Morgunblaðið - 08.01.1993, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.01.1993, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 8. JANUAR 1993 MEIRIHATTAR UTSALA hefst í dag ^ » S K A F V /? , - STRÆTO K A K R ^ Reykjavíkurvegi 62, Hafnarfirði, sími 650680. 15-50 % AFSLÁTTUR STOR- ÚTSALA LITAVERS <o áttur veggfóður og borðar 25 % afsl keramikflísar 15-40%afsláttur gólfdúkar 15- 40% afsláttur gólfteppi 20-50 %afsláttur stök teppi 20% afsláttur dæmi: Monaco 160 x 230 kr. 7.880 Sara 160 x 230 kr. 4.632 dreglar-mottur sparsl-lím OPIÐ LAUGARDAG FRÁ 1 líttu við í Litaveri - það hefur ávallt borgað sig Minning Guðmundur S.M. Jónasson, vélsmiður Fæddur 5. desember 1931 Dáinn 31. desember 1992 Algerlega óvart barst undirrituð- um andlátsfregn Guðmundar Stef- áns Mildenbergs Jónassonar vél- smiðs sem lést 31. desember sl. Hann var fæddur 5. des. 1931. Guðmundur var mætur félagi og vinur undirritaðs og náinn sam- starfsmaður frá mars 1973 til 1989 eða í rúmlega sextán ár. Guðmund- ur var hreinskiptinn dugnaðarmað- ur sem rækti störf sín af alúð, at- orku og samviskusemi með hliðsjón af félagslegum markmiðum og við- horfum. Guðmundur hefur í tveggja ára- tuga starfi unnið mikið og gott starf í þágu Félags járniðnaðarmanna og félagsmanna þess og áunnið sér stuðning og traust þeirra. Megin verkefni Guðmundar sem sam- starfsmanns félagsins hefur verið fjácmálaumsýsla og er það eitt ærið og nægilegt verkefni hverjum manni. Auk þess hefur hann unnið mikið og vel að öðrum þáttum í félagsstarfinu. Guðmundur S.M. Jónasson var fæddur í Hnífsdal og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík og Vélskóla Fiskifélags íslands og verklegt iðnnám í vél- smíði hjá Vélsm. Héðni hf. 1954- 1958. Guðmundur var vélstjóri á fiskiskipum 1960-1968 og einnig var hann sem vélsmiður hjá Vélsm. Héðni 1968-1973. Hann var ráðinn starfsmaður Félags járniðnaðar- manna frá 1. mars 1973 og hefur hann einnig átt sæti í stjórn félags- ins sama tímabil 1973-1992. Einn- ig hefur Guðmundur verið í mið- stjóm Málm- og skipasmíðasam- bands íslands og í stjórn Lífeyris- sjóðs málm- og skipasmíða. Foreldrar Guðmundar: Jónas Þórðarson frá Vognm við Isafjarð- ardjúp, smiður í Hnífsdal látinn 1965 og Sigríður Magnúsdóttir húsmóðir og verkakona. Sigríður varð níræð 11. júlí sl. Guðmundur hefur hugsað vel um móður sína og stutt hana háaldraða. Allir sem þekkja vita hversu vel Guðmundur hefur hugsað um móður sína og meta hann fyrir umhyggju hans við hana. Guðmundur Jónasson kvæntist 29. ágúst 1959 Hallfríði P. Ólafs- dóttur tannsmið og bankaritara. Foreldrar Hallfríðar: Ólafur Péturs- son og Sigríður Samúelsdóttir, eru bæði látin. Böm Hallfríðar og Guðmundar eru þijú. Ægir Jens fæddur 30. nóv. 1959, Jónas Þröstur fæddur 8. jan.' 1962 og Sigríður Hrund fædd 6. júní 1965. Systur Guðmundar eru Fanney Sigrún, Hulda Maggey Soffía, Jóna Kristín og Guðrún Þórhildur Björg. Nú þegar Guðmundur S.M. Jón- asson er allur þakka félagar og samstarfsmenn honum fyrir óeigin- gjarnt starf og félagslega afstöðu til málefna. Hugheilar samúðarkveðjur til Hallfríðar eiginkonu Guðmundar og bama þeirra og fjölskyldna. Guðjón Jónsson járnsmiður. Við hver áramót hvarflar hugur- inn til liðinna tíma. Minningarnar hrannast upp. Börn fæðast og vaxa úr grasi, og verða brátt að máttar- stólpum þjóðfélagsins. Einnig hverfa sjónum okkar í'bili yfir móð- una miklu ungir og aldnir sem við sárt söknum, og er ofar okkar skiln- ingi hvers vegna þeir voru burt kallaðir. Að okkar mati hverfa magir allt- of fljótt, sem okkur virðist eiga mikið eftir ógert hér í heimi, en sláttumaðurinn spyr hvorki um ald- ur né annað, og enginn veit hver verður næst kallaður. Jarðvist okkar er svo stutt að mikill vandi er okkur lagður á herð- ar með að nýta þann stutta tíma vel, það greinum við vel þegar litið er til baka. Árin líða hvert af öðru næstum sem örskot. Oft er tíminn knappur til að koma því í verk sem inna þarf af hendi. Nýliðið ár var þar engin undantekning. Skömmu áður en blysin lýstu upp himininn og kirkjuklukkurnar hringdu út árið, var enn eitt verk óunnið, það var að sýna gengnum vinum og ástvin- um virðingu og þökk, með því að setja Ijós á dánarbeð þeirra, það var síðasta verkið, þar fóru síðustu kraftar Guðmundar S.M. Jónsson- ar, þannig var hans lífshlaup, trú- mennska í störfum, umhyggja fyrir ástvinum sínum og vinum. Allt frá því að við vorum smá börn heima í Hnífsdal minnist ég hans sem góðs drengs í orðsins fyllstu merkingu. Ég ætla ekki að rekja störf Guðmundar S.M., það verður gert af öðrum, aðeins senda litla kveðju til vinar. Kveðjur og þakkir eru léttvægar þegar minnst er drengskaparmanns, en minning- arnar eru perlur sem verða vel geymdar. Mér var sýnt traust, þeg- ar mér var falið að gæta hans og veija hann gegn óhöppum og slys- um, þegar við sem börn vorum við leik í fjörunni, eða á Stekkjunum heima í Hnífsdal. Það fór vel á með okkur strax í barnaleikjum, og eng- an skugga bar á, þá er við hitt- umst síðar á lífsleiðinni, alltaf var gleði og glaðværð yfir okkar sam- fundum. Guðmundur S.M. var gæfumað- ur, hann fann sér traustan og góð- an lífsförunaut Hallfríði Ólafsdótt- ur, og byggðu þau sér fagurt heim- ili á Borgarholtsbraut 35, Kópavogi. Börnin þeirra þijú, Ægir, Jónas og Sigríður, tengdabörnin, og barnabörnin þijú, hafa veitt þeim ómælda gleði gegnum tíðina. Guðmundur S.M. var góður heimilisfaðir, faðir, tengdafaðir og afi. Honum var mjög annt um fjöl- skyldu sína og mátti vera stoltur af henni. Hann hafði gaman af ferðalögum og naut sín í faðmi íjöl- skyldunnar. Háaldraða móður sína annaðist hann af einskærri skyldu- rækni og natni sem við gætum mikið lært af, en þannig voru öll hans störf rækt. Á gamlársdag færðist skuggi yfir himininn, fjölskyldu hans og vini, þá er hann var skyndilega burt kallaður. Fjölskylda hans og vinir drúpa höfði með virðingu og þökk i huga fyrir samfylgdina og góðverkin sem hann vann fyrir sam- ferðafólk sitt. Hinn djúpa harm háaldraðrar móður, eiginkonu, barna og annarra fjölskyldumeðlima biðjum við góðan guð að milda og lina þjáningar. Einnig í hans nafni sendum við hjónin dýpstu samúðarkveðjur. Guðrún Jónsdóttir. Vinur okkar Guðmundur S.M. Jónasson varð bráðkvaddur á gaml- ársdag, aðeins 61 árs gamall. Það er alltaf mikil eftirsjá í góð- um mönnum. eins og Guðmundi. Hann var greindur maður og skemmtilegur, glaður í viðmóti og glettinn vel á góðum stundum. Hjálpsamur var hann og traustur og reyndist mörgum vel. Guðmund- ur var sérlega barngóður og börn hændust mjög að honum hvar sem hann fór. Okkar böm nutu þess, og þó sérstaklega dótturdóttir okk- ar, sem var hjá þeim sín fyrstu æviár og þau hjónin reyndust henni framúrskarandi vel eins og bestu foreldrar. Guðmundur fæddist 5. desember 1931 í Hnífsdal. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Magnúsdóttir og Jónas Þórðarson. Guðmundur ólst upp í Hnífsdal ásamt systrum sínum fjórum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.