Morgunblaðið - 17.02.1993, Side 17

Morgunblaðið - 17.02.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRUAR 1993 17 íslenskur sigur á Flugleiðamóti Bridshátíðar Sveit Glitnis hf. vann eftir mikinn endasprett __________Brids_____________ GuðmundurSv. Hermannsson SVEIT Glitnis vann óvæntan sigur í Flugleiðamótinu á Brids- hátíð á mánudagskvöldið. Sveit- in fékk 94 stig af 100 möguleg- um síðari keppnisdaginn og skaust í fýrsta sætið í síðustu umferð mótsins. I öðru sæti varð sveit Hollands og í þriðja sæti sveit Zia Mahmoods. í sigursveitinni spiluðu Aðal- steinn Jörgensen, Bjöm Eysteins- son, Guðmundur Sv. Hermanns- son, Helgi Jóhannsson og Ragnar Magnússon. í sveit Hollands spil- uðu Enri Leufkens, Berry Westra, Wubbo deBauer og Bauke Muller. í sveit Zia spiluðu auk hans Larry Cohen, Andy Robson, Munir Ata- Ullah og Mariette Ivanova. Alls tóku 70 sveitir þátt í Flugleiðamót- inu og hafa þær aldrei verið fleiri. 3.400 stig í einu spili í Flugleiðamótinu voru spilaðar 10 umferðir eftir Monradkerfi, þannig að stigahæstu sveitimar spiluðu ávallt saman. Það var sveit Roche, sem leiddi mótið fyrstu umferðirnar á sunnudaginn. Þá vann sveitin meðal annars sveit Landsbréfa, 19-11, þrátt fyrir að gefa út 23 IMP-stig í einu spilinu í leiknum. Það atvikaðist þannig, að Rochemennn spiluðu 1 grand redoblað við annað borðið, fengu aðeins 1 slag og töpuðu 3.400 stig- um. Á sunnudagskvöldið komst sveit Sparisjóðs Siglufjarðar í efsta sæt- ið. Sveitin, sem skipuð var bræðr- unum Ásgrími og Jóni Sigurbjörs- syni, og Steinari og Óiafi Jóns- syni, vann meðal annars sveit Roc- he 25-1. Sigurganga Siglfirðing- anna hélt áfram þegar mótið hófst aftur á mánudag og þá unnu þeir bæði sveitir Zia og Landsbréfa. Þeir deildu samt efsta sætinu eftir 8 umferðir með sveit Norge-Lands- bréfa en sú sveit var skipuð Sverri Ármannssyni, Matthíasi Þorvalds- syni og norsku landsliðsmönnun- um Jan Trollvik og Peter Mar- strander. í næst síðustu umferðinni batt sveit Glitnis loks enda á sigur- göngu Siglfirðinganna og fyrir síð- ustu umferðina var sveit Lands- bréfa-Norge í efsta sæti með 172 stig, sveitir Sparisjóðs Siglufjarðar og Glitnis voru í 2.-3. sæti með 168 stig, sveit Hojlands í 4. sæti með 167, sveit S. Ármanns Magn- ússonar með 164 stig í 5. sæti, sveit Landsbréfa með 160 stig í 6. sæti og sveit Zia í 7. sæti með 157. í síðustu umferðinni spiluðu saman tvær efstu sveitirnar, sveit- ir 3 og 4 og sveitir 5 og 6. Glitnir vann sinn leik 22-8, Holland vann Siglfírðinga 19-11 og S. Ármann vann sinn leik 17-13. Þá vann Zia Tryggingamiðstöðina 22-8 og þetta var því lokastaðan: Glitnir 190 Holland 186 ZiaMahmood 182 S. Ármann Magnússon 181 Norge-Landsbréf 180 Sparisjóður Siglufjarðar 179 Landsbréf 176 Sigurður ívarsson 176 Belladonna 172 Norge-Höjland 167 Hákarlar éta ekki íslendinga í verðlaunaafhendingunni hélt Zia smá tölu að venju og sagði þá frá því þegar hann reyndi að út- skýra fyrir Munir landa sínum hvers vegna íslendingar hefðu unnið heimsmeistaratitilinn í brids. „Sjáðu til,“ sagðist hann hafa sagt. „íslendingar eru harðir af sér, og þeir geta nokkuð sem enginn ann- ar getur. í öðrum löndum éta há- karlar menn, en á íslandi éta menn hákarla!" Spilarar framtíðarinnar Hollendingarnir Enri Leufkens, Wubbo deBauer, Berry Westra og Bauke Muller enduðu í 2. sæti í Flugleiðamótinu. Morgunblaðið/Amór Hagnarsson rleiðabikarinn arinn. Frá vinstri eru Björn Eysteins- son, Ragnar Magnússon, Helgi Jóhannsson, Guðmundur Sv. Her- mannsson og Aðalsteinn Jörgensen. Með Flu Sveit Glitnis með Flugleiðabil Goðsagnapersónur Það má segja um þessa þremenninga að þeir séu allir orðnir goð- sagnapersónur í lifanda lífi. Þetta eru ítalirnir Georgio Bella- donna og Pietro Forquet með Pakistanann Zia Mahmood á milli sín. Svar við opnu bréfi til KKÍ eftir Pétur Hrafn Sigurðsson Undirritaður sér sig knúinn til að svara opnu bréfi Valdimars Guð- laugssonar sem birtist í Mbl. 12. febrúar síðastliðinn, til Körfuknatt- leikssambands íslands, þar sem all- nokkurrar ónákvæmni gætir í henni er hann fjallar um aðdraganda þess að leik ÍA og ÍS í 1. deild karla var frestað. í fyrsta lagi talar Valdimar um „ábyrgðarleysi af hálfu forráða- manna KKÍ vegna framkomu þeirra“. Forráðamenn KKÍ eru þeir sem kosnir hafa verið í stjóm KKÍ og höfðu þeir ekkert með þetta mál að gera. Réttara hefi verið að tala um starfsmenn. í öðru lagi segir Valdimar að upp úr hádegi þann 5. febrúar hafi skoll- ið á „eitt mesta óveður sem gengið hefur yfir hér suðvestanlands með miklu hvassviðri, skafrenningi og ófærð sem því fylgdi“. Hér ýkir Valdimar alla nokkuð því skv. upp- lýsingum frá Veðurstofu íslands voru 6 vindstig á Stór-Reykjavíkur- svæðinu um hádegi 5. febrúar og veðrið oft verið verra. Valdimar segir hættu á að ÍS- ingar yrðu veðurtepptir eftir leikinn á Akranesi og „fordæmi fyrir slíku eru hinsvegar ekki til“. Undirritað- ur man eftir nokkrum fordæmum fyrir því að lið hafi verið veðurteppt á Akranesi. Ennfremur lægði veðrið verulega um kl. 21.00 um kvöldið, eins og spáð hafði verið og því lítil hætta á að lið ÍS yrði veðurteppt. Valdimar talar um „orðastymp- ingar og strögl við KKI“ er óskað var eftir frestun á leiknum. Ekki kannast undirritaður við það, enda ræddi hann aldrei við Valdimar Pétur Hrafn Sigurðsson sjálfan. Hins vegar fengu ÍS-ingar þau svör að KKI myndi athuga hjá Vegagerð ríkisins hvort fært væri til Akraness. Undantekningarlítið er leitað til Vegagerðar eða lög- reglu komi fram beiðni um frestun á leik vegna ófærðar og það er ávallt farið eftir leiðbeiningum þeirra. Svar Vegagerðarinnar kl. 17.15 var að fært væri öllum bílum til Akraness. Því var ljóst að ekki var tilefni til frestunar. Ef svör Vegagerðar hefðu hins vegar verið á þann veg að ekki væri fært, þá hefði leiknum umvifalaust verið frestað. Það er því heldur ekki rétt sem Valdimar segir að um „ábyrgð- , arleysi“ sé að ræða af hálfu starfs- manna KKÍ. Eftir að ljóst var að leikmenn ÍS og dómarar leiksins kæmust ekki með Akraborginni, þá var enn farið fram á frestun. Henni var hafnað þar sem enn lá ljóst fyrir að fært væri landleiðina til Akraness. Enda kom það í ljós að vel var fært til Akraness þar sem þjálfari ÍA, Björn Steffensen, komst án erfiðleika alla leið til Akraness þrátt fyrir að hann hafi lagt af stað frá Akraborginni á sama tíma og ÍS-ingar. Þess má geta að Björn ók á lítilli Daihatsu bifreið og var hann eina og hálfa klukkustund á leiðinni. Leikurinn hefði því auðveldlega getað farið fram kl. 21.00. Svarið við spurningu Valdimars um hvort ekki eigi „að taka aðvar- anir lögreglu og tilkynningar um ófærð alvarlega" er því: Jú auðvitað og það er ávallt gert. Hins vegar ef upplýsingar frá ábyrgum aðilum eins og Vegagerðinni eða Flugfé- lögum gefa til kynna að sé fært, hafa starfsmenn KKI ekki ástæðu til að vefengja þær. Það er hins vegar ljóst að við búum á íslandi og að oft er veðrið ekki sem best. En ef við því er brugðist með fyrir- hyggju og réttum útbúnaði er oft- ast nær ekki um vandamál að ræða. Þetta vita a.m.k. félögin á lands- byggðinni sem senda lið til keppni, stundum oft í viku hverri án þess að um teljandi vandræði sé að ræða vegna veðurs. Að lokum vill ég taka fram að þó ég telji mig nauðbeygðan til að svara bréfi þínu á þeim vettvangi sem það er birt, þá tel ég ekki heppi- legt að falla um í fjölmiðlum ef félög eða aðilar innan þeirra eru óánægðir með störf og ákvarðanir starfsmanna KKI. Kvartanir um slíkt eiga að berast til stjórnar KKI og málin á að leysa innan hreyfíng- arinnar. Höfundur er framkvæmdastjóri Körfuknattíeikssambands tslands. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadðttir Heimsókn ráðu- nauta í Gunnarsholt ÁRLEGUR fjögurra daga ráðu- nautafundur Búnaðarfélags ís- lands var haldinn í Reykjavík í síðustu viku. Þátttakendum, sem voru um 100 manns víða af landinu, var boðið í skoðunarferð að Stóra-Ármóti í Hraungerðishreppi þar sem skoðað var ijós og tilraunaaðstaða í naut- griparækt. Ennfremur var aðstaðan í Gunnarsholti skoðuð, m.a. fóður- og fræframleiðsla og stóðhestastöð ríkisins, þar sem myndin var tekin. Mjög líflegar umræður urðu á fund- inum um umhverfisvænan búskap, landgræðslu og gróðurvernd. Enn- fremur voru á dagskrá breytingar á mjólkurreglugerð og fóðuröflun og margs konar tilraunaniðurstöð- ur. 3 miHjarðar í tölvur ÞINGKJORNIR yfirskoðunarmenn ríkisreiknings gagnrýna að ekki se til nem samræmd opmber þess málaflokks sé árlega varið króna. „Svo virðist sem hvert ráðuneyti eða embætti og stofnun fari með þennan málaflokk mikið til eftir geðþótta og út frá eigin hagsmun- um og hugmyndum," segja yfir- skoðunarmenn í skýrslu sinni til Alþingis um endurskoðun ríkis- reiknings 1991. í tölvumalum nkisms þótt til í því talið sé þremur milljörðum Yfirskoðunarmenn telja nauð- synlegt að taka upp sérstakt aðhald vegna tölvukaupa ríkisins og hvetja tjl víðtækrar stefnumótunar á veg- um ríkisstjómarinnar í þeim efnum. Hafa þeir einnig óskað eftir því við Ríkisendurskoðun að hún geri út- tekt á þessum málaflokki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.