Morgunblaðið - 25.02.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.02.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993 15 Verkfall kennara eftir Guðrúnu Þórsdóttur Staða kennara Stjóm Kennarasambands ís- lands hefur boðað til verkfallsað- gerða fyrir félagsmenn sína. Að hennar mati er það eina leiðin til að knýja fram úrbætur fyrir kennarastéttina. Kennarar eru hvattir af henni til verkfalls. Kenn- arar eru óánægðir og margir til í aðgerðir. A sama tíma eykst samdráttur í öllum starfsgreinum og menn beijast við atvinnuleysisdrauginn. Kennarastéttin hefur hingað til búið við mikið atvinnuöryggi og haft óvenjulegan vinnutíma. Það er eðlilegt að öðrum vinnandi stétt- um sé það mikill þyrnir í augum hversu viðverutími kennara á vinnustað er styttri en annarra stétta. Það sjá fáir það sem kenn- arar vinna fyrir kennsluna heima hjá sér. Samningsstaða kennara í dag er mjög veik og þeir fá örugglega sitt verkfall ef þeir biðja um það. Verkfallið 1984 leiddi til fleiri skipbrota og „slysa“ en menn vilja muna. Kennarastéttin líður enn fyrir það verkfall. Kröfugerð stjórnar Kennara- sambands íslands er ekki stórbrot- in — eitt lítið hér og annað lítið þar — ásamt kröfu um 5% kaup- máttaraukningu. Siðlegar kröfur. En það sem er athugavert við stöð- una er hin veika samningsstaða kennara. Kennarar jafnir öðrum stéttum Stjórn KÍ hefur undanfarin ár lagt áherslu á einhliða launakröfur með litlum árangri í stað þess að leggja allt upp úr því að styrkja samningsstöðu kennara og horfa til langtímalausna fyrir nemendur, kennara og foreldra. I skólastefnu KÍ segir m.a. að „Kennarasamband Íslands vilji að nemendur eigi kost á athvarfi eða aðstöðu utan skólatíma ef þörf er á“. Þarna þarf að leggja nýja áherslu. Þörfin er öllum ljós. í nútímaþjóðfélagi ætti skólinn að vera það „athvarf" sem börnin þurfa svo á að halda á virkum vinnudögum. Stjórn KÍ þarf að leggja fram tillögur um breyttan vinnutíma kennara til að leiðrétta samnings- stöðuna. En kannski er hræðslan við að glata áunnum réttindum of mikil og því ekki þorandi að taka þetta bráðnauðsynlega skref að hennar mati. Kennarar eiga að vinna innan veggja skólans sambærilegan vinnudag og aðrar stéttir. Þegar slíkir kostir eru á borðinu er hægt að nálgast einsetinn skóla. Þá er líka hægt að biðja um verulega kauphækkun. Reykjavík á undan Við tílfærslu grunnskóla til sveitarfélaga á ýmislegt eftir að breytast. Til að flýta fyrir bættri samningsstöðu kennara legg ég til að Kennarafélag Reykjavíkur noti tímann. vel til að vinna að sérsamningi við Reykjavíkurborg þegar það verður hægt þar sem viðverutími kennara á vinnustað er til jafns við aðrar stéttir og launakjör leiðrétt í samræmi við hann. Og leyfisdagar nemenda aðgreindir frá leyfisdögum kenn- ara þannig að starfsdagar, for- eldradagar, frídagar o.fl. þekji ekki skóladagatal nemenda. Kennarar í Reykjavík geta þá átt von á að vinna á vinnustað þar sem samfella er á vinnutíma allra innan veggja skólans og skólatími nemenda verður í samræmi við vinnutíma foreldranna. Vegna aðstæðna getur Kenn- arafélag Reykjavíkur gengið á undan og svarað kalli borgarbúa með alvöru-langtímasamningum og endurnýjað þannig allt skóla- starf í Reykjavík. Kröfur nútímans Skólakerfíð verður að mæta þeim þörfum sem þjóðfélagið setur hveiju sinni. En þá er skilningur á báða bóga lykilatriði svo stjóm- völd á hveijum tíma séu tilbúin að reiða fram það sem góður skóli þarf og kennarastéttin sömuleiðis tilbúin að mæta þörfum þeirra sem hún þjónar. Skólakerfið hefur ver- ið alltof lengi að dragast með drauga úr fortíðinni og oft miðað starfið við allt aðrar aðstæður en nú gilda. Má þar til dæmis nefna að umferðarfræðsla er ekki skyldufag þrátt fyrir að við búum við lífs- hættulega umferð í Reykjavík. Þar 1993! er fræðsluþörfin ekki uppfyllt og menn líta á þann toll sem umferð- in tekur sem eina af staðreyndum lífsins. Vissulega er margt frábærlega unnið í íslenskum skólum og mikið er til af hæfum og dugandi kenn- urum. En þeir búa við alltof naum- ar aðstæður til að sinna starfí sínu og kemur tímavandamálið þar mikið inn. Eftir því sem þéttbýliskjörnum fjölgar og borgin stækkar breytast þarfir samfélagsins. Flestar leggja þær auknar kröfur á kennarann. En þær eru ekki alveg þær sömu og þarfir dreifbýlisins. Menn þurfa að vera vakandi og bregðast rétt við og búa börnum sem öruggast- an uppvaxtarramma. í dag vantar töluvert upp á að svo sé. Og er það efni í aðra grein. Tannhjól skólakerfisins verða að falla að hjólum atvinnulífsins svo líf nemenda gangi eðlilega upp. Það eiga að ríkja sömu við- verureglur í skólanum og á öðrum vinnustöðum. Niðurlag Stjórn KÍ á að setja sér háleit- ari markmið en þau að etja kenn- urum í verkfall á krepputíma. Það grefur einungis undan kennara- stéttinni. 5% kaupmáttaraukning bætir aldrei upp allan þann skaða. Það á að ætla kennurum og nemendum betri hlut. Það verður að efla eindregna samstöðu kenn- ara til betri skóla, heilsdagsskóla fyrir nemendur og kennara. Stjórn Guðrún Þórsdóttir „Stjórn KÍ á að setja sér háleitari markmið en þau að etja kennurum í verkfall á kreppu- tíma.“ KÍ á að leggja allan metnað í að kynna kennarastarfíð með reglu- bundnum hætti. Það skilar líka árangri til stórnvalda. Verkföll og stríð eiga það sam- eiginlegt að þar tapa þeir mest sem minnst mega sín. Vonandi finnur stjórn KÍ þann takt í framtíðinni sem nær eyrum viðsemjenda og skilar þeim árangri til upprennandi kynslóða að verkföll þekkist ekki. Höfundur er kennslufulltrúi við Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur. % % m & & & & sa & & & & ^GÞÖSITUR IINGIIHiT?Rll Líttu við og sjáðu hvað bíllinn er nettur en rúmgóður, kraftmikill en sparneytinn. Tígulegur í útliti en með látlaust yfirbragð, tæknilega vel útbúinn og á ótrúlega I á g u v e r ð i. ÖRKIN 211*-58

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.