Morgunblaðið - 08.01.1993, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.01.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993 27 ATVINN U Sölumaður - karl eða kona Um er að ræða sölu á sælgæti í verslanir og söluturna. Æskilegur aldur 25-35 ára. Þarf að geta unnið sjálfstætt. Upplýsingar í dag á skrifstofu frá kl. 15-18. íslensk dreifing, Bolholti 4, 3. hæð. Heilsugœslustöðin w Húsavík - sími 41333 Félagsráðgjafi ö Staða félagsráðgjafa (50% staða) er laus til umsóknar. Upplýsingar um starfið gefa yfirlæknir og hjúkrunarforstjóri, sími 96-41333. Heilsugæslustöðin Húsavík. Sjúfcrflbúsid í Húsnvík s.f. Meinatæknir Staða meinatæknis (50% staða) við Sjúkra- húsið í Húsavík er laus til umsóknar. Upplýsingar um starfið gefa deildarmeina- tæknir og framkvæmdastjóri, sími 96-41333. Sjúkrahúsið í Húsavík. KENNARA- HÁSKÖU ÍSLANDS Laus staða Við Kennaraháskóla íslands er laus til um- sóknar staða lektors í íslensku. Meginverk- efni lektorsins eru íslensk og almenn mál- fræði með áherslu á nútímaíslensku. Auk fullgilds háskólaprófs í grein sinni skal um- sækjandi hafa próf í uppeldis- og kennslu- fræðum eða að öðru leyti nægilegan kennslu- fræðilegan undirbúning. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af kennslu og skólastarfi. Umsókn fylgi ítarleg skýrsla um vísindastörf, .ritsmíðar og rannsóknir, svo og upplýsingar um námsferil og önnur störf. Þau verk, sem umsækjandi óskar að dómnefnd fjalli um, skulu einnig fylgja. Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. ágúst 1993. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir berist Kennaraháskóla íslands v/Stakkahlíð, 105 Reykjavík, fyrir 1. febrúar nk. Rektor. A ÍSLANDS Laust starf Kennaraháskóli íslands óskar að ráða verk- efnastjóra til starfa við endurmenntunardeild skólans frá 1. mars 1993. Starfssvið verkefnastjóra felst einkum í stuðningi við þróunarstarf, leiðbeiningum um starfsrannsóknir og umsjón með starfsleikni- námi auk daglegra stjórnunarstarfa. Verkefnastjóri skal hafa haldgóða þekkingu á skólastarfi. Æskilegt er að verkefnastjóri hafi reynslu af rannsóknum og þróunarstarfi á grunnskólastigi. Umsóknum, er tilgreini menntun og fyrrri störf, ber að skila til Kennaraháskóla Islands fyrir 1. febrúar nk. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Nánari upplýsingar veitir endurmenntunar- stjóri Kennaraháskólans í síma 688700. Rektor. R AÐ A UGL YSINGAR Gatnamálastjórinn í Reykjavík Hirðing jólatrjáa Hirðing jólatrjáa hefst föstudaginn 8. janúar næstkomandi og verður framkvæmd sam- hliða reglubundinni sorphirðu. Húsráðendur eru beðnir að setja tréin út fyrir lóðamörk og verða þau þá fjarlægð. Gatnamálastjórinn í Reykjavík. Hreinsunardeild. Auglýsing um fasteignagjöld Lokið er álagningu fasteignagjalda í Reykja- vík árið 1993 og verða álagningarseðlar sendir út næstu daga ásamt gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjaldanna. Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janúar, l. mars og 15. apríl. Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í Reykjavík, en einnig er hægt að greiða gíró- seðlana í næsta banka, sparisjóði eða póst- húsi. Skráningardeild fasteigna, Skúlatúni 2, veitir upplýsingar um álagningu gjaldanna, sími 632520. Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar, sem fengu lækkun á fasteignaskatti á liðnu ári, hafa fengið hlutfallslega lækkun fyrir árið 1992. Framtaisnefnd mun yfirfara framtöl gjaldenda þegar þau liggja fyrir, væntanlega í mars- eða aprílmánuði, og úrskurða endan- lega um breytingar á fasteignaskattinum, m. a. hjá þeim, sem ekki hafa fengið lækkun en eiga rétt á henni samkvæmt þeim reglum, sem borgarstjórn setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. 1. nr. 90/1990 um tekjustofn sveitarfélaga. Verður viðkomandi tilkynnt um niðurstöðu, ef um breytingu verður að ræða. Borgarstjórinn íReykjavík, 5. janúar 1993. Hluthafafundur Hér með er boðað til hluthafafundar í Árnesi hf. fimmtudaginn 14. janúar 1993, kl. 14.00, í samkomuhúsinu Gimli á Stokkseyri. Dagskrá: 1. Tillaga Byggðastofnunar um að farið skuli í einu og öllu eftir hluthafasamkomulagi frá 31.12. 1991. 2. Tillaga formanns stjórnar um traustsyfir- lýsingu á stjórn félagsins og fram- kvæmdastjóra. 3. Önnur mál, löglega fram borin. Tillögur liggja frammi á skrifstofu félagsins og verða sendar þeim hluthöfum sem þess óska. Hluthafar eru beðnir um að mæta tímanlega á fundinn og hafa meðferðis skilríki og um- boð sé um þau að ræða. Stjórn Árness hf. NAUÐUNGARSALA Framhald uppboðs Framhald uppboðs á eftirtöldum fasteignum verður á þeim sjálfum sem hér segir. 1. Foldahraun 37G, Vestmannaeyjum, þinglýst eign Sigurjóns Ólafs- sonar, eftir kröfum Verðbréfamarkaðs Fjárfestingarfélagsins, Veröbréfamarkaðs (slandsbanka hf., Ingvars Björnssonar hdl. og Sparisjóðs Vestmannaeyja, þriöjudaginn 12. janúar 1993, kl. 16.00. 2. Vestmannabraut 30, 2. hæð, Vestmannaeyjum, þinglýst eign Mariu Þorgrímsdóttur, eftir kröfum Brunabótafélags (slands og veödeildar Landsbanka (slands, fimmtudaginn 14. janúar 1993, kl. 16.00. Sýslumaöurinn i Vestmannaeyjum, 7. janúar 1993. m solu Ferðaskrifstofa Til sölu allt að 50% í lítilli ferðaskrifstofu. Fyrirspurnir sendist auglýsingadeild Mbl., merktar: „F - 3544", fyrir 15. janúar. Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar at- kvæðagreiðslu um kjör stjórnar, trúnaðar- mannaráðs og endurskoðenda í Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur fyrir árið 1993. Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrifstofu félagsins, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, eigi síðar en kl. 12.00 á há- degi, mánudaginn 11. janúar 1993. Kjörstjórnin. ATVINNUHUSNÆÐI Til leigu á Krókhálsi 300 fm skrifstofuhúsnæði á annari hæð, 200 fm skrifstofuhúsnæði á jarðhæð og 650 fm vörugeymsluhúsnæði á jarðhæð. Tvennar stórar innkeyrsludyr. Fullinnréttað og til leigu strax. Leigist allt í einu eða í einingum. Tilboð skilist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 18. þessa mánaðar, merkt: „T - 4459“, eða á telefax 673590. Aukin ökuréttindi Skráning stendur yfir hjá Ökuskólanum í Mjódd á námskeið, er hefst 18. janúar nk. kl. 18.15. Staðfestingargjald, kr. 5.000, greiðist við skráningu. Opnunartími mánud., þriðjud. og fimmtud. frá kl. 13.30-20.00 og miðvikud. og föstud. frá kl. 13.30-17.00. Nánari upplýsingar í síma 670300. Ökuskólinn í Mjódd, Þarabakka 3.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.