Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 61
oa 61 seei íiaaMavóK joí huíiág’hæím aia/jiv/.uimw, —MOTIGUNBLAÐIÐTRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER Í992 Röddúr hópnum Frá Ólavíu S. Sveinsdóttur: Ég er hvorki fræðimaður né fari- sei, en sem almennur borgari vinur og meðlimur þjóðkirkjunnar get ég ekki stillt mig um að láta mína skoð- un í ljós á þeim ágreiningi sem risinn er milli presta þjóðkirkjunnar og annarra kristinna trúarsöfnuða um málefni vfmuefnaneytenda sem frá hálfu þjóðkirkjupresta bera í sér vott af bannfæringu. Réttlætiskennd mín hvetur mig til að láta skoðun mína í Ijós. En ég ætla mér ofvaxið það hlutverk að fara í blaðadeilur við hálærða klerka og kennimenn og læt mér nægja að skýra álit mitt í þess- ari stuttu grein og mér er kunnugt um að ég tala fyrir munn fjölmargra annarra, bæði utan þjóðkirkju og innan. Þessir kristnu utanþjóðkirkjusöfn- uðir eru greinilega innblásnir lifandi áhuga á björgun eiturlyfja- og áfeng- issjúklinga og hafa þar af leiðandi náð töluverðum árangri, þó að lausn- ir þeirra sé taldar ódýrari en lausnir annarra. Vatn er ódýrt, a.m.k. meðan nóg er til af því. Allir menn þrá ljós- ið og því meira sem myrkrið er svart- ara. Það hentar ekki öllum sama leiðin að komast upp úr glötunargröfinni. Einstaklingamir eru ólíkir og margar leiðir eru færar. Sú leið sem hentar einum hentar ekki öðmm. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að einstakl- ingurinn fari þá leið sem hentar hon- um best og að valkostir séu sem flest- ir. Markmiðið hlýtur að vera það, að einstaklingurinn nái fótfestu, komist úr myrkrinu í meiri birtu og losni úr viðjum þeim sem vímuefni halda honum í. Vandinn er mikill og margir í sál- ameyð. Sumir finna rétta leið út úr ógöngunum án sýnilegra milliliða. Aðrir, og þeir em margir, þarfnast hjálpar í neyð sinni, að þeim þarf að hyggja og hjálpa. Markmiðið er orðið óljóst þegar menn setja sig gegn því að djúpt sokknir einstaklingar, sem bjargast úr viðjum vimuefnabölsins, gangi í kjölfarið í kristinn utanþjóðkirkju- söfnuð og finni þar það öryggi sem þeir þarfnast. Gangnamenn sem leita sauðfénaðar fara ekki í halarófu hver á eftir öðmm heldur dreifa þeir sér um hlíðar fjallanna, annars næðu þeir ekki saman fénaðinum: Best er að sem flestir taki höndum saman til hjálpar þessu hijáða fólki, lærðir og leikir, og sammála er ég því að vísindin beri mönnum að taka í sína þjónustu í þessum málum sem öðmm. En þar sem vísindunum sleppir og þau ná ekki lengra, þar tekur trúin við. ÓLAVÍA S. SVEINSDÓTTIR hjúkranarforstjóri LEIÐRÉTTINGAR Biðtíminn 4 mánuðir Vinnumiðlunarskrifstofa Reykja- víkurborgar hefur beðið um leiðrétt- ingu á því, að biðtími þeirra 100 atvinnulausra, sem getið var í bak- síðufrétt Morgunblaðsins væri 4 mánuðir en ekki 3. Reglan mun vera þannig að hafi menn verið atvinnu- íausir í 12 mánuði missa þeir bætur í fjóra mánuði, en fara síðan aftur á bætur í eitt ár eftir að biðtímanum lýkur. ________ Ekki Svarti svanurinn Af gefnu tilefni hafa aðstandendur sölutumsins Svarta svansins óskað eftir því við Morgunblaðið, að fram komi, að það var ekki Svarti svanur- inn, sem seldi bjór og áfengi, en í Morgunblaðinu á laugardag var skýrt frá slíkri sölu í öðmm sölut- umi við Rauðarárstíg. Svarti svanur- inn er til húsa að Laugavegi 118 og er gengið inn frá Rauðarárstíg. 2/3 en ekki 1/4 á LH-þingi í grein um ársþing Landssam- bands hestmannafélaga misritaðist að við lagabreytingar þyrfti 1/4 at- kvæða til þess að breytingamar næðu fram. Þar átti að sjálfsögðu að standa 2/3. Friðhelgin rofin í fréttatilkynningu frá Bíóborginni var rangt farið með heiti myndar sem bíóið hefur nýlega tekið til sýningar en hún heitið Friðhelgin rofin en ekki Friðhelgin. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. Vinningstöiur iaugardaginn (2) (ía) 7. nóv. 1992 (20)(ÉÍ^ "T32T^7) Iso) VINNINGAR | viNNINGSHAFA UPPHÆD Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5aí5 I 0 ?.647.671 2.«Sséf ? 229.966 3. 4af 5 I 94 8.440 4. 3af5 I 3.361 550 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.749.513 kr. M « uprvsingar sImsvari91 -681511 lukkulIna991002 VELVAKANDI TYNDUR KÖTTUR Skotti, sem er ijögura ára fressköttur, hvarf frá heimili sínu í Blesugróf í lok ágúst. Hann er alhvítur og frekar styggur, ólarlaus. Þeir sem orð- ið hafa varir við ferðir hans er beðnir að hringja í síma 814895. HANSKAR Svartur krephanski fannst við Háaleitisbraut fyrir skömmu. Einnig fannst stakur dökkblár skinnhanski fyrir þremur vikum. Upplýsingar í síma 32350. Leðurhanski kom í leitimar í versluninni Pennanum eftir að hans hafði verið leitað af við- skiptavin. Viðkomandi getur vitjað hans í versluninni. VESKI Vínrautt seðlaveski með skil- ríkjum tapaðist um mánaða- mótin september/október. Finnandi er vinsamlegast beð- inn að hringja í síma 16863 eða 11712. Fundarlaun. KÖTTUR - Babuska, grá læða með hvít- um og bleikum flekkum, tapað- ist frá Drápuhlíð 18 5. nóvem- ber sl. Hún er rófubeinsbrotin og áberandi feit, ekki með ól en eyrnamerkt. Vinsamlegast hringið í síma 25769 eða 624554 ef hún hefur sést. étifX ...alltaftilað •O trv'ggja atvinnu NOTAÐU PENINGANA ÞÍNA í EITTHVAÐ ÁNÆGJULEGRA EN DRÁTTARVEXTI Við minnum á gjalddaga húsnæðislána sem var 1. NÓVEMBER 18. NÓVEiVIBER____ leggjast dráttarvextir á lán með lánskjaravisitölu. 1. PESEMBER_______ leggjast dráttarvextir á lán með byggingavísitölu. cRd HÚSNÆÐISSTOFNUN RlKISINS tJ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI696900 GEFUM HVORT OÐRU Hvað með að gefa fjölskyldunni ELDHÚSINNRÉTTINGU I JÓLAGJÖF? Við hjó Eldhúsi og baði bjóðum ykkur fjölbreytt úrval innréttinga, þar sem óbersla er lögð ó vönduð og fagleg ÍSLENSK vinnubrögð. Eflum íslenskan iðnað og atvinnu í landinu. Gleðjum okkur um jólin með nýrri innréttingu fró ÁRMANNSFELLI - ELDHÚSI OG BAÐI. Funahöfða 19, sími 685680.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.