Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992 Kvótakerfið verð- ur að afnema eftir Óskar Þór Karlsson í lögnm um stjórn fiskveiða sem tóku gildi í ársbytjun 1991 er ákvæði þess efnis að sjávarútvegs- ráðherra skuli láta endurskoða lög- in fyrir árslok 1992. Lög þessi byggjast I meginatriðum á lögum frá árinu 1984, þegar tekin var upp svokölluð aflamarksaðferð, en í því fólst að veiðiheimildum var skipt upp milli skipa samkvæmt veiði- reynslu þeirra næstu þrjú ár þar á undan. í núverandi lögum voru undanþágur úr eldri lögum sem fólu í sér val á milli sóknarmarks og aflamarks afnumdar, þannig að nú er aflamarksaðferðinni alfarið beitt að undanskildum veiðum smá- báta. Samkvæmt ákvæðum lag- anna skulu smábátar einnig falla undir aflamark frá upphafi físk- veiðiárs 1994 (1. september) og fá úthlutað veiðiheimildum samkvæmt tilgreindum reglum sem byggja eiga á veiðreynslu þeirra. Nú á næstunni munu þessi lög því koma til umræðu á Alþingi, þegar nefnd sem sjávarútvegsráð- herra skipaði til þess að endurskoða þau, skilar af sér lillögum. í ljósi. þess að hér er um afar mikilvægt mál að ræða sem alvarlegur ágrein- ingur er um í þjóðfélaginu er nauð- synlegt að fram fari gagnrýnin umræða um það. Það að ágreining- ur um kerfið hafí minnkað eins og sumir fylgjendur þess halda nú fram er rangt. Þvert á móti fer þessi ágreiningur vaxandi. Því verð- ur að leita nýrra lausna. Fögur markmið án fyrirheita Fyrsta grein núgildandi laga um stjóm fískveiða hljóðar svo: „Nytja- stofnar á íslandsmiðum eru sam- eign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðia að vernd- un og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiði- heimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óaftur- kallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.“ Það er augljóslega vandaverk að setja löggjöf um stjórn fiskveiða og brýn nauðsyn að slík löggjöf sé vönduð. Það nægir ekki að setja fram í henni fögur markmið sem í framkvæmd verða dauðir bókstafír. Sú er raunin í núgildandi löggjöf. Auk þeirra atriða sem fram koma í 1. grein gildandi laga og allir ætti að geta sameinast um, þurfa að koma fram ýmis önnur skýr og skilgreind markmið sem lögin og framkvæmd þeirra verður að grundvallast á. Verður nú vikið að nokkrum slíkum grundvallaratrið- um og fjallað um hvemig gildandi löggjöf „þjónar" þeim. Þjóðin gaf fiskimiðin Það sem lögin fela í sér takmörk- un á atvinnufrelsi verða þau að vera almenns eðlis. Þau mega ekki mynda forréttindahóp sem verður til þess að útiloka eðlilega sam- keppni. Lögin mynda slíkan forrétt- indahóp. Með gildistöku þeirra var þeim réttindum að nýta fískimiðin skipt upp milli þeirra sem fyrir til- verknað örlaganna vom með físki- skip í rekstri á tilteknu árabili á íslandssögunni. Jafnframt em í lög- unum víðtækar heimildir til þess að framselja þessar „heimildir" milli skipa. Því myndaðist fljótt hátt verð á þessum heimildum. Kvótar hafa gengið kaupum og sölum fyrir stórfé. Þessi viðskipti hafa ein- skorðast við þann hóp aðila sem fékk ókeypis „hlutabréf" í fiskimið- unum frá þjóðinni. Aðrir hafa enga möguleika. Stórfelld breyting á samsetningu flotans Þegar svo áhrifamikil lög em sett eins og lög um stjórn fiskveiða verður að liggja fyrir frá hendi stjómvalda mótuð langtímastefna um þróun íslensks sjávarútvegs og lögin verða að þjóna þeim markmið- um sem þar em sett fram. Engin slík iangtímastefnumörkun liggur fýrir. Þróunin er stjórnlaus og af- leiðingamar eftir því. Hið fijálsa framsal varð til þess að mikið kapp- hlaup hófst um kaup á veiðiheimild- um. Stærstu útgerðarfélögin og þau sem greiðastan aðang höfðu að fjár- magni gerðust atkvæðamikil á þessum markaði. Margar togaraút- gerðir hafa keppst við að kaupa upp báta í því skyni að færa veiðiheim- ildir þeirra yfír á togarana. Á ótrú- lega skömmum tíma hefur orðið stórfelld breyting á samsetningu flotans. Togaraflotinn hefur stækk- að, en bátaflotinn minnkað að sama skapi. Afleiðing þessarar þróunar er sú að sífellt stærri hluti aflans er tekinn í botnvörpu á dýrum skip- um þar sem kostnaðarhlutdeild er- lends fjármagns er mest. Sú hag- ræðing sem skapast átti með fijálsu framsali veiðiheimilda birtist með þessum hætti og vinnur því beinlín- is gegn markmiðinu um hagkvæma nýtingu fískimiðanna. Nýliðun í útgerð og flotastærð Lögin mega ekki útiloka að nýlið- un í útgerð geti átt sér stað. Það gera núverandi lög. Verð á báti ásamt fullnægjandi veiðiheimildum er slíkt, að það er algerlega órekstr- arhæf eining. Það er rangt að nýlið- unarmöguleikar í kvótakerfinu séu með svipuðum hætti og áður var. Aðeins með því að leggja niður kvótakerfi og taka upp veiðistýr- ingu skapast möguleikar á nýliðun. Verð á skipi mundi að sjálfsögðu hækka mikið frá því verði sem er á kvótalaustu skipi í dag. Markaðs- verð skips mundi þá myndast út frá ástandi viðkomandi skips, ásamt þeim tekjumöguleikum sem menn vænta af rekstri þess og það færi eftir hæfni þeirra sem í hlut eiga hvernig þeir tekjumöguleikar nýt- ast, ásamt árferði til sjávar. Því tregari sem veiðin er vegna fískleys- is, því erfiðara er að sjálfsögðu að ná þeim árangri að reksturinn beri sig. Markaðsverð tæki því mið af því hvernig áraði til sjávar. Menn sæju sér betri hag í að þiggja greiðslu fyrir úreldingu þeirra held- ur en reyna að selja þau. Þeir rekstrarmöguleikar sem hin hefð- bundna íslenska efnahagsstjórn skapar leiðir til þess að útgerð er kröfuharður rekstur og hún á að vera það. Hafi menn til að bera þá hæfni sem þarf til þess að mæta þeim kröfum fá þeir sína umbun fyrir, en hverfa ella úr greininni. Það að nýliðun sé útilokuð er því þjóðhagslega óhagkvæmt. Þær reglur sem gilda í kvótakerf- inu eru óskynSamlegar. Þessar regl- ur sem skapa möguleika á að safna saman rúmlestum með því að fram- selja skrokka af skipum eða bátum milli aðila hafa átt stóran þátt í þeirri tilfærslu á samsetningu flot- ans sem fyrr er nefnd og stuðlað að fjölgun frystitogara. Þær þjóna ekki hagsmunum annarra en þeirra sem sterkasta stöðu hafa í kerfinu. Nýjar reglur sem skylda vinnslu- skip til þess að koma með allar afurðir að landi kalla á stækkunar- þörf vegna slíkra skipa sem þegar eru í rekstri. Slíkt verður ekki til annars en að bæta gráu ofan á svart. Að treysta atvinnu og byggð Sjávarútvegurinn, veiðar og vinnsla eiga að vera aflvaki öflugs atvinnulífs í sjávarplássum um- hverfís landið. Stjómkerfí fískveiða verður að vera þannig úr garði gert að það þjóni þessum markmið- um og stuðli að því að tryggja þjóð- hagslega hámarksarðsemi fiskimið- anna. Leikreglur núgildandi laga ganga á svig við þessi markmið og vinna í mörgu tilliti gegn þeim. í lögunum felst mikill mismunun milli greina innan sjávarútvegsins. Vinnslan er gerð réttlaus. Margir þeirra aðila sem hafa hvort tveggja með höndum, útgerð og fískvinnlu, nýta sér þetta óspart. Það er gert með því að nota veiðiheimildir á þann hátt að láta aðra físka þær fyrir sig og kaupa aflann síðan á hagstæðu verði. Þannig hefur myndast vísir að nokkurskonar lénsskipulagi sem er enn ein afleið- ing af þeim leikreglum sem felast í núgildandi lögum. Hér er ekkert við viðkomandi aðila að sakast. Hver er sjálfum sér næstur. Þetta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.