Morgunblaðið - 25.02.1993, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993
21
Borgin greiðir 7,5
millj. í HM-kynningu
Endurbætur á Laugardalshöll fyrir 60 milljónir
BORGARRÁÐ hefur samþykkt samkomulag milli Reykja-
víkurborgar og Handknattleikssambands íslands um sam-
starf við framkvæmdir vegna HM í handknattleik í Reykja-
vík árið 1995. Um er að ræða skipulagsvinnu og kynningu
á borginni. Að sögn Markúsar Arnar Antonssonar borgar-
stjóra er gert ráð fyrir að borgin leggi árlega fram 2,5
milljónir í þrjú ár til að standa undir þeim útgjöldum. Þá
er gert ráð fyrir að viðhald og endurbætur á Laugardals-
höll kosti um 60 milljónir.
taka þátt í kynningarkostnaði sem
hlýst af kynningu keppninnar er-
lendis. Þá mun borgin styrkja ís-
„Þarna á að vinna að ymsum
skipulagsþáttum vegna heims-
meistaramótsins og er ætlunin að
vekja athygli á Reykjavík og laða
að erlenda gesti til að fylgjast með
mótinu," sagði Markús. Gengið hef-
ur verið frá samkomulagi um að
mótið fari fram í Laugardalshöll og
er gert ráð fyrir um 4.000 áhorfend-
um þar. Sagði borgarstjóri að verið
væri að vinna að endurbótum á
Laugardalshöll og er áætlaður
kostnaður rúmar 60 milljónir.
„Þetta verður unnið í áföngum fram
að mótinu,“ sagði hann. „Við erum
að hefja allumfangsmikil viðhalds-
verkefni á þessu ári og reyndar
má gera ráð fyrir að 40 milljónir
af þessum 60 milljónum hafi nauð-
synlega þurft að leggja fram hvort
sem er til viðhalds á Laugardals-
höll en hún er orðin nokkuð lúin.
Þessum framkvæmdum á að vera
lokið árið 1995.“
Reykjavík kynnt í Svíþjóð
Samkomulagið gerir ráð fyrir,
að HSÍ beiti sér fyrir kynningu á
Reykjavíkurborg í tengslum við
Heimsmeistarakeppnina árið 1993
í Svíþjóð og þátttöku íslands í
henni. HSÍ mun bjóða til alþjóðlegr-
ar handknattleikskeþpni í Reykja-
vík haustið 1994 og er gert ráð
fyrir þátttöku 6 til 12 þjóða.
Auk 2,5 milljón króna árlegs
framlags borgarinnar mun borgin
lenska karialandsliðið til æfinga í
húsnæði borgarinnar fyrir HM ’95.
HSÍ mun tryggja að merki borg-
arinnar verði ávallt notað í tengsl-
um við HM ’95 og ennfremur
tryggja að borgin hafi aðgang að
landsliðsmönnum í auglýsinga-
skyni, fram að heimsmeistara-
keppninni. Þá er gert ráð fyrir að
áður en ti! HM ’95 kemur verði
gerður samningur um skiptingu
tekna vegna aðgangseyris, auglýs-
inga og sjónvarpsútsendinga.
Formaður BHMR eftir samninga HÍK
Nýrra leiða þörf
í sanuimgamáliim
PÁLL Halldórsson, formaður BHMR, segist telja líklegt
að önnur aðildarfélög BHMR feti í fótspor Hins íslenska
kennarafélags og geri kjarasamning við ríkisvaldið sem
feli í sér ákvæði miðlunartillögu ríkissáttasemjara frá því
í fyrravor. Hann tekur undir með Eggerti Lárussyni, for-
manni HÍK, að fara verði nýjar leiðir í samningamálum.
Aðspurður hvort þetta þýddi ekki hana táknræna. Hins vegar væri ljóst
í raun formlega endalok samnings
BHMR frá 1989, sem bráðabirgðalög
voru sett á sumarið 1990, sagðist
Páll alls ekki líta svo á. Ríkisvaldið
hefði verið með kröfu um að BHMR
félögin fengju ekki miðlunartillöguna
nema skrifa upp á að hann væri úr
gildi fallinn og um það hefði stríðið
staðið. Niðurstaðan hefði orðið sú
að einungis stæði að eldri samningar
framlengdust, eins og venjan væri.
Aðspurður hvort gerð þessa samn-
ings væri táknræn og hvort BHMR
hefði gefíst upp á að fá samninginn
frá 1989 í gildi, sagði Páll ekki telja
að leita yrði nýrra leiða til þess að
ná markmiðum kjarasamningsins frá
1989 fram. „Markmið samningsins
frá 1989 standa fyrir sínu. Það er
hins vegar ljóst að á þeim tíma sem
síðan er liðinn hefur þetta ekki náðst
fram. Hvaða leiðir þarf að fára til
að ná fram markmiðum þessa samn-
ings er vandamál sem framtíðin verð-
ur að svara,“ sagði Páll.
Hann sagðist binda vonir við það
að þessi samningagerð markaði upp-
hafíð að bættum samskiptum BHMR
við ríkisvaldið,.
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
Opnun nýbyggingar
KAÞÓLSKI biskupinn, herra Johlson, ásamt nemendum Landakotsskóla fyrir framan nýbygginguna sem
tekin var í formlega notkun.
Landakotsskóli tekur
í notkun nýbyggingu
LANDAKOTSSKÓLI tók formlega í notkun nýbyggingu
við skólann á mánudag. Meðal gesta við opnunarathöfnina
var forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir. Að sögn sr.
Georgs, skólastjóra Landakotskóla, er nýbygginginn liður
í áætlun um að gera skólann einsetinn.
í nýbyggingunni eru átta skóla- skólann. Ef það tækist að ljúka þeirri
stofur. Þar af eru sex aimennar vinnu fyrir haustið yrði skólinn ein-
kennslustofur og tveir sérstofur, ein setinn næsta vetur.
fyrir smíði og önnur fyrir handa- í Landakotsskóla eru um 140
vinnu. Sr. Georg sagði að næst ætti nemendur. Ekki eru kenndir allir
að vinna að því að gera upp gamla bekkir grunnskólans en í fyrra var
byrjað með kennslu fyrir fimm ára
nemendur. Sr. Georg sagði að fram-
tíðardraumurinn væri að byggja
skólann upp til þess að kenna alla
bekki grunnskólans.
Hátíðardagskrá var haldin í tilefni
opnunarinnar mánudaginn 22. febr-
úar. Athöfn var haldin í Krists-
kirkju, Landakpti með nemendum
og kennurum. Á eftir sýndi sr. Ge-
org gestum nýbygginguna og síðan
var boðið upp á kaffíveitingar.
Vikuita 25.feb.-3.mars
\f SHERW00Dgeislaspilaii
• Einfaldur í notkun en fullkominn • Fullkominn lagaleitari.
• Stafrænn skjár. »Hægt er að láta sama lagið eða lögin hljóma
endalaust. *Tekur bæði 5 og 3jatommu diska. Kf.17.900 Stgr,
11 SHERW00D útvarpsmagnari (víöóma).
• Útgangskraftur2x65W DIN. • 30 stöðvar í minni. • Sjálfvirkur
stöðvaleitari.»„Surround„ möguleiki • Fullkomin fjarstýring
Kr.23.900 stgr.
PHILIPS rakvél.
Meö þremur sjálfbrýnandi hnífum, fjaörandi. Bartskeri
Stillanlegir hnífar fyrir mismunandi skeggrót.
Vélina er hægt að tengja við 100-240 volt. Kr. 6.9
PHILIPS ryksuga.
1100 Watta sogkraftur. Vélin er mjög hentug og létt.
4 síurhreinsa loftið sérlega vel áður en það fer út í andrúmsloftið.
Pokinn rúmar 4,5 lítra. 6 metra inndraganleg snúra.
Kr. 10.940.-
SÆTÚNI 8 SÍMI 69 15 15 ■ KRINGLUNNI SlMI69 15 20
aaser-Hi o«