Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 64
MORGVNBLADID, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK SlMI 691100, SIMBRÉF 691101, PÓSTHÓLF 1665 / AKVREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. I Islendingnr tekinn með IOV2 kg af hassi við komu til Spánar ÞRÍTUGUR íslendingur var handtekinn á landamærum Spánar og Marokkós hinn 31. október, en í bifreið hans fundust IOV2 kíló af hassi. Þá var ferðafélagi hans, sem líka er íslendingur, einnig hand- tekinn, en honum var sleppt eftir að hinn fyrrnefndi kvaðst hafa staðið einn að smyglinu. Marin Guðrún Briand de Crévecoeur, ræðismaður íslands á Malaga á Spáni, sagði að tollverðir hefðu fundið hassið falið í bifreiðinni þegar maðurinn og félagi hans komu til spænsku borgarinnar Ceuta, sem er í Afríku, norður af Marokkó. Marin Guðrún sagði að maðurinn, sem hefur verið búsettur á Spáni, hefði nú fengið skipaðan verjanda. .__«^ún sagði að sér væri ekki kunnugt um hvort fram hefði komið að maður- inn hefði ætlað sér að flytja hassið hingað til lands. Annar íslendingur situr í fangelsi á Malaga á Spáni. Maðurinn, sem hefur búið á Spáni undanfarið ár, var handtekinn fyrir um fjórum mán- uðum, sakaður um nauðgun. Marin Guðrún sagði að mál hans væri mjög flókið og hefði lítið gerst í því frá því að hann var handtekinn. Það stæði þó vonandi til bóta, því hann hefði nýlega fengið nýjan verjanda. Verksmiðja Stálfélagsins í Hafnarfirði Ekkert viðunandi til- boð hefur enn borist BÚNAÐARBANKINN og Iðnþró- ' linarsjóður munu í dag eða á morgun taka ákvörðun um hvern- ig hagað verði áframhaldandi til- raunum til sölu á verksmiðju og öðrum eignum íslenska stálfélags- ins en ekkert viðunandi tilboð hefur enn borist í eignirnar sem seldar voru á nauðungaruppboði 29. október sl. samkvæmt upplýs- ingum Jakobs Ármannssonar í Búnaðarbankanum. Tvö innlend tilboð hafa borist í eignimar, annað frá Furu hf., sem er í eigu Haraldar Þórs Ólafssonar en hann átti hlut í íslenska stálfélag- inu hf. og sat í stjóm þess. Tilboðs- frestur sá sem Haraldur setti er nú runninn út og sagðist hann í gær ekki vera tilbúinn til að segja um hvort hann hygðist endumýja tilboð- ið. Ekki hefur fengist uppgefið hver eða hveijir stóðu að hinu tilboðinu en það mun hafa verið talsvert lægra en tilboð Haraldar. Búnaðabankinn og Iðnþróunarsjóður vilja fá um 300 milljónir króna fyrir eignimar sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins. Nokkrar fyrirspumir hafa borist frá erlendum aðilum en áhugi þeirra snýr eingöngu að því rífa niður verk- smiðjuna og flytja búnað hennar úr landi. Móttöku brotajáms verður haldið áfram við verksmiðju íslenska stál- félagsins en Búnaðarbankinn og Iðn- þróunarsjóður, hafa gert samninga við starfsmenn um að áfram verði unnið við móttöku á járninu. Alls hafa sjö starfsmenn unnið við mót- töku á brotajámi á undanfömum mánuðum. Verða þeir lausráðnir og með viku uppsagnarfrest þar sem um bráðabirgðafyrirkomulag er að ræða á meðan reynt er að finna kaupendur sem eru tilbúnir til að hefja starfsemi verksmiðjunnar. Morgunblaðið/Gunnar Blöndal Smakkað á Gullfossi Þessi sænski ferðamaður kom að Gullfossi um helgina og vildi vita hvemig hann smakkaðist. Erlendir lánardrottnar SIS væntanlegir hingað Sér fyrir endann á samningaviðræðum Sambandsins og Landsbankans, að sögn Guðjóns B. Ólafssonar forstjóra FULLTRÚAR erlendra lánar- on, sem annast lánafyrirgreiðslu drottna Sambands íslenskra sam- Hambros til íslenskra aðila sagði vinnufélaga eru væntanlegir í samtali við Morgunblaðið í gær eru liingað tií lands í næstu viku, til skrafs og ráðagerða við Lands- bankann um framhald viðskipta, þegar samningum eignarhaldsfé- lags Landsbankans, Hamla hf. og Sambandsins verður lokið. Tom Boyce, hjá Hambros Bank í Lond- að Hambros Bank hefði ekki sett fram nein sérstök tímamörk um það hvenær samningaviðræðum Hamla og Sambandsins skyldi lok- ið, en hann kvaðst gera sér vonir um að mál hefðu skýrst til muna í næstu viku, þegar fulltrúar er- Fischer stingur upp á tveimur einvígjum hér BOBBY Fischer hefur áhuga á að tefla á næstunni tvö einvígi í viðbót við Borís Spasskí. Kemur að mati Fischers vel til álita að þau fari fram á íslandi. Kom þetta fram í samtali Morgunblaðsins við Spasski á sunnudag. Spasskí sagðist hafa rætt það við Fischer um helgina hvort þeir ættu að fara saman til íslands í boði Skáksambands íslands. „Fisc- her spurði strax hvað hann fengi borgað fyrir,“ sagði Spasskí. Þegar Spasskí var inntur eftir því hvort Fischer myndi vilja fá borgað fyrir að koma hingað til lands jafnvel þótt ekki væri gert ráð fyrir tafl- mennsku af hans hálfu kvað Spasskí svo vera. „En almennt tal- að leist honum vel á hugmyndina," sagði Spasskí. „Þess má geta að Fischer nefndi það við mig hvort við ættum ekki að tefla tvö einvígi í viðbót á íslandi ef ekki tækist að semja við Garrí Kasparov heims- meistara um að þeir Fischer sett- ust að tafli. Mér leist að sjálfsögðu vel á það,“ sagði Spasskí. Fischer ætlar að dveljast áfram í Belgrad að minnsta kosti fyrst um sinn. Spasskí áformaði hins vegar að fara heim til Frakklands nú í byijun vikunnar. Þegar hann var spurður hvort þeir hefðu feng- ið verðlaunaféð greitt svaraði Spasskí neitandi. Hann vildi ekki svara þegar hann var spurður hvort hann teldi að hann ætti eftir að fá peningana í hendur. lendra lánardrottna Sambandsins kæmu til íslands. Tom Boyce sagði einnig: „Við hjá Hambros erum eins og kunnugt er lánardrottnar Sambandsins, sam- kvæmt því gamla skipulagi sem þar ríkti. Þess vegna erum við í viðræð- um við Landsbankann um þær samn- ingaviðræður sem eiga sér stað á milli Landsbankans og Sambandsins. Við hjá Hambros höfum ekki sett fram nein tímamörk, en við komum til Reykjavíkur í næstu viku til þess að eiga fund með forsvarsmönnum Landsbankans. Við gerum okkur vonir um að mál hafí skýrst til muna fyrir þann fund. Þá munum við m.a. ræða með hvaða hætti erlendir lánar- drottnar Sambandsins, við og aðrir munum bregðast við óskum um að halda áfram lánastarfsemi tii nýja félagsins, eignarhaldsfélagsins Hamla." „Ég hugsa að styttist í það, að sjái fyrir endann á samningaviðræð- um Sambandsins og Landsbankans,“ sagði Guðjón B. Olafsson, forstjóri Sambandsins í samtali við Morgun- blaðið. Aðspurður hvort hann teldi að aðilum tækist að ljúka samning- um á fyrirhuguðum fundi Hamla og Sambandsins á morgun, sagði Guð- jón: „Það get ég ekki fullyrt um, en það fer að styttast í að þessu ljúki.“ Selfoss Skotið með riffli á hús SKOTIÐ var af riffli á íbúðarhús í Lambhaga 4 á Selfossi í gær. Skotið fór í gegnum útvegg og fannst kúlan inni á eldhúsgólfinu. Ekki urðu nein slys við þetta en íbúar hússins voru á ferli í eldhúsinu skömmu áður en kúlan fór í gegnum vegginn. Við rannsókn málsins kom í ljós að sögn lögreglu að unglingar hefðu verið að handleika skotvopn í um 100 metra fjarlægð frá húsinu með þessum afleiðingum. Eldur í íbúðarhúsi ELDUR kom upp á geymslulofti í einbýlishúsi við Góuholt á ísafirði síðdegis í gær. Húsráð- endur voru að heiman en ná- grannar tilkynntu um að mikinn reyk legði frá húsinu kl. 16. Þegar slökkvilið kom á vettvang kom í ljós að eldur var á geymslu- lofti og rufu slökkviliðsmenn þá gat á þak hússins, rifu einangrun úr og þurftu því ekíri að nota vatn til að ráða niðurlögum eldsins. Gekk slökkvistarf fljótt fyrir sig. Reykur- inn hafði borist niður í íbúð hússins og olli talsverðum skemmdum. Elds- upptök eru ókunn samkvæmt upp- lýsingum lögreglu. Bifreið valt í hálku o g krapi Fólksbifreið fór út af þjóðveg- inum og valt í Helgafellssveit skammt frá Stykkishólmi í gær. Tvennt var í bílnum og slapp með minniháttar meiðsl en bíllinn er mikið skemmdur. Mikil hálka og krap var á veginum þar sem bíllinn fór út af. Barnaheill Kristján Jóhannsson á tónleikum KRISTJÁN Jóhannsson mun syngja á tónleikum í Hallgríms- kirkju til styrktar Barnaheill hinn 20. des- ember næst- komandi. Kristján söng síðast opinber- lega á íslandi þegar Þjóðleik- húsið var tekið aftur í notkun eftir endurbætur í mars á síð- asta ári. Allir sem fram koma á tón- leikunum gefa vinnu sína en þeir eru auk Kristjáns, Sinfóníuhljóm- sveit íslands, Módettukór Hall- grímskirkju og Hörður Áskelsson organisti. Þá er von á Rico Sacc- ani hljómsveitarstjóra en ekki hefur enn fengist endanlega staðfest hvort hann kemur. Allur ágóði af tónleikunum rennur til starfsemi Bamaheilla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.