Morgunblaðið - 23.01.1993, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 23.01.1993, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993 ■ KRISTJÁN Arason, leikmaður og þjálfari íslands-, deildar- og bik- armeistara FH í handknattleik, var á dögunum kjörinn íþróttamaður FH árið 1992. ■ GYLFI Orrason hefur verið sett- ur dómari á leik írlands og Þýska- lands í Evrópukeppni U-21 árs liða í knattspymu sem fram fer á Ir- landi 9. mars. Línverðir verða Sæ- mundur Víglundsson og Egill Már Markússon. Fjórði maður verður Guðmundur Stefán Mariasson. ■ KRISTJÁN Gissurarson, stangarstökkvari úr UMSE hefur skipt yfír í ÍR. Sömuleiðis hefur Rut Stephens, hástökkvari og langstök- kvari, skipt yfir í ÍR úr UDN. ■ JOHAN Cruyff, hinn hollenski þjálfari Evrópumeistara Barcelona í knattspymu, hefur fengið tilboð frá Juventus um að þjálfa ítalska félag- ið næsta keppnistímabil, að sögn spænska blaðsins E1 Mundo Depor- tivo, en samningur hans á Spáni rennur út í vor. ■ JUVENTUS á að hafa boðið Cruyff andvirði tæplega 165 millj- óna á ári ef hann vildi koma, en það er tvöföld sú upphæð sem hann hef- ur hjá Barcelona. Hann ræddi ekki einu sinni við ítalina! ■ CRUYFF hefur mikinn áhuga á að kaupa landa sinn Dennis Berg- kamp frá Ajax, en ítölsk lið hafa einnig sýnt honum áhuga. Cruyff hefur sagt við leikmanninn, sem er 23 ára og sá eftirsóttasti í Evrópu, að hann verði að velja milli þess að verða ríkur og mjög ríkur! Sem Cru- yff virðist nú hafa gert sjálfur... ■ HRISTO Stoichkov, búlgarski framheijinn hjá Barcelona, varð fyrir miklum vonbrigðum með hve snemma félagið datt út úr Evrópu- keppni meistaraliða í vetur. Hann hefur sagt að komist liðið ekki í keppnina næsta vetur — verði sem- sagt spænskur meistari — sé hann tilbúinn að fara ef eitthvert ítölsku félaganna bjóði í hann. I ÞRIR knattspymumenn fengu flest atkvæði í kjöri 70 landsliðsþjálf- ara um besta leikmann í heiminum í fyrra. Þetta vom Hollendingurinn Marco Van Basten, Búlgarinn Hristo Stoichkov og Þjóðveijinn Thomas Hassler. Það verður til- kynnt í Portúgal 1. febrúar nk. hver hreppir titilinn. ■ MATTHIAS Sammer, landsliðs- maður Þýskalands og fyrrum leik- maður Stuttgart, hefur yfirgefið Inter Mílanó eftir aðeins hálfs árs dvöl hjá félaginu. Sammer gekk til liðs við Dortmund í gær. ÚRSLIT Skíði Haus, Austurríki: Brun kvenna: Chantal Boumissen (Sviss).......1:42.64 Varvara Zelenskaya (Rússlandi)..1:42.70 Sabine Ginther (Austurríki).....1:42.86 Katja Seizinger (Þýskaiandi)....1:43.13 Heidi Zelier (Sviss)............1:43.21 Rosi Renoth (Þýskalandi)........1:43.56 Martina Erti (Þýskalandi).......1:43.69 Kerrin Lee-Gartner (Kanada).....1:43.69 Staðan í brunkeppninni: 1. Katja Seizinger (Þýskal.).......340 2. Chantal Boumissen (Sviss).......258 3. ReginaHaeusl (Þýskal.)..........190 4. Kerrin Lee-Gartner (Kanada).....179 5. Carole Merle (Frakklandi).......175 Tennis Helstu úrslit á Opna ástralska meistaramót- inu í gær: Einliðaleikur karla: 11-Guy Forget (Frakklandi) vann Jamie Morgan (Ástralíu) 6-3 6-2 6-2. 7-Petr Korda (Tékkneska lýðv.) vann An- drei Medvedev (Úkraníu) 6-4 4-6 6-4 7-6 (7-5). 1-Jim Courier (Bandar.) vann Guillaume Raoux (Frakklandi) 6-4 6-3 6-4. Einliðaleikur kvenna: 13-Nathalie Tauziat (Frakkl.) vann Wanne Dahlman (Finnlandi) 6-2 6-1. Julie Halard (Frakklandi) vann 16-Zena Garrison-Jackson (Bandar.) 6-4 7-5. 1-Monica Seles (Júgóslavíu) vann Patty Fendick (Bandar.) 6-1 6-0. Körfuknattleikur Leikir f NBA á fimmtudagur: New Jersey - Chicago............94:107 Indiana - Milwaukee............108:110 Dallas - Denver.................94:110 Houston - Detroit..............126:120 SKIÐI / HEIMSBIKARINN Um helgina Chantal Bournissen frá Sviss er hér á fullri ferð í brunbrautinni í Haus í Ennstal í Austurríki í gær. Reuter Bandarísk stúlka flutt með þyrlu á sjúkrahús Boumissen sterk- ust á svellinu SVISSNESKA stúlkan Chantal Bournissen vann annað brunmót sitt á keppnistímabilinu er hún náði besta tímanum í skíðabæn- um Haus í Austurríki ígær. Nokkrar stúlkur féllu í brautinni en sluppu þó ótrúlega vel frá meiðslum. Brautin var hörð sem svell og því mjög erfið. Bournissen, sem sigraði einnig í bruninu í Lake Louise í Kanada í desember, fór Krumm- holz-brunbrautina á 1:42.64 mín. og vann þar með sjötta heimsbikar- sigur sinn frá upphafí. „Þetta var spennadi keppni og ég er að sjálf- sögðu ánægð með sigurinn. Brautin var hröð og góð, sérstaklega efri hluti hennar," sagði Boumissen. Áður óþekkt rússnesk stúlka, Varvara Zelenskaya, varð önnur og aðeins 0.06 sek. á eftir sigurvegar- anum og er það besti árangur henn- ar til þessa. Sabine Ginther frá Austurríki varð þriðja og Katja Seizinger, Þýskalandi, sem hefur forystu í brunkeppninni samanlagt, varð fjórða. Anita Wachter, sem er efst í heildarstigakeppninni, náði aðeins 24. sæti og Carole Merle, helsti keppinautur hennar, varð að sætta sig við 10. sætið en hún hafði gert sér vonir um að vera ofar. Bandaríska stúlkan, Hilary Lindh, var flutt á sjúkrahús með þyrlu eftir að hún féll illa í braut- inni og lenti út í öryggisneti. Hún hlaut slæm hnémeiðsli, sem ekki voru talin alvarleg. Kate Pace frá Kanada, sem hafði besta tímann í æfíngaferð á fimmtudag, féll á sama stað og handleggsbrotnaði. Þær missa því af heimsmeistara- mótinu í Morioka í Japan sem fram fer í næsta mánuði. Nokkrar aðrar féllu í brautinni en sluppu við meiðsli. Körfuknattleikur Úrvalsdeildin: Laugardagur: Grindavík: UMFG-Snæfell.........16.15 Sunnudagur: Njarðvík: UMFN-Haukar..............20 Sauðárkrókur: UMFT - UBK...........20 Seltjamames: KR - Skallagrímur.....20 1. deild karla: Laugardagur: Seljaskóli: ÍR-UmfBol’vík......kl. 17 Handknattleikur Sunnudagur: 2. deild karla: Austurberg: Fylkir-ÍH..........kl. 14 Mánudagur: 1. deild kvenna: Höllin: KR-FH................kl. 18.30 Höllin: Fram - Ármann..........kl. 20 Golf Opið púttmót verður í Golfheimi á morg- un, sunnudag, kl. 08 til 20. Frjálsíþróttir Meistaramót íslands í atrennulausum stökkum fer fram í Baldurshaga í Laugar- dal i dag og hefst keppni kl. 11. Veggtennis PRO-Kennex skvassmótið fer fram í Veggsporti að Stórhöfða um helgina. Keppt verður í opnum B-flokki. Mótið er punkta- mót og gefur stig til íslandsmóts. Mótið er á vegum Skvassfélags Reykjavíkur. Snóker Fyrra úrtökumót af tveimur vegna heim- sóknar maltneska billiardleikarans Tony Drago, verður á BS-billiard og Billiardstof- unni í Mjódd nk. sunnudag. Fjórir stiga- hæstu menn úr mótunum tveimur öðlast þáttökurétt á snókermóti sem Drago tekur þátt í, en hann kemur til landsins 8. febr- úar nk. Íshokkí Bjöminn og Skautafélag Akureyrar mætast á íslandsmótinu í íshokkí á skauta- svellinu í Laugardal í dag kl. 11.00. Þorrablót Þorrablót knattspyrnudeildar Vals fer fram að Hlíðarenda í kvöld kl. 19. Blysför hjá GK Þorrablót GK verur í kvöld kl. 20.30 í nýja golfskálanum á Hvaleyrinni. Blysför verður farin að gamla golfskálanum kl. 19 og lagður eldur i hann. TENNIS / OPNA ASTRALSKA MEISTARAMOTIÐ Monica Seles byrjar vel Besta tenniskona heims, Monica Bjles frá Júgóslavíu, stefnir nú að þriðja sigri sínum í röð á Opna ástralska meistaramótinu. í gær vann hún Patty Fendick frá Bandaríkjunum auðveldlega, 6-1 og 6-0. Jim Courier hefur einnig byijað vel. Það tók hina 19 ára gömlu Seles aðeins 47 mínútur að vinna Fendick, sem er í 40. sæti á styrk- leikalistanum. „Ég held að ég hafi leikið nokkuð vel þrátt fyrir yfír- burðina. En ég verð þó að bæta leik minn áður en ég mæti Gaby (Sabatini), Jennifer (Capriati), Ar- antxa (Sanchez Vicario) eða Steffi (Graf),“ sagði Seles sem enn hefur ekki tapað setti í keppninni. Hún er komin í 16-manna úrslit og mætir þar Nathalie Tauziat frá Frakklandi. Seles hefur nú setið í efsta sæti heimslistans í tennis 72 vikur í röð. Jim Courier frá Bandaríkjunum, sem er efstur á styrkleikalista karla, er einnig komin í 16-manna úrslit eins og Seles. Hann sigraði Frakk- ann Guillaume Raoux í 3. umferð í gær 6-4 6-3 og 6-4. Courier hefur verið mikið í sviðsljósi fréttamanna vegna framkomu sínnar við dómara í 1. umferð. „Ég sé ekki eftir neinu sem ég hef gert. Ég er íþróttamað- ur sem getur gert mistök,“ sagði Courier sem enn hefur ekki tapað setti í keppninni. Hann mætir Sergej Bruguera frá Spáni í næstu umferð. KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN Bulls stöðvaði sigurgöngu IMets Michael Jordan gerði 30 stig fyrir meistara Chicago Bulls er liðið sigraði New Jersey Nets á fímmtudagskvöld, 94:107. Þar með lauk fimm leikja sigurgöngu Nets. Þetta var fimmti sigur Chicago í síðustu sjö leikjum og áttundi sigur- inn í röð á liði Nets. Scottie Pippen og B.J. Armstrong gerðu 18 stig Chicago auk þess sem Pippen átti 8 stoðsendingar. „Við unnum mjög gott lið í New Jersey. Liðið er mun betra en áður og leik- inenn koma inná völlinn til að sigra,“ sagði Armstrong eftir leik- inn. Bulls er nú með besta árangur- inn í Austurdeildinni og hefur náð þriðja besta árangrinum í allri NBA-deildinni það sem af er tíma- bilinu, hefur unnið 27 leiki og tapað 11. Derrick Coleman og Kenny Anderson voru stigahæstir í liði Nets með 22 stig. Drazen Petrovic kom næstur með 20 stig. Þetta var aðeins fjórði tapleikur Nets í síð- ustu 13 leikjum. Denver Nuggets náði loks að sigra eftir 13 tapleiki í röð er liðið mætti Dallas Mavericks, 110:94. Chris Jackson gerði 24 stig fyrir Denver, Reggie Williams gerði 19 og Robert Pack 14. Tracy Moore var atkvæðamestur í liði Dallas með 16 stig. Þetta var 31. tap liðsins í síðustu 34 leikjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.