Morgunblaðið - 23.01.1993, Page 32

Morgunblaðið - 23.01.1993, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993 Nýr veit- ingastaður við Hótel Reykjavík NÝR veitingastaður hefur verið opnaður við Hótel Reykjavík, Café Kim. Café Kim er kóreskur veitingastaður sem býður upp á austurlenska sérrétti á vægu verði. Eigendur að Café Kim eru hjónin Óskar Kim og Jenný Kim en þau hafa verið búsett á Islandi í 18 ár og hafa rekið veitingastaði í Reykjavík sl. 10 ár, nú síðast Hjá Kim í Ármúla. Café Kim veitir veitingaþjónustu fyrir þá sem óska. Veitingastaður- inn er opinn frá kl. 8 með morgun- mat og til kl. 22 virka daga en um helgar er opið frá kl. 8 til 23. Jenný og Óskar Kim, eigendur veitingastaðarins Café Kim. Norrænir ráðherrar Samvinna um merkingar umhverfiskærra vara NORÐURLÖNDIN vilja hafa samstarf við EB varðandi merk- ingar á umhverfiskærum vörum. Merkið, sem táknar að varan sé umhverfiskær er svanur. Unnið skal að nýrri norrænni starfs- áætlun um neytendamál og auk- inni samvinnu Norðurlandaþjóða um öryggi framleiðsluvöru. Þetta eru helstu niðurstöður fundar norrænna ráðherra sem fara með málefni neytenda en fundurinn var haldinn í norska bænum Lille- hammer fyrir skömmu. Framleið- endur um 200 vörutegunda sem heyra undir 6 mismunandi vöru- flokka hafa fengið heimild til þess að merkja þær með norræna um- hverfismerkinu, svaninum. Leyfi til að nota merkið er háð mati í því hvort vara telst umhverfiskær og er miðað við allt ferli hennar frá framleiðslu til förgunar. Jón Sig- urðsson, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, tók þátt í fundinum af ís- lands hálfu. -----»'■'♦-♦-- Bandarísk- ur trúbador BANDARÍSKI trúbadorinn Brian Kirk skemmtir gestum á L.A. Café, Laugavegi 45, sunnu- daginn 24. janúar frá kl. 23-01. Brian kom einnig fram á L.A. Café um jólin 1991. Húsið opnað kl. 18. RAÐAL/Gí YSINGAR A TVINNUAUGL ÝSINGAR Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu á Laugarvatni. Upplýsingar í síma 691122. HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á ÍSAFIRÐI Hjúkrunarfræðingar Óskum að ráða strax: Hjúkrunardeildarstjóra við heimahjúkrun. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, Þórunn Guðmundsdóttir, og/eða framkvæmda- stjóri alla virka daga í síma 94-4500 frá kl. 8.00-16.00. FUNDIR - MANNFA GNAÐUR Félagar í Sölusambandi isl. fiskframleiðenda! Stjórn SÍF minnir á félagsfundinn á Hótel Sögu, Súlnasal, þriðjudaginn 26. janúar 1993, kl. 13.30. Dagskrá: 1. Tillaga stjórnar SÍF um stofnun hluta- félags. 2. Tillaga um félagsslit, skv. 37. grein laga SÍF, verði tillaga skv. dagskrárlið 1 samþykkt. Stjórn SÍF. HÚSNÆÐIÓSKAST Framkvæmdastjóri óskar að taka á leigu einbýlishús, raðhús eða rúmgóða sérhæð á höfuðborgarsvæðinu sem fyrst, helst sunnan Kópavogs. Allt heimilisfólk yfir tvítugu. Upplýsingar gefur Guðjón Tómasson, vs. 641750, hs. 612158. ATVINNUHÚSNÆÐI Atvinnuhúsnæði til leigu á Bíldshöfða 16, götuhæð, 160fm. Góð stað- setning. Mjög hentugt fyrir ýmiskonar starf- semi, svo sem heildsölu eða smásöluversl- un. Eðlilegt leigugjald. Nánari upplýsingar í símum 681860 og 681255. NAUÐUNGARSALA Framhald uppboðs á Hafnarstræti 4, 2. og 3. hæö, Isafiröi, þingl. eign Guðrúnar Öldu Erlingsdóttur og Óðins Svans Geirssonar, fer fram eftir kröfum inn- heimtumanns rikissjóðs og veðdeildar Landsbanka Islands, á eign- inni sjálfri, föstudaginn 29. janúar 1993 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á ísafirði. TILKYNNINGAR Greiðsluáskorun Sýslumaðurinn í Borgarnesi skorar hér með á gjaldendur, sem hafa ekki staðið skil á virð- isaukaskatti til og með 40. tímabili með ein- daga 5. desember 1992, staðgreiðslu til og með 11. tímabili, með eindaga 15. desember 1992, og þungaskatti skv. ökumælum til og með 3. tímabili 1992, með eindaga 30. nóv- ember 1992, ásamt gjaldföllnum og ógreidd- um staðgreiðslu- og virðisaukaskattshækk- unum, að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldann að liðnum 15 dögum frá dagsetningu áskorunar þessarar. Borgarnesi, 21. janúar 1993. Sýslumaðurinn í Borgarnesi. FÉLAGSSTARF Þorrablót sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík Hið árlega þorrablót Hvatar, Varðar, Óð- ins og Heimdallar verður haldið laug- ardaginn 30. janúar nk. í Valhöll. Dagskrá: 1. Húsið opnað kl. 19.00. 2. Þorrahlaðborð tilbúið kl. 20.00. 3. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, flytur ræðu. 4. Söngur með ýmsu sniöi. Árni Elvar við píanóið. Blótsstjóri: Þuríður Pálsdóttir, varaþingmaður. Miðasala og pantanir dagana 27.-29. janúar, milli 9 og 17, í Val- höll, sími 682900. Miðaverö aðeins 2.000 kr. Sjálfstæðisfólk! Fjölmennum og eigum saman ánægjulega kvöldstund. Hvöt, Vörður, Óöinn og Heimdallur. HÚSNÆÐI í BOÐI Raðhústil leigu Vandað, rúml. 140 fm raðhús í Garðabæ, til leigu í u.þ.b. eitt ár. Lögð er áhersla á reglu- semi og góða umgengni. Áhugasamir leggi inn á auglýsingadeild Mbl. upplýsingar um nafn, kennitölu, síma og heimilisfang, auk uppl. um fjölskylduhagi, merktar: „E - 232M“, fyrir 29. janúar nk. □ HLI'N 5993012314 VI 4. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Kvöldverður kl. 17.30 og safnað- arfundur kl. 20.00 í kvöld. Dagskrá vikunnar framundan: Sunnudagur: Brauðsbrotning kl. 11.00. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Galo Varsquez frá Mexíkó. Miðvikudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Föstudagur: Unglingasamkoma kl. 20.30. Laugardagur: Bænasamkoma kl. 20.30. FERÐAFÉLAG ® ÍSLANDS MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533 Allir út að ganga sunnudaginn 24. janúar Borgargangan l.ferð Kl. 13.00 Ráðhúsið-Öskjuhlfð. Borgargangan er skemmtileg 11 ferða raðganga fyrir unga sem aldna. Farið verður um áhuga- verð útivistarsvæði að mestu leyti f landi Reykjavíkurborgar. Fyrsta gangan frá Ráðhúsi í Öskjuhlfð tekur aðeins 1,5-2 klst. og þátttökugjald er ekkert. Borgargangan er í samvinnu við samtökin Iþróttir fyrir alla og tengist gönguátaki, sem hófst 23. október og stendur í eitt ár. Markús Örn Antonsson, borgar- stjóri, fylgir göngunni úr hlaði. Brottför frá Ráðhúsinu við Tjörn- ina kl. 13.00. Næg bílastæði m.a. inn frá Tjarnargötu og með- fram Tjörninni. Gengiö með Tjörninni um Vatnsmýri og skóg- arstíga í Öskjuhlíö að Perlunni. Rútuferð til baka frá Perlunni að lokinni göngu. Þátttakendur tá göngumiða sem gildir sem happdrættismiði. Dregið eftir hverja ferð. Skíðaganga sunnudaginn 24. janúarkl. 11 Gönguskíðaferð frá Hellisheiði um Lakastíg að Þrengslavegi. Brottför frá BSf, austanmegin, kl. 11. (Stansað við Feröafélags- húsið, Mörkinni 6). Verð kr. 1.000. Fararstjóri: Gestur Kristjánsson. Ný og fjölbreytt ferðaáætlun Ferðafélagsins er komin út. Hún liggur frammi á skrifstofunni Mörkinni 6 og víðar. Missið ekki af þjóðlegri ferð 6.-7. febrúar. Vætta- og þorrablótsferð i Land- sveit (gist í nýju gistihúsi að Leirubakka). Gönguferð er góð iþrótt! Ferðafélag fslands. UTIVIST Hallveigarstíg 1 • simi 614330 Dagsferð sunnud. 24. jan. Kl. 10.30: Skíðaganga í Innsta- dal. Hressandi 4-5 klst. löng ganga í Innstadal, sem liggur milli Hengils og Skarðsmýrar- fjalls. Munið eftir nesti og góð- um skjólfatnaði. Brottför frá BSl’ bensínsölu. Verð kr. 1.000/1.100. Ath.: Því miður verður ekkert af fyrirhugaðri skíðakennslu vegna veikinda. Allir velkomnir í Útivistarferð. Útivist. VEGURINN v Kristið samfélag Smiðjuvegi 5, Kópavogi Samkoma fyrir ungt fólk í kvöld kl. 21.00. Allir velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.