það er skemmst að minnast nær-
veru þeirra hjóna í brúðkaupi dóttur
okkar 18. júlí sl. er Sigurður
skemmti og Áuður stjórnaði hljóm-
flutningi. Það var víðs fjarri að
okkur óraði fyrir því að þetta yrði
síðasta skiptið sem við sæjum Auði.
Við vottum ættingjum og ástvinum
Auðar okkar dýpstu samúð.
Sæm. Pálsson og fjölskylda.
Lífið er óráðið, enginn veit sína
ævi fyrr en öll er. Þegar okkur
barst sú harmafregn að Auður
Agnes hefði látist 14. ágúst setti
okkur hljóð yfir svo snöggum og
ótímabærum endi á lífi hennar. Við
kynntumst Auði í gegnum félag
sem við erum aðilar að. Þar tjáði
hún sig af einlægni, hreinskilni og
góðum vilja og lét gott af sér leiða.
Við kveðjum Auði með þessum fá-
tæklegu orðum. Góður Guð blessi
minningu hennar og veiti öllum
ástvinum hennar styrk í sorg sinni.
Guð gefí mér æðruieysi til þess að sætta
mig við það, sem ég fæ ekki breytt, kjark
til að breyta því sem ég get breytt og vit
til þess að greina þar á milli.
Snorri og Sigga.
þau seldu og fluttust til Siglufjarð-
ar. Keyptu lítið hús við Hvanneyrar-
braut 15. Þar fór vel um þau. Því
miður fór heilsu Önnu ört hrakandi
allra síðustu árin, og Gunnlaugur
missti sjónina fyrir níu árum. Nú
sér hann á bak ævifélaga sínum
um meira en sex áratugi, sem
reyndist honum og Lambanesheim-
ilinu með ágætum.
Ég hefi á öðrum stað skrifað um
Lambnesheimilið, sem ég tel að
hefi verið einstakt. Þar sat gestrisn-
in alltaf í fyrirrúmi alla tíð. Anna
átti þar ekki smáan hlut að máli.
Segja mátti, að Lambanes væri eins
og hótel yfir sumarmánuðina. Ætt-
bogi mannsins hennar er stór, og
vöndu ættingjarnir og ótal margir
aðrir gjarnan komu sínar að Lamba-
nesi. Eg man eftir mörgum þeirra,
því að ég hélt til á þessum bæ á
æskuárum, er ég hóf nám í bama-
skóla, svo og er ég stundaði veg-
vinnu um tvítugsaldur. Mér er í
minni glaðværð þessa heimilis og
áhyggjuleysi. Þar var aldrei svo
mörgu að sinna, að eigi væri tími
til að taka á móti gestum. Bræðum-
ir, Valgarð og Gunnlaugur, og hún
Anna frænka, skemmtu sér með
fólkinu. Auðvitað varð heimili þetta
eigi ríkt af veraldarauði við þetta,
síður en svo, en allt komst af. Og
mikla innstæðu átti Lambanesheim-
ilið í hugum gestanna. Anna annað-
ist með sóma aldraðan föður bræðr-
anna í Lambanesi, hann Kristján
Jóhann Jónsson, sem varð 104 ára,
fjögurra mánaða og eins dags.
Hann kaus líka að una þar til enda-
dægurs. Fyrir það var hann henni
óendanlega þakklátur.
Anna Sigríður var meðalkona á
vöxt, ljóshærð og bjartleit. Hún var
létt í spori jafnan og glöð í lund.
Slíkum verður lífsgangan eigi erfið.
Samband hennar við lífsförunaut-
inn varð farsælt og langt. Hún kom
að Lambanesi Alþingishátíðarárið
og kveður nú fólk og Frón undir
aldarlokin. Kvödd er hún frá Siglu-
fjarðarkirkju og jarðsett þar í bæ.
Öll verðum við fyrr eða síðar að
gjalda gjöf lífsins. f huga mínum
geymi ég bjarta mynd af henni
Önnu frænku, og slíkt munu allir
þeir gera, sem af henni höfðu kynni,
og þeir voru margir. Veri Ánna
mín blessuð og hafí hún þökk fyrir
allt. Og Gunnlaugur minn. Guð al-
máttugur huggi þig í þínum mikla
söknuði eftir ástvininn. Minning
hennar lýsir þér á leiðarenda.
Auðunn Bragi Sveinsson
frá Refsstöðum.
Anna Guðmundsdóttir, fyrrum
húsmóðir í Lambanesi í Fljótum,
andaðist í Siglufjarðarspítala 13.
þ.m.
Gamall og gróinn vinskapur var
með fjölskyldu minn og Lambanes-
ELÍAS B. Halldórsson opnaði
málverkasýningu í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, Iaugardaginn 15.
ágúst sl.
Á sýningunni eru 46 olíumálverk
sem flest öll eru unnin á siðastliðnu
ári. Sýningin stendur til 31. ágúst
og er opin alla daga nema þriðju-
daga frá kl. 12-18. Á fimmtudögum
■ SAMKVÆMT dagatali Kola-
portsfólks er sunnudagurinn 23.
ágúst fyrsti sunnudagur' á hausti því
þá verður Kolaportið aftur opið á
sunnudegi eftir hlé yfir hásumarið.
Þennan dag verður sérstakur
„grænn dagur“. Markaðstorgið
verður þá sérstaklega tileinkað öllum
jákvæðum þáttum vistfræða og um-
hverfismála. „Ætlunin er að líta á
björtu hliðamar á málunum, bregða
sér á leik með framtíðarsýnir, breytt
viðhorf og þá byltingu í lífsviðhorfum
sem við erum að ganga í gegnum í
náinni framtíð. Allur barlómur verð-
fólkinu, frá gamalli tíð, þegar við
áttum sumarhús þar rétt við
túngarðinn og ég dvaldi þar ein
fimm sumur með börnin mín. Oft
var glatt á hjalla, ekki síst á kvöld-
in, þegar allir settust í eldhúsið hjá
Önnu og spjallað var um heima og
geima. Og aldrei þraut kaffið á
könnunni og þá var Anna glöðust
þegar sem flestir gestir voru saman
komnir hjá henni.
Gestrisnin var í hámarki á þeim
bæ og átti Anna svo sannarlega
sinn þátt í því. Eftir að annar bróðir-
inn, Valgarður, lést skyndilega af
slysförum og aldur færðist yfir
Önnu og Gunnlaug, brugðu þau búi
og fluttu til Siglufjarðar. Alltaf var
komið við hjá Önnu og Lauja þegar
farið var til Sigluljarðar og alltaf
var jafnvel tekið á móti okkur.
Að leiðarlokum þakka ég Önnu
alla þá vinsemd sem hún sýndi okk-
ur og drengjunum mínum þegar
þeir voru hjá henni í sumardvöl,
slík vinátta er ógleymanleg.
Ég og fjölskylda mín sendum
Gunnlaugi okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur og biðjum guð að taka
við sál þessaray góðu konu.
Ágústa Ragnars.
er opið til kl. 21.
í Sverrissal sýna færeysku lista-
konumar Astrid Andreassen, Guðr-
ið Poulsen og Tita Vinter textílverk
og keramik. Sýningin stendur til
24. ágúst.
í kaffistofu sýna Súsanna Christ-
iansen og Einar Már Guðvarðarson
skúlptúra unna úr grásteini, sand-
steini og marmara. Sýningin stend-
ur til 31. ágúst.
ur bannaður og lögð áhersla á betra
líf og skemmtilegra umhverfi. Stofn-
anir, félagasamtök, fyrirtæki og ein-
staklingum gefst tækifæri á að
kynna í Kolaportinu jákvæð mál á
þessu sviði, hvort sem um er að
ræða hugmyndir, vörur, þjónustu,
upplýsingar eða eitthvað allt annað.
„Grænum“ málum má svo skipta í
alls konar undirflokka eins og vist-
vænar vömr, endumýtingu, mann-
rækt, mengunarvamir, orkusparnað,
náttúmvemd, landgræðslu og ótal
margt fleira.“
(Úr fréttatilkynningu)
Hafnarborg
Elías B. Halldórsson
sýnir olíumálverk
GÓMSÆT1R RlTTIR
★ Grillaður svínahryggur m
m/bakaðri kartöflu og salati Kr. sa,Q«”
★ Grillað lamba innra læri *7Cf|
m/bakaðri kartöflu og salati Kr. /OU."
★ Grillaðar lambakótelettur c|«n
m/bakaðri kartöflu og salati Kr. ÖUU.“
★ pítur með úrvali af fyllingum
★ Hamborgarar
★ Samlokur
Opnunartirró