Morgunblaðið - 23.01.1993, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 23.01.1993, Qupperneq 20
MÓRGÚkBLÁÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JANÚAR1993 Tillög-ur um uppstokkun á skipulagi menntamálaráðuneytis Skrifstofum fækk- að úr fjórum í tvær TILLÖGUR ura viðamiklar breytingar á skipulagi menntamálaráðu- neytisins eru nú tilbúnar og verður væntanlega ráðist í að fram- kvæma þær á fyrri hluta ársins samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins. Þær ganga í aðalatriðum út á að fækka skrifstofum ráðuneytis- ins úr fjórum í tvær; skólamálaskrifstofu og menningarmálaskrif- stofu. Einnig er til skoðunar í ráðuneytinu að ríkið selji skólavöru- búð Námsgagnastofnunar í tengslum við breytingar sem fyrir- hugaðar eru á starfsemi hennar og ákveðið hefur verið að kennslu- gagnamiðstöð Námsgagnastofnunar verði færð til Kennaraháskóla Islands. Markmiðið með breytingunum er að ná fram skilvirkara og ein- faldara skipulagi og liggja tillög- umar þegar fyrir í öllum aðalatrið- um og mun ekkert vera að vanbún- aði að ráðist verði í framkvæmd þeirra en eftir er að kynna þær innan ráðuneytisins. Verkefni færð úr ráðuneytinu verið tekin um það. Hlutverk Námsgagnastofnunar er að sjá nemendum grunnskóia fyrir náms- efni og koma árlega út milli 200 og 300 titlar af ýmsum náms- og kennslugögnum og er um 600 þús- und eintökum dreift til nemenda grunnskólanna árlega. Morgunblaðið/Sverrir Aflanum komið ígáma Veiði hefur ekki verið mikil að undanförnu og hefur í gáma til útflutnings í gærmorgun. Starfsmenn þar veðurfarið sett stórt strik í reikninginn. Alltaf kemur sögðust vona að veðurguðirnir færa að blíðkast svo þó einhver fískur úr sjó eins og sjá má á myndinni. að veiðin færi að glæðast. Unnið var á Faxamarkaði við að landa afia og setja Sturla Böðvarsson um úthlutun úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga Líklegt að pólitík ráði gerð- um félagsmálaráðherra STURLA Böðvarsson alþingismaður, sem sæti á í nefnd sem skipuð er af Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra og vinnur að endurskoðun á reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, segir að pólitísk tengsl ráði því að félagsmálaráðherra hafi sett reglugerð í desember sl. þar sem reglur um framlög úr sjóðnum eru rýmkað- ar, en samkvæmt þeim fékk Hafnarfjarðarbær 42 milljónir kr. úr sjóðnum. Hann segir að reglugerðin hafi verið sett án þess að haft hafi verið samband við nefndarmenn. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir að Sturla hafi misskilið hlutverk nefndar- innar og furðar sig á viðbrögðum hans. Undirbúningur að breytingum innan ráðuneytisins hefur staðið yfir í á annað ár og hefur m.a. verið metið hvort þörf sé á að öll sú starfsemi sem þar fer fram verði þar áfram eða hvort eðlilegra sé að verkefni verði flutt frá ráðu- neytinu til annarra aðila. Hefur þannig t.d. verið rætt um að færa rekstur grunnskólanna til sveitar- félaganna. Þá var sérstök úttekt gerð á starfsemi Námsgagnastofnunar og námsgagnagerð sem þar fer fram og er nú til skoðunar að selja skóla- vörubúðina sem stofnunin starf- rækir en ákvörðun hefur þó ekki Gunnar Jóak- imsson ráðinn framkvæmda- stjóri Síldarút- vegsnefndar GUNNAR Jóakimsson viðskipta- fræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Síldarút- vegsnefndar frá og með 1. febr- úar nk. í stað Einars Benedikts- sonar sem ráðinn hefur verið forsljóri Olíuverslunar íslands hf. frá sama tíma. Einar Benediktsson hefur starf- að hjá Síldarútvegsnefnd í tæplega 17 ár, eða frá 1. júlí 1976, og síð- ustu árin sem framkvæmdastjóri nefndarinnar. Gunnar Jóakimsson er 40 ára viðskiptafræðingur og hefur hann starfað hjá Síldarútvegsnefnd und- anfarin 12 ár. Snemma á síðasta ári samþykkti bæjarstjóm Hafnarfjarðar að leggja á 7,5% útsvar og þar með sköpuðust skilyrði fyrir því að Hafnarfjarð- arbær fengi framiag úr Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga. „Þegar það varð ljóst að hveiju Hafnfirðingamir stefndu, þ.e. að komast inn í sjóðinn, var tekin ákvörðun um að skipa nefnd til að endurskoða reglugerð sem er í gildi í því skyni að forða því að stóra sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu kæmust inn í sjóðinn og skertu hann verulega," sagði Sturla. í nefndinni eiga sæti auk Sturlu, Húnbogi Þorsteinsson, skrifstofu- stjóri í félagsmálaráðuneytinu, Val- garður Hilmarsson, oddviti í Húna- vatnssýslu, Guðmundur Árni Stef- ánsson bæjarstjóri í Hafnarfirði og Gunnlaugur Stefánsson alþingismað- ur. „Okkar vinna miðaði að því að endurskoða reglugerðina þannig að 1993 yrði staðið að þessu með skap- legum hætti. Við höfum unnið að þessu í góðri trú til þessa dags en síðan les ég það í Stjórnartíðindum að búið sé að gefa út breytingu á reglugerðinni, sem gerir mögulegt að úthluta fyrir síðasta ár til sveit- arfélaga þótt þau hafi ekki uppfyllt þessi skilyrði. Með þessu gerist það að Hafnarfjörður fær úthlutað úr Jöfnunarsjóði tæpum 43 milljónum króna þann 29. desember og Mos- fellsbær fær 29 milljónir króna,“ sagði Sturla. Alls var veitt úr sjóðn- um 85 milljónum kr. Sturla kvaðst telja afar líklegt að um pólitísk tengsl hafi ráðið gerðum félagsmálaráðherra. Félagsmálaráð- herra hefði ekki haft samráð við nefndina né heldur Samband ís- lenskra sveitarfélaga við útgáfu á reglugerðinni. Misskilningur Sturlu Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra sagði að Sturla hlyti að hafa misskilið hlutverk nefndar- innar. „Þetta kemur mér satt að segja mjög á óvart. Nefndin hafði mun víðtækara verkefni með hönd- um. Hún átti að endurskoða reglu- gerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga í Ijósi reynslunnar af þjónustufram- lögum og jöfnunarframlögum. Störf nefndarinnar hafa legið niðri um nokkurt skeið, m.a. vegna þess að ekki er komin niðurstaða í hvað kem- ur í stað aðstöðugjaldsins," sagði Jóhanna. Reglugerðarbreytingin „Það er ráðgjafanefnd sem skipuð er fimm mönnum, sem flestir koma frá smærri sveitarfélögunum, sem gerir tillögur til mín um úthlutanir úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á hveiju ári og hún gerði tillögu um breytingu á reglugerðinni. Fjórir af þessum fimm eru tilnefndir af Sam- bandi sveitarfélaga, þar af era tveir í stjórn sambandsins. Þegar búið var að úthluta jöfnun- ar- og þjónustuframlögum var eftir nokkur fjárhæð í sjóðnum þó að sveitarfélög hafi fengið full framlög í samræmi við reglugerð um sjóðinn. Ráðgjafanefndin taldi ekki rétt að færa þetta fjármagn á milli ára og því væri um tvær leiðir að ræða. Annars vegar að bæta þeim fjármun- um sem eftir voru ofan á framlög til þeirra sveitarfélaga sem þegar höfðu fengið framlög og hins vegar að breyta reglugerðinni og úthluta þessu til tekjulægri sveitarfélaga sem vegna ákvæða í reglugerðinni vora útilokuð frá framlögum. Þau sveitarfélög sem höfðu fengið úthlutað úr sjóðnum voru með í tekj- ur um 100 þúsund kr. á hvern íbúa. Meðalsveitarfélag eins og Mosfells- bær er með 81 þúsund kr. á íbúa og Hafnarfjörður er með um 89 þús- und kr. á íbúa auk nokkurra smærri hreppa sem voru með mjög lágar tekjur á hvem íbúa. Eftir þessa út- hlutun vantar Mosfellsbæ enn 50 milljónir til þess að ná tekjum sem flest sveitarfélög hafa og Hafnar- fjarðarbæ vantar 90-100 milljónir kr. til þess að ná tekjum sem flest önnur sveitarfélög hafa,“ sagði Jó- hanna. Pólitík réð ekki Hún vísaði því á bug að pólitík hefði ráðið þessari ákvörðun og verið væri að hygla Hafnarfirði sérstak- lega. „Mosfellsbær, þar sem íhaldið ræður ferðinni, fær hlutfallslega miklu hærra framlag við þessa út- hlutun en til dæmis Hafnarfjörður ef miðað er við íbúafjölda," sagði Jóhanna. BÓKAMARKADI IIM ALLAN BOKAMULAN Flest stærstu bókaforlög landsins halda nú viðamiklar bókaútsölur í húsakynnum sínum í Múlahverfi; við Armúla, Síðumúla og Grensásveg. TRYGQÐU ÞÉR GÓÐAR BÆKURÁ EINSTOKU VERÐI SEM ALLRA FYRST

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.