Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992 49 Þórunn M. Eyjólfs- dóttir - Minning Fædd 25. maí 1931 Dáin 3. nóvember 1992 Hún móðursystir mín, Þórunn (3 Marta Eyjólfsdóttir, sem ávallt var kölluð Tótý, lést eftir skamma sjúk- dómslegu á St. Jósefsspítala í Hafn- ^ arfirði 3. nóvember síðastliðinn. Tótý var þriðja elst 6 systkina en þau eru: Ragnheiður Eygló, dáin 1. febr- úar 1988, Ólafur, Eyrún og Inga María. Ein systir þeirra dó í æsku, en hún hét Eyrún. Foreldrar þeirra voru þau hjónin Eyjólfur Kristinsson skipstjóri, fæddur 7. nóvember 1895, dáinn 6. júlí 1977, og Guðrún H. Ólafsdóttir húsmóðir, fædd 9. júlí 1899, dáin 8. apríl 1973 í Hafnar- firði. Tótý giftist 4. júlí 1953 Hafliða Stefánssyni. skipstjóra og áttu þau tvær dætur, Hafdísi arkitekt og Guðrúnu skrifstofustjóra. Hafliði fórst með bv. Júlí frá Hafnarfirði í _ janúar 1959 í ofsaveðri við Nýfunda- « land. Seinni maður Tótýar var Guð- mundur Andrésson sjómaður og áttu þau eina dóttur, Hrund. Þau skildu fyrir nokkrum árum. Hún Tótý ólst upp í glaðværum systkinahópi og var æskuheimili M hennar, Selvogsgata 2, ávallt vin- sæll áningarstaður ættingja og vina. A heimilinu bjó einnig föðurafi henn- ar, Kristinn Grímsson, og urðu þau miklir vinir, en afi var guðhræddur maður og kenndi hann þeim systkin- unum guðs orð og bænir. Sem barn var Tótý í sveit hjá móðursystur sinni að Hamraendum á Snæfellsnesi og var Nesið ávallt í miklu uppáhaldi hjá henni. Lítið þekki ég til upvaxtarára hennar en þegar sem bam var Tótý glaðvær, ávallt jákvæð og með stórt hjarta. Hún gekk í skóla í Hafnarflrði en lauk gagnfræðaprófí við Gagn- fræðaskólann á Laugarvatni. Síðar ■ lá leið hennar til náms í Danmörku og lauk hún þar námi við húsmæðra- skóla 1952. Áður en Tótý fór til Danmerkur hafði hún kynnst Haf- liða, en þau giftust 4. júlí 1953. Þau Hafliði vom afar hamingjusöm og — bjuggu við Köldukinn í Hafnarfirði. M Vegna veikinda móður minnar bjó ég hjá Tótý frænku einn vetur og var sá tími eitt ævintýri, því þar var alltaf eitthvað óvænt að gerast og hafði Tótý yndi af að leika sér við okkur krakkana og hjálpa til við lærdóminn. Ég gleymi aldrei þeirri stundu í janúar 1959 þegar símhringingin kom um að bv. Júlí væri saknað en það varð mikil sorg í fjölskyldu okk- ar og náði Tótý aldrei aftur þeirri Iífsgleði sem áður var. Það vom erf- ið ár framundan, með tvær litlar stúlkur, tveggja og þriggja ára, en þær nutu hlýju hjá afa og ömmu þegar mamma var að vinna. Tótý hóf verslunarrekstur með eigin verslun í Ásgarði sem hún rak um árabil. Einnig vann hún sem smurbrauðsdama á Hótel Sögu og tók að sér umsjón með veislum. Hún þótti frábær kokkur og eru þau ógleymanleg gamlárskvöldin með fjölskyldunni þegar Tótý matreiddi kalkún með tilheyrandi og afmælis- veislurnar hjá henni em enn í manna minnum. Hún var huglæg mjög og hafði gaman af því að taka myndir á upptökuvél og sýna okkur við heppileg tækifæri. Myndasýningar- kvöld hjá Tótý frænku var ævintýri líkast. Myndasafn Tótýar er töluvert og hafa dætur hennar flutt allar fílmur yflr á snældur. Slíkt meistara- verk er hverri fjölskyldu dýrmætt. Á mínum yngri ámm var afmæli aldrei alvöru ef Tótý frænka mætti ekki með myndavélina, en það var alltaf geislandi líf og fjör í kringum hana og minnumst við systkinin þeirra stunda með mikilli hlýju. Lífshlaup Tótýar á búskaparárun- um með Guðmundi þekki ég lítið. Þau bjuggu um árabil á Blönduósi, en þar stundaði hún verslunarstörf við Kaupfélagið og hann sjó- mennsku. Nú hin seinni ár var Tótý frænka oft gestur á mínu heimili og bjó hjá okkur um tíma 1984-1985 og fengu bömin mín þá að kynnast manngæð- um he-mar, góðmennsku, fómfýsi og hjá.r Fyrir það tímabil vilj- um við öll þakka með einlægni og virðingu. Á kveðjustund okkar Tótý, sem Sigríður Svanhvít Sig- urðardóttír - Minning Fædd 17. febrúar 1911 Dáin 14. október 1992 Ég vil minnast í örfáum orðum ömmu minnar, Sigríðar Svanhvítar, eða ömmu á Skóló, eins og hún var oftast kölluð. Það eru margar minn- | ingar sem skjótast upp í kollinn þeg- ar maður sest niður og hugsar til baka. Það var alltaf notalegt a koma niðrá Skóló, því alltaf hafði amma tíma fyrir mig. En hjá henni var mitt annað heimili í æsku. ■ Já, það er margs að minnast, ’ margar kvöldstundir fóru í mas og annan kjaftagang um lífið og tilver- una. En skemmtilegast var þó er við fórum tvær ásamt dóttur minni til Skotlands. Það var stutt en skemmti- leg ferð, og alltaf talaði amma um að fara aftur, en amma komst ekki til Skotlands aftur en hún komst á annan og betri stað, þar sem við hittumst seinna. Ég vil þakka ömmu minni allt sem hún hefur gert fyrir mig. Guð veri með henni. Sigríður Svanhvít Halldórsdóttír. var þremur dögum áður en hún yfír- gaf okkur til ástvina sinna, ræddum við lífíð og tilveruna mjög opið og sagði Tótý við mig: Kristinn minn, ég er lifandi dæmi um afdrif reyk- ingamanna, komdu því á framfæri. Ég vil fyrir hönd systkina minna og fjölskyldu minnar þakka Tótý frænku fýrir samfylgdina í lífínu og sendi fjölskyldu hennar, dætrum og barnabömum innilegustu samúðar- kveðjur. Megi guð styrkja ykkur öll. Krístinn Arnar Jóhannesson. BMSAM -.—(WUtlMmiCX.' p MVH [Wi L'OR£AL NYJUNG! EL 'VITAL FROÐUNÆRING SEM EKKI ÞARF AÐ SKOLA ÚR EFTIR HÁRÞVOTT. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Póstsendum samdægurs. Stærðir: 40-46. Litur: Hvítt. Ath.: Góðir innanhússskór með Air Stream sóla. Verð nú 2.495,- áður4.995,- Lmt Stærðir: 36-41. Litur: Marglitir. Verð nú 2.495,- áður 4.Ö9ÍV Stærðir: 36-41. Lftur: Svart. Verð nú 2.495,- V Domus Medica, Egilsgötu 3, sími 18519 Kringlunni, Kringlurmi 8*12, sími 689212 J Odýr jólafargjöld til helstu námsborga. Verö frá 22.000 kr. Samvinniilerðir-Laiiilsýii "'úJ-s I Rcykjavik: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 24 60 KeHavlk: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Slmbréf 92 -1 34 90 Akureyrl: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 2 40 87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.