Morgunblaðið - 17.02.1993, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993
félk f
fréttum
LANDKYNNING
Saumaklúbbur heldur veislu
Mikið fjör var um síðustu helgi
hjá konum frá Suður-Amer-
íku og fjölskyldum þeirra þegar
um hundrað manns hittust til að
eiga saman skemmtilegt síðdegi.
Tildrög þessarar uppákomu voru
að níu ungar konur frá Suður-
Ameríku eru saman í saumaklúbb,
sem heitir Nosotras eða Við stelp-
umar. Sjö þeirra eru giftar íslend-
ingum eða eru í sambúð, ein er
skiptinemi og ein starfar á Kefla-
víkurflugvelli.
Þær hittast einu sinni í mánuði
og má nærri geta að glatt sé á
þjalla og mikið sé spjallað þegar
þær hittast og geta talað saman
á spænsku. „Saumaklúbburinn var
stofnaður fýrir um það bil ári, en
svo datt okkur í hug nú nýlega
að halda veislu og um leið að
kynna landið okkar,“ sögðu þær
Rocio Calvi og Mercedes Berger.
„Við vorum með ýmsa handunna
muni til sýnis. Auk þess útbjugg-
um við margs konar þjóðarrétti
meðal annars frá Mexíkó, Kólumb-
íu, Venesúela og fleiri löndum."
Sumar kvennanna eru útivinn-
andi, aðrar eru í háskólanum og
einhveijar eru heimavinnandi.
Mercedes er ein þeirra sem er
heimavið, en hún á tvo drengi,
Matthías 3ja ára og Kristófer rúm-
lega hálfs árs. Hún segist ætla
að fara í nám þegar bömin séu
orðin svolítið stærri.
Rocio er að læra íslensku og
spænsku í Háskólanum. „Ég stefni
að BA-prófi í spænsku og vonast
einhvem tímann til að geta orðið
svo góð í íslensku að ég geti unn-
ið við þýðingar," segir hún.
ÍSLENSKA ÓPERAN
imr iim
Sardasfursfynjan
Óperetta eftir Leo Stein og Bela Jenbach
með tónlist eftir
EMMERICH KÁLMÁN
flutt með leyfi Josef Weinberger Ltd.
í íslenskri þýðingu Flosa Ólafssonar og Þorsteins Gylfasonar
Hljómsveitarstjóri: Páll Pampichler Pálsson
Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson
Dansar: Auður Bjarnadóttir
Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson
Búningar: Hulda Kristín Magnúsdóttir
Lýsing: Jóhann B. Pálmason
Stjórnandi kórs/æfingastjóri: Peter Locke
Sýningarstjóri: Kristín S. Kristjánsdóttir
Píanóleikari á æfingum: Iwona Jagla
Kór íslensku óperunnar
Hljómsveit fslensku óperunnar
Konsertmeistari: Zbigniew Dubik
Söngvarar:
• Signý Sæmundsdóttir • Þorgeir J. Andrósson • Bergþór Pálsson •
Jóhanna Linnet • Sigurður Björnsson • Bessi Bjarnason • Sieglinde
Kahmann • Kristinn P. Hallsson
FRUMSÝNING
föstudaginn 19. febrúar
HÁTÍÐARSÝNING
laugardaginn 20. febrúar.
3. sýning föstudaginn 26. febrúar.
Miðasaian er opln frá kl. 15-19 daglega. Sýningardaga til kl. 20.
Sími 11475 - Greiðslukortaþjónusta
Saumaklúbburínn Nosotras. F.v. Rocio Calvi, María Eugenia H. Birg-
isson, Carolina Lago skiptinemi, Janet Ruiz, Rosenda Gerrero, Hilda
Torres, Patricia Segura, Adríana Fernándéz og Mercedes Berger.
Morgunblaðið/Silli
Ingimundur Jónsson í hlutverki
sínu í leikritinu Ronju ræninga-
dóttur sem Leikfélag Húsavíkur
sýnir um þessar mundir.
HÚSAVÍK
40 ára leik-
afmæli
Fjörtíu ára leiklistarafmæli á um
þessar mundir áhugamanna-
leikarinn Ingimundur Jónsson, yfír-
kennari á Húsavík. Fyrsta hlutverk
hans á leiksviði var hjá Leikfélagi
Húsavíkur og lék hann þá Gvend
smala í Skugga-Sveini í leikstjóm
Júlíusar Havsteen, sýslumanns, en
það var á þorra 1953.
„Það var sérstakt ævintýri að
byija á því að leika undir stjóm
sýslumannsins. Hann hafði svo
næmt auga fyrir kómík og var svo
mannlegur og hlýr," sagði Ingi-
mundur í samtali við Morgunblaðið.
Auk þess að leika hefur Ingi-
mundur stjórnað leiksýningum, ver-
ið undirleikari og stjórnað dansi,
svo sjá má að fjölhæfni hans er
mikil.
BRETLAND
Sorgir og gleði Söru
Sara Ferguson á ekki sjö dagana
sæla um þessar mundir frem-
ur en annað fólk sem stendur í
skilnaði. Skilnaði hennar og Andr-
ésar fýlgir þó meira opinbert um-
stang en margra annarra. Þannig
var vaxmynd af Söra, sem stóð í
safni Madame Tussaud í London,
brædd og gerð ný afsteypa — að
sjálfsögðu ekki af Söru — heldur
af Neil Gwyn, sem var ástkona
Karls II Bretakonungs. Sú var víst
ekki minna rauðhærð en Fergie.
Þá fréttist af Texas-milljóna-
mæringnum Steve Wyatt í London
(þeim sem var þekktastur fyrir að
sjúga tær Söru), en hann var ekki
að gá að ástkonu sinni, að því er
blöðin komust næst, heldur sást
hann í fyig annarrar glæsilegrar
konu á breiðgötum Lundúnaborg-
ar.
Sara getur þó glaðst yfír því
um þessar mundir að bókaútgef-
endur á Spáni ætla að gefa út
bamabókina hennar um þyrluna
Budgie. Ekki nóg með það, heldur
hefur fyrirtækið sem stendur að
baki Nintendo-leikjatölvunum sýnt
bókinni mikinn áhuga. Á vegum
fyrirtækisins stendur til að fram-
leiða Budgie-leikföng, Budgie-boli
og sokka.
Steve Wyatt sást fyrir nokkru í
London. Hann var þó ekki i fylgd
Söru Ferguson heldur þessarar
ónafngreindu konu.
Sara Ferguson getur glaðst yfir
áhuganum sem fyrirtæki sína
bókinni hennar um þyrluna
Budgie.
COSPER
(ÖPIB
Alls kyns suður-amerískir réttir voru á boðstólnunum.
CLIPTEC rofamir og
tenglamir frá BERKER gegna
ekki aðeins nytjahlutverki,
þeir em líka sönn
íbúöarprýði! CLIPTEC fæst
í ótal litasamsetningum og
hægt er að breyta litaröndum
eftir því sem innbú, litir og
óskir breytast.
CLIPTEC er vönduð þýsk
gæðavara á verði, sem
kemur á óvart!
Vatnagörðum 10 S 685854 /685855
3M
Tölvubönd