Morgunblaðið - 25.02.1993, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993
fclk í
fréttum
Lynn og Adrian Peters
ásamt syni sínum Jake. Þau
héldu að drengurinn væri
með krabbameinsæxli, en
annað kom í ljós.
FÆÐINGAR
Með síams-
tvíbura í
maganum
Foreldrar Jake Peters urðu í
senn glöð og hrygg þegar þau
fengu þann úrskurð að þriggja
mánaða sonur þeirra væri ekki
með krabbameinsæxli í maganum
heldur vísi að síamstvíbura. Fóstr-
ið hafði lifað í sjö vikur, en varð
eftir sem hnútur rétt neðan við
hægri rifbein drengsins. Þetta er
þó ekki einsdæmi í sögunni, því
nokkrum sinnum hefur bam fæðst
með slíkt fóstur innan í sér.
Foreldramir fundu hnútinn
stuttu eftir að drengurinn fæddist,
en læknar sögðu að þau skyldu
ekki hafa áhyggjur af honum. Lík-
legast væri ástæðan sú að lifrin
væri lítillega of stór. Það var ekki
fyrr en Jake var þriggja mánaða
og fór í hefðbundna skoðun, að
hann var sendur á spítala til at-
hugunar.
Læknirinn sem skar Jake upp
líkti aðgerðinni að nokkm leyti við
keisaraskurð. Sem betur fer vom
engin líffæri Jakes samvaxin
fóstrinu, þannig að aðgerðin hafði
engin eftirköst í för með sér og
var Jake útskrifaður af spítalanum
tíu dögum eftir uppskurðinn.
jML Jf 1
ÞORLAKSHOFN
Stökkvarar
tryg;gðu Heklu
sigurinn
Þau höfðu svo sannarlega ástæðu
ti! að fagna börnin í Ung-
mennafélaginu Heklu á Rangárvöll-
um, því þau sigmðu annað árið í röð
á aldursflokksmóti í fijálsum íþrótt-
um, sem nýlega var haldið í Þorláks-
höfn. Umf. Hekla og Umf. Selfoss
háðu harða baráttu, en í þrem síð-
ustu greinunun náði Hekla forskot-
inu sem til þurfti í stökkgreinum
telpna 13-14 ára. Það var Friðsemd
Thorarensen á Hellu sem var svo
skreflöng, stökk 2,43 m í langstökki
án atrennu, 6,88 m í þrístökki án
atrennu og 1,40 m í hástökki.
Jóhann Haraldsson deildarstjóri hjá Skeljungi ásamt eiginkonu sinni
Grétu Pape.
ARSHATIÐ
Heimatilbúin skemmti-
atríði hjá Skeljungi
Arshátíð Skeljungs var haldin á Hótel Sögu síðastliðið föstudagskvöld.
Var vel mætt og mikil stemmning. Eftir að menn höfðu snætt vom
sýnd heimatilbúin skemmtiatriði. Meðal annars var sýndur leikþáttur, þar
sem topparnir í fyrirtækinu vom teknir fyrir. Einnig var söngur á dag-
skrá og sýnt myndband af starfsfólkinu, sem hafði verið tekið fyrir nokkru,
þar sem fólkið var við störf.
Guðlaug Hallbjörnsdóttir mat-
ráðskona hjá Skeljungi kemur
hér til hófsins ásamt eiginmanni
sinum Gunnari Péturssyni.
Rebekka Ingvarsdóttir starfs-
mannastjóri Skeljungs ásamt eigin-
manni sínum Einari Kristinssyni.
TIMKEN FAC itlO
KEILULEGUR KÚLU-OG RÚLLULEGUR LEGUHÚS
Eigum á lager allar gerðir af
legum í bíla, vinnuvélar,
framleiðsluvélar og
iðnaðartæki. Allt evrópsk og
bandarísk gæðavara. Útvegum
allar fáanlegar legur með hraði.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
(FftLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SIMI 814670
Mafrifr
í Kaupmannahöfn
FÆST
I BLAOASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI