Morgunblaðið - 25.02.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.02.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993 11 Franskt stórskáld í íslenskum klæðum Bókmenntir Sigurjón Björnsson Útlegð: Saint-John Perse íslenzk þýðing: Sigfús Daðason Hið íslenzka bókmenntafélag Reykjavík 1992, 157 bls. í þessari bók eru birt fjögur kvæði eða öllu fremur kvæðaflokk- ar franska skáldsins Saint-John Perse, sem réttu nafni hét Alexis Saint-Leger-Leger. Kvæðaflokk- arnir eru Útlegð, Rigningar, Snjó- ar og Kvæði til útlendu konunnar. Á vinstri biaðsíðum bókar eru kvæðin á frummáli (frönsku), en á hægri síðum íslensk þýðing Sigf- úsar Daðasonar. Á eftir kvæðun- um fer tæplega fjörutíu síðna rit- gerð þýðandans um St.-John Perse. Æviferill hans er rakinn og gerð er nokkur grein fyrir skáldskap hans. St.-Leger var háttsettur embættismaður í frönsku utanríkisþjónustunni, en var vikið úr starfi þegar Vichy- stjórnin komst til valda. Þá fluttist hann til Bandaríkjanna og kom ekki aftur til Frakklands fyrr en 1957, þá sjötugur að aldri. Árið 1960 voru honum veitt Nóbels- verðlaun. Hann andaðist 20. sept- ember 1975. Sigfús segir í ritgerð sinni: „I Frakklandi virðist mér, að nú sé hiklaust litið á Saint-John Perse sem eitt höfuðskáld þeirrar aldar sem brátt líður að lokum, og er stundum vitnað til hans opinber- lega þegar mikið liggur við í þjóð- málum. Sjálfum hefur mér samt þótt mest til þess koma að hitta unga menn í Frakklandi sem trúa því að Perse sé „mesta skáldið“ og eru innlifaðir í skáldskap hans eins og sumir Islendingar í skáld- skap Jónasar Hallgrímssonar eða eins og kynslóð Þórbergs Þórðar- sonar var innlifuð í kvæði Einars Benediktssonar. Þau úögur kvæði sem hér birt- ast eru ort á árunum 1941-44, á stríðsárunum síðari, þegar St.- Leger dvaldist í Bandaríkjunum. Bera kvæðin sannarlega merki þeirra aðstæðna sem þau voru ort við.“ Eins og áður segir eru þessi kvæði eiginlega flokkar og eru tvö þau fyrstu (Útlegð, Rigningar) sýnu lengst í VII og IX köflum. Þau eru öll í óbundnu máli. Þung verða þau held ég að teljast. Er hvort tveggja að orðaforði er mik- ill og stundum sjaldgæfur og eins hitt að vísanir eru sérstaklega margar. Menningarheimur skálds- ins er stór, spannar mikið svið bæði í tíma og rúmi. Af þeim sök- um þarf mikið til þess að geta fylgt honum eftir. Líklegt er að margt fari fyrir ofan garð og neð- an hjá venjulegum íslenskum le- sanda sem er mótaður af annarri og ólíkri menningarerfð. Þrátt fyr- ir þetta getur varla nokkrum dul- ist að hér er stórskáld á ferð. Kvæðin eru einnig þung í öðrum skilningi. Þau eru þrungin alvöru, oft jafnvel miklum sársauka, sem ékki er neinn yfirborðssársauki heldur djúpur og napur. Kvæðin smjúga inn í mann og taka sér þar bólfestu og einhvern veginn skilur maður og skynjar einhvern stórleik, einhveija mikla dýpt bæði hugsana og tilfinninga án þess að geta útskýrt. Þýðandinn minnist á Jónas Hallgrímsson í ritgerð sinni. Svo undarlega vildi einmitt til að Sigfús Daðason þegar ég var að lesa þessi kvæði, naut þeirra mjög, en átti erfitt með að skilja sumt, datt mér í hug kvæði Jónasar „Alsnjóa“, sem mér hefur alla tíð þótt mjög vænt um. Þar er þetta erindi: Dauðinn er hreinn og hvítur snjór, hjartavörðurinn gjeíngur rór og stendur sig á blæu breiðri, bír þar nú undir jörð í heiðri. Víst hefur það vafist fyrir fleir- um en mér að skilja hver þessi „hjartavörður“ er og fleira í þessu sérkennilega erindi. En ekki er ég viss um að ég hefði meira dálæti á kvæðinu þó að ég vissi það. Það er afar mikill kostur á þess- ari útgáfu að frumtextinn skuli fylgja með og raunar má það telj- ast nauðsynlegt í þessu tilviki. Maður þarf að geta notið þess hljómblæs sem ekki er unnt að skila í þýðingu. Þýðing Sigfúsar er að mínu viti einstaklega ná- kvæm og vel gerð. Hún hefur svo sannarlega ekki verið neitt áhlaupaverk. Til að skila því verki þarf afar góða kunnáttu í frönsku og íslensku og skáldlega smekk- vísi. Allt þetta hefur þýðandinn til Saint-John Perse að bera. En þröskuldar hafa verið margir. Franskan er einstaklega blæbrigðaríkt og orðauðugt tungumál og erfitt er og stundum líklega ógjörningur að ná samsvar- andi blæbrigðum á íslensku. Eink- um finnst mér að íslenskum orðum hætti oft til að hafa þrengri og afdráttarlausari merkingu en þau frönsku. T.a.m. schismes = trú- klofningar; convulsionnaires = heilagsanda-hopparar. Þá kemur það fyrir að sama orðið í frum- texta er þýtt með tveimur orðum, þegar það kemur oftar en einu sinni fyrir, t.a.m. Prince= lofðung- ur, höfðingi eða tvö orð líkrar merkingar eru þýdd með einu orði svo sem factions, dissidences = flokkadrættir. En þetta eru smá- munir sem mega ekki skyggja á það sem svo ágætlega er gert. Tungan setur mörk sem jafnvel högustu menn komast ekki fram hjá. Það er góður fengur að þessum mikilfenglega skáldskap, vönduðu útgáfu og góðu þýðingu. Mættum vér fá.meira að heyra! Síðustu dagar sýningar As- geirs Smára SÝNINGU á málverkum Ás- geirs Smára Einarssonar lýkur sunnudaginn 28. febrúar. Sýn- ingin er í Gallerí Fold, Austur- stræti 3. Ásgeir Smári Einarsson fæddist í Reykjavík 1956. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands á árunum 1974-78 og síðar við listaskólann DFK í Stuttgart í Þýskalandi. Ásgeir Smári hefur undanfarið dvalið í Danmörku og er með vinnu- stofu þar. Hann er þekktur fyrir verk sín þar sem hann málar hús og fólk, eða það sem hann nefnir borgarlandslag. Ásgeir Smári hefur haldið 11 einkasýningar hér á landi, í Danmörku og Þýskalandi, auk þess sem hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga. Myndirnar sem Ásgeir Smári sýnir nú í Fold eru unnar í olíu og með blandaðri tækni. Þær eru allar til sölu. Opið er í Fold daglega frá klukk- an 11-18 og sunnudaginn 28. febr- úar frá klukkan 13-18. (Fréttatilkynning) sonar. Dansað á haustvöku frumsýnt í kvöld Þjóðleikhúsið frumsýnir í kvöld Dansað á haustvöku eftir írska leik- skáldið Brian Friel. Sýningin er á Stóra sviðinu og hefst kl. 20. Leik- arar í sýningunni eru Anna Kristín Arngrímsdóttir, Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdótt- ir, Ragnheiður Steindórsdóttir, Tinna Gunnlaugsdóttir, Erlingur Gíslason, Kristján Franklín Magnús og Sigurður Skúlason. Á myndinni eru Tinna Gunnlaugsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir í hlut- verkum sínum. Leiklistin blómstrar á Húsavík Húsavík. LEIKLISTARÁHUGI hefur ávallt verið inikill meðal Þingeyinga en sjaldan eins mikill og nú því fjögur leikrti hafa og eru nú á fjölun- um í Þingeyjarþingi. Leikflokkur Kópaskers sýnir sjónleikinn Jupiter hlær eftir Cronin í leikstjórn Einars Þorbergssonar og auk heimahaga hefur flokkurinn sýnt á Raufar- höfn, Þórshöfn og Skúlagarði. Leikfélag Húsavíkur sýnir Ronju ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren í leikstjórn Brynju Benedikts- dóttur, og hafa þegar verið sjö sýningar og ávallt fyrir fullu húsi. Uppselt er á næstu sýningar og hafa Akureyringar sýnt þessari sýningu nokkurn áhuga enda hefur verið greiðfært á milli staðanna. Leikflokkurinn Búkolla í Aðaldal sýnir að Ýdöl- um, Plóg og stjörnur éftir Seam 0. Casey í leik- stjórn Sigurðar Hallmarssonar. Umf. Efling í Reykjadal sýnir gamanleikinn Deleríum Búbónis, eftir bræðurna Jónas og Jón Múla Árnasyni, að Breiðumýri í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur. Leikflokkarnir og leikstjórarnir eiga við mjög misjafnan húsakost að búa, en best mun húsið og leiksviðið að Ýdölum vera en aðstaðan á Kópa- skeri er mjög erfið en áhugi mikill, svo erfiðleikarn- ir við uppsetningu hefta ekki framkvæmd. Á Húsa- vík er leikið í gamla Samkomuhúsinu, sem byggt var 1929 og er leiksviðsaðstaða þar mjög erfið og undravert hve vel hefur tekist með þá sýningu sem nú er þar á.fjölunum, sem og margar aðrar sýning- ar, sem þar hafa á fjölunum verið. - Fréttaritari. Samkomuhúsið í Húsavik. Morgunblaðið/Silli DTSALA Enn meiri verdlækkun A,ltað . ™ »hummels o afsláttur S P O R T B U Ð I N ÁRMÚLA 40 ■ SÍMAR 813555, 813655. M 0793

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.