Morgunblaðið - 08.01.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 08.01.1993, Blaðsíða 13
séð er hvaða tilgangi slíkt gat þjón- að.“ í kjölfarið fylgja síðan bollalegg- ingar um hveijir „kunna að hafa staðið að baki þessari ævintýralegu sendiför á fund prinsins". — „Hveijir unnu að því að fá hann til landstjóm- ar á íslandi"? spyr Örn Helgason, að því er virðist í fullri alvöru. Hann talar um þann „þagnarmúr" sem reistur hafi verið um málið (hvað var um það að segja, það gerðist ná- kvæmlega ekki neitt) og þykir með endemum það fálæti sem íslendingar hafi sýnt prinsinum loksins þegar hann kom til landsins því „fáir er- lendir menn hafa sýnt landi og þjóð meiri og varanlegri áhuga eða átt hingað alvarlegri erindi (auðk. hér) en hinn ættstóri háaðalsmaður"! Örn Helgason reynir jafnframt að finna skýringar á fálæti þýskra ráða- manna um málið. Prinsinn taldi sér trú um að Göbbels hefði mælt ein- dregið með því við þýska utanríkis- ráðuneytið að sér yrði leyft að hlýða kalli „íslenskra dánumanna og föður- landsvina“ eins og fram kemur í bók Þórs Whiteheads Stríð fyrir strönd- um. Dr. Þór segir stuttlega frá þessu máli eins og hveiju öðru gríni, lýsir hvernig Göbbels hæddist að prinsin- um, sem ekki skildi að um háð var að ræða, og bætir við: „Göbbels hafði kímnigáfu til að sjá málið í réttu ljósi, en prinsinn taldi, að ekkert nema ófriðurinn og búraháttur Ribbentrops utanríkisráðherra hefði staðið í vegi fýrir því, að hann settist hér í há- sæti.“ (bls. 21.) en Örn Helgason sér allt með augum hins þýska prins og gerir því jafnvel skóna að þýskir ráðamenn kunni að hafa stungið er- indi prinsins undir stól vegna þess að Hitler hafi árið 1938 viljað kom- ast hjá styijöld við Breta og því ekki viljað styggja þá „með því að seilast með áberandi hætti inn á gamalt, breskt valdasvæði"! Mál þýska prinsins telur Örn Helgason „eitt furðulegasta ævintýri íslenskrar sögu“. Útgefandi bókar- innar, Skjaldborg, þykist líka hafa komist í feitt og gengur úr öllum Höfundur er rithöfundur, en leggurnú stund á doktorsnám í stjórnmálafræði við Oxford-háskóla. .., MOftGU^LAÐffi ,PÖ,S:i;UDA,GV^ ,8. r)ANÚA)t, ,1993 l'l13 ham við að selja bókina. Útgefandinn talar kinnroðalaust um „áform um stofnun konungdæmis á íslandi", segir að í bókinni sé „hulunni" lyft af „einu mesta feimnismáli íslenskrar sögu“, fullyrðir að Guðmundur Kam- ban og Kristján Albertsson hafi ver- ið með Jóni Leifs í ráðum, staðhæfir að þeir þrír hafí „boðið" þýska prins- inum að verða kóngur á íslandi, og talar síðan fullum fetum um að hon- um hafi verið „lofað“ konungdæmi á íslandi. í auglýsingum var svo klif- að á því að utanríkisráðuneytið hafí neitað að afhenda viðkvæm skjöl, þegar einu „skjölin" sem um er að ræða eru bréf sem prinsinn kvaðst hafa skrifað íslenskum stjómvöldum og augljóst að þar getur ekkert kom- ið fram umfram það sem prinsinn hefur sagt annars staðar. Um mál þýska prinsins, ef mál skyldi kalla, er í raun ekki annað að segja en að Jóni Leifs tókst að koma þeirri flugu í höfuðið á þessum manni að hann væri kallaður til kon- ungdóms á íslandi. Uppfrá því lifði prinsinn í þeirri blekkingu að hann væri „konungsefni á Islandi“. Hann var augsýnilega klikkaður — ekki ósvipað og maður nokkur sem kunn- ur var í Reykjavík á upphafsárum aldarinnar sem „þingmaður Bolvík- inga“. Sá var haldinn einhverri póli- tískri geggjun og kom jafnan inná ísafjörð á pólitíska fundi á sýslu- mannsárum Hannesar Hafsteins til að láta í sér heyra. Einhveiju sinni sagði Hannes við hann í gamni: Ja, þú ert nú eiginlega þingmaður Bol- víkinga! Með það fór karlinn til Reykjavíkur: Eg á að vera hérna við þingið, sagði hann, Hannes Hafstein segir að ég sé þingmaður Bolvíkinga! Er ekki þarna komið tilvalið efni fyrir Öm Helgason og Skjaldborg í jólabók að ári? Langur laugardagur - opið fra kl. 10-17 Hefst í fyrramálið - meiríháttar verðlækkun ENGiABORNIN BANKASTRÆT! 10 r. s i 2 t-“ 2 's á n K KAUPSTAÐUR r r 2. HÆÐIMJODD HVlTA HÚSIÐ / SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.