Morgunblaðið - 08.01.1993, Blaðsíða 34
34
MORPUNPIAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8, JANÚAR 1993
r a
Dans - dans - dans
12 ára stúlka, 153cmá hæð, sem æft hefur dans
í 5 ár og æfir 3svar í viku óskar eftir herra.
Upplýsingar ísíma 684427.
félk i
fréttum
DÆGURTONLIST
REKSTRARVÖRUR
fyrir skritstofuna
Sparaðu og nýttu pér janúartilboð RV
Stgr. m. VSK.:
Bréfabindi-------------------------------------- 188,-
L-plastmöppur, 100stk........................... 756,-
RV-ljósritunarpappír, 5x500 blöö______________ 1.295,-
Auk þess bjóöum við upp á disklinga,
tölvupappír, faxpappír ofl.
Hreinlega allt til hreinlætis og margt, margt fleira
fyrlr stofnanir, fyrirtækl og heimlli.
Opið frá kl. 8.00 -17.00
Þekking - Úrval - Þjónusta
REKSTRARVÖRUR
Réttarhálsi 2 - Sími: 91-685554 - Fax: 91-687116
Póník saman á ný
Hljómsveitin Pónik, frá vinstri: Úlfar Sigmarsson, Ari Jónsson,
Kristinn Sigmarsson og Þórir Úlfarsson.
Hver man ekki eftir hljómsveit-
inni Pónik, sem um árabil lék
á dansleikjum vítt og breitt um
landið og hafði sérstakt orð á sér
fyrir vönduð vinnubrögð og lipran
og skemmtilegan hljóðfæraleik.
Pónik hefur nú verið endurvakin
og hefur verið ráðin til að leika
fyrir dansi í veitingahúsinu Dans-
barnum við Grensásveg frá og með
helginni sem nú er að ganga í garð.
Það voru skólasveinar í Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar sem stóðu
að síofnun hljómsveitarinnar á
haustdögum árið 1962 og fyrstu
útgáfuna skipuðu þeir Úlfar Sig-
marsson, Einar Hólm, Halldór
Pálsson og Guðmann Kristbergs-
son. Tveimur árum síðar var brotið
blað í sögu sveitarinnar er Einar
Júlíusson mætti til leiks og er nafn-
ið Pónik og Einar greip djúpu letri
í sögu dægurtónlistar á íslandi
enda starfaði sú sveit með nokkr-
um mannabreytingum í átta ár.
Margir hafa komið við sögu
hljómsveitarinnar frá upphafi, en
allan tímann var Úlfar Sigmarsson
við hljómborðin og lengst af var
Einar söngvari. Gítarleikarar voru
Magnús Eiríksson, Kristinn Sig-
marsson og um skeið Finnur Torfi
Stefánsson. Um bassann sá fyrstu
árin Sævar Hjálmarsson en 1972
tók Hallberg Svavarsson við.
Trommuleikarar voru Erlendur
Svavarsson, Björn Bjömsson og
Sigurður Karlsson og Kristinn
Svavarsson saxaipnleikari byijaði
með Pónik árið 1970. Þorvaldur
Halldórsson söngvari kom einnig
við sögu 1973 til 1974 og hét sveit-
in þá Pónik og Þorvaldur. í septem-
ber 1974 byijaði svo Pónik og Ein-
ar á ný og bættist þá meðal ann-
ars Ari Elfar Jónsson í hópinn, en
Ari hafði skotist upp á stjömuhim-
ininn með hljómsveitinni Roof Tops
nokkrum árum áður og var í hópi
vinsælustu poppara landsins. Einn-
ig má geta þess að Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, söngkona úr B.G. og
Ingibjörg, starfaði með Pónik einn
vetur. A þessum árum, 1974 til
1977 lék Pónik í Sigtúni fyrir fullu
húsi helgi eftir helgi og minnast
margir þeirra ára með ánægju.
Raunar mætti telja upp marga
fleiri þjóðkunna tónlistarmenn sem
komu við sögu á löngum og litrík-
um ferli Pónik, sem starfaði með
hléum allt fram til vorsins 1989
en þá skildu leiðir.
Það er því vissulega ánægjuefni
að félagarnir Ari, Úlfar og Kristinn
skuli vera að fara að spila saman
á nýjan leik. Ekki er síður ánægju-
legt að fjórði maðurinn í hljóm-
sveitinni er Þórir, sonur Úlfars, en
Þórir hefur þegar getið sér gott
orð sem hljómsborðsleikari þrátt
fyrir ungan aldur. Þeir félagar
verða á Dansbamum fram á vor
og að þeirra sögn leggst árið vel
í þá enda kváðust þeir eiga von á
að liðið sem skemmti sér með þeim
í Sigtúni á „gullárunum" léti sjá
•sig.
ÚTSALA HEFST Á MORGUN
LAUGARDAGINN 9. JANÚAR
LANGUR LAUGARDAGUR A LAUGAVEGINUM -0PIÐ FRÁ KL. 10.00 TIL 17
Verslunin NETTÓ, LAUGAVEGI 30,
býöur til vöru-verðs-veislu,
sem hefst laugardaginn 9. janúar
1993, og stendur í örfáa daga.
10-60% AFSLÁTTUR
VIÐ BJÓÐUM: Nærföt, náttföt, sloppa, boli, buxur, sportfatnaö fyrir alla
fjölskylduna, auk þess sokkabuxur, sokka og margt, margt fleira.
sértílboo
daglega
LAUGAVEGI 30, SÍMI 624225
COSPER
- Komdu inn, við verðum líka að segja mömmu frá trú-
lofun okkar.
UTSALA
ÚTSALAN ER HAFIN
Gardínuefni kr. 290,- pr. meter.
Dragtarefni kr. 590,- pr. meter.
Tilbúnir kappar ó tilboósverói
og margt, margt fleira mjög ódýrt.
VEFTA,
Hólagarði, sími 72010.