Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992 3. ársþing Hestaíþróttasambands Islands Reiðhjálmatillag'an rann í gegn * Islandsmótið ’94 í Kópavogi Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Nýlgörna stjórn HÍS skipa, frá vinstri talið: Júlíus Bijánsson, vara- maður, Einar Ragnarsson, Bergur Jónsson, Magnús Lárusson, Jón Albert Sigurbjörnsson. í neðri röð: Rosemary Þorleifsdóttir vara- maður, Pétur Jökull Hákonarson formaður og Sigrún Ólafsdóttir varamaður. Hákon Bjarnason hætti nú í stjórn eftir langa setu og gifturík störf. Pétur formaður þakkaði honum sérstaklega. _________Hestar_____________ Valdimar Kristinsson Samþykkt skyldunotkunar reiðhjálma í hestaíþróttakeppni kom nokkuð flatt upp á þing- fulltúa og aðra sem fylgdust með 3. ársþingi Hestaíþrótta- sambands Islands sem haldið var á laugardaginn í félags- heimili Fáks. Tillaga um þetta efni hefur áður komið upp á þingi HIS en þá voru menn ekki í tilbúnir að kyngja skynsemis- rökum. Þingið fór ágætlega fram, umræðan nokkuð fijó þótt ekki væru nein þungavikt- armál á dagskránni að þessu sinni. í upphafi þings voru þeir Kári Arnórsson fyrrverandi formaður LH og Ragnar Tómasson kosnir þingforsetar og þeir Sigurður Magnússon framkvæmdastjóri ÍSÍ, Júlíus Hafsteins formaður ÍBR og Guðbrandur Kjartansson varafor- maður LH ávörpuðu þingheim og fluttu kveðjur frá samtökum sín- um. Eyjólfur ísólfsson reiðkennari á Hólum flutti erindi um framtíðar- skipan hestamóta þar sem hann ' setti fram grófar en rökstuddár hugmyndir í þá átt að íþrótta- keppni og gæðingakeppni muni í framtíðinni sameinast í eina keppnisgrein. Sagði hann að ef slík breyting næði fram að ganga myndi það einfalda mótahaldið mjög. Taldi hann það orðið allt of flókið og fyrirferðarmikið og væri brýnt að huga að breytingum í þá átt að einfalda og létta keppnina. Virtist málflutningur Eyjólfs falla í góðan jarðveg hjá þingfulltrúum sem virðast gera sér vel grein fyr- ir því að í óefni stefnir verði ekk- ert að gert. Fljótlega eftir að nefndarstörf hófust var ljóst að ein nefndin, laga og leikreglnanefnd, þyrfti mun lengri tíma til að afgreiða sín mál en aðrar nefndir sem þarna störfuðu. Var ástæðan sú að hún hafði hvorttveggja í senn fleiri mál en aðrar nefndir og flóknari og voru það mistök að láta ekki þær nefndir er fyrstar luku störfum yfírtaka eitthvað af málum laga- nefndarinnar. Það var ekki gert og af þeim sökum seinkaði þing- lokum um tæpa tvo tíma. Tæplega er hægt að segja að margar af þeim tillögum sem born- ar voru upp á þinginu hafi verið stórmerkilegar enda voru óvenju margar tillögur felldar. Virðist sem lítill tilgangur liggi að baki sumra tillagnanna annar en sá að fram komi tillaga. Mættu þingfulltrúar leggja meiri vinnu í tillögugerð og að sama skapi mætti bæta málfar og framsetningu við tillögugerðina. Það sem helst stóð upp úr var áðumefnd tillaga um reiðhjálmana. Þá var samþykkt að dómaranefnd HÍS skuli halda 3 til 4 samhæfing- arnámskeið í mars eða apríl ár hvert fyrir dómara og fái einungis þeir dómarar sem mæta á nám- skeiðin viðurkenningu HÍS til dóm- starfa það árið. Samþykktar vom keppnisreglur fyrir hlýðnikeppni sem er á milli A- og B-hlýðni að styrkleika. Er þessi styrkleika- flokkur ætlaður ungmennum og byijendum í fullorðinsflokki. Þá vom einnig samþykktar keppnis- reglur fyrir hindrunarstökk barna og unglinga og reglur um gæð- ingaskeið vom snikkaðar til þannig að nú er meiri vandi að komast í háar einkunnir í gæðingaskeiðinu en áður var. Þá var samþykkt að íslandsmótið 1994 verði haldið í Glaðheimum, félagssvæði Gusts í Kópavogi, en einnig buðu Sörli í Hafnarfirði fram svæði sitt og vestlensk félög buðu fram Kaldár- mela. Bæði Sörlamenn og Vest- lendingar drógu boð sín til baka þegar leið á þingið. íslandsmótið á næsta ári verður sem kunnugt er haldið í Eyjafirði, annaðhvort á Akureyri eða Melgerðismelum. I lokin fór fram stjórnarkjör og var byijað á að kjósa mann í stað Hákonar Bjarnasonar gjaldkera sem óskaði eftir að hætta en hann átti eftir að sitja eitt ár af kjörtíma- bili sínu. Hákon hefur verið einn af burðarásunum í starfsemi HÍS frá stofnum og áður í íþróttaráði LH. í hans stað var sjálfkjörinn Jón Albert Sigurbjörnsson, Fáki. Meiri spenna færðist í leikinn þeg- ar Einar Ragnarsson, Sörla, var kjörinn í stjórn en hann hafði setið í varastjórn og Magnús Lárusson, ÍDS, var endurkjörinn en aðeins einu atkvæði munaði á honum og Ámunda Sigurðssyni, Skugga. Aðrir í stjórn em Pétur Jökull Hákonarson, Herði, sem er for- maður, og Bergur Jónsson, Frey- faxa. I varastjórn vora kjörin þau Sigrún Ólafsdóttir, Snæfellingi, Júlíus Bijánsson, Herði, og Rose- mary Þorleifsdóttir, Smára. starfsmenntun ■ Streitustjórnun Meö einföldum aðgerðum er hægt að læra að stjóma starfsþreytu og streitu, sem skilar sér í betri líðan hjá starfs- mönnum, er skilar betra samstarfi og auknum afköstum. Nánari upplýsingar hjá Stjórnunarfélagi íslands í síma 621066. ■ Réttritunarnámskeið Við kennum allar stafsetningarreglur og þjálfum notkun þeirra. Námskeiðið hent- ar öllum aldurshópum. Lengd 20 stund- ir. Verð 5.500 kr. Reyndir kennarar. Innritun og uppl. f síma 15103 og 17860 eftir kl. 16.00. AB Árangursrfkar söluaðferðir - Nóvember - Kennd verður tækni, sem hjálpar sölu- manninum að þekkja stöðu sína, greina þær breytingar sem eru í vændum, end- urmeta stöðu sína og finna nýjar leiðir til úrlausnar. Nánari upplýsingar hjá Stjórnunarfélagi íslands f sima 621066. VÉLRITUNARSKÓLINN ÁNANAUSTUM I5 l 01 REYKJAVÍK SÍMI 2 80 40 ■ Kanntu að vélrita? Vélritun er undirstaða tölvuvinnslu. Kennum blind- skrift og almennar uppsetningar. Morgun- og kvöldtímar. Innritun Þsímum 28040 og 36112. Ath.: V.R. og B.S.R.B. styrkja félaga sína á námskeið skólans. stjórnun ■ Phoenix námskeiðið 11.-13. nóvember Ætlað stjórnendum - starfsmönnum - fjölskyldufólki og einstaklingum, sem vilja tileinka sér aðferðir til þess að ná hámarksárangri í starfi og einkalífi. Leið- ir til árangurs á öllum sviðum lífs þíns. Nánari upplýsingar hjá Stjórnunarfélagi íslands , í síma 621066. ■ Breyttu áhyggjum i uppbyggjandi orku! Félagsmálaskóli - ITC-námskeið. - Markviss málflutningur. - Áhrifarík fundarstjórn. - Aðlögum námskeið fyrir hópa/félög. Símar: Guðrún 46751, Kristín 34159 og Vilhjálmur 78996. tölvur ■ Word fyrir Windows 15 klst. námskeið 30. nóv.-4. desember kl. 13-16. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, s. 688090. I Time Manager 17.-18. nóvember Time Manager byggir á markmiðasetn- ingu og tímastjórnun, sem leiðir til auk- inna afkasta, gerir vinnuna markvissari og kemur í veg fyrir óþarfa streitu. Tímaþjófar heyra sögunni til. Nánari upplýsingar hjá Stjórnunarfélagi íslands í síma 621066. ■ Novell NetWare netstjóranámskeið 15 klst. námskeið 16.-20. nóvember kl. 16-19. íslensk námsgögn. Leiðbein- andi Torfi Helgi Leifsson, verkfræðing- ur. Mjög hagstætt verð. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, s. 688090. ■ Öll tölvunámskeið á PC og Macintosh Fáðu senda námsskrá. Töivu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegi 16, s. 688090. " ■ Stjórntæki fyrirtækja - Nóvember - Markmið námskeiðsins er: Að gefa stjórnendum og starfsmönnum almenna innsýn í þessi mál og að þeir sjái samhengið milli þeirra. Áð kynna hvernig algengustu stjómtæki eru notuð í stærri fyrirtækjum og hvern- ig þau geta nýst öðmm fyrirtækjum. Nánari upplýsingar hjá Stjórnunarfélagi íslands f sima 621066. ■ Staðarnet ítarlegt námskeið um netvæðingu og þá tækni sem að baki býr, 11.-13. nóv. kl. 8.30-12.30. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, s. 688090. ■ Excel 4.0 fyrir Windows 15 klst. námskeið 23.-27. nóvember kl. 16-19. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, s. 688090. 19. I Markmiðasetning 20. nóvember Aðeins 3% einstaklinga virðast ná mark- miðum sínum í lífinu. Lögð er áhersla á að kenna þær aðferðir er best hafa reynst við setningu markmiða f þágu einstaklinga. Nánari upplýsingar hjá Stjórnunarfélagi íslands i síma 621066. ■ Excel 4.0 fyrir Macintosh 15 klst. námskeið 23.-27. nóvember kl. 16-19. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, s. 688090. ■ PageMaker fyrir Macintosh og PC 15 klst. námskeið 30. nóv.-4. des. kl. 16-19. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, s. 688090. ■ The Peak Performance Woman Nóvember - Konur - fyrirtæki - framsögn. - Myndbandanámskeið - 12 þættir sem tryggja frama. Peak Performance Woman er fyrir hina metnaðarfullu konu, sem vill sjá árangur í starfi. Nánari upplýsingar hjá Stjórnunarfélagi íslands í síma 621066. ■ Tölvunámskeið Excel 4.0 fyrir Windows og Macintosh, 14 klst. Word 2.0 fyrir Windows og Macintosh, 14 klst. Windows 3.1, 8 klst. PC grunnnámskeið, 16 klst. Innifaldar eru nýjar íslenskar bækur. ■ Word fyrir Macintosh 15 klst. námskeið 30. nóv.-4. desember kl. 13-16. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, s. 688090. ■ Námskeið frá tæknideild Tæknivals NetWare 3.11 System Manager 16.-18. nóv. '92 Tilgangur námskeiðsins er að gera stjórnendum tölvunetkerfa hæfari til þess að viðhalda netkerfinu þannig að það nýtist notendum þess sem best. Mikill hluti námskeiðsins er verklegur og er reynt að tengja efni námskeiðsins raunverulegu netumhverfi. Tími gefst til fyrirspurna varðandi vandamál í net- kerfum, sem verið er að vinna við. Námskeiðið fer fram á ensku. Námskeiðið er viðurkennt af Novell. Lengd: 3 dagar. Advanced System Manager 7.-9. des. '92 Námskeiðið er einungis ætlað þeim, er hafa sótt námskeiðið NetWare 3.11 System Manager. Á þessu námskeiði verður farið ýtarlega í hvernig hægt er að auka afkastagetu netsins (perform- ance features) og fylgjast með minnis- þörf og notkun. Námskeiðið fer fram á ensku. Námskeiðið er viðurkennt af Novell. Lengd: 3 dagar. NÆ2VÍSAÐSTŒ) ■ Námsaðstoð við grunn-, framhalds- og háskólanema. Flestar námsgreinar. Einkatímar - hópar. Reyndir réttindakennarar. Innritun í síma 79233 kl. 14.30-18.30. N emendafjj óruis tan sf. handavinna ■ Ódýr saumanámskeið Aðeins 5 nemendur í hóp. Faglærður kennari. Upplýsingar í síma 17356. ■ Hátíðarfatnaður fyrir jól og árshátíðir Nýtt saumanámskeið hefst 17. nóvem- ber nk. Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19-22.30. Kennari: Ásdís Ósk Jóelsdóttir. T ómstundaskólinn, s. 677222. myndmennt ýmislegt ■ Miðill og stjörnuspekingur Enski miðillinn Terry Evans og Gunn- laugur Guðmundsson, stjörnuspek- ingur, halda saman helgamámskeið 14. og 15. nóv. næstkomandi. Gunnlaugur fjallar um stjörnukort þátttakenda með tilliti tU fyrri lífa og Terry hjálpar þátt- takendum að þroska andlega hæfileika sína og opna fyrir innsæið. Stuttur einkatími er í lok námskeiðsins fyrir hvern þátttakanda, bæði hjá Gunn- laugi og Terry Evans. Nánari upplýsingar má fá hjá Stjörnu- spekistöðinni f síma 10377. ■ Tungumál - raungreinar Kennsla fyrir þig. Skóli sf., Hallveigarstíg 8, sími 18520. ■ Bréfaskólanámskeið: Teikning, litameðferð, listmálun með myndbandi, barnanámskeið, skraut- skrift, hýbýlafræði, innanhússarkitektúr, garðhúsagerð og hæfileikapróf. Nýtt námskeið: Húsasótt. Fáðu sendar upplýsingar um skól- ann með því að hringja í síma 627644 allan sólarhringinn. fjármál ■ Einföld uppskrift að skipulegri uppbyggingu eigna. Einstakt 2ja daga kvöldnámskeið Verð- bréfamarkaðs Islandsbanka, VÍB, um fjármál einstaklinga. Lögð er áhersla á hnitmiðaða leiðsögn við hámörkun eigna. Nánari upplýsingar veitir Margrét Sveinsdóttir hjá VÍB í sfma 91-681530.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.