Morgunblaðið - 25.02.1993, Side 22
’et HA'Jítar'N .5S HUOAnUTMMM (TIGAJSMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Annir á öskudegi
ÞAÐ ER enginn syfjaður á öskudagsmorgni á Akureyri,
engin þreytumerki að sjá á æskunni, þó svo að árla sé risið
úr rekkju og haldið á vit ævintýranna. Furðuverurnar eru
komnar á kreik upp úr sjö, ganga a milli fyrirtækja og versl-
ana, kyrjandi Fyrr var oft í koti kátt og þiggja að launum
sælgæti í poka. Kötturinn er sleginn úr tunnunni og þá kem-
ur í ljós að hann er orðin að ljóni. Þannig er haldið áfram
til hádegis og síðan eru öskudagsböllin í skólunum og leik-
skólunum þannig að ungviðið er úrvinda eftir annasaman
dag þegar kvöldar.
Fundur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja um stöðu kjaramála
Verðum að hafa verkfallsvopn-
ið tilbúið ef á þarf að halda
- segir Hólmkell Hreinsson félagsmaður í Starfsmannafélagi Akureyrarbæjar
„VIÐ verðum að standa saman, við megum ekki lata troða
á okkur Iengur,“ sagði Hólmkell Hreinsson félagi í Starfs-
mannafélagi Akureyrarbæjar á fundi BSRB um stöðu kjara-
mála í gær. Félagið hefur samþykkt að efna til atkvæða-
greiðslu um að efna til verkfalls er hæfist 22. mars næst-
komandi ef af yrði. Ögmundur Jónasson formaður BSRB
hafði framsögu á fundinum.
„Ég tel að ef við ekki segjum já
í atkvæðagreiðslunni þá gefum við
frá okkur þennan möguleika sem
við ef til vill þurfum á að halda. Við
verðum að hafa þetta vopn tilbúið
ef á þarf að halda, því annars hygg
ég að verði notuð breiðu spjótin og
valtað verði yfir menn,“ sagði Hólm-
kell.
Ekki trú á miklum
kjarabótum
Ögmundur Jónasson fór nokkrum
orðum um kröfugerð félagsins, en
hún er í sjö liðum og þar er m.a.
lögð áhersla á að efla atvinnumál,
að kaupmáttur verði svipaður og var
í upphafi þjóðarsáttartímabilsins, á
menntunarmál, skatteftirlit, skatt-
kerfisbreytingar, að lögum um at-
vinnuleysistryggingasjóð verði
breytt og að horfið verði frá niður-
skurði til velferðarmála.
Ögmundur sagði ríka áherslu
lagða á víðtæka samstöðu launafólks
í þeim viðræðum sem framundan
væru og væru allir aðilar sammála
um að ná þyrfti samningum sem
allra fyrst. „Ég hef ekki trú á að
einhveijar stórfelldar kjarabætur
vinnist í kjarasamningum," sagði
Ögmundur, en bætti við að ef menn
stæðu saman væri hann sannfærður
um að hægt yrði að snúa við óheilla-
þróun sem átt hefði sér stað varð-
andi velferðarmál, m.a. að menn
ættu að greiða fyrir aðgang að vel-
ferðarkerfmu.
í máli Þorsteins Óskarssonar sem
sæti á í samráðshópi innan samtak-
anna kom fram að vissulega vildu
menn ekki fara í verkfall, „við viljum
samninga, en ef þeir ekki nást þá
verður farið í verkfall“, sagði Þor-
steinn.
Morgunblaðið/Rúnar Þðr
Hnefinn á lofti
ÖGMUNDUR Jónasson formaður Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja í ræðustól á fundi um stöðu kjaramála á Akureyri í gær, en
þar var m.a. lögð áhersla á að félagsmenn segðu já í atkvæða-
greiðslu um boðun verkfalls 22. mars næstkomandi.
Ríkisbréf
seld fyrir
434 millj.
ALLS reyndust vera 33 gild til-
boð að fjárhæð 454 milljónir í
útboði á 6 mánaða ríkisbréfum
þegar tilboðin voru opnuð í gær.
Heildarfjárhæð tekinna tilboða
var 434 milljónir frá 29 aðilum.
í frétt frá Lánasýslu ríkisins
kemur fram að meðalávöxtun sam-
þykktra tilboða er 12,40% en lægsta
ávöxtun er 12,30% og hæsta
12,49%.
Ríkisvíxlar voru síðast boðnir út
27. janúar og þá bárust 66 tilboð
að fjárhæð 758 milljónir. Heildar-
fjárhæð tekinna tilboða var þá 518
milljónir frá 46 aðilum. Meðalávöxt-
un samþykktra tilboða var 12,47%
og hefur hún því lækkað um 0,07
prósentustig milli tilboða.
Næsta útboð verður 24. mars
næstkomandi.
----♦ ♦------
Mörg um-
ferðaróhöpp
í hálkunni
MÖRG umferðaróhöpp urðu í
hálkunni I Reykjavík í fyrradag.
Alls voru skráð hjá lögreglu 35
óhöpp eftir daginn, þar af þijú
umferðarslys.
Meðal óhappanna var árekstur
milli strætisvagns og fólksbifreiðar
við Hlemm snemma morguns. Öku-
maður bifreiðarinnar og farþegi úr
strætisvagninum voru fluttir á
slysadeild en meiðsii þeirra voru
minniháttar. Þrír bílar skullu saman
á Bústaðavegi síðdegis og voru öku-
menn tveggja bifreiðanna fluttir á
slysadeild með minniháttar meiðsli.
Við Straum varð harkalegur árekst-
ur tveggja bifreiða og ökumenn
beggja fluttir á slysadeild en meiðsli
reyndust minniháttar.
Rútubifreið fauk út af veginum
á Suðurlandsvegi við Svínahraun.
Fjórir farþegar voru fluttir á sjúkra-
húsið á Selfossi en fengu að fara
heim eftir skoðun.
♦ ♦ ♦---
Samkomulag
um vaktafyr-
irkomulag
Siglufirði.
FUNDUR var haldinn í Verka-
lýðsfélaginu Vöku og var þar
samþykkt að ganga til samninga
um vaktavinnufyrirkomulag í
rækjuvinnslunni. Þetta var sam-
þykkt með rúmlega 100 atkvæð-
um gegn 30.
Með samkomulaginu fellur niður
næturvinna og verður greitt jafnað-
arkaup í staðinn. Samningsgerðin
hefur staðið yfir í nokkra daga og
mun í framtíðinni unnið á tvöfaldri
vakt. Arnarnes og Sunna veiða nú
rækju fyrir Rækjuvinnslu Þormóðs
ramma og er fyrirhugað að Stálvík
fari einnig á rækju.
_ MJ.
Tjón á bílum
er Akraborgin
fékk á sig hnút
Akranesi.
AKRABORGIN fékk á sig hnút
um miðjan dag á þriðjudag er
hún var á siglingu til Reykjavík-
ur. Slæmt veður var og vont í
sjó. Þrír bílar færðust til og
skullu út í síðu og skemmdust.
Vestanrok var þegar þetta gerðist
og gekk á með byljum. Skipið fór
ekki fleiri ferðir vegna veðurs. Stór-
ir bílar eru yfirleitt bundnir á bíla-
þilfari Akraborgarinnar, en minni
bíiar ekki.
- J.G.