Morgunblaðið - 17.02.1993, Síða 21

Morgunblaðið - 17.02.1993, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993 21 iteuter Flugvélar falar í kippum FJOLDI farþegaþota af gerðinni Fokker-100 stendur óseldur og innpakkaður í segl á geymslu- svæði Fokker-flugvélaverksmiðjanna í Woendsdrecht í suðurhluta Hollands. Á mánudag lauk margra mánaða samningaviðræðum Deutsche Aerospace og hollensku ríkisstjórnarinnar með því að þýska fyrirtækið ákvað að kaupa 51% hlut hollenska rikisins í Fokker-fyrirtækinu. Hringlað með hjálp- argögn í Sarajevo Sar^jevo. Reuter. YFIRVÖLD borgarinnar Sarajevo í Bosníu hafa neitað að takað við hjálparsending- um frá Sameinuðu þjóðunum frá því á fimmtudag í síðustu viku. Krefjast borgaryfirvöld þess að þeir 100 þúsund mú- slimar, sem eru innilokaðir í herkví í austurhluta Bosníu, fái reglulegar sendingar hjálpargagna. Fyrr verði ekki tekið við hjálparsending- um í Sarajevo. Sylvana Foa, talsmaður Flóttamannahjálp- ar Sameinuðu þjóðanna, gagnrýndi þessa afastöðu harðlega í gær og sagði borg- aryfirvöld vera í sljórnmála- leik með neyðaraðstoðina. Foa sagði að vörugeymslur Sam- einuðu þjóðanna væru nú stútfullar af mat eftir að flutningalestir hefðu komið til borgarinnar um helgina og að nú biðu 2.500 tonn af matvæl- um afhendingar. „En áður verða yfirvöld í Sarajevo að hætta þessum stjórnmálaleik með hjálparsending- arnar og ákveða að hætta að koma í veg fyrir að þær komist til íbúaa borgarinnar,“ sagði Foa og bætti við að þetta væri ákvörðun yfirvalda en ekki íbúa. Serbar hafa setið um Sarajevo í Reuter Líkfylgd FJOLDI manns fylgdi nokkrum serbneskum hermönnum til grafar í borginni Knin, höfuðstað Krajina-héraðsins í Króatíu, í fyrradag og var myndin tekin við það tækifæri. tíu mánuði og eru hinir 380 þúsund íbúar borgarinnar því mjög háðir matar- og lyfjasendingum Samein- uðu þjóðanna. Flestar fjölskyldur eiga einhvern matarforða, sem keyptur hefur verið á uppsprengdu verði á svörtum markaði, en talið er líklegt að brátt muni það fara að segja til sín að ekki sé tekið við hjálpargagnasendingum. Þrátt fyrir hina erfiðu stöðu segja fréttamenn í Sarajevo að almennur stuðningur sé við ákvörðun borgar- yfirvalda og að nánast ógerningur sé að finna íbúa sem ekki styðji bannið. „Við hefðum átt að gera þetta fyrir löngu. Það virðist sem umheimurinn sé nú loksins farinn að hlusta á okkur,“ sagði kona ein sem Reuters-fréttastofan ræddi við. Enginn McDonald’s við Eiffel-tuminn París. The Daily Tclegraph. VARÐMENN franskrar menningar og matargerðar- listar unnu frækinn sigur á mánudag þegar þeim tókst að koma í veg fyrir að McDonald’s-hamborgara- staður yrði stofnaður undir Eiffel-turninum. Þótt McDonald’s-hamborgarar séu nú seldir á Rauða torginu í Moskvu, Torgi hins himneska frið- ar í Peking.og Champs Elysee í París hryllti þjóðræknum Frökk- um við þeirri tilhugsun að sjá McDonald’s-merkið við frægustu byggingu Parísar. Þeir hófu her- ferð gegn þessari „amerísku lág- menningu" og urðu að leita á náðir ríkisstjórnarinnar til að af- stýra þessari hneisu. Reglugerð um skipulag borgarinnar kveður á um að ekki megi reisa nýjar byggingar við Eiffel-turninn en sérfræðingar McDonald’s létu sér ekki segjast. Þeir komust að því að ekkert bannar þeim að reisa fljótandi hamborgarastað á Signu, nokkrum metrum frá turninum. Borgaryfirvöld ráða engu um nýt- ingu Signu því hún er í verkahring sérstakrar stjórnar, sem var veik fyrir hugmyndinni um skyndibita- staðinn. En þá skarst Georges Sarre, samgönguráðherra Frakk- lands, í leikinn og fyrirskipaði Signustjórn að tilkynna hamborg- arakeðjunni tafarlaust að hún gæti ekki stofnað skyndibitastað „á þessum sérlega mikilsverða stað“. Walesa staðfestir umdeilda löggjöf um fóstureyðiugar Varsjá. Reuter. LECH Walesa, forseti Póllands, undirritaði í fyrradag ný lög um fóstureyðingar eftir hartnær þriggja ára deilur um þetta mál. Pólska þingið samþykkti lögin fyrr á árinu eftir að andstæðingar banns við fóstureyðingum höfðu knúið fram breytingar á frumvarpi, sem stjórnin lagði fram. Upphaflega frumvarið kvað á um því sem næst algjört bann við fóstureyðingum og í því voru einnig ákvæði um að refsa bæri kon- um sem gengjust undir fóstureyðing- ar og læknum sem framkvæmdu þær. Samkvæmt nýju lögunum eru fóst- ureyðingar löglegar þegar barns- burður stefnir lífí móður í hættu eða gæti skaðað heilsu hennar alvarlega, svo og þegar getnaður á sér stað við sifjaspell eða nauðgun. Fóstureyð- ingar eru einnig leyfðar þegar rann- sóknir sýna að fóstrið hefur orðið fyrir alvarlegum skaða. Aðeins lækn- ar sem framkvæma ólöglegar fóstur- eyðingar eiga yfír höfði sér refsingu. Margir stuðningsmenn upphaflega frumvarpsins sögðu vafasamt að hafa svo margar undantekningar og andstæðingar fóstureyðingarbanns- ins sögðu slæmt að konur, sem geta engan veginn framfleytt barni, skuli ekki vera undanskildar. „Þessi lög eru betri en þau gömlu,“ sagði Lech Walesa. Samkvæmt lög- um frá 1956 höfðu því sem næst allar barnshafandi konur rétt á fóst- ureyðingum í Póllandi. Janet Reno Rætur Reno í Danmörku Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgcn Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. JANET Reno, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, á rætur að rekja til Danmerkur og foreldrar hennar voru báðir blaðamenn. Faðir Reno var Henry Rasmuss- en frá Ejby á Fjóni en hann var sonur Roberts Marius Rasmussens ljósmyndara sem fluttist með fjöl- skyldu sinni til Bandaríkjanna árið 1910. Þá var Henry 10 ára gamall. í Bandaríkjunum kvæntist hann Jane Wood Reno og tók sér eftir- nafn hennar. Innilegar þakkir til barna minna, tengdabarna og Jjölskyldna þeirra, svo og til allra þeirra, sem glöddu mig á 80 ára afmœli mínu. GuÖ blessi ykkur öll. Sigurborg Sigurðardóttir, Álfatiini 13. Björn Jónsson hdl. hefur flutt lögmannsstofu sína frá Borgartúni 33 á Suðurlandsbraut 48 v/Faxafen, Reykjavík, sími 684860, fax684861. Nyborg sofartsskole „SKIBSASSISTENT" - 1. OG2. STIG (alls 5 mánuðir) • Sigling á seglskipi á dönskum sjóleiðum og á vélskipi til Svíþjóðar • Öryggi til sjós • Slökkvistarf um borð • Verkstæðisvinna • Varðgæsla • Siglingafræði • Róður • (þróttir og sund. • Byrjar 1. ágúst 1993. Eftir námskeiðið fá þátttakendur stimpil í siglingabók og geta látið skrá sig á farskip til að öðlast starfsreynslu. Kynningarfundur um Nyborg Sofartsskole verður í Reykjavík mánu- daginn 1. mars. Ef þú hefur áhuga, hringdu þá í 90 45 42 99 55 44 eða símbréf 90 45 42 99 59 82. IMyborg Sofartsskole, 5800 Nyborg, Danmörku. Síðustu dagar útsölunnar Enn meiri verðlækkun Nýjar vörur í næstu viku K r i n g I u n n i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.