Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 2
MÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10.“NÓVEMBER' Í9M Morgunblaðið/Kristinn Ragnheiður Guðjónsdóttir, starfsstúlka á sólbaðstofunni, en hún varð fyrir barðinu á árásarmannin- um, ásamt eigenda stofunnar, Ólafi Als. Nakinn maður rændi sólbaðstofu Brá hnífi á háls stúlku Maður grunaður um verknaðinn handtekinn í gær STARFSSTÚLKA á sólbaðsstofunni á Laugavegi 99 varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu í gærmorgun að nakinn maður stökk á hana út úr einum sólbaðsklefanum og brá stórum hnífi á háls hennar. Hann hafði í hótunum við hana og rændi peningum úr kassa stofunnar. Um töluverða fjárhæð var að ræða því í kassanum voru allar tekjur stofunnar frá þvf á föstudag. Lögreglan í Reykja- vik handtók síðdegis í gær mann á Hótel íslandi sem grunaður er um verknaðinn. Yfirheyrslur yfir honum voru ekki hafnar í gær- kvöldi en að sögn Rannsóknarlögreglu ríkisins var hann ekki í ástandi til yfirheyrslu sökum ölvunar. Að sögn Ólafs Als, eiganda sól- baðsstofunnar, kom maðurinn inn á stofuna um klukkan 8.30 um morguninn og pantaði sér ljósa- tíma. Stofan er á tveimur hæðum og fékk maðurinn klefa á neðri hæðinni. Er stúlkan hélt að hann hefði lokið sér af fór hún niður til að þrífa klefann. Stökk þá maður- inn nakinn á hana úr öðrum klefa og brá stórum hnífi á háls hennar. „Árásarmaðurinn sagði að hann vildi fá peningana og hótaði öllu illu. í fyrstu ætlaði hann að kefla stúlkuna inni á salerni, en henni tókst að fá hann ofan af því. Síðan klæddi hann sig, kom hér upp og hreinsaði úr kassanum," segir Ólafur. „Hann hefur náð um 50 þúsund krónum í peningum og um 90 þúsund í krítarkortanótum. Hann hótaði að drepa stúlkuna ef hún segði til hans.“ Ragnheiður Guðjónsdóttir, starfsstúlkan sem varð fyrir barð- inu á manninum, segir að hún hafi orðið mjög skelkuð. „Þetta var mjög óhugnanlegt því ég hélt fyrst að hann ætlaði að nauðga mér, enda var hann nakinn,“ segir hún. „Mér leið strax skár þegar hann sagðist bara vilja peningana." Ragnheiður lýsir manninum þannig að hann hafi verið um 180 sm hár, ljóshærður með sítt hár og brún augu á aldrinum 25-30 ára. Hann var klæddur í rúskinns- jakka og gallabuxur. Mimiihluti Sameinaðra verktaka Menn sætta si g ekki við lögbrot * - segir Guðjón B. Olafsson GUÐJÓN B. Ólafsson forstjóri Sambands íslenskra samvinnufé- laga, sem jafnframt er sljómarformaður Regins segir að verði stjóm Sameinaðra verktaka ekki við kröfu minnihlutans um nýjan aðalfund muni minnihlutinn leita réttar síns eftir þeim leiðum sem færar era, til að hnekkja þeim ákvörðunum sem teknar voru á aðalfundinum og sú stjórn sem kosin var þar hefur tekið síðan. „Menn eru staðráðnir í að sætta sig ekki við lögbrot," sagði Guðjón í samtali við Morgunblaðið. Jón Halldórsson stjóraarformaður Sam- einaðra verktaka sagði í samtali við Morgunblaðið I gær að hann myndi boða til stjórnarfundar í vikunni. „Ekki er ólíklegt að beðið verði um lögfræðilegt álit á framkominni kröfu á þeim fundi,“ sagði Jón. Guðjón sagði að væntanlega yrði það niðurstaðan hjá minnihlut- anum, ef kröfunni um nýjan aðal- fund yrði hafnað, að krefjast hlut- hafafundar. Yrði þeirri kröfu einn- ig hafnað, þá væru enn til ákveðn- ar leiðir, eins og sú að höfða ógild- ingarmál til að fá þeim ákvörðun- um hnekkt sem teknar voru á aðal- fundinum. „Samkvæmt landslög- um, þá geta þeir ekki neitað að halda hluthafafund. Hlutafélaga- lögin gera ráð fyrir því að ef stjóm hlutafélags neitar um hluthafa- fund, sem beðið er um, þá sé næsta skref í málinu að snúa sér til ráðu- neytis og óska eftir að málinu verði framfylgt," sagði Guðjón í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að þeir sem stæðu að kröfunni um nýjan aðalfund, væra ákveðnir í að sætta sig ekki við lögbrot. Fulltrúar þeirra, sem urðu undir á átakamiklum aðalfundi Samein- aðra verktaka í september, hafa fengið löglærða sérfræðinga til þess að vinna fyrir sig álitsgerðir um lögmæti aðalfundarins. Þeir sem unnu þær eru þeir Þorgeir Örlygsson og Stefán Már Stefáns- son, lagaprófessorar og Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður. Þær tvær álitsgerðir, sem þeir unnu, fela það í sér að lögfræðing- amir telja atkvæðagreiðslur sem fram fóru á aðalfundinum, þann 18. september séu ógildanlegar. í framhaldi þessara álitsgerða lögðu þeir Guðjón B. Ólafsson, Sverrir Sveinsson, Páll Gústafsson, Gissur Símonarson og Guðmundur Ein- arsson fram ofangreinda kröfu. Jón Halldórsson sagði orðrétt: „Ég á eftir að boða stjómarfund, sem ég mun boða til í þessari viku. Á þeim stjórnarfundi verður þessi krafa lögð fram og við munum ræða hana. Mér þykir ekki ólíklegt að beðið verði um lögfræðilegt álit á kröfunni." Skilyrði þrengd til kaupa á bújörðum í frumvarpi til jarðalaga Kaupandí hafí 5 ára búsetu á jörð eða búi í nágrenni hennar Samþykki ekki veitt nema viðkomandi hafi starfað við landbúnað í fjögur ár SKILYRÐI til kaupa á bújörðum eru þrengd umtalsvert frá gild- andi lögum samkvæmt frumvarpi landbúnaðarráðherra um breyt- ingar á jarðalögum sem kynnt hefur verið í þingflokkum ríkis- stjórnarinnar. Samkvæmt því geta sveitarstjórnir og jarðanefnd komið í veg fyrir aðilaskipti að þessum eignum nema kaupandi hafi allt að fimm ára fasta búsetu á jörðinni eða sé búsettur í ná- grenni eignarinnar til að nýta hana. Með sama hætti er heimilt að setja skilyrði um að eignin verði nýtt til landbúnaðar eða annarrar atvinnustarfsemi og skal slíkum skilyrðum þinglýst sem kvöð á eignina. Fullnægi kaupandi ekki þeim skilyrðum Atvinna í dag 100 ný störf að skapast í Keflavík og Njarðvík 4 Karl og Díana Skilnaður að borði og sæng ínánd 30 Umferöin______________________ Morgunblaðið slæst í för með lög- reglu við eftirlit á ómerktum bif- reiðum 63 Danmörk_______________________ Danskur sagnfræðingur gagnrýnir álit nefndar um mál Eðvalds Hin- rikssonar 64 Leiðari Vel að verki staðið í Mexíkó 32 Vatemenn snkja um að leika 6 Laugardatevelli fÉB l§i SSfg. Iþróttir ► FH-ingar betri en sænsku meistaramir - Valsmenn sækja um afnot af Laugardalsvelli næsta sumar - Van Basten og Baggio á skotskónum á Ítalíu. sem sett hafa verið getur sveitar- stjórn, með samþykki ráðherra, sett honum frest til að fullnægja skilyrðunum. Hafi þeim ekki verið fullnægt innan frestsins getur sveitarsljórn leyst eignina til sín með samþykki jarðanefndar og ráðherra. Samkvæmt frumvarpinu þarf sá sem ætlar að nýta eignina til land- búnaðar, þar með talið nýting og útleiga á veiði eða öðrum hlunnind- um sem fylgja landi og húsum, að hafa starfað við landbúnað í fjögur ár og þar af tvö ár hér á landi. Frumvarpið er lagt fram vegna samningsins um Evrópskt efnahags- svæði en núgildandi jarðalög hafa ekki að geyma sérstakar takmarkan- ir á fjárfestingum erlendra aðila í þeim fasteignum og fasteignarétt- indum, sem þau taka til, eða gera að öðru leyti mun á því hvort í hlut á íslenskur aðili eða erlendur. í greinargerð kemur fram að at- huganir á efni EES-samningsins og rétti Evrópubandalagsins hafi leitt í ljós að það teldist andstætt samn- ingnum að setja í lög ákvæði, sem áskildu að þeir, sem gætu komið til greina við kaup á jörðum og öðm búskaparlandi, sem jarðalög taka til, þyrftu að hafa verið búsettir hér á landi í tiltekinn árafjölda fyrir kaupin og það þó að sambærileg regla gilti um Islendinga. „Þetta girðir þó ekki fyrir að sett séu í lög efnisleg skilyrði, sem aðilar þurfa að uppfylla við kaup á eignum til atvinnurekstrar t.d. um starfs- reynslu í ákveðinn árafjölda, enda séu þessi skilyrði í eðlilegum tengsl- um við viðkomandi atvinnurekstur og nýtingu eignarinnar. Skilyrði er þó að slíkt gangi jafnt yfir þá sem njóta EES réttar og innlenda aðila,“ segir í greinargerð fmmvarpsins. Sjá einnig frétt á bls. 37. Rúmlega þrítug kona fluttiinn2,l kíló af hassi LAGT hefur verið hald á 2,1 kg af hassi og lítilræði af maríhúana og rúmlega þrítug kona hefur gengist við því að hafa átt efnið og ætlað að dreifa því. Talið er að hassið hafi verið keypt í Amsterdam. Fíkniefnadeild lögreglunn- ar leitaði í tveimur húsum í borginni, í vestur- og austur- bænum 6. nóvember sl. í framhaldi af því vora hand- teknir sex manns, þijár konur og þrír karlar, og lagt hald á tæpt 1,5 kg af hassi og lítil- ræði af maríhúana. Eigandi efnisins telst vera rúmlega þrítug kona sem hafði sætt vikulöngu varðhaldi skömmu áður. Fíkniefnadeild lögregl- unnar hafði þá fundið hjá henni um 600 gr af hassi og eitthvað af maríhúana. Talið er að efnið sé komið frá Amsterdam og kveðst konan sjálf hafa flutt það til landsins. Tveir karlmenn em taldir tengjast þessu máli. Nauðungaruppboð auglýst á Haffjarðará ÚTLIT er fyrir að nauðungaruppboði á hinni þekktu laxveiðiá Haffjarðará á, Snæfellsnesi, sem auglýst var að fram færi í dag, verði frestað. I gær höfðu nokkrir kröfuhafar sent sýslumanninum í Stykkishólmi beiðni um frestun. í laugardagsblaði Morgunblaðs- ins auglýsti sýslumaður nauðung- aruppboð á Haffjarðará ásamt tveimur veiðihúsum og níu bújörð- um við ána í Kolbeinsstaða- og Eyjahreppum. Haffjarðará er þing- lýst sem sjálfstæð eign en ekki sem hlunnindi jarðanna eins og er um flestar aðrar laxveiðiár landsins. Uppboðsbeiðendur eru verðbréfa- fyrirtæki í Reykjavík. Tveir athafnamenn í Reykjavík, Óttar Yngvason og Páll Jónsson, keyptu Haffjarðará ásamt jörðun- um fyrir nokkrum árum af Thors- fjölskyldunni. Óttar sagði í gær aðspurður um uppboðið að málið hefði fyrir slysni gengið svona langt og væri verið að kippa því í lag. Átti hann von á að kröfuhafar sendu fljótlega afturköllun á upp- boðsbeiðnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.