Morgunblaðið - 25.02.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.02.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993 13 FRAMHALDSUMRÆÐ- UR UM EVRÓPUMÁLIN eftir Björn Bjarnason Töiuverða athygli vakti, þegar meirihluti þátttakenda í viðskipta- þingi Verslunarráðs íslands, sem var haldið hinn 18. febrúar sl., komst að þeirri niðurstöðu, að rétt væri að sækja um aðild að Evrópu- bandalaginu (EB) og kanna skil- mála hennar en á hinn bóginn ætti ísland ekki tafarlaust að gerast aðili að bandalaginu. Við fyrstu sýn hefur sumum þótt, að þversögnin í þessari afstöðu væri á þann veg, að niðurstaða könnunarinnar væri í raun marklaus. Viðræður um aðild Austurríkis, Finnlands og Sviþjóðar að Evrópu- bandalaginu eru formlega hafnar. Á næstunni hefjast síðan aðildar- viðræður Norðmanna við fulltrúa EB. Okkur íslendingum er nauð- synlegt að fylgjast náið með þess- um viðræðum. Þarna er um fjóra samaðila okkar að EFTA og samn- ingnum um Evrópska efnahags- svæðið (EES) að ræða. í rúm 20 ár höfum við átt samfylgd með þeim í skiptum við Evrópubanda- lagið, en nú kunna leiðir að skilja. Ástæða er til að leggja áherslu á orðið kunna, þegar rætt er um þátttöku þessara fjögurra EFTA- ríkja í EB, því að það er alls ekki tryggt að aðildaráform þeirra ræt- ist. I fyrsta lagi er ekki ljóst, hvort samningar takist milli ríkjanna og EB. í öðru lagi er óvíst, hvort stuðningur verði við samningana í umsóknarlöndunum, þegar á reynir í þjóðaratkvæðagreiðslu eða á þingi. I stuttu máli má því segja, að umsóknarríkin fjögur séu í svipaðri stöðu og birtist í skoðanakönnun- inni á viðskiptaþingi Verslunar- ráðsins. Ríkin hafa sótt um til að kanna, hvaða kjörum þau geta náð, en það er ekki endilega meiri- hluti fyrir aðild, þótt samningar kunni að takast um viðunandi kjör að mati stjórnvalda. Svo sem kunn- ugt er hafa íslensk stjórnvöld ekki ákveðið að stíga frekari skref í samskiptum við Evrópubandalagið en felast í samningnum um Evr- ópska efnahagssvæðið. Davíð Oddsson forsætisráðherra benti réttilega á það um áramótin, að þar með værum við að sleppa tæki- færi, sem nú gæfist. Vandrötuð leið í desember 1991 náðu leiðtogar EB-ríkjanna samkomulagi um framtíðarstefnu bandalagsins á fundi í Maastricht. Síðan hefur verið tekist á um Maastricht-sam- komulagið í einstökum aðildarríkj- um. Átökin hafa verið misjafnlega hörð. Samkomulagið var fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu í Danmörku í júní sl. Síðan hafa Danir fengið undanþágur frá ýmsum ákvæðum þess, skipt hefur verið um ríkis- stjórn í Danmörku og þjóðarat- kvæðagreiðsla um Maastricht-sam- komulagið verður að nýju 18. maí nk. Litlu munaði að Maastricht- samkomulaginu yrði hafnað í þjóð- aratkvæðagreiðslu í Frakklandi sl. haust. Samkomulagið hefur ekki enn hlotið afgreiðslu í breska þing- inu og ríkisstjórn Johns Majors glímir þar við harðsnúinn andstöðu- hóp innan eigin flokks. í aðildarríkjum EB hafa forystu- menn í stjórnmálum verið gagn- rýndir fyrir að fara hraðar í átt til evrópsks samruna en kjósendur þeirra. Af þessum sökum skapist gjá á milli forystumanna og þjóða. Vegna skorts á upplýsingum vakni ótti meðal almennings, sem komi síðan í veg fyrir umræður á skyn- samlegum forsendum. Þeir, sem stjórnast af hræðslu, eru lítt til þess fallnir að ræða mál af skyn- semi. Hræðslan brýst stundum fram í tilraunum til að koma í veg fyrir umræður eða til að gera lítið úr þeim, sem vilja stuðla að þeim. Umræður um EB-aðild í Austur- ríki, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð þróast á þann veg, að verulegt bil kann að myndast á milli afstöðu stjórnvalda annars vegar og al- mennings hins vegar. Aðildin kem- ur þó ekki til sögunnar nema hún njóti almenns stuðnings í þjóðarat- kvæðagreiðslu og aukins meiri- hluta á þingi við breytingu á stjórnarskrám landanna. Þetta er forystumönnum þessara ríkja betur ljóst en nokkrum öðrum, eigi síður taka þeir hina pólitísku áhættu; ávinningurinn af aðild og áhrifum á framvindu hins evrópska sam- runa vegur þyngra en „óþægindin" vegna harðra lýðræðislegra átaka á heimavelli. Eðlileg hagsmunagæsla í lýðræðisríki getur það aldrei verið haldbær röksemd gegn um- ræðum um eitthvert málefni, að það kunni og jafnvel hljóti að valda deilum. Sé um mál að ræða, sem ekki verður leitt til lykta nema um það náist víðtæk samstaða, er nauðsynlegt að stofna til almennra umræðna um það á efnislegum forsendum, svo að kostir og gallar séu leiddir í Jjós fyrir opnum tjöld- um. Fyrir tæpu ári lýsti ég þeirri skoðun minni á Alþingi, að undir forystu forsætisráðherra ætti að efna til rannsóknar á kostum og göllum þess fyrir ísland að standa utan Evrópubandalagsins. Umræð- ur síðan um þátttöku okkar í Evr- ópska efnahagssvæðinu, framvind- an innan EB, aðildarumsóknir EFTA-ríkja að EB og nauðsyn þess, að við metum stöðu íslands í evrópsku samstarfi við breyttar aðstæður, eru augljós rök fyrir því að slík úttekt sé unnin. Vísi að slíkri könnun er að finna í gögnum, sem voru lögð frá á viðskiptaþingi Verslunarráðsins. Eg er ekki þeirrar skoðunar, að „Umræðan um þessa auglýsingu gefur varla tilefni til að endurskoða stefnuna varðandi auglýsingar í Ríkisútvarpsinu," sagði Heimir Steinsson útvarpsstjóri. Hann sagði það ljóst að efni auglýsinga yrði að vera innan ákveðins ramma en erfitt væri að setja skýrar reglur um hvar ætti að draga mörkin í einstökum tilvikum. „Meðan ég var þjóðgarðsvörður á Þingvöllum tók Björn Bjarnason „Eg er ekki þeirrar skoðunar, að umræður um Island og EB séu liður í einhverju sam- særi um að flækja okk- ur í vef bandalagsins, eins og sumir virðast halda.“ umræður um ísland og EB séu lið- ur í einhverju pamsæri um að ég eftir því hve staðurinn er mikið notaður í alls konar auglýsingum. Þá velti ég því stundum fyrir mér hver gæti eiginlega hlutast til um hvernig Þingvellir eru notaðir í aug- lýsingaskyni. Ég tel þetta betra dæmi en umrædda auglýsingu, það eru deildar meiningar um friðhelgi skáldskapar en um friðhelgi „Þing- valla eru allir sammála,“ sagði Heifnir. flækja okkur í vef bandalagsins, eins og sumir virðast halda. Á grundvelli slíkra umræðna gætum við náð víðtækari sátt um aðildina að Evrópska efnahagssvæðinu, sem kemst vonandi hið fyrsta á laggimar. Umræðurnar yrðu einnig til þess fallnar að skilgreina betur stöðu okkar í samstarfi Evrópuríkj- anna, sem byggist á fleiru en Evr- ópubandalaginu. Loks ætti úttekt á stöðu landsins við hinar nýju aðstæður að auðvelda okkur að skýra og kynna stefnu okkar út á við. íslendingar þurfa að kynna fleira á alþjóðavettvangi en framleiðslu sína, orkulindir og ferðaleiðir. Þeir þurfa að setja utanríkisstefnu sína fram með þeim hætti, að röksemd- irnar að baki henni falli að þeirri hagsmunagæslu, sem stjórnvöldum ber að sinna. Röksemdirnar þurfa ekki aðeins að hafa hljómgrunn innan lands heldur verða þær einn- ig að njóta skilnings meðal þeirra ríkja, þar sem við eigum mestra hagsmuna að gæta. Umræður um afstöðu íslands gagnvart Evrópu- bandalaginu eru óhjákvæmilegar nema sinnuleysi eigi að stuðla að fáfræði, sem síðan getur af sér ein- angrun. í þessu ljósi er ástæða að fagna því framtaki yerslunarráðs íslands að ræða um ísland og EB á viðskiptaþingi sínu. Höfundur er þingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík. Ekki dregin til baka „Við höfum engar fyrirætlanir um að draga þessa auglýsingu til baka en birtingum er lokið í bili,“ sagði Benedikt Hreinsson markaðs- stjóri hjá Ölgerðini Agli Skalla- grímssyni hf. Hann sagði að auglýs- ingin hefði birst í fjórar vikur eins og birtingaráætlun hefði gert ráð fyrir en vel kæmi til greina að halda áfram með hana seinna. Benedikt sagði fjölmargir hefðu haft sam- band við fyrirtækið og lýst ánægju sinni með auglýsinguna en aðeins tveir þeirra sem hringdu verið óánægðir. Aldrei væri hægt að gera öllum til hæfis en auglýsingin skað- aði engan. Hann sagði að auglýs- ingin hefði skilað góðum árangri og væri fyrirtækið ánægt með hana. Útvarpsstjóri um umdeilda sjónvarpsauglýsingu Ekki tílefni til endurskoðunar ÚTVARPSSTJÓRI telur ekki ástæðu til að endurskoða auglýsinga- stefnu Ríkisútvarpsins vegna gagnrýni er komið hefur fram í kjöl- far auglýsingar sem byggir á heilræðavísum eftir Hallgrím Péturs- son. Olgerðin Egill Skallagrímsson hyggst ekki draga auglýsinguna til baka. Helgi Hálfdanarson gagnrýnir auglýsingastefnu Sjónvarps- ins harðlega í pisli í Morgunblaðinu sl. Iaugardag og telur um- rædda auglýsingu gróft dæmi um brot á friðhelgi andlegra verð- mæta og biskupsembættið hefur gert athugasemd við auglýsinguna. SIEMENS Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara! Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið! • Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6. • Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13. • Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála. • Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaöarhóli 25. • Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42. • Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7. • Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12. • ísafjöröur: Póllinn hf., AÖalstræti 9. • Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1. • Sauöárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1. • Siglufjöröur: TorgiÖ hf., Aöalgötu 32. • Akureyri: Ljósgjafínn, Reynishúsinu, Furuvöllum 1 • Húsavík: öryggi sf., GarÖarsbraut 18a. • Þórshöfn: Noröurraf, Langholti 3. • Neskaupstaöur: Rafalda hf., Hafnarbraut 24. • Reyöarfjöröur: Rafnet, BúÖareyrí 31. • Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1. • Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13. • Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43. • Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18. • Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4. • Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29. • Garöur: Raftækjav. SigurÖar Ingvarssonar, HeiÖartúni 2. • Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25. c co r? g’l 0x0« 3 <Q 1:8 D O* í§ 3S: Q Q' §* 3 7? oS =50 Q^ 3 CL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.