Morgunblaðið - 23.01.1993, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 23.01.1993, Qupperneq 42
^2------ fclk í fréttum ÍÞRÓTTAMAÐURISAFJARÐAR 1992 Fjórfaldur Islandsmeist ari á skíðum valinn Iþróttamaður Isafjarðar 1992 var kjörinn í hófí bæjarstjórnar síð- astliðinn fimmtudag og varð Ásta S. Halldórsdóttir, fjórfaldur íslands- meistari á skíðum, fyrir valinu. Það var forseti bæjarstjómar, Einar Garðar Hjaltason, sem tilkynnti um valið og afhenti foreldrum Ástu verð- launin en sjálf er hún í námi erlend- is. Nítján íþróttamenn hlutu viður- kenningu Iþróttabandalags ísfirð- inga á sama tíma. Ásta M. Halldórsdóttir hefur keppt fyrir Skíðafélag ísafjarðar frá haust- inu 1983, þá 13 ára gömul, en hún er uppalin í Bolungarvík, af ísfirsku og bolvísku bergi brotin. Strax fyrsta veturinn varð Ásta unglingameistari í stórsvigi en frá því að hún byijaði að keppa meðal fullorðinna 1987 ári áður en hún hafði aldur til hefur hún 13 sinnum orðið Íslandsmeistari. Á síðasta skíðalandsmóti varð hún fjór- faldur íslandsmeistari. Auk þess varð hún bikarmeistari Skíðasambands íslands í svigi og stórsvigi. Á Ólymp- íuleikunum í Frakklandi á síðasta ári keppti Ásta og var jafnframt fána- beri íslenska liðsins. Á punktalista Alþjóðaskíðasam- bandsins er Ásta í 4. sæti í svigi af 2.500 skráðum þátttakendum og er það besti árangur sem íslendingur hefur náð frá því að þetta kerfi var tekið upp 1984. Gylfi Guðmundsson, formaður ÍBÍ, veitti viðurkenningar þeim íþrótta- mönnum sem sköruðu fram úr á ár- inu. Þeir voru sundmennirnir Pálína Bjömsdóttir, Halldór Þorláksson, Þorri Gestsson og Valur Magnússon. Skíðafólkið Ásta S. Halldórsdóttir, Amór Gunnarsson, Sigríður H. Þor- láksdóttir, Bjarki Egilsson, Róbert Hafsteinsson, Amar Pálsson, Gísli Einar Árnason, Daníel Jakobsson og Auður Ebenesardóttir og fijáls- íþróttamennimir Kjartan J. Kjart- ansson og Guðmundur Þórarinsson. Þjálfarar afreksfólksins fengu jafnframt viðurkenningu frá ÍBÍ fyr- ir árangurinn. Bjöm Helgason, fram- kvæmdastjóri íþrótta- og æskulýðs- ráðs, stjórnaði athöfninni. - Úlfar. Ásta S._ Halldórsdóttir, íþrótta- maður ísafjarðar 1992. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Á myndinni eru fimm af meðlimum Rokkbandalagsins. F.v. Pétur Johnson, Ágústa Þorvaldsdóttir, Elín Helga Steingrímsdóttir, Konráð Baldursson og Helgi Pálsson. Á myndina vantar Gunnlaug Hansen og John Doak sem einnig tóku þátt í fatasöfnuninni. ROKKBANDALAGIÐ Söfnuðu fötum fyrir bágstadda Rokkbandalagið er félagsskapur ungs þroskahefts fólks sem hefur tekið sér ýmislegt fyrir hend- ur að undanfömu. Á dögunum tóku þau þátt í fatasöfnun Þjóðkirkjunn- ar og Rauða kross íslands. Kjarni Rokkbandalagsins eru sjö- menningar. Létu þau hendur standa fram úr ermum í söfnuninni og þóttu standa sig vel. En Rokkbandalagið er ekki við eina fjölina fellt - það hefur staðið fyrir böllum í diskóteki Þróttheima og boðið til kappleikja í ballskák, borðtennis og fleiri leikjum. Hafa þau boðið unglingum til sín í félags- miðstöðina og hefur þetta framtak notið mikilla vinsælda. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson Þau fengu viðurkenningu fyrir afrek á árinu 1992. A myndina vant- ar Ástu og Daníel sem eru við nám og í skíðaþjálfun í Svíþjóð og Helgu og Pálínu sem eru við nám og sundæfingar í Bandaríkjunum. REYKHÓLASVEIT Knattspymumaður kenn ir við Reykhólaskóla Ihaust kom í Reykhólaskóla ungur íþróttakennari, Páll Guðmunds- son að nafni, frá Selfossi. Að sjálf- sögðu væri það ekki í frásögur fær- andi ef maðurinn væri ekki í hópi bestu knattspyrnumanna okkar ís- lendinga. Páll er stúdent frá Samvinnuskól- anum á Bifröst 1989 og íþróttakenn- ari frá Laugarvatni 1992. Páll hefur leikið með Selfyssingum og ÍA á Akranesi. I leik við Stjörnuna í lok maí sl. varð hann fyrir því slysi að sparkað var í hann með þeim afleið- ingum að bein í ökkla klofnuðu. Þessi meiðsli greru illa og varð að negla ökklann í haust og tókst sú aðgerð vel. Páll verður tilbúinn í slaginn aftur í vor og fer hann til Ólafsfjarð- ar og leikur næsta sumar með Leiftri og er Páll bjartsýnn á sumarið. Auðvitað er okkur hér eftirsjá að Páli en vegna fámennis hér er mjög erfitt að koma saman fótboltaliði sem eitthvað mundi kveða að. Því er eðli- legt að þeir sem sjá aðra möguleika nýti sér það á meðan færi gefst. - Sveinn. Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson Páll Guðmundsson íþróttakenn- ari við Reykhólaskóla. COSPER nzz-j Cosmr Ég er búinn að týna skærunum. PÓMK Gestur kvöldsins Bjarni Ara Miðaverð kr. 800. Snyrtilegur klæðnaður. Matargestir Mongolian Barbecue: Matur + miði = kr. 1.580. PANSBARINN Grensásvegi 7. símar 688311 og 33311 Ómar Sverrís skemmtir. „A gamlárskvöld var gaman, Nú verður allt brjálað __________________Húsið opnað kl. 23.00. Strandgötu 30, simi 650123 Hefst kl. 13.30 ___________ j Aðalvinninqur að verðmæti________ sj ;________100 þús. kr.______________ I! Heíldarverðmæti vinninqa um — TEMPLARAHOLLIN _________300 þús. kr. _____________ Eiríksgötu 5 — S. 20010

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.