Morgunblaðið - 23.01.1993, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JANUAR 1993
..................................——i—s--
—:
r ......
29
Fulltrúar minnihluta við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í borgarstjórn
Brýnasta verkefnið er að
sporna gegn atvinnuleysi
Ósammála um ýmsar leiðir að markmiðum
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur var samþykkt á fundi borgarstjórnar
á áttunda tímanum í gærmorgun eftir að umræður um hana höfðu
staðið yfir í meira en hálfan sólarhring. í málflutningi sínum lögðu
borgarfulltrúar minnihlutaflokkanna áherslu á að borgin beitti sér
fyrir atvinnuskapandi aðgerðum, yki framkvæmdir og efldi þjón-
ustu. Sameiginlega fluttu þeir á fundinum ályktunartillögu um at-
vinnumál. Um ýmsar aðrar leiðir til að ná markmiðum voru fulltrú-
ar minnihlutans á hinn bóginn ekki sammála. Siguijón Pétursson,
Alþýðubandalagi, gagnrýndi harðlega tillögu Nýs vettvangs um
hækkun á arðgreiðslum fyrirtækja borgarinnar. Hann sagði tillög-
umar fela í sér verulega auknar álögur á almenning.
Flestar tölulegar breytingatillög-
ur minnihlutaflokkanna voru felldar
á fundinum. Þrjár voru samþykkt-
ar, að veita auknu fé til Stígamóta,
Samstarfsnefndar um málefm fatl-
aðra og Listasafns Sigurjóns Ólafs-
sonar.
Brýnt að sporna gegn
atvinnuleysi
Fulltrúar minnihlutaflokkanna
lögðu áherslu á að brýnasta for-
gangsverkefni borgarstjómar um
þessar mundir væri að sporna gegn
atvinnuleysi og fluttu þeir sameig-
inlega tillögu um málið. Breytinga-
tillaga sjálfstæðismanna við tillögu
minnihlutans var samþykkt en þar
segir að borgarstjórn hafí með fjár-
hagsáætluninni lagt áherslu á að
ná þessu markmiði. Þetta sé m.a.
gert með því að veija 9 milljörðum
króna til verklegra framkvæmda
Reykjavíkurborgar. Á vegum at-
vinnumálanefndar hafí verið unnið
að því að samræma störf Ráðning-
arstofu, Félagsmálastofnunar og
Námsflokka Reykjavíkur til að-
gerða í þágu atvinnulausra. Þá sé
unnið að undirbúningi námskeiða
og endurþjálfunar atvinnulausra.
Ályktunartillögum Nýs
vettvangs vísað frá
Ólína Þorvarðardóttir, Nýjum
vettvangi, sagði fjárhagsáætlunina
metnaðarlítið plagg. Hún væri
varnarleikur í erfiðri stöðu, miðaði
að því að halda í horfinu, bíða átekta
og vona að allt lagaðist á morgun.
Alls fluttu fulltrúar Nýs vettvangs
13 ályktunartillögur við umræðuna
um fjárhagsáætlun og var þeim öll-
um vísað frá.
Megintillaga þeirra var að hækka
arðgreiðslur fyrirtækja í eigu borg-
arinnar úr 2% í 6% af skuldlausri,
endurmetinni eign. Með því sögðu
flutningsmenn tillögunnar að skap-
ast myndu tekjur sem næmu 1.442
milljónum króna, umfram það sem
gert væri ráð fyrir í frumvarpinu.
Þeim fjármunum mætti verja til að
auka framkvæmdir og efla þjónustu
í borginni. Einnig var lagt til að
Reykjavíkurhöfn ráðstafaði sem
næmi 6% af skuldlausri, endurmet-
inni eign til atvinnusköpunar um-
fram það sem lagt væri til í frum-
varpinu.
Áð auki lögðu fulltrúar Nýs vett-
vangs m.a. til að stefnt yrði að
sölu lóða og eigna fyrir um 100
milljónir króna og að dregið yrði
úr fasteignakaupum um 50 millj-
ónir króna. Þá var lagt til að borg-
arstjórn samþykkti að veija 100
milljónum króna til hönnunar og
byijunarframkvæmda við hjúkrun-
arheimili, að 200 milljónum yrði
varið til uppbyggingar leikskóla í
borginni, að 250 milljónum króna
yrði varið til Rimaskóla og að 250
milljónum yrði varið til smíða og
kaupa á félagslegu húsnæði.
Sigurjón gagnrýnir
Nýjan vettvang
Siguijón Pétursson gagnrýndi
tillögur Nýs vettvangs um hækkun
á arðgreiðslum. Hann sagði að yrðu
þær að veruleika myndu þær hafa
í för með sér 20,4% hækkun hjá
Hitaveitu og 22% hækkun hjá Raf-
magnsveitu. Heita vatnið og hita í
hús þyrftu allir jafnt, hvort sem
þeir væru atvinnulausir eða með
góðar tekjur. Þetta myndi því leggj-
ast þyngst á þá sem minnst hefðu.
„Ég vil ekki leggja þessar byrðar á
almenning og mun því greiða at-
kvæði á móti þessum tillögum,"
sagði Siguijón.
Um fjárhagsáætlunina sagði Sig-
uijón að fjárhagsumskipti Reykja-
víkurborgar væru uggvænleg. Á
síðustu 10 árum hefði meðaltal þess
sem hægt hefði verið að veija til
eignabreytinga af tekjum borgar-
innar verið 26,3%. í þessari áætlun
væri það 12,5%. Þetta væri til merk-
is um að fjárhagur borgarinnar
væri að hrynja. Þessari áætlun og
rekstri síðasta árs væri lokað með
lántöku, hvort árið upp á 1.260
milljónir króna.
Hann sagði að Alþýðubandalagið
fagnaði því að með þessari fjár-
hagsáætlun væri stefnt að því að
halda sem hæstu framkvæmdastigi
miðað við aðstæður. Af þeirri
ástæðu myndi hann ekki nú fremur
en við síðustu áætlun, sem einnig
hefði verið sett fram í skugga
þrenginga, leggja fram tillögur um
verulegar breytingar á áætluninni.
Siguijón lagði m.a. til að borgar-
stjórn ályktaði að rétt væri að hefja
sem allra fyrst þau verk, sem fjár-
hagsáætlunin gerði ráð fyrir að
unnin yrðu á þessu ári þar sem
atvinnuástandið væri alltaf erfiðast
yfir veturinn. Þá teldi borgarstjóm
rétt að skoða hvort hægt væri að
hefja framkvæmdir við verk, sem
samkvæmt framkvæmdaáætlun
ætti að vinnast á árinu 1994, strax
næsta haust. Tillögunum var vísað
til umfjöllunar í borgarráði.
„Bylting í peningalegri
stöðu borgarsjóðs"
Sigrún Magnúsdóttir, Framsókn-
arflokki, sagði að frumvarpið sýndi
ekki breytingu heldur byltingu á
peningalegri stöðu borgaijóðs.
Borgarfulltrúar stæðu frammi fyrir
áður óþekktum vandamálum í
rekstri borgarinnar. Tekjur minnk-
uðu nú á milli ára en á síðasta ára-
tug hefði borgin alltaf fengið meiri
tekjur en fjárhagsáætlanir gerðu
ráð fyrir. Afrakstur slælegrar íjár-
málastjómar og óráðsíu síðustu tíu
ára væri að koma fram með miklum
þunga á borgarsjóð og nú væri svo
komið að borgarsjóður væri rekinn
með helmingi meiri halla en ríkis-
sjóður. Á sama tíma hefði stórfellt
atvinnuleysi hafíð innreið sína og
mikil óvíssa ríkti um hvaða tekju-
stofn sveitarfélögin fengju í stað
aðstöðugjalds.
Sigrún lagði fram nokkrar álykt-
unartillögur. Meðal annars um að
borgarstjóm samþykkti að láta gera
raunhæfa tekju- og greiðsluáætlun
fyrir borgarsjóð til næstu þriggja
ára þar sem það væri eina leiðin
til að rétta við fjárhag borgarinnar.
Þá lagði Sigrún til að borgarstjóm
samþykkti að leggja niður fram-
kvæmdasjóð og að borgarstjórn
samþykkti að fela kjörnum skoðun-
armönnum borgarreikninga og
borgarendurskoðanda að gera út-
tekt á reikningum borgarinnar und-
anfarin fjögur ár. Þessum tillögum
var vísað frá. Ályktunartillaga Sig-
rúnar um að borgarstjórn sam-
þykkti að samræma framsetningu
ijárhagsáætlunar og ársreikninga
borgarinnar var vísað til borgar-
ráðs.
„Fáar breytingatillögur
en mikilvægar“
Guðrún Ögmundsdóttir, Kvenna-
lista, sagði að ákveðið hefði verið
að leggja ekki fram viðamiklar
breytingar við fjárhagsáætlunina
en fáar og mikilvægar þess í stað.
Lögð væri áhersla á tillögur sem
gætu haft í för með sér atvinnu-
skapandi tækifæri og tillögur um
uppbyggingu félagslegrar þjónustu.
Ályktunartillaga Guðrúnar um að
borgarstjórn samþykkti að starfs-
mannahald Reykjavíkurborgar
gerði skoðanakönnun meðal starfs-
fólks borgarinnar um óskir þess
varðandi lengd vinnutíma, var vísað
til borgarráðs. Þá var tillögu hennar
um að borgarstjóm samþykkti að
hafíst yrði handa í markvissri upp-
byggingu tómstundaheimila/skóla-
dagheimila á þessu ári með kaupum
á eldra húsnaéði í grennd við gmnn-
skólana í borginni vísað til umijöll-
unar í skólamálaráði. Tillögum um
að koma upp „iðngörðum" á hafnar-
svæðinu, að gert yrði átak í þjón-
ustu við erlend börn og fjölskyldur
þeirra og tillögu um að borgarstjórn
samþykkti að kaupa tvö hús í eldri
borgarhlutum Reykjavíkur undir
leikskóla, var vísað frá.
Útsvör og fasteignagjöld um-
talsvert lægri í Reykjavík
Sjálfstæðismenn sögðu breyt-
ingatillögur minnihlutaflokkanna
bera vott um að sem fyrr væri djúp-
stæður ágreiningur milli minni-
hlutaflokkanna um markmið og
leiðir í öllum veigamestu þáttum
borgarmálanna. Nú sannaðist eina
ferðina enn að þessir flokkar væm
sundurleitir og síst af öllu færir um
að ná saman um raunhæfar aðgerð-
ir til að mæta hinum alvarlegu og
óvenjulegu aðstæðum í atvinnumál-
um borgarbúa. Meirihluti Sjálf-
stæðisflokks hefði mótað skýra
stefnu í fjármálum Reykjavíkur-
borgar og gert stórtækar og vel
yfirvegaðar áætlanir um verklegar
framkvæmdir til að bæta atvinnu-
ástandið í Reykjavík. Við þessa
áætlanagerð hefði verið haft að leið-
arljósi að Reykjavíkurborg myndi
ekki hækka skatta á borgarbúa.
Reykvíkingar nytu þessa í erfiðu
árferði og nú væri orðinn umtals-
verður munur á, hve útsvör og fast-
eignagjöld væru lægri í Reykjavík
en hjá flestum öðmm bæjarfélögum
á landinu.
Tímamótasigur Júditar í Hastmgs
Skák
Margeir Pétursson
SEXTÁN ára gamla ung-
verska stúlkan Júdit Polgar
sigraði á hinu sögufræga al-
þjóðlega móti í Hastings sem
lauk í síðustu viku. Júdit hlaut
jafnmarga vinninga og sjöundi
stigahæsti skákmaður heims,
Evgení Bareev, en hún var
úrskurðuð sigurvegari á stig-
um, sem aðallega kom til af
því að hún vann Bareev í báð-
um skákum þeirra. Þetta er
eitt öflugasta skákmót sem
kona hefur sigrað á. Það er
enginn vafi á því að Júdit, sem
er fædd 23. júlí 1976, er einn
efnilegasti skákmaður heims
og að komast í flokk með þeim
Anand, Kramnik, Adams og
Lautier. Hún var með 2.595
skákstig á lista FIDE 1. janúar
og fer nú talsvert yfir 2.600
stiga múrinn.
Úrslit á mótinu í Hastings urðu
þessi:
1.—2. Júdit Polgar og Evgení
Bareev 9 v. af 14 mögulegum
3. Jonathan Speelman, Englandi
8 v.
4. -6. John Nunn og Matthew
Sadler, Englandi og Ilya Gurevich,
Bandaríkjunum 7 v.
7. Lev Polugajevskí 5‘A v.
8. Colin Crouch, England 3'A v.
Við skulum nú líta á úrslita-
skákina á mótinu sem tefld var í
síðustu umferð:
Hvítt: Júdit Polgar
Svart: Evgení Bareev
Frönsk vöm
1. e4 - e6 2. d4 - d5 3. Rc3 -
Rf6 4. Bg5 — dxe4 5. Rxe4 —
Rbd7 6. Rf3 — h6 7. Rxf6+ -
Rxf6 8. Be3 - Bd6 9. Dd3
—b6?! Síðustu tvo leiki svarts
notfærir Júdit sér nú á þann hátt
að hún fær upp stöðu þar sem
hefðbundið mótspil svarts með
c7—c5 er útilokað.
10. Re5 - Bb7 11. Db5+ - Rd7
12. 0-0-0 - a6 13. Db3 - b5
Bareev hefur e.t.v. vanmetið
framrás c-peðs hvíts sem tryggir
Júdit verulega yfírburði í rými og
gerir það að verkum að svartur á
enga möguleika á gagnsókn á
drottningarvæng. Einnig kom til
greina að hróka, en hvíta staðan
er nokkru betri.
14. c4! - 0-0 15. f4 - Be4 16.
c5 - Be7 17. Bd3!? - Bxg2?
Hér hefði svartur átt að létta
á stöðunni 17. — Bxd3 18. Hxd3
— Rxe5 og eftir 19. fxe5 þá 19.
— Bg5, en 19. dxe5 er svarað
með 19. — De8 og svarta drottn-
ingin mun standa vel á c6, auk
þess sem hann er tilbúinn í að
andæfa á d-línunni.
18. Hhgl - Bd5 19. Dc2 - f5
20. Rg6 - He8 21. c6! - Rf8
22. Re5 - Bh4
Gallinn við stöðu svarts er sá
Júdit Polgar
að hann á enga möguleika á mót-
spili og getur heldur ekki létt á
stöðunni með uppskiptum. Hvítur
getur því jafnt og þétt aukið sókn-
arþungann. Sannkölluð óskastaða
sóknarskákmannsins. Með bisk-
upsleiknum er svartur að hindra
að hvítur geti tvöfaldað hrókana
á g-línunni.
23. De2 - Df6 24. Dh5 - Hed8
25. Hxg7+!! - Kxg7 26. Hgl+
- Kh8 27. Rf7+ - Kh7 28.
Rxh6! og svartur gafst upp.
J ólahraðskákmótin
Að venju var mikil starfsemi í
taflfélögum í kringum stórhátíð-
arnar. Hér fara á eftir í úrslit í
nokkrum mótum:
50 ára afmælismót Akraness-
bæjar:
Keppendur víðs vegar að af
landinu mættu til leiks á mótinu
sem fram fór á þriðja dag jóla:
1. Andri Áss Grétarsson 6 v. af
7 mögulegum
2. Helgi Áss Grétarsson 5‘A v.
3. Guðmundur Gislason 5‘A 4—5.
Guðmundur Halldórsson og Gunn-
ar Magnússon 5 v.
6.-7. Héðinn Steingrímsson og
Gísli Gunnlaugsson 4Vi v.
8,—10. Róbert Harðarson, Jón
Hálfdánarson og Gunnar Björns-
son 4 v.
11.—12. Grétar Áss Sigurðsson
og Árni Böðvarsson 3‘A v.
Akurenesingamir Gunnar
Magnússon, Jón Hálfdánarson og
Ámi Böðvarsson mega vel við sinn
hlut una í baráttunni við öfluga
gestina og sömuleiðis kom Gísli
Gunnlaugsson, Búðardal, á óvart.
Það er greinilega gróska í skáklíf-
inu á Vesturlandi.
Jólahraðskákmót Taflfélags
Reykjavíkur
A-úrslit:
1. Sævar Bjarnason 15'A v. af 19
2. Héðinn Steingrímsson 13'A v.
3. Andri Áss Grétarsson 13'A v.
B-úrsIit:
1. Hrannar Baldursson 14 v. af
17 v.
2. Jón G. Briem 12V4
3. Bergsteinn Einarsson 12V4
C-úrslit:
1. Kristján Hreinsson 10 v. af 11
2. Vigfús Vigfússon 9V4 v.
3. Steingrímur Hólmsteinsson
8V2
Jólahraðskákmót Taflfélags
Garðabæjar
1. Þröstur Þórhallsson I6V2 v.
2. Héðinn Steingrímsson 14'A v.
3. Þráinn Vigfússon 13 v.
4. Andri Áss Grétarsson 12 v.
5. -7. Tómas Bjömsson, Hrannar
Baidursson og Jóhann H. Ragn- ‘
arsson 10 v. o.s.frv.
Jólahraðskákmót Taflfélags
Kópavogs
1. Áskell Öm Kárason 14 v.
af 18 mögulegum
2. Ögmundur Kristinsson 13 v.
3. Páll Agnar Þórarinsson 12 v.
o.s.frv.