Morgunblaðið - 25.02.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.02.1993, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993 Dagsbrún og Verslunarmannafélag Reykjavíkur Atvinnulausum hefur enn fjölgað í febrúar ATVINNULAUSUM hefur haldið áfram að fjölga í Reykjavík það sem af er febrúarmánuði ef marka má upplýsingar frá tveimur stærstu verkalýðsfélögunum í Reykjavík, verkamannafélaginu Dags- brún og Verslunarmannafélagi Reykjavíkur. Hjá Dagsbrún fengu 477 manns greiddar atvinnuleysisbætur 17. febrúar þegar síðast var borgað út, en það jafngildir því að um 15% félagsbundinna Dagsbrún- armanna á vinnumarkaði séu atvinnulaus. Um 700 manns eru skráð- ir atvinnulausir hjá Verslunarmannafélagi Reykjavíkur. Hjá Dagsbrún fengust þær upp- lýsingar að atvinnulausum hefði stöðugt fjölgað í félaginu frá ára- mótum. Þannig hefði atvinnulaus- um Qölgað um rúmlega 50 milli tveggja síðustu útborgana. 425 hefðu fengið greiddar atvinnuleys- isbætur í byrjun febrúar, en bætur eru greiddar út hálfsmánaðarlega. Að sögn Kristjönu Valgeirsdóttur á skrifstofu Dagsbrúnar eru atvinnu- lausir Dagsbrúnarmenn á sjötta hundrað því alltaf sé nokkuð um það að menn séu atvinnulausir sem ekki eigi rétt á bótum. Það virðist ekkert framundan sem geti bætt úr ástandinu. „Það getur komið fyrir alla að verða atvinnulausir stuttan tíma, en það er hræðilegt þegar fólki er ekki gert kleift að sjá fyrir sér og sínum,“ sagði hún. Atvinnulausum fjölgar mest í byrjun mánaðar Um 670 fengu greiddar atvinnu- leysisbætur hjá Verslunarmannafé- lagi Reykjavíkur þegar bætur voru síðast greiddar út og hefur stöðugt fjölgað í mánuðinum, en 637 fengu greiddar bætur 5. febrúar. Ef þeir eru teknir með sem ekki hafa bóta- rétt má gera ráð fyrir að rúmlega 700 félagsmenn VR séu atvinnu- lausir. Þá var á það bent að atvinnu- lausum fjölgaði mest í byijun mán- aðar því uppsagnir miðuðust við mánaðamót. Hjá Ráðningarstofu Reykjavíkur voru 2.632 skráðir atvinnulausir í gær, 1.532 karlmenn og 1.100 kon- ur. Á sama tíma 24. febrúar árið 1992 voru 1.283 skráðir atvinnu- lausir hjá Ráðningarstofunni, 834 karlmenn og 449 konur, og 25. febrúar 1991 voru 675 skráðir at- vinnulausir, 437 karlar og 238 kon- ur. VÉðUrHÖRFÍÍR 1DAG, 25. FEBRUAR YFIRLIT: Á Grænlandssundi er minnkandi 988 mb lægð sem þokast austnorðaustur en vaxandi 1.000 mb lægð um 800 km suðvestur í hafi fer norðaustur og verður milli íslands og Noregs á morgun. SPÁ: Allhvöss eða hvöss norðanátt og 3-10 stiga frost um landið. Élja- gangur norðanlands en skafrenningur víða um land. Fer að lægja er líður á daginn, fyrst vestantil. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Minnkandi norðvestanátt um austanvert land- ið en hæg breytileg átt vestantil. Él norðaustanlands en bjartviðri í öðr- um landshlutum. Frost 6-10 stig. HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg vestlæg átt, léttskýjað og minnkandi frost austantil. Um vestanvert landið þykknar upp og fer að snjóa og síðar rigna með vaxandi sunnanátt. HORFUR Á SUNNUDAG: Sunnanátt og hlýindi. Súld eða rigning á Suð- ur- og Vesturiandi en léttskýjað norðaustantil. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600. Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaörimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.. 10° Hitastig v súld ] = Þoka ^ O A Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað ///*/**** . I * // */ ** \7VV Rigning Slyddæ Snjókoma Skúrir 'Slydduél Él FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 fgaer) Góð vetrarfærð er yfirleitt á þjóðvegum landsins. Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði eru færar. Þá er fært með suðurströndinni austur á Austfirði og vegir yfirleitt vel færir. Fært er um Hvalfjörð og Borgar- fjörð, um Heiðdal um norðanvert Snæfellsnes og Dali og Reykhóla- sveit. Fróðárheiði, Kerlingarskarð og Brattabrekka eru ófær. Þá er fært um Holtavörðuheiði til Hólmavi"kur, til ísafjarðar en Breiðadalsheiði og Botnsheiði eru ófærar. Fært er um Norðuriand til Siglufjarðar og Akur- eyrar og fært austur til Vopnafjarðar. Fært um Mývatns- og Möðrudals- örævi. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sima 91-631500 og ágrænnilínu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavlk hiti +2 veður skýjað úrkoma Bergen 2 alskýjað Helsinki +2 frostúði Kaupmarmahöfn 0 léttskýjað Narssarssuaq +24 heiðskfrt Nuuk +18 snjókoma Óslú +3 skýjað Stokkhólmur +2 snjókoma Þórshöfn 4 alskýjað Algarve 16 léttskýjað Amsterdam 0 þokumóða Barcelona 8 iéttskýjað Bertín 0 snjókoma Chlcago +20 heiðskírt Feneyjar 6 heiðskírt Frankfurt 0 heiðskfrt Glasgow 8 súld Hamborg 0 hálfskýjað London 7 skýjað LosAngeles 12 léttskýjað Lúxemborg +1 léttskýjað Madríd 8 heiðskirt Malaga 13 alskýjað Mallorca 7 suld Montreal +16 snjókoma NewYork +6 léttskýjað Orlando 8 léttskýjað París 3 hálfskýjað Madeira 16 skýjað Róm 7 heiðskírt Vín +4 snjókoma Washington +4 léttskýjað Winnipeg +23 heiðskírt Ekkí of sjaldan les- ið inn á símsvara SÚ gagnrýni skíðafólks að ekki sé nægilega oft lesið inn á símsvara fyrir skíðalönd í nágrenni höfuðborgarinnar er alls óréttmæt að dómi Þorsteins Hjaltasonar fólkvangsvarðar í Bláfjöllum. Um leið og ein- hverjar þær breytingar verða á veðri að aðstæður til skíðaiðkunar breytist eru nýjar upplýsingar settar inn á símsvarann að hans sögn. Þó sagði Þorsteinn að smávægi- legar veðurfarsbreytingar væru ekki lesnar inn á símsvarann. „Til dæmis ef gengur á með éljum. Við getum ómögulega farið að segja frá því í hvert skipti sem styttir upp, þá yrð- um við fljótt bijálaðir," sagði hann og bætti við að yfirleitt væri lesið a.m.k. þrisvar sinnum inn á símsvar- ann á hveijum morgni vegna breyt- inga eða nýrra upplýsinga frá ólíkum skíðasvæðum. „Svo lesum við stund- um oftar inn á hann. í morgun, frá kl. hálf átta til ellefu, erum við t.d. búnir að iesa 6 sinnum inn á hann,“ sagði Þorsteinn. Dæmdur sekur um fjárdrátt, fjár- svik o g skjalafals LYFJAFRÆÐINGUR hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmur í 15 mánaða fangelsi, þar af 12 mánuði skilorðsbundið, fyrir brot á lögum um lyfjadreifingu, fjárdrátt, fjársvik og skjalafals, framin á árunum 1986-1990, en hann var þá yfirlyfjafræðingur á Landakots- spítala og í hlutastarfi á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Þá gerði dómur- inn manninum að greiða 3,3 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs. Hann var jafnframt sviptur starfsleyfi lyfjafræðings í 2 ár. Fram kom í málinu að maðurinn afhenti öðrum en legusjúklingum í Landakoti lyf úr lyfjabúri spítalans, einkum göngudeildarsjúklingum og starfsfólki spítalans sem fengu lyf- seðla hjá læknum þar. Greiddi þetta fólk sinn hluta af verði lyfsins og afhenti lyfseðil. Yfirlyfjafræðingur- inn lagði lyfseðlana inn í Vesturbæj- arapótek og Ingólfsapótek og fékk þar sömu lyf afhent og iagði inn í lyfjabúr spítalanna. Apótekin inn- heimtu að sínu leyti hlut Tryggingar- stofnunar í lyfjunum, en maðurinn samdi við forstöðumenn apótekanna að hann fengi afslátt. Hann tók undir sig greiðsluhluta sjúklinganna og var sú fjárhæð dregin frá reiknuð- um afslætti og mismunurinn greidd- ur honum. Þá lét hann greiða sér út i Vesturbæjarapóteki heildsöluverð ly§a í stað þess að taka út lyf og leggja aftur inn í lyfjabúr spítalans. Dómurinn áleit að hann hefði inn- heimt og slegið eign sinni á megnið af sjúklingahlutanum. Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa látið Landakotsspítala greiða tvisvar fyrir 145 flöskur af lyfinu Lipofundin og fyrir að hafa slegið eign sinni á 162 flöskur af sama lyfi í eigu spítalans og ráðstafað megn- inu. Hann var einnig sakfelldur fyr- ir að hafa slegið eign sinni á 50 kassa af Cidex-þykkni sem spítalinn átti. Þá var honum talið óheimilt að slá eign sinni á afsláttargreiðslur sem fyrirtækið Medico hf. veitti Landakotsspítala vegna lyfjakaupa. Sýknaður af sumum ákæruliðum Yfirlyfjafræðingurinn var að auki sakfelldur fyrir að hafa útfyllt lyf- seðil og framvísað honum í Vestur- bæjarapóteki, en hann var sýknaður af ákæru um fölsun annars lyfseð- ils.' Hann var einnig sýknaður af öðrum ákæruliðum, sem vörðuðu meint svik hans er hann seldi Landa- kotsspítala vörur, sem aldrei hefðu borist sjúkrahúsinu, þar sem það var ekki talið sannað. Landakotsspítali gerði bótakröfu í málinu og fór fram á samtals um 8,4 milljónir króna vegna afsláttar af lyfjaverði vegna lyfseðla sem inn- leystir voru í apótekunum og vegna peningagreiðslna vegna lyfseðla, sem og vegna ætlaðs fjárdráttar og fjársvika. Dómurinn taldi kröfuna vanreifaða og ekki nægilega sund- urliðaða, auk þess sem á það væri að líta að afsláttur sá sem maðurinn áskildi sér, byggðist á viðskiptum sem voru í sjálfu sér andstæð lögum um lyfjadreifingu og hefðu verið spítalanum jafn óheimil og þau voru ákærða. Hagnaðist verulega á brotinu Við ákvörðun refsingar leit dóm- urinn til þess, að maðurinn hafði ekki gerst áður sekur um refsilaga- brot. Hins vegar bæri að líta til þess að brot hans væri stórfellt og að hann hagnaðist verulega á því. Auðgunarbrot hans næmu rúmlega 4,6 milljónum króna og annar ólög- mætur ávinningur hans rúmlega 3,2 milljónum. Á hinn bóginn yrði að taka tillit til þess að töluverður drátt- ur hefði orðið á rekstri málsins. Refsingin væri því hæfilega ákveðin 15 mánaða fangelsi, en vegna drátt- ar málsins eru 12 mánuðir skilorðs- bundnir til tveggja ára. Þá gerði dómurinn manninum að greiða 3,3 milljónir í sekt til ríkissjóðs og kem- ur 6 mánaða fangelsi í stað sektar- innar, verði hún ekki greidd innan 4 mánaða. Þá var hann dæmdur til að greiða 400 þúsund króna þóknun til sækjandans, Jónatans Sveinsson- ar hrl., og 300 þúsund krónur í málsvarnarlaun til veijanda síns, Gests Jónssonar, hrl. Vegna dráttar málsins er ríkissjóði gert að greiða vetjandanum 300 þúsund krónur í málsvarnarlaun, en annan sakar- kostnað greiðir hinn dæmdi. Dóminn kváðu upp Pétur Guð- geirsson, héraðsdómari, og með- dómsmennirnir Þomldur Arnason, yfirlyfjafræðingur, og Þorvaldur Þorvaldsson, löggiltur endurskoð- andi. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.