Morgunblaðið - 23.01.1993, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993 23
Hollustuvernd ríkisins
Varað við rangri
meðferð á þorramat
HOLLUSTUVERND ríkisins segir að full ástæða sé til að vara við
rangri meðhöndlun þorramatar, nú þegar þorri er hafinn með tilheyr-
andi áti súrmetis og ferskmetis. Komið hafi upp matareitranir í tengsl-
um við þorrahátíðir þar sem stórir hópar, allt að fjögurhundruð manns,
hafi fengið matareitrun vegna rangrar meðhöndlunar þorramatar.
Samfrost lagt niður og
starfsmönnum sagt upp
SAMFROST, samstarfsfyrirtæki Isfélags Vestmannaeyja og Vinnslu-
stöðvarinnar, verður á næstunni lagt niður. Ollum fimm starfsmönnum
fyrii-tækisins, ásamt þeim sem unnið hafa á vegum Samfrosts við lönd-
un úr togurum var sagt upp um síðustu áramót og hafa þeir ýmist
þriggja eða sex mánaða uppsagnarfrest.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
A skíðum skemmti ég mér
Tími skíðafólks er framundan. Þúsundum saman flykkist það á skíðastaðina um land allt. Rík skíðahefð er
á Akureyri og Hlíðarfjall fyllist af fólki á góðviðrisdögum.
Að sögn forstjóra fyrirtækjanna
tveggja, þeirra Sigurðar Einarssonar
og Sighvats Bjarnasonar er þessi
ákvörðun tekin í hagræðingarskyni,
þar sem forsendur og aðstæður hafi
Birgir segir að samkvæmt hug-
myndum Bogdans, sem er pólskur
að uppruna, ætti menningarmiðstöð-
in að starfa á svipuðum nótum og
Norræna húsið. „Þetta mál er þó
allt skammt á veg komið en næstu
skref þess hjá okkur eru að finna
hentuga lóð undir húsið sér í bænum
og kanna grundvöll þess að af þess-
breyst til muna frá því að fimm
stærstu fískvinnslufyrirtækin í Vest-
mannaeyjum stofnuðu Samfrost á
árdögum tölvualdar, þegar verið var
að koma upp bónuskerfi, sem hóf
um áformum geti orðið,“ segir Birgir.
Joseph Charytion var þekktur
pólskur málari og var framan-
greindri stofnun komið á fót eftir
andlát hans. Stjórnarformaðurinn,
Bogdan, er sonur Josephs en menn-
ingarmiðstöðvar, svipaðar þeirri sem
hann vili koma upp í Kópavogi, eru
starfandi á hinum Norðurlöndunum.
göngu sína í Vestmannaeyjum og var
skipulagt með því tölvukerfi sem
Samfrost kom sér upp.
Síðan þá hafa fyrirtæki sameinast
í Vestmannaeyjum, eins og kunnugt
er, þannig að af fimm stofnendum
Samfrosts, standa einungis þrír eftir,
þar sem Fiskiðjan og Vinnslustöðin
sameinuðust í einu fyrirtæki og ísfé-
lag Vestmannaeyja og Hraðfrysti-
stöð Vestmannaeyja sameinuðust í
öðru fyrirtæki. Auk þessara fyrir-
tækja var frystihús FIVE með sem
stofandi Samfrosts.
Sigurður sagði í samtali við Morg-
unblaðið að ákveðið hefði verið að
einn starfsmaður Samfrosts kæmi
til starfa hjá ísfélaginu og annar hjá
Vinnslustöðinni. Reiknað væri með
því að sá sem stýrt hefur tölvukerf-
inu yrði sjálfstæður, en ekki væri
ljóst enn hvað yrði með aðra starfs-
menn.
„Þetta er eingöngu gert í sparn-
aðarskyni. Við erum báðir með nægi-
legt starfsfólk á skrifstofum okkar,
til þess að sjá um það sem Samfrost
hefur gert,“ sagði Sighvatur Bjama-
son. „Við erum stöðugt að leita leiða
til þess að draga saman seglin og
ná fram sparnaði í rekstri og þarna
sáum við einn slíkan möguleika. Ég
hygg að við hér í Vinnslustöðinni
getum sparað 4 til 6 milljónir á ári,
með því að hætta þátttöku okkar í
Samfrosti."
Franklín Georgsson hjá Hoilustu-
vernd ríkisins segir að áhætta sé á
að þorramatur sé rangt meðhöndlað-
ur. í fyrsta lagi sé hann oft matreidd-
ur fyrir mjög marga í einu og stund-
um sé hann fluttur langar vegalengd-
ir áður en hann er snæddur. Einnig
standi hann lengi á borðum meðan
veislur standa yfir.
„Ef sýring er góð á þeim hluta
matarins sem er súr skapast ekki
ýkja mikil hætta þótt maturinn
standi í einhvem tíma við stofuhita.
En í þorramatnum er einnig ýmislegt
ferskmeti, eins og sviðasulta og slát-
ur, og það er kannski einna viðkvæm-
ast fyrir skaðlegum örverum. Þegar
slíkur matur fær að standa á borðum
lengi við stofuhita er aldrei hægt að
útiloka að skaðlegar örverur nái að
fjölga sér nægilega mikið til þess að
neysla orsaki matareitrun," sagði
Franklín.
Nokkrar stórar matar-
eitranir í gegnum árin
Hann sagði að í gegnum árin hefði
verið nokkuð um stórar matareitran-
ir. Þar hefði einkum komið til röng
vinnsla á þorramatnum. Matinn verði
að leggja snemma í súr svo hann
súrni í gegn og nota verður góða
mysu. Sýringin verður að fara fram
undir tíu gráðu hita.
Meðal atriða sem huga verður að
í sambandi við þorramatinn er að
gæta ítrasta hreinlætis við tilbúning
og framleiðslu, nota hreina hnífa og
skurðbretti við matseldina, þvo áhöld
og skurðbretti oft með sápu og skola
með heitu rennandi vatni, nota papp-
ír í stað eldhúsklúta og svampa, sjóða
kjöt og svið þannig að það gegnum-
hitni upp í 70 gráður á Celsíus eða
hærra, geyma soðið kjöt og rétti
ekki lengi við stofuhita, varast að
hrúga heitu og volgu kjöti saman í
ílát og endurhita rétti í 70 gráður
eða hærra.
Best er að setja súrsaðan mat í
mysublöndu og geyma í kæliskáp
fram að neyslu. Súrmatur sem flutt-
ur er á milli staða á að vera í mysu-
blöndu og flutningur á að taka sem
stystan tíma. Ósýrður þorramatur
hefur mun minna geymsluþol en
sýrður matur. Viðkvæm matvæli
mega ekki standa lengur við stofu-
hita en í 4-5 klukkustundir.
-----»■ -» ■«-
Fórnarlambið hf.
Skiptafundi
var frestað
SKIPTAFUNDI í þrotabúi Fórn-
arlambsins hf., sem áður hét Hag-
virki hf., hefur verið frestað fram
í miðjan febrúar. Kröfulýsingar-
skrá verður lögð fram viku fyrir
fundinn, eða í kringum 7. febrúar.
Ragnar Hall, búsljóri þrotabúsins,
segir að þetta sé gert sökum þess
að síðustu dagana áður en skipta-
fundurinn átti að vera kom tölu-
verður fjöldi af kröfum í búið.
„Hér er um umfangsmikið mál að
ræða og frestunin er tilkomin vegna
þess að gífurlegur fjöldi af kröfulýs-
ingum kom á allra síðustu dögum
fyrir hinn áformaða fund,“ segir
Ragnar. „Mér gafst því ekki tími til
að ganga endanlega frá kröfulýsing-
arskránni. Það kom mér á óvart að
kröfuhafar sem eiga mikilla hags-
muna að gæta skyldu bíða með
kröfulýsingar sínar fram á síðustu
stundu en gjaldþrotið hefur legið ljóst
fyrir síðan í september. “
Ragnar vill ekki tjá sig um hve
háum fjárhæðum kröfur í þrotabúið
nema nú, segir að það komi í ljós
er kröfulýsingarskrá verður lögð
fram.
UTSALA
Kuldaúlpur, ullarjakkar,
heilsársflíkur
Opið í dag
til kl. 16.00.
LAUGAVEGI 31, SÍMI 25580
Erlend menningarmiðstöð í Kópavogi
Bæjarráð hefur áhuga
á að skoða málið nánar
BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur áhuga á að skoða nánar áform The Jos-
eph Charytion Artist-Painter American Scandinavian Foundation um
að reisa menningarmiðstöð í bænum. Birgir Sigurðsson, skipulags-
stjóri Kópavogs, segir að málið sé skammt á veg komið en stjórnarfor-
maður þessarar stofnunar, Bogdan Charytion, hefur lagt fram hug-
myndir um að reist verði um 250 fm hús undir starfsemina í Kópavogi.
Vilt þú lækka
bifreiðatrygginga-
iðgjöldin þín?
Varkáru ökumennirnir fá aö njóta sín hjá okkur því þeir ganga
aö hagstæöari kjörum vísum. Réttlátt ekki satt?
Og þeir sem eru félagar í FÍB fá 10% afslátt á iðgjaldið!
Við hvetjum þig til að gera verðsamanburð á
bifreiðaiðgjöidum tryggingafélaganna.
Munurinn kemur þér örugglega á óvart!
Við minnum á að þú verður að segja
upp tryggingunni þinni mánuði fyrir
endurnýjunardag.
Skandia
Lifandi samkeppni
- lægri iðgjöld!
VÁTRYGGINGARFÉLAGIÐ SKANDIA HF.