Morgunblaðið - 23.01.1993, Síða 25
Flóttafólki snúið við
Reuter
Haitimenn, sem reyndu að komast ólöglega til Bandaríkjanna, sjást hér
ganga á land í höfuðborginni Port-au-Prince eftir að hafa verið fluttir á
ný til síns heima. Þetta er fyrsti hópurinn sem snúið er við eftir að Bill
Clinton Bandaríkjaforseti ákvað að fylgja stefnu fyrirrennara síns, George
Bush, í málefnum flóttamannanna. Aður hafði Clinton gagnrýnt Bush
fyrir harðýðgi.
M()RGUNi>LAOIB UCGAltDAGyR ffL jANpAlt ,l?iKÍ
2.5
Breytingar
á þýsku rík-
isstjórninni
Bonn. Reuter.
FJÓRIR nýjir ráðherrar tóku I
gær sæti í ríkisstjórn Helmuts
Kohls kanslara í Þýskalandi. Búist
hafði verið við mun umfangsmeiri
uppstokkun á ríkisstjórninni enda
hafði það verið boðað strax þegar
hún tók við völdum.
Áhrifamesti nýi ráðherrann er
bankamaðurinn Giinter Rexrodt, sem
tekur við embætti efnahagsráðherra.
Því gegndi áður Jurgen Möllemann
en hann sagði af sér fyrr í mánuðin-
um í kjölfar hneykslismáls. Þeir til-
heyra báðir fijálsum demókrötum.
Nýr póst- og fjarskipamálaráð-
herra er Wolfgang Bötsch en hann
hefur árum saman verið þingflokks-
formaður bæverska flokksins Kristi-
lega sósíalsambandið (CSU).
Jochen Borgert heitir nýi landbún-
aðarráðherrann en fyrirrennarinn,
Ignaz Kiechle, er farinn á ellilaun
að eigin ósk. Borgert tilheyrir flokki
Kristilegra demókrata (CDU) en Ki-
echle var frá CSU. Þá tekur loks
Matthias Wissmann, talsmaður CDU
í efnahagsmálum, við embætti ráð-
herra rannsókna- og tæknimála.
Ráðherraefni uppvíst að lögbrotum
Mótmæli
kjósenda
urðuBaird
aðfalli
Washington. Reuter.
ÞAÐ voru harkaleg viðbrögð
bandarísks almennings fyrst og
fremst sem urðu þess valdandi
að Zoe Baird tilkynnti í gær að
hún gæti ekki hlýtt kalli Bills
Clintons forseta og tekið við
embætti dómsmálaráðherra.
Eftir að upp komst að Baird og
eiginmaður hennar höfðu árið
1990 ráðið tvo ólöglega innflytj-
endur frá Perú til starfa á heim-
ili sínu streymdu mótmælabréfin
til dómsmálanefndar öldunga-
deildar Bandaríkjaþings sem
hefur i vikunni yfirheyrt Baird.
Ennfremur sýndi skoðanakönn-
un ABC/Washington Post sem birt
var seint á fimmtudag að sex af
hverjum tíu töldu að hún ætti ekki
að taka við embætti og átta af
hveijum tíu sögðu að það hefði
verið rangt af henni að ráða ólög-
lega innflytjendur til starfa. Könn-
un CNN og Gallup var á svipuðum
nótum.
Baird og eiginmaður hennar
Eiður unninn
Zoe Baird frammi fyrir þingnefnd
er kannað var hvort hún væri hæf
í ráðherraembættið.
Paul Gewirtz, lagaprófessor við
Yale-háskóla, létu undir höfuð
leggjast að greiða tilskilin opinber
gjöld vegna launþeganna tveggja.
I síðustu viku báðust þau opinber-
lega afsökunar á lögbrotinu og
borguðu 2.900 dali (um 180.000
ÍSK) í sekt til útlendingaeftirlits
Bandaríkjanna.
Giscard vill verða
forsætísráðherra
París. Reuter.
TVEIR af leiðtogum frönsku stjórnarandstöðunnar hafa lýst því yfir
að þeir sækist eftir forsetisráðherraembættinu að loknum þingkosning-
um. Allar skoðanakannanir benda til stórsigurs hægrifiokkanna
tveggja, RPR og UDF, og hefur jafnvel Francois Mitterrand Frakk-
landsforseti sagt að hann búist ekki við öðru en að flokkur sinn, Sós-
lalistaflokkurinn, tapi
þann 21. og 28. mars.
Valéry Giscard d’Estaing, fyrrum
Frakklandsforseti og leiðtogi UDF,
lét það í gær fréttast í gegnum nán-
ustu aðstoðarmenn sína að hann
hefði hug á að verða forsætisráð-
herra. Giscard hafði áður sagt að
hann hefði efasemdir um að hann
myndi vilja verða forsætisráðherra á
meðan Mitterrand væri forseti. „Ef
UDF fær mesta fylgið í kosningunum
þá hefur Giscard d’Estaing alla þá
hæfileika sem þarf til að vera forsæt-
isráðherra . . . á þeim erfiðu tím-
um sem framundan eru,“ sagði
Herve de Charette, varaformaður
UDF í gær.
Jacques Chirac, leiðtogi RPR og
forsætisráðherra á árunum 1986-
1988, sagðist ekki hafa áhuga á
. Kosið er í tveimur umferðum
embættinu á meðan Mitterrand sæti
á forsetastóli. Næstu forsetakosning-
ar fara ekki fram fyrr en 1995. For-
ystumenn jafnt RPR sem UDF telja
að Mitterrand beri samt að segja af
sér gjaldi sósíalistar mikið afhroð í
kosningunum.
Eins og stendur er RPR stærsti
hægriflokkurinn á þingi og er forsæt-
isráðherraframbjóðandi þess flokks
Edouard Balladur, fyrrum fjármála-
ráðherra.
UDF og RPR náðu fyrr í vikunni
samkomulagi um að beijast ekki inn-
byrðis í kosningunum, líkt og hingað
til hefur oft verið raunin, heldur
bjóða fram sameiginlegan frambjóð-
anda í 485 kjördæmum af 577.
SPARIfl ÞðSUNDIR KRQHA. ÖLl GDLFEFHIÁ EfNUM STflfl.
DÚKflR - FLÍSflR - PflRKET - TEPPI - MOTTUR - AFGAHGAR. TAKID MÁLIN MEfl.
Opið vikra daga 9-18
laugardaga 10-16
Afgangar með allt
að 70% afslætti.
raðgreiðslur
TEPPABUÐIN
SUÐURLANDSBRAUT 26 - SÍMAR 681 950 - 8 1 4850