Morgunblaðið - 17.02.1993, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993
Forstöðumaður Listasafns Akureyrar
Haraldurlngi
Haraldsson ráðinn
HARALDUR Ingi Haraldsson var ráðinn forstöðumaður
Listasafns Akureyrar á fundi bæjarstjómar í gær. Hann
fékk 6 atkvæði við atkvæðagreiðslu, Kristinn G. Jóhanns-
son fékk 4 atkvæði og Ásta Kristbergsdóttir eitt. Áður
hafði meirihluti menningarmálanefndar mælt með Kristni
G. Jóhannssyni í stöðuna.
Trébryggja
smíðuð í vor
í Grímsey
Grímsey.
SMÍÐI verður hafin á 40
metra langri trébryggju í
Grímseyjarhöfn í vor. Á
sumrin þegar mikið er um
aðkomubáta skortir
bryggjupláss hér í Gríms-
ey.
Þorlákur Sigurðsson oddviti
sagði að ákvörðun hefði verið
tekin um smíði bryggjunnar og
yrði hún eins og sú sem fyrir er
í nýju höfninni. Seinna meir er
ætlunin að stækka báðar biyggj-
umar upp í 60 metra.
Þorlákur sagði að byrjað yrði
á bryggjusmíðinni með vorinu
eða fyrri part sumars. Yfir sum-
armánuðina eru hér aðkomubát-
ar svo tugum skiptir og skortir
þá mjög á nægjanlegt pláss í
höfninni.
„Tíðarfarið í vetur hefur verið
slæmt og erfitt til sjósóknar og
hefur það reynt bæði á eldri og
yngri mannvirki,“ sagði Þorlák-
ur.
HSH
Fundur um
Jafnréttisfulltrúi Akureyrar-
bæjar minnti bæjarfulltrúa á
markmið jafnréttisáætlunar áður
en fundur hófst. Nokkrar umræð-
ur urðu um þetta mál á fundi
bæjarstjórnar í gær. Átta umsókn-
ir bárust um starfið.
Sigfríður Þorsteinsdóttir (B)
sagði að í sínum huga væru allar
þær konur sem sóttu um starfið
hæfar til að gegna stöðunni og
a.m.k. tvær þeirra hefðu menntun
umfram karlana. Óskaði Sigfríður
eftir að málinu yrði vísað á ný til
menningarmálanefndar, en Þröst-
ur Ásmundsson formaður nefndar-
innar sem sat bæjarstjórnarfund-
inn í gær sagði að þar væri enga
frekari visku í þessu máli að hafa.
Jafnréttisáætlun kynnt
Þá lagði Sigfríður einnig til að
jafnréttisfulltrúa og bæjarstjóra
yrði falið að kynna menningar-
málanefnd sem og öðrum nefndum
og ráðum bæjarins markmið jafn-
réttisáætlunar og var sú tillaga
samþykkt. .
Gert var hlé á fundi bæjar-
stjómar á meðan fulltrúar ræddu
stöðuna, en í skriflegri og leyni-
legri atkvæðagreiðslu greiddu 6
bæjarfulltrúar Haraldi Inga Har-
aldssyni atkvæði sitt, Kristinn G.
Jóhannsson fékk 4 atkvæði og
Ásta Kristbergsdóttir fékk eitt
atkvæði.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fullfermi
SIGURÐUR VE kom með fullfermi til Krossa-
ness í gær, en það er í þriðja sinn sem skipið
landar fullfermi hjá verksmiðjunni. Alls hefur
skipið komið með um 4.300 tonn í þessum
þremur ferðum. Loðnan veiðist nú á svæðinu
frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar og er
rúmlega 30 klukkutíma sigling af miðunum
norður.
tryggingarmál
GUÐRÚN Sigurbjömsdóttir ræð-
ir um tryggingamál á fundi Sam-
taka um sorg og sorgarviðbrögð
annað kvöld, fimmtudagskvöldið
18. febrúar kl. 20.30 í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju. Mun
Guðrún fjalla um ýmsar hliðar
almannatryggingakerfísins,
hverjir eigi rétt á bótum og hve-
nær og hvar best sé að afía sér
upplýsinga.
Niðursuðuverksmiðja K. Jónssonar segir upp kaupaukakerfi
Launín lækka að meðal-
tali um 20 þúsund krónur
Bros-
mildar
Vinkonurnar
Bylgja Rún
Valdimarsdóttir
og Brynja María
Brynjarsdóttir í
Ólafsfírði voru á
leið heim úr skól-
anum þegar þær
mættu ljósmynd-
ara blaðsins, sem
smellti mynd af
þessum ungu
brosmildu stúlk-
um. Enn er yfír
nokkuð háa
ruðninga að fara
þó að snjó hafí
tekið upp í hvass-
viðrinu að und-
anfömu.
Morgvnblaðið/Svavar B. Magnússon
Erum að taka á mörgum erfiðum málum til að
lækka kostnað, segir framkvæmdastj óri KJ
LAUN starfsfólks í fullu starfi hjá Niðursuðuverksmiðju
K. Jónssonar lækka að meðaltali um 20 þúsund krónur á
mánuði eftir að forráðamenn verksmiðjunnar sögðu upp
svokölluðu kaupaukakerfi, en uppsögnin tók gildi í gær.
Starfsmenn verksmiðjunnar hittust á fundi hjá Verkalýðsfé-
laginu Einingu eftir vinnu í gær og ræddu stöðuna. Staða
verksmiðjunnar er erfið og er þetta einn liður af mörgum
til að lækka kostnað.
Samningar 1988
Bjöm Snæbjörnsson formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar sagði
að um væri að ræða samning frá
árinu 1988 og væri hann með
hálfs mánaðar uppsagnarfresti.
Forráðamenn verksmiðjunnar
sögðu samningnum upp um síð-
ustu mánaðamót og tók uppsögn
því gildi í gær, 15. febrúar.
Tvenns konar kaupaukakerfí
var í gangi hjá niðursuðunni, ann-
ars vegar var um afkastatengt
kerfí að ræða og eins var svoköll-
uð húspremía til staðar, þar sem
greidd var föst krónutala ofan á
grunnlaun fyrir þau störf sem
ekki var greitt fyrir eftir afkasta-
hvetjandi kerfi.
Launalækkun
Björn sagði að fyrir starfsfólk
í fullu starfi þýddi uppsögn kaup-
aukakerfisins að meðaltali að laun
lækkuðu um 20 þúsund krónur,
en grunnlaunin eru á bilinu frá
43 til 47 þúsund krónur eftir
starfsaldri. Kaupaukinn kom síðan
ofan á grunnlaunin, þannig að
launin voru að meðaltali á milli
60 og 70 þúsund krónur.
Urgur
„Það er ekki hægt að neita því
að mikill urgur er í starfsfólkinu
vegna þessa,“ sagði Björn, en það
hittist á fundi með forsvarsmönn-
um Einingar í gær og ræddi stöðu
mála. „Við höfum óskað eftir við-
ræðum við forráðamenn verk-
smiðjunnar um áframhaldandi
samninga á þessum nótum, en
ekki hefur verið tekið undir þær
óskir okkar.“
Eifiður rekstur
Aðalsteinn Helgason fram-
kvæmdastjóri K. Jónsson sagði að
frá því í haust hefði markvisst
verið unnið að því að lækka kostn-
að við rekstur verksmiðjunnar og
þegar væri búið að taka á mörgum
hlutum. Þessi uppsögn á kaup-
aukasamningi væri einn liður í því
að lækka kostnað við reksturinn.
„Við erum að taka á mörgum
mismunandi erfiðum málum og
þetta er eitt þeirra. Staðan hefur
lengi verið erfið hjá okkur og þetta
er nokkuð snúið dæmi að eiga við,“
sagði Aðalsteinn.