Morgunblaðið - 25.02.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.02.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993 19 Shevardnadze hótar allsherjarherkvaðningu í Georgíu Krefst heimkvaðningar allra rússneskra hersveita Kommún- istar ein- • / i ••• • rnikjon áKúbu Tbilisi. Reuter. EDÚARD Shevardnadze, stjórn- arleiðtogi í Georgíu, krafðist þess í gær, að rússneskar her- sveitir yrðu kallaðar burt frá landinu og hótaði að beita sér elia fyrir allsheijarherkvaðn- ingu. Sakaði hann rússnesku her- foringjana um að hafa tekið höndum saman við aðskilnaðar- sinna í héruðunum Abkhazíu og Adzharíu. Shevardnadze sagði, að yrðu rússnesku hersveitirnar, sem væru nokkurs konar óskilamunir frá tíma Sovétríkjanna, ekki fluttar burt, ættu Georgíumenn ekki annan kost en taka sér vopn í hönd og veija landið. Var Shevardnadze með þessu að svara Pavel Gratsjev, varnarmálaráðherra Rússlands, sem sagði síðastliðinn mánudag í rússneska sjónvarpinu, að georg- íska Svartahafsströndin væri ákaf- lega mikilvæg rússneska hernum. „Við verðum að tryggja, að rúss- neskar hersveitir verði þar áfram,“ sagði Gratsjev. Georgíumenn og Rússar sömdu um það fyrr í mánuðinum, að rúss- nesku hersveitirnar yrðu í landinu fram til 1995 og hugsanlega lengur en ummæli Gratsjevs hafa kynt undir grunsemdum um, að Rússar styðji aðskilnaðarsinna í Abkhazíu og Adzharíu. Hermenn georgíska stjórnarhersins, sem hafa farið nokkuð halloka fyrir aðskilnaðars- innum, segja, að Rússar sjái þeim fyrir vopnum, meðal annars skrið- drekum og flugskeytum. Hermenn bana níu Sómölum BANDARÍSKIR hermenn skutu að minnsta kosti níu manns til bana í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í gær þegar þúsundir stuðningsmanna stríðsherrans Mohameds Farahs Aideeds reyndu að ryðjast inn í sendiráð Bandaríkjanna. Óeirðaseggirnir hrópuðu vígorð gegn Bandaríkjunum, reistu vegatálma og grýttu hermennina, sem hleyptu nokkrum sinnum af byssum sínum. Hermennirnir voru sakaðir um að vera á bandi Mohameds Saids Hersis, annars stríðsherra og andstæðings Aideeds. Loka varð flug- vellinum í Mogadishu vegna óeirðanna. Embættis- menn Sameinuðu þjóðanna sögðu að þrátt fyrir óeirð- irnar hefði ekki þurft að fresta tveggja daga viðræð- um milli hinna stríðandi fylkinga til að undirbúa þjóðfund í næsta mánuði. Havanna. Reuter. ALMENNAR þingkosningar voru á Kúbu í gær, þær fyrstu í 30 ár, en frambjóðendur kommúnista- flokksins voru einir í kjöri. Lögðu stjórnvöld og Fidel Kastró, forseti landsins, mikla áherslu á góða kjörsókn í kosningunum eða „glímunni milli fólksins og heims- valdastefnunnar" eins og hann kallaði þær. Útlæg systir Kastrós segir kosningarnar skrípaleik. Kúbumenn eiga við gífurlega efna- hagserfiðleika að etja eftir að komm- únisminn í Austur-Evrópu hrundi en með honum hurfu einnig viðskipti og mikil efnahagsaðstoð. Skortur er nú á matvælum, eldsneyti, lyfjum og hvers konar neysluvörum öði'um og ástandið fer síversnandi. Óánægja almennings er mikil og virðist áköf áróðursherferð stjómvalda fyrir kosningarnar hafa miðað að því að koma í veg fyrir, að fólk notaði kjör- klefann til að mótmæla stjórnarfar- inu, ýmist með því að skila auðu eða skrifa eitthvað óskemmtilegt á kjör- seðilinn. „Skrípaleikur" Fyrir þessar kosningar og oft áður hefur Kastró haldið því fram, að eins- flokks-kerfið sé miklu lýðræðislegra en vestrænt fjölflokkakerfi en systir hans, Juanita Kastró, sem býr á Spáni, sagði í gær, að kosningarnar á Kúbu væri skrípaleikur. „Ég óttast miklar hörmungar á Kúbu. Ráðamenn þar eru að fara með þjóðina fram af bjargbrúninni og bróðir minn ber mesta ábyrgð á því,“ sagði Juanita. Gengishrun lírunnar vegna spillingamiála Róm. Reuter. ÍTALSKA líran lækkaði injög í verði í gær og hefur gengi hennar gagnvart þýska markinu aldrei verið lægra. Er skýringin á gengis- hruninu sögð vera ótti um að ríkisstjórn Guiliano Amatos verði neydd til að segja af sér í kjölfar umfangsmikils spillingarhneykslis meðal ítalskra stjórnmálamanna. Greidd verða atkvæði um van- trauststillögu á stjórnina í ítalska þinginu í dag, að beiðni Amatos, og spáðu dagblöð því í gær að stjórnin myndi halda velli. Hins vegar er ljóst að stokka verður stjórnina upp þar sem þegar hafa tveir ráðherrar látið af embætti vegna spillingarmálsins, og segja fréttaskýrendur að það muni ef eitt- hvað er auka á vanda hennar. Umræður um vantrauststillög- una hófust á ítalska þinginu í gær og sagði Amato við upphaf þeirra að ítalir væru að falla á tíma ætl- uðu þeir að endurreisa traust manna á ítölskum stjórnmálamönn- um. Reuter Escobars ákaft leitað STJÓRN Kólumbíu sendi í gær sérsveitir lögreglu og hersveitir til borgarinnar Medellin og nágrennis til að leita að kókaínkónginum Pablo Escobar. Talið er að Escobar sé í felum á svæðinu og kólumb- ískur embættismaður sagði að þetta væri mesta leit sem gerð hefði verið að honum til þessa. Cesar Gaviria, forseti landsins, hefur sak- að kókaínkónginn um að hafa staðið fyrir sprengjuárásum, sem hafa kostað meira en 40 manns lífið undanfarna tvo mánuði. Á myndinni gengur sérsveit lögreglu inn í flugstöð í Medellin. 2 FRÖNSKU IAMPANA PRA □PP HEIMIUÐ - MIKIÐ ÚRVAþ. uphin FRANCE í(ýglll§§1 HEKLA LAUGAVEG1174 - SÍMAR 695500 695550

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.