Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992 * Ast er... I i / 0 iuAo 8-15 ... að segja henni að hún hafi kyssilegar varir. TM Reg. U.S Pat Off.—all rights reserved ® 1992 Los Angeles Tlmes Syndicate Er það ekki einsdæmi í hjónabandi að maðurinn neiti að skilja? HÖGNI HREKKVÍSI hendur annarra og síst af öllu í hendur stjórnar- manna. BREF TTL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Þá gerðist ég Evrópusinni! Frá Einari Sigurbjörnssyni: Já, það gerðist eiginlega í einu vetfangi dagana 12.-13. október sl. Þá varð mér ljóst, að aðild að EES-samningnum gæti ein tryggt, að við íslendingar fengjum heil- brigða neytendalöggjöf. Eg hafði lengi verið á báðiim áttum og reynt að vega rökin með og móti. Aðild að EB fannst mér auðvitað ekki koma til greina. Og sl. sumar átti ég samræður við vin minn, sem var nýkominn frá út- löndum eftir nokkurra ára dvöl. Og eins og títt er um landann, þegar hann kemur heim eftir nokkra útivist, fannst honum ýmislegt í umræðum og opinberu lífi hér á landi skrýtið, eitt þó framar öðru, og það var hversu opinberir aðilar á Islandi hefðu kæruleysislega afstöðu til laga og létu oft svo, að þau sé hægt að túlka að geðþótta. Ég reyndi nú að bera í bætifláka fyrir ráða- mennina, en varð þó að taka und- ir með vini mínum um margt. Og þar kom, að vinur minn sagði: „Ég held að innganga í EB sé eina lausnin. Þá yrðum við íslendingar að semja okkur að háttum siðaðra þjóða.“ Það rumdi nú í mér eitthvað um fijálsa þjóð i fijálsu landi og ekki væri nú fullveldið falt fyrir baunadisk. En svo gerðist það nú fyrir fá- einum vikum, nánar tiltekið mánu- daginn 12. október. Þá áttum við hjónin erindi við fyrirtæki eitt hér í borg. Við vildum kanna dálítið, sem gerst hafði í viðskiptum milli þess og sonar okkar. Fulltrúi fyrir- tækisins og trúnaðarmaður, er með málið hafði farið, mætti okk- ur með viðmóti, sem minnti helst á það, að hann sprautaði á okkur ísköldu vatni úr háþrýsidælu. Ég ræddi við yfirmenn og lögfræð- inga, neytendasamtök og önnur fyrirtæki og samdóma álit var, að það hefði verið farið fullkomlega að lögum í þessum viðskiptum. Og einn sagði, að umræður um siðferði og önnur slík álitamál ættu barasta ekkert erindi inn i umræður um viðskipti, jafnvel ekki lögfræði! Og ég lá andvaka í rúminu mínu heila nótt með hroll í mér eftir háþrýstiþvottinn. Það vantar neyt- endalöggjöf ná íslandi! Lögin vernda fyrirtækin, ekki fólkið! Þar með hvarf andastaðan við EES á augabragði. Á grundvelli EES verðum við íslendingar að sam- ræma neytendalöggjöf okkar evr- ópskri neytendalöggjöf. Þar með gætum við stillt okkur í flokk með siðuðum þjóðum, sem reyna að tryggja það í lögum, að réttur hins sterka ráði ekki, heldur nái laga- vernd líka til hins veika. Því styð ég EES. EINAR SIGURBJÖRNSSON prófessor Bauganesi 28, Reykjavík HEILRÆÐI Góð björgun- arvesti hafa þann kost að snúa sjálfkrafa þeim er þau nota í flot- legu. Öll vesti ættu að vera með endurskinsborð- um flautu og ljOSl. Víkveiji skrifar Fyrir nokkru tók Verðbréfa- markaður íslandsbanka hf. upp þá nýbreytni að efna til nám- skeiða um fjármál einstaklinga. Aðsókn var meiri en búizt var við í upphafi og í Morgunblaðinu nú um helgina mátti sjá auglýsingu frá VIB um frekari námskeið af þessu tagi. Jafnframt hefur fyrirtækið gef- ið út Fjármálahandbók VÍB, sem á að auðvelda einstaklingum ann- ars vegar að hafa yfirsýn yfir fjár- mál sín og hins vegar að horfa til framtíðar við uppbyggingu eigna. Aðsókn að námskeiðum VÍB og raunar einnig að námskeiðum um áþekkt efni, sem Neytendasam- tökin hafa efnt til, sýnir að nikil þörf er fyrir leiðbeiningar um þetta efni. Það þarf engum að koma á óvart. Á síðasta áratug varð bylt- ing í fjármálakerfi þjóðarinnar, sem snerti mjög hag einstaklinga ekki síður en fyrirtækja. Jafnframt hefur fjölbreytni í þeirri flármála- þjónustu, sem fólki stendur til boða aukizt mjög, bæði í sam- bandi við sparnað og lántökur. xxx En um leið og fjölbreytnin hef- ur aukizt hefur margt komið í ljós, sem þarf að varast. Hlut- skipti eigenda hlutdeildarskírteina í verðbréfasjóðum, sem Fjárfest- ingarfélagið Skandia annast nú en Fjárfestingarfélag íslands hf. gerði áður er til marks um þá áhættu, sem eru á ferðinni fyrir sparifjáreigendur. Upplýsingar, sem fram komu í Morgunblaðinu í síðustu viku um kostnað við bíla- kaupalán sýna, að fólk þarf að huga vandlega að því, hvað lántök- ur kosta. Ef upplýsingastarfsemi af því tagi, sem Verðbréfamarkaður ís- landsbanka hf. stendur nú fyrir, hefði verið til staðar fyrir áratug, þegar verðtrygging fjárskuldbind- inga hóf innreið sína og frelsi í vaxtaákvörðunum í kjölfarið ásamt fjölmörgum öðrum breyt- ingum, sem urðu á þessu tímabili, m.a. í skattamálum og með afnámi vísitölutengingar launa, hefðu fjöl- margar fjölskyldur, sem átt hafa um sárt að binda vegna þessara breytinga, komizt betur frá þeim en raun varð á. Þá er það til sérstakrar fyrir- myndar, hvað VÍB hefur vandað mjög til þessa verks eins og sjá má á fyrrnefndri Fjármálahand- bók fyrirtækisins. Ekki er ólíklegt, að Verðbréfamarkaður íslands- banka hf. hafi hér hitt naglann á höfuðið, ef svo má að orði komast og uppgötvað þjónustu, sem mikil þörf er fyrir. Fréttir frá Noregi um þá ákvörðun Gro Harlem Brundt- land að hætta sem formaður norska Verkamannaflokksins til þess að geta sinnt fjölskyldu sinni betur í kjölfar sviplegs andláts sonar þeirra hjóna, vekja upp ýmsar tilfinningar um hlutskipti stjórnmálamanna nútímans og fjölskyldna þeirra. Kröfur á hendur stjórnmála- mönnum um að mæta á fundum hér og þar, á kvöldin og um helg- ar, svara símtölum heima við nán- ast hvenær sólarhrings sem er, tala við fjölmiðla, þegar fjölmiðlum þóknast, eru orðnar yfirgengileg- ar. Þegar þar við bætist vaxandi og tillitslaus umfjöllun um einkalíf þess fólks, sem þátt tekur í stjórn- málum er ljóst, að eitthvað hlýtur undan að láta. Stjórnmálamenn- irnir sjálfir kunna að hafa harðan skráp, en það sama á ekki endi- lega við um maka þeirra og börn. Fréttirnar af þingi norska Verkamannaflokksins ættu að verða alvarlegt umhugsunarefni öllum þeim, sem telja nánast allt leyfilegt, þegar í hlut á það fólk, sem hefur helgað sig stjórnmálum eða tekur þátt í opinberu lífi á einhvern hátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.