Morgunblaðið - 17.02.1993, Page 27

Morgunblaðið - 17.02.1993, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993 27 Vegaáætlun fyrir árin 1993-1996 rædd á Alþingi Framkvæmdir auknar til að treysta atvinnu SAMGÖNGURÁÐHERRA, Halldór Blöndal, mælti í gær fyrir tillögu til þingsályktunar um vegaáætlun fyrir árin 1993-96. Tillagan gerir ráð fyrir auknum vegaframkvæmd- um til treysta atvinnu og sporna gegn atvinnuleysi. Stjórn- arandstæðingar gagnrýndu framgöngu ríkisstj órnarinnar í þessu máli. Þeir töldu og framkvæmdaféð minna heldur en ríkisstjórnin gæfi í skyn. Halldór Blöndal samgönguráð- herra gerði í sinni framsöguræðu grein fyrir nokkrum efnisatriðum vegaáætlunarinnar, m.a. því að gert væri ráð fyrir því að nokkurt fé væri árlega fært í ríkissjóð af mörkuðum tekjustofnum vega- mála. Samgönguráðherra sagði þetta vera gert vegna aðstæðna í þjóðfélaginu en hann dró enga dul á þá skoðun að óæskilegt væri að þetta yrði gert til frambúðar og yrði að stefna að því að þessum tekjum yrði varið óskertum til vegamálanna um leið og hagur rík- issjóðs vænkaðist. Samgönguráðherra rifjaði upp að ríkisstjórnin hefði ákveðið síðastliðið haust að beita sér fyrir auknum framkvæmdum til að bæta atvinnuástand. Upphaflega hefði verið áformað að til þessa yrði varið 1800 milljónum króna en við lokaafgreiðslu fjárlaga hefði verið ákveðið að fjármagn til þessa átaks skyldi nema 1550 milljónum króna. Því yrði niðurstöðutala fjár- öflunar á árinu 1993 7266 milljón- ir króna, á árinu 1994 yrði hún 6646 milljónir og 6306 milljónir árið 1996. Framsögumaður sagði að í sam- þykkt ríkisstjórnarinnar hefði verið tiltekið að þetta viðbótarfjármagn skiptist milli kjördæma samkvæmt hefðbundnum reglum sem hefðu verið við afgreiðslu vegáætlunar. samþykkt ríkistjórnarinnar hefði einnig fylgt listi um þau verkefni sem njóta skyldu þessara fjár- muna. í lok sinnar ræðu lagði sam- gönguráðherra til að þessari tillögu til vegaáætlunar yrði vísað til sam- göngunefndar og vænti hann þess að allir sem um málið fjölluðu legðu sig fram um að afgreiða það á skjótan og farsælan hátt. Samstaðan rofin Þingmenn töluðu í u.þ.b. þrjár stundir um vegamál. Mátti ríkis- stjóm og samgönguráðherra sæta nokkru ámæli þótt allir ræðumenn fögnuðu auknu fjármagni til vega- mála. Hins vegar þóttu vinnubrögð ríkisstjómarinnar í þessu máli vaka. Guðmundur taldi milljónirn- ar vera 380. Það mátti glöggt skilja á Guð- mundi Bjamasyni, að honum þótti samgönguráðherrann hafa valið sér þann hlutinn sem betri væri. Að ákveða sjálfur auknar fram- k'væmdir en ætla svo þingmönnum kjördæmanna að taka ákvarðanir um niðurskurð annarra fram- kvæmda. Guð- mundur sagði að þær auknu framkvæmdir sem yrðu í Norðurlands- kjördæmi eystra næmu 128 milljónum króna en á hinn veginn yrði að skera niður framkvæmdir sem næmi um 109 milljónum. Vegaáætlanir í kosningaskjá- lfta Fjöldi þing- margháttaðra ámælisorða verð. Haíldór Ásgrímsson (A-Al) sagði það ný vinnubrögð að ákveða fram- kvæmdir uppá sitt eindæmi og snúa við þeirri vegaáætlun sem gerð hefði verið. Hann taldi að skynsamlegra hefði verið að tala við þingmenn kjördæmanna og við- halda þeirri samstöðu sem ríkt hefði um vegamálin. En eins og ríkisstjómin og samgönguráðherra gengju fram væri honum stórum til efs að fyrrgreind samstaða fengi viðhaldist. Steingrímur J. Sigfússon (Ab- Ne) fyrrum samgönguráðherra benti á að sú skerðing á mörkuðum tekjustofnum sem samgönguráð- herra hefði minnst á næmi á þessu ári 344 milljónum króna og vega- gerðinni væru nú ætlað að sjá um rekstur ferja og flóabáta sem myndi kosta 350-500 milljónir á næstu ámm. Sú aukning fram- kvæmda sem ráðgerð væri skyldi aflað með lánsfé en á sama tíma væri gengið á eigið aflafé Vega- gerðarinnar. Guðmundur Bjarnason (F-Ne) taldi vegaáætlunina vitna um „leikaraskap“ og yrði minna úr vegaframkvæmdunum ef nánar væri skoðað. Ef þetta „átaksfé" væri frátalið af vegaáætluninni stæðu eftir 5,716 milljónir en eldri vegaáætlun hefði gert ráð fyrir 6,556 milljónum. Þar að auki væri feijum og flóabátum bætt á verk- efnalista Vegagerðarinnar, a.m.k. 330 milljónir þar. Það yrði því minna úr 1550 milljón króna átaksfé en ráðherrar létu í veðri manna ur stuðningsliði ríkisstjórnar og stjórnarandstæðinga skiptust á skoðunum og andsvömm. Vora framlög til vegamála í fortíð og framtíð tíunduð. Það kom m.a. fram í ræðu Halldórs Blöndals samgönguráðherra að það hefur oftlega hent að framlög til vega- mála hafa orðið minni heldur en vegaáætlanir gera ráð fyrir. Hann taldi nokkra skýringu þessa mis- ræmis liggja í því að vegaáætlun væri samþykkt rétt fyrir kosning- ar. Slíkt verklag gæfí tilefni til yfirboða og þar að aukin væri það óeðlilegt að þingmenn sem margir hveijir myndu ekki sitja á þingi eftir kosningar tækju ákvarðanir fyrir næsta kjörtímabil. Umræðu varð lokið en atkvæða- greiðslu frestað. Kirkjan á Skálholt að fornu og nýju GISSUR ísleifsson biskup gaf Skálholt til biskupsseturs. Nú er margra ótti að fésýslumenn hins veraldlega ríkis- valds telji Skálholt og kirkjujarðir ríkiseign. Þorsteinn Pálsson segir að Alþingi hefði afhent kirkjunni Skálholt. Svavar Gestsson bað kirkjumálaráðherrann um að láta fjár- málaráðuneytið vita um þennan vilja Alþingis. Síðastliðinn föstudag var til um- ræðu fmmvarp um Skálholtsskóla; kirkjulegrar menningar- og menntastofnunar í eigu þjóðkirkj- unnar. í umræðunum greindi Svav- ar Gestsson (Ab-Rv) fyrrum menntamálaráðherra frá því að hann hefði í sinni ráðherratíð gert nokkrar tilraunir til að tekið yrði á skipulagsmálum Skálholtsstaðar heildstætt undir forystu kirkjunnar. Svavari var það nokkurt hryggðar- efni að viðbrögð kirkjunnar hefðu verið furðulega sljó og kirkjan ekki náð vopnum sínum, þ.e. þeim sem geistlegir mega bera. En það steðjaði annar vandi að Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra Beðið með staðfest- ingu samnings við EB um sjávarútvegsmál JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði að ríki- stjórnin biði með að fullgilda tvíhliða samning við Evrópu- bandalagið, EB, um sjávarútvegsmál. Ríkisstjórnin biði átekta og vildi sjá hveiju fram yndi, bæði í þessu máli hvað varðaði staðfestingu tvíhliða samningsins af hálfu EB sem og samn- ingsins um Evrópskt efnahagssvæði, EES. STUTTAR ÞINGFRETTIR Rýmri heimildir vátryggingafélaga til fésýslu Heilbrigðis- og tryggingar- málaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um vátrygg- ingastarfsemi. Fmmvarpið er 74 lagagreinar sem skiptast í 10 kafla. í athugasemdum og grein- argerð kemur fram að frumvarp- ið er á mörgum sviðum mun ítar- legra en gildandi lög og ný ákvæði að fínna um mörg atriði, m.a. em starfsheimildir vátrygg- ingafélaga rýmkaðar og felld em niður ýmis skilyrði á markaðs- og fjármálasviði en jafnframt eru sett ákvæði til eflingar neytenda- verndar og heimildir eftirlitsaðila til afskipta gerðar skýrari og í ýmsum tilvikum auknar. Frumvarpið er samið af nefnd sem Guðmundur Bjarnason þá- verandi tryggingamálaráðherra skipaði í ágúst 1989. Nefndin er sammála um frumvarpið að öðra leyti en því að formaður nefndarinnar Erlendur Lámsson tryggingafræðingur skilar sérá- liti um stjórn Tryggingaeftirlits samkvæmt 37. gr. frumvarpsins. í fyrirspurnartíma í gær spurði Steingrímur J. Sigfússon (Ab-Ne) utanríkisráðherra um hvort ríkis- stjómin hyggðist ljúka á næstunni skjalaskiptum milli íslands og Evr- ópubandalagsins til fullgildingar á tvíhliða samningi um samskipti á sviði sjávarútvegs. En EB hefur talið slíkan samning vera skilyrði fyrir gildistöku Evrópsks efnahags- svæðis, EES. Steingrímur vildi benda að hvorki Norðmenn né Grænlendingar myndu ná því að veiða sinn hluta loðnukvótans og myndi hann bæt- ast við veiðiréttindi íslands. Þar að auki hefði verið ákveðið að bæta við veiðikvótann. Það væri því ljóst að íslendingum yrði ekki neinn ávinningur af þeim samningi sem stjórnarflokkarnir hefðu knúið í gegnum Alþingi í síðasta mánuði. Steingrímur vildi ennfremur benda á að fullkomin óvissa væri um samninginn um EES og þær meintu hagsbætur sem íslendingum kynni að falla þar í skaut vegna tollalækk- anna. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra upplýsti að samn- ingurinn hefði ekki enn verið full- giltur. Ríkisstjómin biði átekta. Hún vildi sjá hverju fram yndi, bæði í þessu mál nvað varðaði stað- festingu tvíhliða samningsins sem og EES-samningsins sjálfs. Utan- ríkisráðherra sagði það rétt vera að gildistaka EES-samningsins sjálfs væri í óvissu. Samningavið- ræður stæðu yfir og snérast að mestu um kröfur EB um framlög í þróunarsjóðinn. Hann gæti því miður ekki flutt þingheimi neinar nýjar fréttir af þeim vettvangi. Skálholtsstað sem olli ræðumanni hugarangri. Fyrir skömmu hefðu birst hjá sýslumanni Ámesinga, fulltrúar frá fjármálaráðuneyti. Sendimenn þessir hefðu óskað eftir því að Skálholtstaður yrði þinglýst eign ríkisins og fjármálaráðuneytis. Svavar minnti þingheim og á að í nýlegri eignaskrá íslenska ríkisins hefði hefði Skálholt verið skráð undir Qármálaráðuneytið. Svavar hugði að þetta hefðu biskupum fornum þótt mikil forsögn ef þeim hefði verið sagt að hið veraldlega vald ætlaði sér til eignar þennan andlega höfuðstað. Svavar lá ekk- ert á þeirri skoðun að halda bæri „höndum fjármálaráðherra frá Skálholti". Það væri auðvitað kirkj- an sem ætti að fara með Skálhoit. Og að svo miklu leyti sem ríkis- stjómin kæmi nálægt málefnum staðarins þá ætti kirkjumálaráð- herrann að fara þar höndum um. Svavar Gestsson spurði Þorstein Pálsson kirkjumálaráðherra: „Hver á Skálholt?" Þorsteinn Pálsson kirkjumála- ráðherra sagði spurningu Svavar Gestssonar auðsvarað: „Alþingi ís- lendinga tók þá ákvörðun á sínum tíma að afhenda kirlq'unni Skál- holt.“ Kirkjumálaráðherra var það fagnaðarefni að um þetta væri þjöð- arsamstaða. Svavari Gestssyni var þökk og fögnuður í hug eftir að hafa hlýtt á yfirlýsingu Þorsteins Pálssonar. En hann varð þó að vekja athygli á því að fjármálaráðuneytið væri ekki sama sinnis. Svavar kvaðst líta svo á að kirkjumálaráðherrann hefði með sínu svari tekið undir þær formlegu athugasemdir sem þjóð- kirkjan hefði gert við eignaskrá rík- isins. Þorsteinn Pálsson kirkju- málaráðherra sagði að sjálfstæðar viðræðunefndir dóms- og kirkju- málaráðuneytis annars vegar1 og kirkjunnar hins vegar fjölluðu um niðurstöður kirkjueignanefndar frá árinu 1984, það starf væri í fullum gangi. Að framgangi þessa máls væri unnið með ákveðnum og ör- uggum hætti. Svavar Gestsson bað kirkjumálaráðherra um að gera Ijármálaráðuneytinu viðvart um þetta starf. „Aður en fleiri ménn verða sendir til að leggja halda á eignir kirkjunnar hjá sýslumanns- embættum í landinu."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.