Morgunblaðið - 25.02.1993, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993
Nemendafyrirtæki - Sætt-
umst ekki við atvinnuleysið
SJiiiiilin
Hemlaklossar
Hemlakjálkar
Hemladiskar
Hjóldælur
Höfuðdælur
Hemlaslöngur
Hemlagúmmí
Handbremsubarkar
Hemlavökvi
Hemlarofar
eftir Skúla Helgason
Stúdentar hafa ekki farið var-
hluta af atvinnuleysi síðustu miss-
era. Liðin er sú tíð að sumarstörfín
biðu námsmanna við heygarðshorn-
ið að skóla slitnum á vorin. Við
stúdentar verðum einfaldlega að
skapa okkur tækifærin sjálf.
Nemendafyrirtæki að
erlendri fyrirmynd
Stúdentaráð hefur síðan í ágúst
haft til athugunar hugmynd um
stofnun nemendafyrirtækis við
Háskóla íslands. Nemendafyrirtæki
eru í dag starfrækt í fjölmörgum
Evrópuríkjum, þ. á m. á
Norðurlöndunum og Frakklandi
þaðan sem hugmyndin er uppr-
unnin. Stúdentaráð hefur fengið
upplýsingar frá fyrstu hendi um
reynslu Norðmanna af rekstri
nemendafyrirtækja en þar var árið
1988 stofnuð ráðgjafaþjónusta
námsmanna (StudConsult). Fyrir-
tækið er rekið af nemendum þriggja
tækniháskóla í Osló á sviði
viðskiptafræði, verkfræði og tölv-
unarfræði. Heildarvelta StudCon-
sult nam u.þ.b. 16,5 milljónum
króna á síðasta ári.
Á okkar forsendum
Ljóst er að norska aðferðin
verður ekki notuð hér í óbreyttri
mynd. Háskóli íslands er akademísk
stofnun sem skipt er í 9 deildir og
tugi námsgreina og það er í senn
kostur og galli við stofnun
nemendafyrirtækis. Galli vegna
þess að undirbúningur og fram-
kvæmd er margbrotnari og þyngri
í vöfum en ella. Ávinningur þar sem
nemendafyrirtæki getur nýtt
fjölbreytta fræðilega undirstöðu,
sem víða er hér á heimsmælikvarða
og tryggir fagleg vinnubrögð.
Gagnrýni á misskilningi byggð
Undirbúningur að stofnun nem-
endafyrirtækis við Háskólann
stendur nú yfir. Margt er eftir
óunnið enda mikilvægt að tryggja
hugmyndinni víðtækan stuðning
meðal háskólamanna og aðila í
atvinnulífinu. Morgunblaðið hefur
Frá A til Ö!
Bókhalds- og rekstrarnám
Raunhæft verkefni, fjárhags-, launa- og
viðskiptamannabókhald, skil og
innheimta virðisaukaskatts, afstemmingar,
frágangur og uppgjðr.
Námið er 68 klst. langt og sérhannað með þarfir
atvinnulífsins í huga. Markmið námsins er að út-
skrifa nemendur með hagnýta þekkingu á bók-
haldi og færslu tölvubókhalds.
Námið hentar þeim sem vilja:
Ákveðna sérþekkingu.
Styrkja stöðu sína á vinnumarkaðnum.
Annast bókhald fyrirtækja.
Starfa sjálfstætt.
Viðskiptaskólinn býður upp á litla hópa • Einung-
is reynda leiðbeinendur • Morgun- og kvöldtíma
• Sveigjanleg greiðslukjör • Sérstakt undirbún-
ingsnámskeið.
Mörg stéttarfélög og starfsmenntunarsjóðir
styrkja þátttöku félagsmanna sinna í námskeiðinu.
Upplýsingar um næstu námskeið eru hjá Við-
skiptaskólanum í síma 624162.
Fáið senda námsskrá.
Viðskiptaskólinn
Skólavörðustíg 28, sími 624162.
nú í tvígang fyallað um nemenda-
fyrirtæki þar sem m.a. var rætt við
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóra VSÍ, Magnús Þór
Jónsson dósent í vélaverkfræði og
Bjarna Þórð Bjarnason, nema í
vélaverkfræði og formann Vöku.
Þar kemur fram gagnrýni sem
byggir að verulegu leyti á mis-
skilningi og röngum upplýsingum.
í fyrsta lagi er rétt að undirstrika
að nemendafyrirtækjum er vitan-
lega einkum ætlað að sjá stúdentum
fyrir sumarvinnu meðan á námi
stendur. Þar með fellur um sjálfa
sig sú gagnrýni að þátttaka stúd-
enta í nemendafyrirtækjum sé
merki um lítið námsálag, hvað þá
að stúdentar muni þiggja námslán
meðfram starfinu. Þá er með öllu
tilhæfulaus sá ótti að stúdentar
muni nýta sér endurgjaldslaust
tækjabúnað Háskólans við rekstur-
inn. Það hefur aldrei verið ætlunin
og kemur vitanlega ekki til greina.
I öðru lagi hafa ofangreindir
áhyggjur af því að stúdentar hygg-
ist selja þekkingu sem þeir hafa
ekki vald yfir. Sá ótti er ástæðu-
laus, því hugmyndin er sú að nem-
endur leiti ráðgjafar kennara og
fræðimanna við skólann við úrlausn
fræðilegra verkefna.
í þriðja lagi er rangt að stofnun
nemendafyrirtækis feli í sér óeðli-
lega samkeppni við atvinnulífíð.
Undirbúningur okkar miðar m.a að
því að finna nemendafyrirtækinu
starfsvettvang sem gefur því færi
á að veita þjónustu sem nú er lítt
sinnt með skipulögðum hætti. Þar
er m.a. litið til ýmissa skammtíma-
verkefna er krefjast mikils mann-
afla.
Tökuni höndum saman
Hugmyndin um nemendafyrir-
tæki hefur þegar verið kynnt ýms-
um aðilum innan Háskólans þ. á m.
háskólarektor auk iðnfyrirtækja og
annarra, en ætlunin er m.a. að finna
samstarfsaðila úr atvinnulífínu.
Viðbrögð manna eru mjög uppörv-
andi. Við munum leggja okkar af
mörkum til að hugmyndin um
nemendafyrirtæki verði að
veruleika og samstaða náist um
stofnun þeirra. Ég harma það mjög
að Vaka hafí ekki viljað taka þátt
í því með okkur að vinna þessu
framtaki fylgi. Hugmynd af þessu
tagi á ekki að vera þrætuepli milli
fylkinga í kosningabaráttu.
Höfundur er frnmkvæmdastjóri
SHÍ og stúdentaráðsliði Röskvu.
Skúli Helgason
„Hugmyndin um nem-
endafyrirtæki hefur
þegar verið kynnt
ýmsum aðilum innan
Háskólans þ. á m. há-
skólarektor auk iðn-
fyrirtækja og annarra,
en ætlunin er m.a. að
finna samstarfsaðila
ár atvinnulífinu. Við-
brögð manna eru mjög
uppörvandi.“
Naflaskoðun er einmitt
það sem SHI þarfnast
eftir Þóru
Björnsdóttur
Nú nálgast kosningar til Stúd-
entaráðs óðum í Háskólanum eins
og varla hefur farið fram hjá þeim
sem þar stunda nám. Vaka, félag
lýðræðissinnaðra stúdenta, hefur
gagnrýnt árangursleysi og lá-
deyðu sem hefur verið ríkjandi í
hagsmunabaráttunni í vetur. Við
höfum sett fram hugmyndir til
lausnar þessu vandamáli.
Að fela árangursleysið með
hálfum sannleika
Það er skemmst frá því að segja
að enginn árangur hefur náðst í
neinum af þeim málaflokkum sem
SHÍ á að standa vörð um, hvort
sem um er að ræða baráttuna
gegn niðurskurði til Háskólans,
námslánakjörum stúdenta eða á
öðrum vettvangi þar sem forystu-
menn stúdenta hafa farið fremstir
í flokki. Til að fela þetta árangurs-
leysi hafa þeir sem setið hafa í
stjórn stúdentaráðs í vetur,
Röskva, félag félagshyggjufólks
til vinstri og á miðju (eins og þeir
skilgreina sig í fréttatilkynningu
í Morgunblaðinu), reynt að skýla
sér á bak við það að aldrei hafí
fleiri nýtt sér þjónustu SHÍ í vetur
og fyrra vetur. Það var ekkert
skríðið, því aldrei hafa fleiri stund-
að nám við Háskólann en síðasta
vetur. Þessu gleymdu Röskvu-
menn að segja frá.
Atvinnuleysi og kreppa
Atvinnuleysi hefur aldrei verið
meira og það hefur sýnt sig að
þegar atvinnuástand er lélegt þá
leitar fólk frekar til ráðningaskrif-
stofa eins og Atvinnu- og hluta-
starfsmiðlun stúdenta. Þá er einn-
ig ekkert bogið við það að lána-
sjóðsfulltrúinn hafi aldrei haft jafn
mikið að gera og síðasta ár. Þær
reglur sem settar voru um lána-
sjóðinn síðasta vetur eru mjög
flóknar og fólk hefur átt í erfíðleik-
um með að skilja þær. Það er
heldur ekki ólíklegt að mikill tími
hafi farið í það að útskýra eigið
getuleysi við að afstýra þeim
hörmungum sem þessar reglur
höfðu í för með sér.
Stúdentaráð virkar ekki
Á sama tíma ganga forystu-
menn Röskvu fram fyrir skjöldu
og segja að Stúdentaráð megi
ekki gleyma sér í naflaskoðun
þegar svo mörg og alvarleg mál
knýja dyra. Ef ekki núna hvenær
þá? Það hefur sýnt sig að Stúd-
entaráð eins og það er í dag, 30
manna málfundafélag, kemur
engu í verk sem máli skiptir. Er
því ekki rétti tíminn til að bylta
núverandi fyrirkomulagi á Stúd-
entaráði, færa verkefni eins og
NÝJAH FLÍSAIi
Gæðaflísar á góðu verði
Nýkomin sending
af glæsilegum
gólf- og
veggflísum.
- r .. r: 4;r
iM T
StórhöfBa 17, við Gullinbrú
sími 67 48 44
Þóra Bjömsdóttir
„ A sama tíma ganga
forystumenn Röskvu
fram fyrir skjöldu og
segja að Stúdentaráð
megi ekki gleyma sér í
naflaskoðun þegar svo
mörg og aivarleg mál
knýja dyra. Ef ekki
núna hvenær þá?“
félags- og menningarmál yfir til
deildarfélaganna? Þau eru í nánari
tengslum við hvern stúdent og
betur í stakk búin til að þjóna
þessu hlutverki. Fækkun í stúd-
entaráði úr 30 í 15 og það að
gefa aðild að ráðinu fijálsa, yrði
til þess að við fengjum aukinn
kraft og skilvirkni í starfið. Það
er einmitt forsenda þess að árang-
ur náist og baráttan fyrir hags-
munum stúdenta yrði markvissari.
Höfundur er nemi í sálnrfræði og
skipar 6. sæti á framboðslista
Vöku til Stúdentaráðs.