Morgunblaðið - 25.02.1993, Page 18

Morgunblaðið - 25.02.1993, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993 Mikilvæg samninga- lota um EES í Brussel Brusscl, Helsinki. Frá Kristófer M. Kristinssyni og Lars Lundsten, fréttariturum Morgun- blaðsins. Aðalsamningamenn Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) sátu fram á kvöld í gær við það sem kalla má lokatilraun til að ganga frá breytingum á samningnum um Evrópska efnahags- svæðið (EES) þannig að hann geti tekið gildi 1. júlí á þessu ári. Samtímis fundi aðalsamningamanna EFTA í gær sátu fasta- fulltrúar aðildarríkja Evrópubandalagsins (EB) fund og sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins gengu tillögur um mögulegar lausnir á milli fundanna. Gert var ráð fyrir að á EFTA -fundinum sem átti að ljúka í gærkvöldi yrði gengið frá tilboði til EB um mögulega lausn á úti- standandi ágreiningsmálum vegna fráhvarfs Svisslendinga úr EES. Fastafulltrúar EB munu þá taka afstöðu til hugmynda EFTA í dag eða á næstu dögum þannig að utanríkisráðherrar Evrópubanda- lagsins geti tekið afstöðu til breyt- inga á samningnum á fundi í Brussel 8. eða 9. mars. Búist er við að samþykkt verði málamiðlun sem feli í sér ein- hveija hækkun á framlögum aðild- am'kja EFTA í þróunarsjóð fyrir fátækari aðildarríki EB til að bæta upp fráhvarf Svisslendinga. Flestir reikna með því að kröfum Spán- veija um auknar heimildir til inn- flutnings á landbúnaðarafurðum til EFTA verði vísað til sameigin- legra stofnana EES með tilvísun til samkomulags um að rýmka í framtíðinni um viðskipti með land- búnaðarafurðir innan efnahag- svæðisins. Neita að borga fyrir Sviss Pertti Salolainen, utanríkisvið- skiptaráðherra Finnlands, segir, að Finnar geti ekki fallist á, að EFTA-ríkin önnur en Sviss taki á sig framlag Svisslendinga til þró: unarsjóðs Evrópubandalagsins. í samtali við fréttaritara Morgun- blaðsins sagði Salolainen, að stefna Finna í þessu máli væri skýr og ákveðin. Þegar hann var spurður hvort raunhæft væri að halda henni til streitu, sagði hann, að það væri alltaf raun- hæft að standa fast á réttlæt- inu. Hann kvaðst hins veg- ar trúa því, að samkomulag næðist um EES innan skamms. Salolainen vildi ekki kannast við, að Finnar væru einir á báti í þessu efni og sagði, að EFTA hefði ekki breytt stefnu sinni að þessu leyti. Krafa Spánveija um að EFTA-ríkin deildu með sér framlagi Svisslend- inga væri einfaldlega óréttlát. Timman sigraði Karpov Linares. Reuter. JAN Timman sigraði Anatolí Karpov í annarri umferð skák- mótsins í Linares í gær. Rússinn Alexander Beljavskí sigr- aði Viswanathan Anand, Vladímir Kramnik vann Gata Kamskí, og Alexei Shírov bar sigurorð af Evgení Bareev. Jafntefli varð hins vegar í skákum Vassilíjs ívantsjúks og Garrís Ka- sparovs, Valerís Salovs og Borís Gelfands, og Arturs Jusupovs og Ljúbomírs Ljúbojevie. Úrslit náðust í þrem skákum í fyrstu umferðinni á þriðjudag, ein varð jafntefli. Þeir Kasparov og Karpov fengu skákum sínum við Ljuþomir Ljubojevic og Valerí Salov frestað vegna veikinda. Alexander Beljavskí varð fyrstur til að sigra er hann vann Vassílí ívantsjúk í 39 leikjum. Hin síðarnefndi er þriðji stigahæsti skákmaður heims en Beljavskí telst ekki meðal 15 fremstu. Viswanathan Anand vann Jan Timman í aðeins 29 leikjum. Skák Lettans Alexei Shirovs, sem er 19 ára, og Rússans Vladímírs Kramn- íks, sem er aðeins 17 ára og talinn líklegur heimsmeistari einhvern tíma á næstu árum, varð æsispennandi. Hún endaði með því að Kramník náði ekki að ljúka tilskildum leikja- fjölda og sigurinn var Shirovs. Hvít- rússinn Borís Gelfand og Rússinn Jevgení Barejev sömdu um jafntefli í 29 leikjum. Reuter Christopher á Golan-hæðum WARREN Christopher, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, er nú staddur í ísrael og er það lokaáfang- inn í fyrstu för hans um Mið-Austurlönd. Hann átti í gær viðræður við fulltrúa .Palestínumanna og ræddi m.a. málefni þeirra rúmlega fjögur hundruð Palestínumanna sem var vísað í útlegð til Suður- Líbanons í desember. Drógu Palestínumenn sig út úr friðarviðræðunum um Mið-Austurlönd í kjölfar þess. Hanan Ashrawi, talsmaður Palestínumanna, sagði að Christopher hefði á fundinum komið með tillögur til lausnar á útlagamálinu sem væru „þess virði að gaumgæfa betur.“ Yassir Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu, PLO, sagði í Kaíró í gær að ísraelar yrðu að hætta við brottrekstur útlag- anna en virtist ekki vísa umsvifalaust á bug lausn sem fæli í sér málamiðlun. Christopher skoðaði í gær Golan-hæðirnar, sem ísraelar hernámu í sex daga stríðinu árið 1967. Er myndin tekin þegar Christopher spennir beltið áður en herþyrla flaug með hann þaðan til baka til Jerúsalem. Mið-Austur- landaför utanríkisráðherrans lýkur í dag. Electrolux ryksugur hörk sogkraftur uíiCAeiAiniAM Heimasniiéjan ■ og sölustaðir um land allt. Gorbatsjov útskúfaður Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti forseti Sovétríkjanna, var á þriðjudag dæmdur til „eilífrar útskúfunar og ónáðar“- eftir fjögurra daga sýndarréttar- höld í Moskvu. Fyrr- verandi full- trúar á sov- éska þinginu stóðu fyrir réttarhöldunum, sem báru vott um hatur gamalla kommúnista í garð sovétleiðtogans fyrrver- andi. Áhrif breskra verkalýðsfé- laga skert Verkamannaflokkurinn í Bretlandi tók í gær fyrsta skrefið í þá átt að draga úr áhrifum verkalýðsfélaga, sem talin eru hafa stuðlað að fjórða kosningaósigri flokksins í röð í fyrra. Framkvæmdastjórn flokksins ákvað að afnema atkvæðisrétt verkalýðsfélag- anna við val á frambjóðendum flokksins og fækka heildarat- kvæðum þeirra á landsfundum úr 70% í 50%. Karlar fái að vinna au pair- störf Breska stjórnin hyggst nú leggja fram frumvarp þess efnis að kanlmönnum verði heimilt að stunda au pair-störf í Bretlandi til jafns við konur. „Það er löngu liðin tíð að að- eins konum sé treyst til að annast börn,“ sagði Kenneth Clarke, innanríkisráðherra Bretlands. Herinn styður Mobutu Her Zaire lýsti því yfír í gær að hann myndi ekki viður- kenna stjórnarskrá landsins, sem samið var um á þjóðfundi í fyrra, nema forseti landsins, Mobutu Sese Seko, legði bless- un sína yfir hana. Mobutu, sem hefur stjórnað landinu með harðri hendi í 28 ár, hefur neitað að viðurkenna stjórnar- skrána. Hundruð vel vopnaðra hermanna umkringdu í gær byggingu bráðabirgðaþings sem á að undirbúa ljölflokka- kosningar en ekki var vitað hvað fyrir þeim vakti. Milljón Rúm- ena atvinnu- laus Ein milljón manna er nú atvinnulaus í Rúmeníu, eða 9,03% af vinnuaflinu, og hefur atvinnuleysið í landinu aldrei verið eins mikið. Búist er við að atvinnuleysingjum fjölgi enn meira á árinu vegna hag- ræðingar fyrirtækja. 3M Ljósmyndafilmur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.