Morgunblaðið - 25.02.1993, Page 1
72 SIÐUR B/C
46.tbl. 81. árg.
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kominn
tími til
að víkja
- segir Mulroney
Ottawa. Reuter.
BRIAN Mulroney, forsætis-
ráðherra Kanada, skýrði frá
því í gær að hann hefði sagt
af sér embætti leiðtoga íhalds-
flokksins en myndi veita ríkis-
stjórninni forystu þar til arf-
taki hefði verið Igörinn. „Eftir
nær 10 ár sem flokksleiðtogi
og hálft níunda ár sem forsæt-
isráðherra er kominn tími til
að ég víki,“ sagði Mulroney í
bréfi til flokksmanna.
Mulroney, sem
er 53 ára gamall
og frá Quebec,
hefur átt mjög í
vök að veijast í
könnunum, fékk
aðeins 17% fylgi
í þeirri nýjustu.
Helsti stjórnar-
andstöðuflokk- Mulroney
urinn, Fijáls-
lyndir, er með mikið forskot á
Ihaldsmenn, fær um 46% fylgi í
könnunum. Eftirmaður Mulroneys
verður valinn í júní en þingkosn-
ingar verða síðar á árinu.
Efnahagskreppa
Þrálát efnahagskreppa hefur
orðið Mulroney fjötur um fót en
margir kjósendur kenna fríversl-
unarsamningi við Bandaríkin um
mikið atvinnuleysi. Mörg fyrirtæki
hafa flutt framleiðsluna suður yfir
landamærin, nær helstu mörkuð-
um. Einnig hefur umdeildur sölu-
skattur gert það að verkum að
Mulroney er einhver óvinsælasti
leiðtogi í sögu landsins.
Sérkröfur Quebec
Rætt hefur verið um afsögn
Mulroneys frá því í október er til-
laga stjórnvalda um lausn á deilum
vegna sérkrafna Quebec-manna,
sem eru flestir frönskumælandi,
var felld í þjóðaratkvæði.
Morgunblaðið/Kristinn
Kötturinn úr tunnunni
BÖRN um allt land fögnuðu öskudeginum í gær og mátti sjá marga um óánægjumuldur þegar uppskeran af heimsóknum varð rýr. í
skringilega andlitsskreytinguna. Lítið bar hins vegar á öskupokunum Reykjavík var mikill hópur á Lækjartorgi um hádegið þar sem mynd-
sem áður einkenndu daginn; fullorðnir vegfarendur þurfa ekki lengur in var tekin þegar kötturinn var sleginn úr tunnunni að akureyrskum
að vera á varðbergi til að forðast pokana. Er líða tók á daginn voru sið.
sælgætisbirgðir víða á þrotum, sönglistin nægði ekki og heyrðist stund- Sjá bls. 22 „Annir á öskudegi".
Ráðgast í
Washington
BILL Clinton Bandaríkjafor-
seti og John Major, forsætis-
ráðherra Bretlands, áttu sinn
fyrsta fund í gær er Major kom
til Washington. Clinton sagði
á blaðamannafundi að ekki
mætti líta á fyrirhugaða loft-
flutninga með hjálpargögn til
handa nauðstöddum múslim-
um í Bosníu sem fyrsta merki
um mikil hernaðarumsvif
Bandaríkjanna í landinu. Maj-
or sagði aðspurður að Bretar
styddu hugmynd Clintons og
teldu enga hættu á að Serbar
gripu til hefndaraðgerða gegn
breskum friðargæsluliðum.
Hagsmunaaðilar í útgerð og fiskvinnslu Evrópubandalagsins
Krafist innflutning’s-
banns á þorski og ýsu
Brussel.' Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMTÖK hagsmunaaðila í útgerð og fiskvinnslu innan Evrópu-
bandalagsins (Europech) ætla að krefjast þess í dag, fimmtudag,
að framkvæmdastjórn bandalagsins standi að innflutningsbanni
á nokkrar tegundir sjávarafurða til aðildarríkjanna. Áætlað er
að nefnd sérfræðinga frá EB-ríkjunum gefi í dag umsögn um
þá tillögu framkvæmdastjórnarinnar að tekið verði upp lágmarks-
verð á nokkrar innfluttar sjávarafurðir til bandalagsins. Búist
er við því að lágmarksverðið taki gildi á laugardag.
Forsætisráðherra Frakka, Pierre
Beregovoy, segir að ekki sé hægt
að láta „blindar reglur markaðsafl-
anna og óhefta fijálshyggju" ráða
öllu um fiskverðið. Ráðherrann sagði
í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi að
verðfallið á físki ætti rætur að rekja
til gengisfellinga í Bretlandi og
Skandinavíu. Framkvæmdastjórn
EB yrði að grípa inn og tryggja lág-
marksverð, lausnin fælist í meiri
skipulagningu markaðarins.
Engin vettlingatök
Forsvarsmenn Europech eiga í
hádeginu í dag fund með Yannis
Paleokrassas, sem fer með sjávarút-
vegsmál innan framkvæmdastjórnar
EB. Á fundinum munu fulltrúar
Europech krefjast þess að nú þegar
verði lagt bann við öllum innflutn-
ingi á þorski, ýsu, ufsa, lýsingi og
skötusel til bandalagsins. Talsmaður
samtakanna sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hér væri
vissulega verið að krefjast harka-
legra aðgerða en ástandið væri þess
eðlis að engin vettlingatök dygðu.
Svipuhögg
vill á þing
London. Reuter.
ÞEKKTASTA vændiskona
Breta, Lindi St Clair, sagðist
í gær ætla að bjóða sig fram
í aukakosningum til þings á
næstunni. Þetta kom fram í
bréfi sem St Clair, er kallar
sig Ungfrú Svipuhögg, sendi
fjölmiðlum frá Papúa Nýju-
Gineu en ekki er vitað hvað
hún er að gera þar.
Svipuhögg komst í fréttir fyr-
ir skömmu er hún hvarf um
hríð. Hún segir nú að tveir
þungavigtarmenn hafi hótað að
myrða sig daginn eftir að hún
hét því að birta nöfn úr bók sem
hún segist eiga með nöfnum
þekktra viðskiptavina, þ. á m.
stjómmálaleiðtoga.
Bannið yrði að vera í gildi um hríð
eða þangað til jafnvægi næðist á
mörkuðunum.
Eftirlit með uppruna
Framkvæmdastjórn EB hefur
þegar sent stjórnvöldum í aðildar-
ríkjunum tilmæli þess efnis að hert
verði eftirlit með því að þeim reglu-
gerðum og tilskipunum sem eru í
gildi um heilbrigðiseftirlit með inn-
fluttum sjávarafurðum og uppruna
þeirra sé framfylgt til hins ýtrasta.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun stjórnin kynna fyrir
sérfræðingum ríkjanna hugmyndir
sem gera ráð fyrir því að lágmarks-
verð verði tekið upp fyrir frystar og
og ferskar afurðir unnar úr þorski,
ýsu, lýsingi, ufsa og skötusel. Skötu-
selur stendur ein þessara tegunda
utan við bókun sex við fríverslunar-
samning íslands og EB og nýtur
þess vegna engra tollaívilnana.
Reuter