Morgunblaðið - 08.01.1993, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR ,1993
ÚTVARP/SJÓWVARP
SJÓNVARPiÐ B STÖÐTVÖ
18.00
RADIIflFEkll ►Hvar er Valli?
DHHnHLrm Nýr, breskur
teiknimyndaflokkur um strákinn
Valla sem gerir víðreist bæði í tíma
og rúmi og ratar í alls kyns ævin-
týri. Þýðandi: Ingólfur Kristjánsson.
Leikraddir: Pálmi Gestsson. (10:13)
18.30 ► Barnadeildin (Children’s Ward)
Leikinn, breskur myndaflokkur um-
hversdagslífíð á sjúkrahúsi. Þýðandi:
Þorsteinn Þórhallsson. (16:26)
18.55 pTáknmálsfréttir
19.00 ►Magni mús (Mighty Mouse)
Bandarísk teiknimynd um hetjuna
hugprúðu, Magna mús. Þýðandi:
Ásthildur Sveinsdóttir.
19.30 ►Skemmtiþáttur Eds Sullivans
(The Ed Sullivan Show) Bandarísk
syrpa með úrvali úr skemmtiþáttum
Eds Sullivans, sem voru með vinsæl-
asta sjónvarpsefni í Bandaríkjunum
á árunum frá 1948 til 1971. Fjöldi
heimsþekktra tónlistarmanna, gam-
anleikara og fjöllistamanna kemur
fram í þáttunum. Þýðandi: Ólafur
Bjami Guðnason. (11:26)
20.00 ►Fréttir og veður
20.35 hiCTTID ►Sykurmolarnir t
rícl I m Namríku Þáttur um
ferð Sykurmolanna til Bandaríkjanna
þar sem þeir komu fram á fjölda
tónleika ásamt írsku hljómsveitinni
U2.
21.05 ►Yfir landamærin (Gránslots)
Sænskur spennumyndaflokkur fyrir
únglinga, sem gerist í fjallaþorpi á
landamærum Svíþjóðar og Noregs í
seinni heimsstytjöldinni. Þýðandi:
Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision
— Sænska sjónvarpið) (1:4)
21.35 ► Derrick Þýskur sakamálamynda-
flokkur með Horst Tappert í aðalhlut-
verki. Þýðandi: Veturliði Guðnason.
(6:16)
22.35 VIfllfllVUniD ►Skrímsli í
nvinmiRuin skápnum
(Monster in the Closet) Bandarísk
gamanmynd frá árinu 1986. Hér seg-
ir frá fréttamanni og vísindamanni
sem taka höndum saman og reyna
að vinna bug á morðóðu skrímsli er
skýtur upp í fataskápum fólks. Leik-
stjóri: Bob Dahlin. Aðalhlutverk:
, ,Donald Grant, Denise DuBarry og
Claude Akins. Þýðandi: Þorsteinn
Þórhallsson. Kvikmyndaeftirlit rík-
isins telur myndina ekki hæfa
áhorfendum yngri en 12 ára. Malt-
in gefur ★ ★ ★.
00.05 ►Madonna Breski sjónvarpsmaður-
inn Jonathan Ross ræðir við Ma-
donnu um nýja plötu og mjög umtal-
aða bók sem hún sendi frá sér nýver-
ið. í þættinum er einnig brugðið upp
tónlistaratriðum. Þýðandi: Olöf Pét-
ursdóttir.
1.00 ►Útvarpsfréttir i dagskrárlok
16.45 ►Nágrannar Áströlsk sápuópera.
17.30 ►Á skotskónum Teiknimyndaflokk-
ur um Kalla og vini hans í knatt-
spymufélaginu.
17.50 ►Addams-fjölskyldan Teikni-
myndaflokkur um hina stórskrítnu
Addams-íjölskyldu. (1:13)
18.10 ►Ellý og Júlli Leikinn ástralskur
myndaflokkur. (1:13)
18.30 ►NBA tilþrif (NBA Action) Endur-
tekinn þáttur frá sl. sunnudegi.
19.19 ►19:19 Fréttir og veður.
20.15 hiCTTID ► Eiríkur Viðtalsþátt-
rlL I IIII ur í beinni útsendingu
í umsjðn Eiriks Jónssonar
20.30 ►Óknyttastrákar II (Men Behaving
Badly II) Breskur gamanmynda-
flokkur um náunga sem búa saman.
(2:6)
21.00 ►Stökkstræti 21 (21 Jump Street)
Bandarískur spennumyndaflokkur
um unga rannsóknarlögreglumenn
sem sérhæfa sig í glæpum meðal
unglinga. (13:20)
21.50
KVIKMYNDIR
►Við Zelly
(Zelly and Me)
Isabella Rossellini, Glynis Johns og
David Lynch leika aðalhlutverk í
þessari kvikmynd um samband mun-
aðarlausrar stúlku við umhyggju-
sama fóstru sína og afbrýðisama
ömmu. Leikstjóri er Tina Rathborne.
1988. Maltin gefur ★ ★ 'h.
23.20 ►Syndaaflausn (Absolution) Rich-
árd Burton fer með eitt magnaðasta
hlutverk ferils síns í þessum spenn-
utrylli. Tveir drengir, Dominic Guard
og Dai Bradley, leika aðalhlutverk á
móti Burton. iÆÍkstjóri: Anthony
Page 1979. Stranglega bönnuð
börnum. Maltin gefur ★ ★ lh.
0.55 ►Draumastræti (Street of Dreams)
Thömas'Kyd lifir þægilegu lífi-í-Suð-
ur-Kaliforníu þar sem hann 'starfar
sem binkaspæjari fyrir konur sem
grunar að eiginmenn þeirra eigi hjá-
konur. Þegar Paul Sassari, einn for-
kólfa kvikmyndaveranna í Hollywood,
er myrtur kemst Thomas að því að
hans eigin ástkona er ekkja Sassaris
og liggur sterklega undir grun um
að hafa sálgað karlinum. Leikstjóri:
William A. Graham. Bönnuð börn-
um. Maltin gefur miðlungseinkunn.
2.25 ►Dómur fellur (Seven Hours To
Judgement) Dómarinn John Eden
hefur ekki næg sönnunargögn til að
sakfella þijá mehn sem ákærðir eru
fyrir morð á ungri konu og kveður
upp sýknudóm. David Reardon, eigin-
maður hinnar myrtu, sturlast þegar
óþokkarnir eru látnir lausir. Hann
rænir. eiginkonu dómarans og setur
honum úrslitakosti. Aðalhlutverk:
Beau Bridges, Ron Leibman og Jul-
ianne Phillips. Leikstjóri: Beau
Bridges. 1988. Stranglega bönnuð
börnum. Maltin gefur ★ ★.
3.55 ►Dagskrárlok
í hættuferð - Henry, faðir Sigga, þarf oft að sendast inn
í hinn hernumda Noreg.
Siggi og Tove
í hættuferð
Sagan gerist á
landamærum
Svíþjóðar og
Noregs í
strlðinu
SJÓNVARPIÐ KL. 21.05 Yfir
landamærin nefnist sænskur
spennumyndaflokkur í fjórum þátt-
um, sem gerist á landamærum Sví-
þjóðar og Noregs í seinni heimsstyij-
öldinni. Hjónin Henry og Þórunn
Eriksson búa Sviþjóðarmegin við
landamærin ásamt syni sínum,
Sigga , sem er fjórtán ára, og Tove,
frænku hans og jafnöldru. Faðir
hennar tekur þátt í starfi norsku
andspyrnuhreyfingarinnar og því
þótti ráðlegt að senda stúlkuna yfir
landamærin. Henry gegnir mikil-
vægu hlutverki við að lóðsa fólk
jrfir landamærin og sendast inn í
hinn hernumda Noreg og í einni
slíkri hættuferð verður hann fyrir
óhappi. Siggi má til að koma föður
sínum til hjálpar og Tove slæst í för
með honum.
SyndaaHausn
Richards Burtons
Burton var
aðalhvatamað-
ur að gerð
myndarinnar
og tók ekki
laun fyrir vinnu
sína
STÖÐ 2 KL.23.20 Richard Burton
var á hátindi ferils síns þegar mynd-
in Syndaaflausn (Absolution) var
gerð 1979 en lifði ekki að sjá frum-
sýninguna. Vegna lagalegra deildna
dróst sýningin um sjö ár. Myndin
er byggð á leikriti Anthonys Shaff-
ers og segir frá ósveigjanlegum
skólastjóra sem verður fómarlamb
eigin stjórnunaraðferða. Richard
leikur skólastjórann, Goddard, sem
er prestur og stýrir kaþólskum skóla
fyrir unglingsstráka. Hann er ákaf-
lega strangur og beitir miskunnar-
lausum þvingunum til að móta nem-
endur sína. Aðferðir hans draga
fram allt það versta í piltunum, og
það þarf aðeins lítið atvik til að allt
fari úr böndunum.
Ár dauð-
ans
Við áramót er venja að gera
árið upp í máli og myndum.
Svipmyndir af innlendum og
erlendum vettvangi nefnist
áramótauppgjör ríkissjón-
varpsins en Innlendur og Er-
lendur annáll kallast uppgjör
Stöðvar 2 og svo er Ekki-
fréttaannállinn á dagskrá
Rásar 2.
Depurð
Stundum forðast ég að
horfa á þessa annála alla sam-
an. Þeir fylla hjartað svo mik-
illi depurð. Siðmenningin er
eins og vaða af sæskjaldbök-
um sem hefur vart silast upp
í ljósið. Fjölmargar svamla
enn í djúpum hafsins þar sem
rökkrið sveipar myrkraverkin
undarlega óraunverulegri
blæju. Brot úr ljóði Lorca
Saungur riddarans í þýðingu
Jóhanns Hjálmarssonar skálds
tjáir e.t.v. þessa tilfinningu:
„Yfir sléttuna gengum storm-
inn/ svartur hestur rautt
túngl/ Dauðinn starir á mig/
úr turnum Kordóvu.
Mynd af sundurskotnum
tjúkandi háhýsum í Belgrad
þar sem dauðinn starir á varn-
arlaust fólkið. Æpandi skin
sjónvarpsvélanna mætir prúð-
búnum hermönnum frá
Bandaríkjunum sem stika yfir
líkin svo undarlega mjóslegin
líkt og unglingar á gelgju-
skeiði hafi látist þúsundum
samán. Líkklæðin tandur-
hrein. Fólkið reynir í van-
mætti sínum að dusta rykið
af ástvinum sem hverfa í nafn-
lausar grafir. Örlítill vottur
mennskunnar.
Stefán Jón Hafstein hefur
ferðast um svæði dauðans og
greindi nýlega frá reynslu
sinni í einskonar áramóta-
spjalli á Rás 1. Stefán Jón
reyndi kannski full mikið að
grafast fyrir um pólitískar
forseldur voðaverkanna er
hann reikaði um hryllingssvið-
ið. Þessar hörmungar er ekki
hægt að skýra pólitískt. Dauð-
inn starir úr turnunum og
sæskjaldbökurnar leita í djúp-
ið inn í rökkrið ómennska.
Þannig sjónvarpsminningar
hlaðast upp frá liðnu ári.
Ólafur M.
Jóhannesson
UTVARP
RÁS1
FM 92,4/93,6
6.SS Bæn
7.00 Fréttir. Morgunþáttur Rásar 1.
Hanna G. Sigurðardóttir og Trausti Þór
Sverrisson. 7.20 „Heyrðu snöggv-
ast..." „Bókatötrar", sögukorn úr
smiðjtl Hrannars Baldurssonar. 7.30
Fréttayfirtit. Veðurlregnir, Helmsbyggð.
Verslun og viðskipti. Bjárni Sigtryggs-
son, Or Jónsbók. Jón Örn Marinósson.
8.00 Fréttir. 8.10 Pólitiska homið. 8.30-
Fréttayfirtit. Úr menningarlífinu. Gagn-
rýni. Menningarfréttir utan úr heimi.
9.00 Fréttir.
9.03 „Ég man þá tíð". Tíu ára afmælis-
þáttur, Bústaðakvartettinn kemur i
heimsókn og syngur lagasyrpu eftir
Sigfús Halldórsson; Guðni Þ. Guð-
mundsson stjórnar. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
9.46 Segðu mér sögu, „Ronja ræningja-
dóttir" eftir Astrid Lindgren. Þorleifur
Hauksson les eigin þýðingu (12).
10.00 Fréttir.
10.03 Morgunleikfimi með Halldóru
Bjömsdóttur.
10.10 Árdegistónar.
10.46 Veðurfregnir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samfélagið i nærmynd. Umsjón:
Ásdis Emilsdóttir Petersen, Bjarni Sig-
tryggsson og Margrét Erlendsdóttir.
11.63 Dagþókin.
12.00 Fréttayfirlit á hádegi.
12.01 Að utan.
12.20 Hádegisfréttir.
12.46 Veðurfregnir.
12.60 Auðlindin. Sjávarútvegs- og við-
skiptamál.
12.67 Dánarfregnir. Auglýsingar.
13.05 Hádegisleikrit Útvarpsleikhússins,
„Einu'sinni á nýársnótt" eftir Emil Brag-
inskí og Eldar Rjazanov, Fimmti þáttur
afí.tlu. Þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir.
Útvarpsaðlögun: lllugi Jökulsson. Leik-
stjóri; Hjélmar Hjálmarsson. Leikendur:
Rúrik Haraldsson, Valdimar Crn Flyg-
enring, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Erla
Rut Harðardóttir, Ingrid Jónsdóttir og
Steinn Ármann Magnússon.
13.20 Út í loftið. Rabb, gestir og tónlist.
Umsjón: önundur Björnsson.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan, „Hershöfðingi
dauða hersins" eftir Ismaíl Kadare.
Hrafn E. Jónsson þýddi, Arnar Jónsson
les (5).
14.30 Út í loftið heldur áfram.
16.00 Fréttir.
15.03 Miðdegistónlist
16.00 Fréttir.
16.06 Sklma. Fjölfræðiþáttur fyrir fólk á
öllum aldri. Umsjón: Ásgeir Eggertsson
og Steinunn Harðardóttir, Meðal efnis
i dag: Náttúran i allri sinni dýrð og
danslistin. 16.30 Veðurfregnir. 16.45
Fréttir. Frá fréttastofu barnanna. 16.50
„Heyrðu snöggvast...“.
17.00 Fréttir.
17.03 Að utan. (Áður útvarpað í hádegis-
útvarpi.) ■
17.08 Sólstafir. Umsjón: Lana Kolbrún
Eddudóttir.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarþel. Egils saga Skallagríms-
sonar. Árni Björnsson þjóðháttafræð-
ingur les (5). Ragnheiður Gyða Jóns-
dóttir rýnir i textann og veltir fyrir sér
forvitnilegum atriðum.
18.30 Kviksjá. Meðal efnis kvikmynda-
gagnrýni úr Morgunþætti. Umsjón:
Halldóra Friðjónsdóttir og Sif Gunnars-
dóttir.
18.48 Dánarfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar. Veðurfregnir.
19.35 „Einu sinni á nýársnótt'' eftir Emil
Braginski og Eldar Rjazanov. Fimmti
þáttur af tiu. Endurflutt hádegisleikrit.
19.60 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá
í gær.
20.00 fslensk tónlist.
- Sex vikivakar eftir Karl 0. Runólfsson.
Sinfóniuhljómsveit islands leikur, Páll
P. Pálsson stjórnar.
- Sjöstrengjaljóð eftir Jón Ásgeirsson.
Sinfónluhljómsveit (slands leikur;
Karsten Andersen stjórnar.
20.30 Sjónarhóll. Stefnur og straumar,
listamenn og listnautnir. Umsjón: Jór-
unn Sigurðardóttir.
21.00 Á nótunum. Umsjón: Gunnhild
Byahals. (Áður útvarpað á þriðjudag.)
22.00 Fréttir.
22.07 Af stefnumóti. Úrval úr miðdegis-
þættinum Stefnumóti i vikunni.
22.27 Orð kvöldsins.
22.30 Veðurfregnir.
22.35 Tveir konsertar fyrir gítar, strengi
og fylgirödd eftir Antonio Vivaldi. Með-
limir Romero-fjölskyldunnar leika á gít-
ara með hljómsveitinni Academy of St.
Martin-in-the-Fields; lona Brown
stjórnar.
23.00 Kvöldgestír. Þáttur Jónasar Jónas-
sonar.
24.00 Fréttir.
0.10 Sólstafir. Endurtekinn tónlistarþátt-
ur frá síðdegi. Umsjón: Lana Kolbrún
Eddudóttir.
1.00 NæturúNarp á samtengdum rás-
um til morguns.
RÁS2
FM 92,4/93,6
7.03 Morgunútvarpið. Kristín Ólafsdóttir
og Kristján Þorvaldsson. Jón Björgvinsson
talar frá Sviss. Veðurspá kl. 7.30 og 10.45.
9.03 9-fjögur. Eva Ásrún Albertsdóttir og
Guðrún Gunnarsdóttir. Fjölmiðlagagnrýni
Hólmfríðar Garðarsdóttur. Fréttayfirlit og
veður kl. 12.00. 12.45 9-fjögur heldur
áfram. Gestur Einar Jónasson til kl. 14 og
Snorri Sturluson til kl. 16.16.03 Dagskrá:
Dægurmálaútvarp og fréttir. Starfsmenn
dægurmálaútvarpsins og fréttaritarar
heima og erlendis rekja stór og smá mál
dagsins. Veðurspá kl. 16.30.18.03 Þjóð-
arsálin - þjóðfundur í beinni útsendingu í
umsjón Sigurðar G. Tómassonar og Leifs
Haukssonar. 19.30 Ekkifréttir Hauks
Haukssonar. 19.32 Vinsældalisti Rásar 2
og nýjasta nýtt. Andrea Jónsdóttir kynnir.
22.10 Allt i góðu. Umsjón: Gyða Dröfn
Tryggvadóttir og Margrét Blöndal. Veð-
urspá kl. 22.30. 00.10 I háttinn. Umsjón:
Gyða Dröfn Tryggvadóttir. Veðurfregnir kl.
1.30. 1.36 Næturvakt Résar 2. Umsjón:
Arnar S. Helgason. 2.00 Næturútvarp til
morguns. Fréttir kl. 7, 8, 8.30, 9, 10, 11,
12, 12.20, 14. 15, 16, 17, 18, 19, 22 og
24.
NÆTURÚTVARPIÐ
2.00 Fréttir. 2.06 Með grátt í vöngum.
Endurtekinn þáttur Gests Einars Jónas-
sonar frá laugardegi. 4.00 Næturtónar.
Veðurfregnir kl. 4.30. 5.00 Fréttir. 5.05
Allt í góðu. Endurtekið úrval frá kvöldinu
áður. 6.00 Fréttir af veðri, færð og flug-
samgöngum. 6.01 Næturtónar hljóma
áfram. 6.30 Veðurfregnir. Morguntónar.
7.30 Veðurfregnir. Morguntónar.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
7.00 Það hálfa væri nóg. Morgunþáttur
Aðalstöðvarinnar í umsjón Davíðs Þórs
Jónssonar. 9.05 Katrín Snæhólm Baldurs-
dóttir. 10.00 Tónlist og leikir. Böðvar
Bergsson. 13.00 Hjólin snúast. Jón Atli
Jónasson. 16.00 Sigmar Guðmundsson,
18.30 Tónlist. 20.00 Magnús Orri Schram.
22.00 Næturvaktin. Karl Lúðviksson..3.00
Voice of America til morguns.
BYLGJAN FM 98,9
6.30 Morgunútvarp Bylgjunnar. Þorgeir
Astvaldsson og Eiríkur Hjálmarsson. 9.05
Islands eina von. Sigurður Hlöðversson
og Erla Friðgeirsdóttir. 13.10 Ágúst Héð-
insson. 16.05 Reykjavík síðdegis. Hall-
grímur Thorsteinsson og Auðun Georg
Olafsson. 18.30 Gullmolar. Tónlist frá fyrri
áratugum. 19.00 Hafþór Freyr Sigmunds-
son. 19.30 19:19. Fréttir og veður. 20.00
Hafþór Freyr Sigmundsson. 23.00 Þor-
steinn Ásgeirsson. 3.00 Nætun/akt.
Fréttir kl. 7, 8, 9, 10, 11, 12, 14, 16,
16, 17. iþróttafréttir kl. 13.
FM 957 FM 96,7
7.00 I bítið. Steinar Viktorsson. Umferðar-
fréttir kl. 8. 9.06 Jóhann Jóhannsson.
11.05 Valdís Gunnarsdóttir. Blint stefnu-
mót o.fl. 14.05 Ivar Guðmundsson. 16.05
I takt við tímann. Árni Magnússon ásamt
Steinari Viktorssyni. Umferðarútvarp kl.
17.10. 18.05 Gullsafnið. Ragnar Bjarna-
son. 19.00 Diskóboltar. Hallgrímur Krist-
insson leikur lög frá árunum 1977-1985.
21.00 Haraldur Gíslason. 3.00 Föstudags-
næturvakt.
Fréttir kl. 9, 10, 12, 14, 16 og 18. Iþrótta-
fréttir kl. 11 og 17.
BROSIÐ FM 96,7
7.00 Fyrstur á fætur. Kristján Jóhannsson.
9.00 Grétar Miller. 12.00 Hádegistónlist,
13.00 Fréttir. 13.06 Rúnar Róbertsson.
16.00 Siðdegi á Suðurnesjum. Ragnar
örn Pétursson og Hafliði Kristjánsson.
Fréttayfirlit og íþróttafréttir kl. 16.3018.00
Lára Yngvadóttir. 19.00 Eðvald Heimis-
son. 21.00 Friðrik Friðriksson. 23.00
Næturvaktin. 3.00 Næturtónlist.
SÓLIN FM 100,6
7.00 Guðjón Bergmann. 10.00 Birgir ö.
Tryggvason. 12.00 Arnar Albertsson.
15.00 Pétur Árnason. 18.00 Haraldur
Daði. 20.00 Föstudagsfiðringur Maqga
M. 22.00 Þór Bæring,
STJARNAN FM 102,2
7.00 Jóhannes Ágúst. Þægileg tónlist,
upplýsingar um veður og færð. Fréttir kl.
7, 8 og 9. 9.05 Sæunn Þórisdóttir með
létta tónlist. 10.00 Saga barnanna. 11.00
Olafur Jón Asgeirsson. Fréttirkl. 12 13.00
Ásgeir Páll spilar nýjustu tónlistina. Fréttir
kl. 17, Saga barnanna endurtekin kl,
17.15. 17.30 Lífið og tilveran. Ragnar
Schram. 19.00 Islenskir tónar. Fréttir kl.
19.30. 20.00 Ragnar Schram. 22.00
Kvöldrabb. Umsjón Sigþór Guömundsson,
24.00 Dagskrárlok.