Morgunblaðið - 06.10.1992, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1992
Gestir við opnun stofnunarinnar
skoða húsakost á Sogni.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Ráðherrarnir Sighvatur Björgvinsson og Þorsteinn Pálsson gróðursetja nokkrar trjáplöntur af 500,
sem hjónin Guðmundur Þórðarson og Hrefna Kjartansdóttir gáfu stofnuninni.
Vistheimilið á Sogni tekið í notkun
Fyrstu vistmenn koma á morgun
Ríkisspítölunum falið að annast geðlæknisþjónustu við fangelsin í landinu
Selfossi.
STJÓRN Ríkisspítalanna hefur verið falið að annast geðlæknisþjón-
ustu við fangelsin í landinu, Litla Hraun og önnur fangelsi. Þetta
kom meðal annars fram í máli Sighvats Björgvinssonar heilbrigðis-
ráðherra í gær er hann opnaði formlega meðferðarheimilið á Sogni
í Ölfusi. Tómas Helgason yfirlæknir á Kleppi sagði í gærkvöldi að
hann hefði enga pappíra séð þess efnis að Rikisspítalar ættu að sjá
um geðlæknisþjónustu við fangelsi.
Geðlæknir hefur ekki verið ráð-
inn í fasta yfirlæknisstöðu við
Sjúkrahús Suðurlands eins og
áformað var en stefnt er að því að
það verði gert. Lækninum í þeirri
stöðu verður falið að þjóna Sogni
og Litla Hrauni ásamt því að sjá
um almenna geðlæknisþjónustu við
Suðurland. Þangað til ráðið verður
í starfið mun Sigmundur Sigfús-
son, yfirgeðlæknir á Akureyri,
þjóna meðferðarheimilinu á Sogni.
Fyrstu vistmenn heimilisins á
Sogni koma þangað á morgun,
miðvikudag, og starfsemin þar með
heíjast á heimilinu. Bogi Melsteð
geðlæknir mun fylgja þeim vist-
mönnum sem koma frá Svíþjóð og
vera á Sogni með þeim í tvær vik-
ur. „Ég er mjög ánægður með að-
stöðuna hér á Sogni, hún er til
fyrirmyndar hvað öryggi snertir og
á allan hátt,“ sagði Bogi um hvem-
ig til hefði tekist.
Heilbrigðisráðherra sagði í
ávarpi að það væri neyðarlausn að
leita til annarra landa með vistun-
arúrræði fyrir geðsjúka afbrota-
menn. Markmiðið væri að geta
sinnt sjúklingunum í góðu um-
hverfí í þeirra eigin landi. Ráðherra
kvaðst vonast til þess að ráðin
væri bót á geðlæknisþjónustu við
íslensk fangelsi með því að stjóm
Ríkisspítalanna hefði verið ritað
bréf og spítölunum falið að taka
að sér alla geðlæknisþjónustu við
fangelsin í landinu.
Kostnaður við uppbygginguna á
Sogni nemur 86 milljónum króna.
Áætlaður rekstrarkostnaður er
rúmar 68 milljónir en sjö vistmenn
geta dvalið á Sogni í einu. í máli
ráðherra kom fram að kostnaður á
hvem sjúkling sem vistaður væri
erlendis næmi 12 milljónum króna
á ári.
Sig. Jóns.
Charles Cobb fyrrv. sendiherra í viðræðunefnd Kaiser um nýtt álver
Island á góða möguleika
á að verða fyrir valinu
CHARLES Cobb, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, seg-
ir að eigendur bandaríska álfyrirtækisins Kaiser Aluminium Corporati-
on séu nánast staðráðnir í að reisa nýja álverksmiðju og að ísland eigi
góða möguleika á að verða fyrir valinu. Cobb starfar nú meðal annars
sem ráðgjafi fyrir Kaiser Aluminium varðandi staðsetningu nýs álvers
og sagði hann í samtali við Morgunblaðið í gær að hann kæmi til fs-
lands 19. þessa mánaðar ásamt fulltrúum Kaiser til könnunarviðræðna
við íslensk stjórnvöld. Sagði hann að um væri að ræða ny'ög mikilvæg-
an fund og að allir helstu yfirmenn fyrirtækisins kæmu til viðræðnanna.
Landsvirkjun
um Fljótsdalslínu
Byggða-
línuleið
450 millj.
kr. dýrari
LANDSVIRKJUN telur það ekki
hagkvæman kost að leggja Fljóts-
dalslínu meðfram byggðalínu, en
þeir sem staðið hafa fyrir undir-
skriftaherferð og mótmælt svo-
nefndri E-leið, hafa bent á
byggðalínu sem hagkvæmasta
kostinn. Að sögn Þorgeirs Andrés-
sonar, yfirverkfræðings á linu-
deild Landsvirkjunar, yrði kostn-
aður við að leggja Fljótsdalslínu
meðfram byggðalínu 450 miHjón-
um kr. hærri en að leggja hana
samkvæmt E-leið, það er að segja
sunnan Þríhyrningsvatns.
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu hafa sveitarstjómir Skútu-
staðahrepps og Jökuldalshrepps aug-
lýst skilafrest á athugasemdum
vegna E-leiðar til 16. október.
' Halldór Jónatansson, fram-
kvæmdastjóri Landsvirkjunar, sagði
að ekki væri hægt að taka afstöðu
til þeirra mótmæla sem nú þegar
hefðu komið fram vegna E-leiðar,
fyrr en skilafresturinn væri á enda.
Það væri enda i verkahring skipu-
lagsstjómar ríkisins og umhverfis-
málaráðherra að meta athugasemd-
imar og hvort þær gæfu tilefni til
breytinga eða ekki. „Við teljum ekki
heppilegt að leggja línuna meðfram
byggðalínu," sagði Halldór.
Þorgeir Andrésson yfirverkfræð-
ingur á línudeild Landsvirkjunar
sagði að umsögn sveitarstjómar
Skútustaðahrepps væri á þá lund að
hún legðist alfarið gegn lagningu
Fljótsdalslínu meðfram byggðalínu
og A-leið.
„Það voru aðallega þijár leiðir til
umræðu, svokölluð A-leið, sem liggur
sunnan Herðubreiðartagla og norðan
við Öskju, E-leið, sem liggur norður
fyrir Herðubreiðarfjöll, og byggða-
línuleiðin. Byggðalínuleið er svipuð
að vegalengd og E-leiðin, en þó þann-
ig að ef byggðalínuleið er farin leng-
ist Sprengisandslínan, þ.e. Búrfells-
lína 4, sem er hluti af þessu heildar-
dæmi, um 30 km. Tenging þeirrar
línu við Fljótsdalslínu 1 ef valin yrði
byggðalínuleið yrði 30 km norðar í
Bárðardal. Kostnaðarauki af því yrði
um 450 milljónir kr.,“ sagði Þorgeir.
Hann sagði að E-leiðin væri 11
km lengri en A-leiðin. Um 40 km
munaði á byggðalínu og A-leið og
kostnaðarmunurinn væri um 600
milljónir kr.
Þorgeir sagði að það væri rétt að
ekki hefði orðið bilun á byggðalínu
síðustu árin. Það væri samt ömggara
að leggja línuna inni á hálendinu
vegna betra veðurfars þar en nær
ströndinni. Auk þess væri það ódýr-
ara og það væri lausn sem sveitar-
stjóm Skútustaðahrepps teldi sig
geta fallist á.
Charles Cobb starfaði um tíma
sem aðalfjármálaráðgjafi Kaiser Al-
uminium áður en hann varð sendi-
herra á íslandi. Hann hefur að und-
anfömu starfað að kosningabaráttu
George Bush Bandaríkjaforseta og
er formaður Qáröflunarnefndar
Republikanaflokksins í fimm fylkjum
Suðurríkja Bandaríkjanna vegna for-
setakosninganna. Auk þessa hefur
hann starfað að ráðgjöf varðandi
stofnun nýs flugfélags í Bandarikj-
unum og fyrir Kaiser Aluminium
vegna fyrirhugaðarar byggingar nýs
álvers.
Cobb sagði að fleiri lönd en ísland
kæmu til greina fyrir staðsetningu
nýs álvers og hefðu gert Kaiser álit-
leg tilboð. Nefndi hann Venesúela
og auk þess væri um að ræða nokk-
ur lönd í Evrópu og Afríku.
„Kaiser Aluminium mun nær ör-
ugglega reisa nýja álverksmiðju ein-
hvers staðar í heiminum á næstu
ámm og þetta er því spurningin um
hvar þeir ná hagstæðustu samning-
unum. ísland býður upp á marga
kosti sem felast í aðild þess að evr-
ópska efnahagssvæðinu, það veitir
opinn aðgang að Evrópumarkaðnum,
býður upp á ódýra orku og hefur
gott og vel þjálfað starfsfólk. Ég tel
því að ísland eigi mjög góða mögu-
leika á að verða fyrir valinu," sagði
Charles Cobb.
Aðspurður hversu langan tíma
hugsanlegar samningaviðræður
gætu tekið svaraði Cobb: „Það tók
Alumax og hin Atlantsálfyrirtækin
meira en ár að ná samningum við
íslensk stjórnvöld. Ég er ekki viss
um að þessar viðræður þurfi að taka
svo langan tíma en þær myndu þó
standa yfir í marga mánuði."
Cobb sagði að Kaiser Aluminium
væri eitt af stærstu álfyrirtækjum
heimsins. Það væri á ýmsan hátt
gjörólíkt Alumax og fengist m.a. við
námuvinnslu báxíts og framleiðslu á
súráli til frekari fullvinnslu sem veitti
því sterkari stöðu við öflun hráefnis
en Alumax sem væri háð kaupum
frá öðrum aðilum. Því kæmi lágt
verð á álmörkuðum ekki eins illa við
Kaiser og fjárfestingaráform þess.
Að sögn Gylfa Ingvarssonar, að-
altrúnaðarmanns í álverinu, vilja
starfsmenn ekki tímaselja neinar
aðgerðir að öllu óbreyttu, þótt lítið
hafi gengið á fundum hjá sáttasemj-
ara.
Gylfi sagði að ríkissáttasemjari
hefði kallað Ásmund Stefánsson til
Cobb sagði að fundurinn í Reykja-
vík yrði fyrst og fremst kynningar-
fundur þar sem fulltrúar Kaiser
myndu ræða við íslensk stjómvöld
og háttsetta embættismenn. Alls
verða sex fulltrúar í sendinefndinni,
þar á meðal John M. Seidl, stjómar-
formaður fyrirtækisins, aðalfram-
kvæmdastjóri þess, yfirmaður allra
álbræðslna í eigu Kaiser og fjár-
mála- og lögfræðiráðgjafar. „Þeir
munu kynna sér raforkuverð og af-
hendingarmöguleika á raforku,
starfsmannamálefni og umhverfís-
mál,“ sagði Charles J. Cobb.
viðræðnanna síðastliðinn föstudag
og í framhaldi af því hefði Ásmund-
ur verið fenginn inn í viðræðuhóp
starfsmanna. „Það sýnir ákveðna
meðferð málsins af okkar hálfu; að
tengja þetta beint við þá launa-
stefnu, sem hefur verið rekin “
sagði Gylfí.
Rússland á krossgðtum________
Þorvaldur Gylfason Iýsir ástandinu
í Rússlandi sem rjúkandi rúst 20
SkriJJinnskubúkn hjú SÞ
Spilling og þróun eru sögð dragbít-
ur á starf Sameinuðu þjóðanna
24-25
Þrír Reyðfírðingar sluppu betur en
á horfðist er mikil gassprenging
rústaði heimili þeirra 55
Leiðari
Hugvit og mannauður 28
Hvellur og íbúöin i rústum Iþwttif
m Svfarwfljaá sigur Ísiancls
amttgarx og
$111} aAle&aaffajr
► — .-r _. c-_-
► Landsleikir í knattspymu
gegn Grikkjum. íslandsmótið í
körfuknattleik hófst um helg-
ina. Valur í 2. umferð Evrópu-
keppni bikarhafa í handknatt-
leik.
Álversdeilan
Engar aðgerðir af
hálfu starfsmanna
STARFSMENN álversins í Straumsvík hafa ákveðið að boða ekki
til neinna aðgerða vegna kjaradeilunnar við vinnuveitendur sína á
meðan deilan er til meðferðar þjá ríkissáttasemjara. Þetta var ákveð-
ið á fundi formanna og trúnaðarmanna verkalýðsfélaganna í Hafnar-
firði með Ásmundi Stefánssyni, forseta Alþýðusambandsins, í gær-
morgun.