Morgunblaðið - 25.02.1993, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993
Algengustu tegundir
krabbameins í bömum
eftirJónR.
Kristinsson
Krabbamein er sjaldgæfur sjúk-
dómur hjá börnum. Árlega greinast
hér á landi að meðaltali 8-9 börn
á aldrinum 15 ára og yngri með
krabbamein. Tíðni er svipuð og á
öðrum Vesturlöndum eða um það
bil 14 ný tilfelli af 100 þúsund
börnum ár hvert. Þó þessi sjúk-
dómaflokkur sé fátíður þá er dánar-
tíðni hlutfallslega há miðað við
aðra sjúkdóma hjá bömum.
Krabbamein hjá börnum eru um
margt ólík krabbameinum hjá full-
orðnum. Þannig þekkjast sumar
tegundir krabbameina hjá fullorðn-
um varla hjá bömum eins og t.d.
maga- og lungnakrabbamein. Aðrir
illkynja sjúkdómar sem finnast hjá
bömum em aftur á móti nær
óþekktir hjá fullorðnum og má þar
nefna taugakímsæxli (neuroblast-
Oma) og nýrnaæxli (Wilms æxli).
Um orsakir krabbamejna hjá
bömum er afar lítið vitað. í undan-
tekningartilfellum geta erfðir skipt
máli. Umhverfisþættir geta haft
þýðingu. Þekkt er að kjarnorku-
sprengjur sem féllu á Japan í síð-
ari heimsstyijöldinni orsökuðu
aukningu á hvítblæðistilfellum.
Meðferð krabbameina er marg-
þætt og nauðsynlegt er að hún
fari fram þar sem sérþekking og
fullkomin aðstaða til meðferðar er
fyrir hendi. Meðferð beinist að því
að eyða æxlisvef með skurðaðgerð-
um, lyflum og geislum, allt eftir
því sem við á hveiju sinni. Stöðugt
er verið að þróa og bæta þessar
helstu aðferðir við að eyða æxli-
svefnum. Öll stuðningsmeðferð er
einnig mjög sérhæfð þar sem unnið
er að því að bæta almennt ástand
sjúklingsins, bæði andlegt og lík-
amlegt.
Algengasta krabbameinið hjá
börnum er hvítblæði (Leukaemia)
sem er samheiti krabbameina sem
upprunnin eru í beinmerg. Árlega
veikjast að meðaltali tæplega 3
börn á Islandi af hvítblæði og er
þessi tegund (flokkur) um þriðjung-
ur af öllum illkynja sjúkdómum í
börnum. Hjá tæplega 90% barn-
anna er um bráða eitilfrumu-hvítbl-
æði að ræða. Algengast er að þau
veikist á aldrinum 2-5 ára. Tíðni
sjúkdómsins er mjög svipuð og í
nágrannalöndunum og fjöldi nýrra
tilfella hefur hvorki aukist né
minnkað á síðustu áratugum. Or-
sakir eru að mestu óþekktar., Erfð-
ir virðast ekki skipta máli. Áhrif
umhverfis eru einnig óþekkt og
enda þótt enginn einn umhverfis-
þáttur hafí afgerandi þýðingu geta
þeir samt skipt máli. Átómsprengj-
urnar í Japan í seinni heimsstyijöld-
inni juku tíðni hvítblæðis hjá þeim
sem urðu fyrir geislun. Einkenni
sjúkdómsins eru margvísleg, fölvi,
marblettir, lystarleysi og slen, lang-
vinn þreyta, hitavella, beinverkir
og eitlastækkanir.
Sjúkdómsgreining byggist fyrst
og fremst á blóð- og beinmergs-
rannsóknum. Ef mikið finnst af
óþroskuðum, afbrigðilegum hvítum
blóðfrumum (blöstum) staðfestist
sjúkdómsgreiningin.
Meðferð hvítblæðis er margþætt
og flókin. Þegar greining liggur
fyrir þarf að meta margvíslega
áhættuþætti og kanna hversu al-
varlegt hvítblæðið er.
Venja er að flokka það niður í
nokkra áhættuflokka s.s. minnstu
áhættu, meðal áhættu og mikla
áhættu. Eftir þessu mati er síðan
meðferð ákveðin, sem byggist nær
eingöngu á lyfjagjöf en í einstaka
tilvikum einnig geislun. Lyfjameð-
ferð stendur yfir i 2-3 ár. Margir
fylgikvillar koma í kjölfar meðferð-
arinnar, s.s. blóðleysi, sýkingar-
hætta, ógleði, uppköst og hármiss-
ir. Auk hinna ýmsu aukaverkana
lyijanna eru oft á tíðum langar og
strangar sjúkrahúslegur og með-
ferðin öll er barninu og aðstandend-
um þess erfið. Það er þó engum
vafa undirorpið að sjúkdóminn á
að meðhöndla. Með lyfjameðferð
hreinsast mergurinn hjá langflest-
um sjúklingum á nokkrum vikum.
í flestum tilvikum verður barnið
frískt og heilbrigt um alla framtíð
og af þessu tækifæri má barnið
ekki missa.
Aðrar tegundir krabbameina hjá
börnum eru sjaldgæfari og er þar
um að ræða krabbameinsæxli af
ýmsum vefjagerðurn. Algengast af
s.k. föstum æxlum er krabbamein
í miðtaugakerfi (heila- og mænu).
Æxli í miðtaugakerfi er næst al-
gengasta krabbameinið hjá börn-
um. Á íslandi greinast að meðal-
tali 2 börn á ári hveiju með æxli
i miðtaugakerfi. Tegundir heila-
æxla eru margar og oftar upprunn-
ar úr stoðfrumum heilans en tauga-
frumum. Sjúkdómseinkenni fara
nokkuð eftir því hvar æxlið er stað-
sett. Helstu einkenni eru höfuð-
verkur, uppköst, krampar og skyn-
truflanir. Greining byggist á rann-
sóknum með svokallaðri tölvusneið-
myndarannsókn og segulómrann-
sókn.
Meðferð við heilaæxli byggist
aðallega á skurðaðgerðum, stund-
um er hægt að nema æxlið á brott
að fullu og án þess að valda skaða
á nærliggjandi taugavef.
í sumum tilfellum þarf einnig
að beita geislun og krabbameins-
lyfjum. Eins og við svo mörg önnur
æxli byggjast lífslíkur á staðsetn-
ingu og gerð æxlisins. Um það bil
helmingur barnanna Iæknast.
Taugakímsæxli (neuroblastoma)
er illkynja æxli útgengið frá sjálf-
virka (sympatiska) taugakerfinu
sem liggur meðfram hryggnum.
Mikilvægur hluti þessa kerfis er
nýrnahettur og flest neuroblastoma
eiga upptök sín í nýrnahettumergn-
um (nýrnahettuæxli). Tíðni þessara
krabbameina er um það bil 7-8%
af illkynja sjúkdómum hjá börnum.
Einkenni fara eftir útbreiðslu sjúk-
dómsins. Stundum eru almenn ein-
Til eigenda h 1 u t d e i 1 d a r s k í r t e i n a í V e r ð b r é f a s j ó ð u m VÍB hf.,
Sjóði 3, Sjóði 4 og S j ó ð i 10.
TILKYNNING UM BREYTINGAR A
SAMÞYKKTUM VERÐBRÉFASJÓÐA VÍB HF.
í samræini við 18. grcin laga nr. 20/1989 tilkynnist hér jncð að
samþvkklum \'crðhicIasjóða\TB hl. hcfurvcriðhrcylt áþann vcgað
frá og mcð 1. mars 1993 munu Sjóður 3 og Sjóður 4 samcinast Sjóði
1. jafnframt mun Sjóður 10 samcinast Sjóði 7 frá sama tíma að tclja.
Wrðhrcfamarkaður íslaiulshanka hf.
Bjórn Jónsson
sjóðsstjóri
VlB
VERÐBREFAMARKAÐUR ISLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Myndsendir 68 15 26. Símsvari 68 16 25.
Jón R. Kristinsson
„Algengasta krabba-
meinið hjá börnum er
hvítblæði (Leukaemia)
sem er samheiti
krabbameina sem upp-
runnin eru í beinmerg.“
kenni eins og við hvítblæði, stund-
um fyrirferðaraukning í kvið.
Greining byggist á röntgenrann-
sóknum, tölvusneiðmynd og óm-
skoðun af kviðarholi svo og mæl-
ingu á ákveðnum efnum í þvagi
sem slík æxli mynda. Meðferð er
skurðaðgerð, geislun og lyfjameð-
ferð. Bestu horfur eru hjá yngstu
börnunum sem veikjast innan við
1-1V2 árs aldur. Horfur eru yfirleitt
ekki góðar hjá eldri börnum þar
sem sjúkdómurinn hefur oft dreift
sér verulega fyrir greiningu.
Nýrnaæxli (Wilms) er illkynja
æxli í nýrum. Tíðni þessa krabba-
meins er svipuð og taugakímsæxlis
eða um 7% af illkynja sjúkdómum.
Þetta krabbamein er oftast hjá
ungum börnum, 2-4 ára, og grein-
ist oft vegna fyrirferðar í kviðar-
holi og er staðfest með röntgen-
rannsókn og ómskoðun af nýrum.
Börnin fá krabbameinslyf, venju-
ga fyrir og eftir skurðaðgerð.
kurðaðgerð er alltaf nauðsynleg.
'leð því að gefa fyrst krabbameins-
yf rýrnar æxlið og er þá auðveld-
ara að nema það á brott. Oftast
er hið sjúka nýra tekið en líkaman-
um dugar vel eitt nýra: Stundum
þarf einnig að gefa geislameðferð
ef æxlið hefur vaxið út fyrir nýrað.
Horfur eru yfirleitt mjög góðar.
Beinæxli eru fátíð í ungum börn-
um, koma frekar upp á unglingsár-
unum. Beinæxli eru fremur sjald-
gæf eða um 5% af öllum illkynja
sjúkdómum hjá börnum. Algeng-
ástar eru tvær tegundir, svokölluð
Ewing’s sarkmein og beinsarkmein
(osteosarcom). Einkenni eru verkur
og fyrirferðaraukning. Greining
byggist á röntgenrannsókn og síð-
an sýnistöku til vefjagreiningar.
Þessi æxli hafa, eins og flest önnur
krabbamein, tilhneigingu til að
dreifa sér með meinvörpum. Með-
ferð fer eftir tegund krabbameins-
ins. Ef um Ewing’s sarkmein er
að ræða eru gefin krabbameinslyf
og geislun og stundum er gerð
skurðaðgerð. Ef um beinsarkmein
er að ræða er framkvæmd skurðað-
gerð þar sem beinæxlið er fjarlægt
og einnig gefin lyf. Eins og við
önnur krabbamein hafa lífslíkur
batnað og meðferð er árangursrík.
Eitilæxli eru upprunnin í eitilvef
og greinast aðallega hjá eldri börn-
um og unglingum og er um tvo
aðalflokka að ræða, „Hodgkin’s og
non-Hodgkin lymphoma". Tíðni er
um 10% af krabbameinssjúkdóm-
um barna. Sjúkdómurinn byrjar í
eitli og dreifist eftir sogæðum. Ein-
kenni eru eitlastækkanir, þá oftast
í sjáanlegum eitlum t.d. á hálsi.
Taka verður fram að eitlastækkan-
ir á hálsi eru í langflestum tilvikum
saklaust fyrirbrigði. Önnur ein-
kenni eitilæxla eru almenns eðlis,
þreyta, lystarleysi, hiti og svita-
köst. Eins og við önnur krabba-
mein eru vefjarannsóknir nauðsyn-
legar til að staðfesta greiningu og
eins til að kanna útbreiðslu sjúk-
dómsins í eitilvef. í meðferð er
beitt lyfjum og geislun. Horfur við
eitilæxli eru góðar, meira en helm-
ingur barnanna læknast.
Vöðvaæxli (rhabdomyosarcoma)
eru um 9% af illkynja sjúkdómum
hjá börnum. Æxlið er gert úr frum-
stæðum, þverráka vöðvafrumum
og getur komið upp hvar sem er í
líkamanum. Það er algengast hjá
ungum börnum. Meðferð er lyfja-
meðferð, skurðaðgerð og stundum
geislun. Lífslíkur fara eftir velja-
gerð, staðsetningu og útbreiðslu
æxlisins en í heild eru horfur góð-
ar, meiri hluti læknast.
Hér hefur verið stiklað á stóru
hvað varðar krabbameinssjúkdóma
hjá börnum en helstu tegundir
æxla hafa verið taldar upp. I heild
hafa lífslíkur barna með krabba-
mein batnað verulega á undanförn-
um árum og er margt sem hjálpar
til, framfarir í greiningu, aukin
reynsla í notkun krabbameinslyíja,
nákvæmari tækni í geislameðferð
og skurðaðgerðum og síðast en
ekki síst mun betri stuðningsmeð-
ferð.
Höfundur er barnalæknir
Barnaspítala Hringsins,
Landspítalanum.
Kosningar í Háskólanum
Stúdentar í Háskóla Islands
velja 15 fulltrúa í Stúdentaráð
og tvo fulltrúa í Háskólaráð,
Ódýrir
dúkar
X
HARÐVIÐARVAL
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
sem jafnframt sitja í Stúdenta-
ráði, í dag. Tólf kjörstaðir
verða opnir milli kl. 9 og 18
og hafa allir nemendur sem
skráðir hafa verið til náms við
skólann á yfirstandandi skóla-
ári kosningarétt.
Pétur Oskarsson, formaður
Stúdentaráðs, sagði að kosninga-
baráttan hefði verið venju fremur
hörð og átakamikil að þessu sinni.
Hann sagðist eiga von á að kosn-
ingaþátttaka yrði góð enda hefði
hún verið að aukast síðustu ár. I
fyrra kusu um 60% nemenda.
Kjörstaðir í kosningunum verða
í Háskólabíói, Læknagarði, Haga,
VR II, Grensás, Aðalbyggingu,
Lögbergi og Árnagarði.
Að kvöldi kosningadagsins
verða fylkingarnar tvær sem bjóða
fram í kosningunum með kosn-
ingavökur. Röskva verður með
kosningavöku í Risinu og hefst
hún kl. 21.30. Kosningavaka Vöku
verður hins vegar í Ingólfscafé og
hefst kl 99