Morgunblaðið - 08.01.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR ,1993
11
Dýrasta laxveiði-
áin lækkar mikið
Verð laxveiðileyfa í Laxá á
Asum hefur lækkað mjög frá síð-
asta ári. Engu að síður er áin af-
gerandi dýrasta laxveiðiá lands-
ins. Miðað við meðalveiði á stöng
er áin auk þess besta laxveiðiá
landsins. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er dýrasti tíminn
í júlí að jafnaði um 100.000 krónur
á stöng á dag, en um líkt leyti á
síðasta sumri voru leyfi boðin á
um 130.000 krónur og höfðu þau
þá lækkað úr um 160.000 á stöng
á dag sumarið 1991.
Þá herma heimildir Morgunblaðs-
ins að nokkuð sé búið að selja af
leyfum á ýmsum tímum sumarsins,
til dæmis hafi einn og sami erlendi
veiðimaðurinn keypt báðar stangirn-
ar í tólf daga samfleytt í júlí, en
mikið sé einnig óselt, meira en oft
áður, sé miðað við hve mikil eftir-
spurnin hefur verið í Laxá í gegnum
árin.
Laxá er einnig hærri í verði en
aðrar ár utan svokallaðs besta veiði-
tíma. Þannig eru dagar í síðari hluta
júnímánaðar falir á 75.000 krónur á
stöng og dagar snemma í ágúst og
rétt fyrir miðjan mánuðinn eru falir
á 80.000 til 90.000 krónur. Rétt er
þó að geta þess að söluaðilar eru
ýmsir og verðleggur hver fyrir sig.
Hér eru nefndir til dýrustu dagar sem
frést hefur af.
Morgunblaðið/gg
Verð laxveiðileyfa fer lækkandi
í mörgum ám.
Veitt er á tvær stangir í ánni og
í fyrra veiddust rúmlega 800 laxar.
Var það fjórða sumarið í röð að veið-
in er langt innan við þúsund laxa
en þegar best lætur veiðast um 1.800
til 1.900 laxar.
Áður hefur verið greint frá verð-
lækkunum í þekktum ám svo sem
Laxá í Kjós, Norðurá og á efsta hluta
Langár á Mýrum. Víðast hvar mun
þó verðið standa í stað frá gamla
árinu og má nefna þar ár eins og
Vatnsdalsá og Víðidalsá þar sem
dýrasti dagurinn kostaði um 55.000
krónur í fyrra, og Miðfjarðará sem
er í iíkum gæðaflokki, en allnokkru
ódýrari. Leirvogsá, sem var ein af
þremur bestu laxveiðiánum á síðasta
stórveiðisumri, hækkar ekki, en þar
kostar dagur á besta tímanum rúm-
lega 30.000 krónur.
ATHYGLISVERÐASTA AUGLÝSING ÁRSINS 1992
LUMAR ÞÚ Á AUGLÝSINGU?
(slenski markaðsklúbburinn ÍNIARK i
samráði við Samband íslenskra
auglýsingastofa efnir til samkeppni
um athyglisverðustu auglýsingu
ársins 1992.
Skilyrði fyrir þátttöku er að auglýsingin
sé gerð af íslenskum aðila og hafi
birst fyrst á árinu 1992.
Tilgangur samkeppninnar er að vekja
almenna athygli á vel gerðum
auglýsingum og auglýsingaefni og
veita aðstandendum þeirra
verðskuldaða viðurkenningu.
Veitt verða verðlaun fyrir bestu
auglýsinguna í eftirtöldum flokkum:
Kvikmyndaðar auglýsingar
Útvarpsauglýsingar
Dagblaðaauglýsingar
Tímaritaauglýsingar
Auglýsingaherferðir
Umhverfisgrafík
Útsendiefni
Vöru- og firmamerki
Skilafrestur rennur út á hádegi
15. janúar 1993
Þátttökureglur og eyðublöð liggja
frammi á skrifstofu SÍA, frá kl.
09:00-12:00, Háteigsvegi 3,
105 Reykjavík, simi 91-629588
og þti ncevö áncegjulegum ávcmgri
Hefst 9. janúar
- mæting 5x í viku í leikfimi
- fitumælingar og vigtun
- fræðslufundur
þátttakendur skila matardagbók og fá
- matardagbók umsögn og ráðgjöf um breytt mataræði
- Ijúffengar mataruppskriftir m. léttu fæði
- aðhald og hvatning
Skemmtilegir tímar í góöum félagsskap og þú losnar við óvelkomna fitu
og lærir aö tileinka þér nýjan lífsstíl svo aö aukakílóin veröi ekki framar
vandamál. Þú færö ailar upplýsingar í síma 68 98 68.
Verð
kr. 9.900,-
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 68 98 68
★ Morgunhópur
k Daghópur
★ Kvöldhópur
★ Vaktavinnufólk velkomið
★ Barnagæsla
A G R O
27.-31.1. 1993
Hópferð á þessa vinsælu sýningu, sem haldin verður í Herning á Jótlandi.
Fararstjóri verður Agnar Guðnason. Dvalið í Kaupmannahöfn á heimleið.
Verð frá 43.890
Innifalið er flug, gisting með morgunverði, akstur til Jótlands og á
sýninguna og íslensk fararstjórn. íslenskur og danskur
flugvallarskattur, 1.920 kr., ekki innifalinn.
m.v.stgr.
Sam vinimleröir - L anús ýn
Austurstræti 12, sími 91-691010
Söludeild: Hótel Sögu við Hagatorg, sími 91 -622277
Akureyri: Skipagötu 14, sími 96-27200