Morgunblaðið - 25.02.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993
Viðræður í gangi um sölu strandferðaskipanna Esju og Heklu
Norskt
tilboð
íHeklu
Ábataskiptakerfi fóstra og leikskólastjóra í Reykjavík
Laun hafa hækkað
um 12-13% fráí júní
LAUN fóstra og leikskólastjóra á ieikskólum og skóladagheimilum í
Reykjavík hafa hækkað um samtals 12 til 13% frá því í júní síðastiiðn-
um þegar annar áfangi í samkomulagi Reykjavíkurborgar og Fóstrufé-
lags Islands um ábataskiptakerfi tekur gildi 1. mars næstkomandi.
Með ábataskiptakerfi hefur rýmum á leikskólum í fjögurra til sex stunda
vistun verið fjölgað um 350 og á skóladagheimilum um 48 rými. Gert
er ráð fyrir að 1. september næstkomandi hafi úthiutun farið fram.
Ábataskiptakerfið felur í sér að að nýr leikskóli sé byggður. Arna
Reykjavíkurborg og starfsmenn leik- Jónsdóttir, formaður samninga-
skólanna skipta með sér stofn- og nefndar Fóstrufélags íslands, sagði
rekstrarkostnaði á leikskóla án þess að fóstrur væru sáttar við þann
N autgripakj öt boð-
ið í neyðaraðstoð
TIL ATHUGUNAR er að senda íslenskt nautgripakjöt sem neyðarað-
stoð tii Bosníu. Bændur og afurðastöðvar hafa boðið fram hiuta af
offramleiðslu undanfarinna mánaða í þessu skyni.
Undanfarna mánuði hefur verið
offramleiðsla á nautgripakjöti í land-
inu. Lagt hefur verið á verðskerðing-
argjald til að opna möguleika til að
losna við umframframleiðsluna og
undanfamar vikur hefur nautgripum
verið slátrað og kjötið sett í frysti.
300 tonn af kjöti í geymslu
Guðmundur Lárusson, formaður
Landssambands kúabænda, segir að
nú séu að verða til um það bil 300
tonn af nautgripakjöti í frystigeymsl-
unum. Hann segir að kúabændur og
afurðastöðvar hafi boðist til að láta
hluta af þessu kjöti, ekki síst kýrkjöt-
ið, sem matvælaaðstoð til Bosníu eða
annarra ríkja sem á slíku þurfa að
halda. Ætlunin er að verðskerðing-
arféð verði þá notað til að gera upp
við bændur og afurðastöðvar.
Guðmundur segir að málið sé til
athugunar í utanríkisráðuneyti og
hjá Þróunarsamvinnustofnun.
launalega ábata sem kemur í þeirra
hlut. „Við viljum leggja áherslu á
að þetta er grundvallað á þróunar-
starfi fóstra og mikilli vinnu þeirra
og annarra starfsmanna skólanna,"
sagði hún. „Við erum mjög ánægðar
með samstarfið við Reykjavíkurborg
og Dagyist barna um þessar breyt-
ingar. Ég held að við komumst ekki
lengra í bili.“
Þegar fyrri áfangi ábátakerfisins
tók gildi í júní 1992 hækkuðu laun
fóstra hlutfallslega meira en leik-
skólastjóra. Að þessu sinni hækka
laun skólastjóranna meira og hafa
þá báðir hópar fengið sömu prósentu-
hækkun eða 12 til 14%.
Langnr aðdragandi
„Þessar breytingar eiga sér langan
aðdraganda," sagði Ama. „Þær eru
byggðar á þróunarstarfi sem hófst
árið 1987 með því að fimm leikskól-
ar voru gerðir að tilraunaleikskóium,
þar sem meðal annars fór fram end-
urskipulagning á starfsemi þeirra.
Reynt var að nýta betur húsnæði,
vinnufyrirkomulagi starfsmanna var
breytt og tilraun gerð með blandaða
dvalartíma bamanna ýmist í fjórar,
sex eða átta stundir á sömu deild
og kannað út frá faglegum sjónar-
miðum hversu mörg börn gætu dval-
ið samtímis á leikskólum án þess að
skerða gæðin.“
Reykt tindabikkja í
evrópsk veitingahús
TIL STENDUR að setja á markað erlendis reykta tindabikkju, krækl-
•ng og rækju. Hugsanlegt er að varan verði seid til veitingahúsa í
París, og ef til vill fleiri evrópskra borga. Fiskmetið er reykt á
Grundarfirði af Friðfinni Friðfinnssyni, sem stendur fyrir þessari
tilraun í samvinnu við Úlfar Eysteinsson veitingamann.
tindabikkju og var hún reykt fyrir
tíu dögum og_ hefur ekki verið fryst
á þeim tíma. Ómeðhöndluð væri hún
orðin kæst, en ekki vottaði fyrir því
í reykta fískinum. „Kannski höfum
við fundið aðferð til að geyma fisk-
inn og senda hann þannig út. Tinda-
bikkjan er í háum verðflokki í
Frakklandi og Belgíu og velþekkt
í Bretlandi."
Úlfar taldi ekki ólíklegt að innan
skamms yrði hægt að panta reykta
tindabikkju af íslandsmiðum á veit-
ingahúsi í París.
Að vera „öðruvísi"
„Málið snýst um að bjóða fiskinn
í eitt til tvö veitingahús í hverri
borg, þannig að þetta vaði ekki
yfir markaðinn. Kokkurinn í eldhús-
inu er spenntur fyrir svona nokkru
og vill bjóða upp á annað en veit-
ingahúsið hinum megin á horninu.
Veitingahúsarekstur snýst um það
að vera „öðruvísi" en næsta veit-
ingahús," sagði Úlfar.
Hann sagði að hér væri komin
afurð til að heilla evrópska veitinga-
húsamenn. í gær matreiddi hann
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ vinn-
ur nú að því að selja strandferða-
skipin Esju og Heklu sem liggja við
bryggju í Reykjavík og hafa viðræð-
ur verið í gangi um sölu skipanna.
.Að sögn Þórhalls Jósepssonar,
deildarstjóra í samgönguráðuneyt-
inu, hefur borist tilboð í Heklu frá
norskum aðila en ekki hefur verið
hægt að ganga frá sölunni þar sem
tilboðsgjafinn hefur enn ekki getað
tryggt greiðslur fyrir skipið.
Þórhallur sagði að ráðuneytið
væri opið fyrir sölu eða leigu skip-
anna, sem voru áður í eigu Ríkis-
skipa. Söluverð Heklu er um 70
milljónir kr. en vonast er til að fá
megi nokkru hærra verð fyrir Esj-
una.
Morgunblaðið/Júltus
Gömul ríkisskip við bryggju
HEKLA, sem köiiuð var Búrfell meðan hún var í þjónustu Samskipa, og Esja liggja nú í Reykjavíkurhöfn.
Gamli Her-
jólfur lík-
legast til
Svíþjóðar
SALA á gömlu Vestmanna-
eyjafeijunni Herjólfi til
Svíþjóðar er nú í burðar-
liðnum en búist er við að
væntanlegur kaupandi
sendi endanlega staðfest-
ingu á kaupunum að lok-
inni skoðun skipsins fyrir
hádegi í dag.
Að sögn Sveinbjörns Ósk-
arssonar í fjármálaráðuneyt-
inu hafa fulltrúar sænska aðil-
ans skoðað skipið sem var tek-
ið í þurrkví í síðustu viku og
liggur nú við bryggju í Vest-
mannaeyjum. Hann vildi ekki
greina frá hvaða aðila tilboðið
kæmi frá eða hvert yrði sölu-
verð skipsins fyrr en endanleg
staðfesting lægi fyrir.
Slysavarnafélag íslands
óskaði eftir að fá gamla Heij-
ólf til nota endurgjaldslaust
sem skólaskip fyrir Slysa-
varnaskóla sjómanna fyrr í
vetur og var beiðnin lögð fyrir
ríkisstjómina. Að sögn Svein-
bjöms er gamli Heijólfur
skráður í eigu útgerðar Her-
jólfs hf. í Vestmannaeyjum en
ef af sölu verður muni andvirð-
ið að mestu leyti renna til ríkis-
sjóðs sem greiðsla vegna áhvíl-
andi skulda á skipinu. Sagði
hann að sérstök nefnd hefði
verið sett á laggirnar í sam-
gönguráðuneytinu til að skoða
kennsluskipamál Slysavarna-
skólans og stæði m.a. til að
skoða hvaða kostnaður fylgi
viðgerð skólaskipsins Sæ-
bjargar sem er í eigu Slysa-
varnaskólans.
í dag
Evrópska efnahagssvæðiö
Stefnt að því að samningurinn taki
gildi 1. júií nk. 18
Danskeppni
Úrslit í Jslandsmeistarakeppni í
samkvæmisdönsum 20
HM á íslandi
Endurbætur á Laugardalshöll fyrir
60 milljónir kr. 21
Leiöari _______________________
Framburður ogþjóðfélagsþróun 24
Viðskipti/Atvinnulíf Dagskm
► Viðskiptajöfrar með Domino ► Halldór Laxness tók á móti
Pizzas - Aramót leyst upp - Fjár- Nóbelsverðlaunum 1955 - Innlent
mál á fimmtudegi - Smábáta- efni alla daga á Stöð 2 - Camera
framleiðsla látin sigla sinn sjó - Obscura, ný íslensk mynd - vasa-
Myndbandamarkaðurinn. myndbandstæki í framleiðslu
Metsala á
fuglafóðri
ALDREI hefur selst meira af
fuglafóðri hjá Kötlu hf. en á
þessum vetri. Salan undanfarin
tvö ár hefur numið um 20 tonn-
um hvorn vetur, en nú hafa
þegar selst 60 tonn og líkur
benda til að 20 tonn til viðbótar
seljist.
Tryggvi Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Kötlu hf., segir að
salan í vetur hafi að mestu verið
eftir áramót. „Fólk er mjög dug-
legt að gefa fuglunum, enda hefur
tíðin verið þeim erfið,“ sagði hann.
„Þá má minna á gömlu þjóðtrúna,
sem segir að öskudagur eigi sér
átján bræður. Ekki bendir það til
batnandi tíðar á næstunni."
Katla framleiðir maís-kurl, sem
fuglunum virðist líka vel. „Það er
líka gott að gefa það, því það
fýkur ekki jafn auðveldlega og
ýmislegt annað korn,“ sagði
Tryggvi. „Við höfum þegar selt
60 tonn af þessu kurli og ég á
fastlega von á að lagerinn, sem
er núna 20 tonn, seljist upp í vet-
ur.“