Morgunblaðið - 25.02.1993, Side 32

Morgunblaðið - 25.02.1993, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993 Minning Jón Agnar Eggerts son, Borgarnesi Fæddur 15. janúar 1946 Dáinn 11. febrúar 1993 Jón Agnar Eggertsson er öllum sem til hans þekktu harmdauði. Hann var í næstum tvo áratugi atorkusamur verkalýðsforingi í Borgarfirði og í forystu Alþýðusam- bandsins. Hygg ég að hjá honum hafi forsjálni verið í fyrirrúmi fyrir kappi á þeim vettvangi. Jón Agnar vann einnig mjög að öðrum framfaramálum í héraðinu, en ég þakka sérstaklega stuðning hans og Verkalýðsfélagsins við Neytendafélag Borgarfjarðar. Hug- ur hans til þess birtist margvíslega. Neytendafélagið hefur afdrep fyrir fundi sína í húsi verkalýðsfélaganna í Borgamesi og nýtur þar ýmiskon- ar fyrirgreiðslu. Og minnisstæðir eru Qölsóttir fundir sem haldnir voru í samvinnu félaganna í Hótel Borgamesi um mál sem komu öllum við og ræða þurfti. Þar var frum- krafturinn Jóns Agnars. Vakti efni þessara funda verðskuldaða at- hygli. Jón Agnar var kvæntur Ragn- heiði Jóhannsdóttur kennara og áttu þau tvö böm. Ragnheiður starfar á Fræðsluskrifstofu Vestur- lands og er jafnframt formaður Neytendafélags Borgarfjarðar. Neytendamál voru Jóni Agnari hug- leikin en samstarf félaganna naut þess auðvitað hve góðir vinir þau hjónin vom. Einkahagi þeirra þekkti ég lítið, en augljós var ein- drægni þeirra um ijölskylduna, gagnkvæmur stuðningur vegna fé- lagsstarfanna og hin seinni árin í baráttu við veikindi Jóns Agnars. Ástvinum hans votta ég innilega samúð. Aðalsteinn Geirsson. Það er grimmilega óréttlátt þeg- ar fjölskyldumaður á besta aldri, hæfur, virkur og framtakssamur fellur frá. Það er sárt og erfitt að skýra út fyrir ungum bömum að pabbi sé dáinn. Þó að Jón Agnar hafí vissulega lengi átt við alvarlegan sjúkdóm að stríða og margt hafí bent til þess í veikindum hans síðastliðið ár að stutt væri eftir, tókst mér að loka augunum fyrir því að svo gæti far- ið. Jón átti svo margt ógert og það vora svo margir háðir návist hans. Kynni okkar Jóns hófust í bam- æsku. Ifyrstu minningamar era frá því að ég dvaldist í nokkrar vikur sumrin sem ég var sex og sjö ára hjá frændfólki mínu á Bjargi. En Heiða á Bjargi, mamma Jóns, er afasystir mín. Alltaf var nokkur samgangur á milli ijölskyldnanna og við Nonni nánast jafnaldra þann- ig að vinskapurinn hélst. Um leið og ég minnist góðs félaga úr starf- inu innan verkalýðshreyfingarinnar sækir á söknuður vegna góðs vinar. Bráðungur varð Jón Agnar for- maður Verkalýðsfélags Borgamess. Hann stóð sig ekki aðeins frábær- lega sem forastumaður verkalýðs- félags í hefðbundnum skilningi. Hann kom á öflugra starfí en ann- ars staðar þekkist. Jafnframt þvf sem félagið er öðrum verkalýðsfé- lögum hin trausta fyrirmynd í virku starfí hefur Borgames og héraðið allt notið framtaksins í fræðslu- og útgáfustarfsemi. Þá hafa reglu- bundnir þjóðmálafundir verkalýðs- félagsins og neytendafélagsins dregið fjölmenni að og lagt til efni í fréttir og fréttatengda þætti út- varps og sjónvarps. Jón Agnar var enginn hávaða- eða fyrirgangsmaður. Hann var einn þeirra góðu verkamanna sem allt gengur undan, en sjaldan sjást taka á af afli. Hann kom því fram sem hann vildi með mýkt og lagni. Jón Agnar var skilvirkur og far- sæll í starfí. Jón Agnar var ekki aðeins virkur á heimavelli. Frá 1976 sat hann í miðstjóm ASÍ, frá 1980 sem kjörinn gjaldkeri Alþýðusambandsins. Hann sat í samninganefndum og ótal nefndum öðrum. Þó að Jón stæði fast á sínu var hann manna- sættir, hugmyndaríkur, úrræðagóð- ur og fundvís á sameiginlega fleti. Það reyndist mér vel að leita ráða hjá Jóni með ræðuskrif og undir- búning umræðna. Jón Agnar var einlægur fram- sóknarmaður. Hann var einarður vinstrisinni, en fyrirgangur og yfír- boð Alþýðubandalagsins vora hon- um lítt að skapi og Alþýðuflokkinn taldi hann heldur valtan á sigling- unni. Þegar í odda skarst á milli Framsóknarflokksins og verkalýðs- hreyfíngarinnar var valið hins vegar ekki erfítt. Hjartalagið var þannig að hann hlaut að fylgja hugsjón hreyfíngarinnar. Þegar flokkurinn villtist af leið stóð hann fast á sínu. Stundum varð af nokkurt hark og minnist ég þá sérstaklega vorsins 1978. Þó að Jón færi hvergi leynt með flokkspólitíska skoðun sína varð hann aldrei með réttu ásakað- ur um þjónkun við sinn flokk. Jón Ágnar var lipur ræðumaður og honum var létt um að skrifa. Hann þurfti því ekki að leita í smiðju til annarra í því efni. Þó gerðist það einu sinni að hann hringdi í mig og sagðist í vandræðum með leiða- raskrif í Borgfírðing. Hann væri hálf lasinn og illa upp lagður. „Sýndu nú að þú getir verið til gagns,“ sagði hann, „og skrifaðu fyrir mig uppkast að leiðara um stöðu samvinnuhreyfíngarinnar." Ég skrifaði uppkastið. Þegar ég hitti Jón stuttu seinna hló hann mikið. „Ég snurfusaði þetta aðeins og lét það bara flakka og nú er ég skammaður um allt héraðið fyrir framsóknaráróðurinn í leiðara Borgfírðings. Það hefur aldrei kom- ið fyrir áður.“ Ekki bað hann mig aftur að gera uppkast að leiðara og ekki mun hann síðar hafa verið ásakaður fyrir að nota leiðaraskrif- in í flokkspólitískum tiigangi. Við sem nutum samstarfsins við Jón Agnar innan verkalýðshreyf- ingarinnar minnumst þess með þakklæti. Þar fór verkmaður sem skilaði heilladijúgum árangri. Enn frekar sækir þó á mig söknuður vegna frænda míns og vinar. Ragnheiður. Ég og fjölskylda mín öll sendum þér og drengjunum, Heiðu og frændfólkinu öllu samúð- arkveðjur. Ég kann engin ráð gagn- vart óréttlæti lífsins, en ég er þess fullviss að minningin um góðan dreng gefur ykkur styrk á þessari erfíðu stundu. Ásmundur Stefánsson, fyrrverandi forseti ASÍ. Látinn er Jón Agnar Eggertsson, langt fyrir aldur fram. Það era víst komin um og yfír 20 ár síðan við Jón kynntumst. Það var á vettvangi Framsóknarflokks- ins þegar við voram bæði ung og upprennandi. Síðar fékk ég þá flugu í höfuðið að reyna að verða þing- maður og í Borgamesi myndaðist merkilega stór og harður hópur sem studdi þá áætlun mína. Þar var Jón, óþreytandi að stappa stálinu í frambjóðandann sem óneitanlega var tálsvert óreynd í hlutverkinu. Jón var ákaflega góður félagi og reyndur í félagsmálum þá þegar. Starfaði ötullega með framsóknar- mönnum í Borgamesi og á Vestur- landi. Mér er það ákaflega minnisstætt að í prófkjörsslagnum einu sinni var ég stödd í Borgamesi, en var á leið á fund að mig minnir í Logalandi. Þetta var að haustlagi og gekk á með dimmum éljum og var talsverð hálka. Þama keyrðu frambjóðendur á milli funda, hver á sínum bíl í halarunu. Jóni Agnari fannst þetta vera alveg út í hött og satt að segja aftók að ég færi ein. Svo að hann ók mér sjálfur og sagði mér sögur alla leiðina til að ég yrði ekki svo mjög skelkuð. Og kom mér aftur heilli á húfí í Borgames að kvöldi. Ónefnd era svo störf hans fyrir verkalýðshreyfínguna, en þar reyndist hann góður liðsmaður eins og vænta mátti. Kunna aðrir þá sögu betur. Okkar samband var ekki mikið seinni ár, en höfðum það fyrir sið að tala saman í síma svona tvisvar á ári. Það var alltaf eins og við hefðum talað saman í gær. Ég vil með þessum fáu orðum kveðja góðan félaga sem átti svo mikið eftir að starfa. Átti eftir að sjá drengina sína vaxa og dafna. Ég votta þeim og eftirlifandi konu Jóns ásamt móður hans og aðstand- endum öllum samúð mína og hryggð. Dagbjört Höskuldsdóttir, Grundarfirði. í dag er kvaddur hinstu kveðju Jón Agnar Eggertsson, formaður Verkalýðsfélags Borgamess. Með honum er genginn traustur og far- sæll leiðtogi og góður félagi. Á kveðjustund viljum við verslun- armenn þakka samfylgdina og sam- starfíð á liðnum áram. Fyrir 20 áram hófst náið samstarf stéttarfé- laganna í Borgamesi, þegar ráðist var í kaup á húsnæði fyrir starfsemi þeirra í Gunnlaugsgötu 1, en húsið var nefnt Snorrabúð. Þetta gjör- breytti allri aðstöðu félaganna og gerði þeim kleift að ráða starfs- mann til að annast daglegan rekst- ur. Árið 1974 var Jón kjörinn for- maður verkalýðsfélagsins og gegndi því starfí til dauðadags. Sama ár var hann kjörinn í sveitarstjóm og sat þar í þrjú kjörtímabil, eða 12 ár. Störf sín rækti hann af mikilli samviskusemi og áhuga og í störf- um sínum að verkalýðsmálum fór saman bæði vinna og áhugamál sem óneitanlega er mikill kostur. Mál- efni neytenda vora honum ofarlega í huga og átti hann stóran þátt í að Neytendafélagi Borgarfjarðar var komið á legg. Ég átti þess kost nokkrum sinn- um að sitja samningafundi með Jóni fyrir hönd okkar stéttarfélaga. Hann var ákveðinn og fylginn sín- um málstað, en um leið sáttfús þegar ásættanlegar niðurstöður vora í sjónmáli. Það var greinilegt að hér fór maður með gífurlega reynslu af samningamálum og það var lærdómsríkt að starfa við hlið hans á þeim vettvangi. Jón ræddi oft nauðsyn þess að sameina stétt- arfélögin í Borgamesi í eitt öflugt félag. í nóvember sl. samþykkti félagsfundur í Verslunarmannafé- lagi Borgamess að óska eftir við- ræðum við verkalýðsfélagið og ræða kosti og galla sameiningar. Því miður gátu þær viðræður ekki hafíst eins og að var stefnt, en það væri verðugt verkefni að heiðra minningu Jóns Agnars Eggertsson- ar með því að láta draum hans verða að veruleika. Lífsstarf hans helgaðist að því að búa betur í haginn fyrir borg- fírskt verkafólk, skapa því betri kjör, bættan aðbúnað, betri mennt- un og að það gæti eytt frítíma sín- um í skapandi verkefni. Hann var óhræddur við að fara inn á nýjar brautir ef það mátti verða til að styrkja granninn undir árangursríkt félagsstarf. Atvinnumálin vora hon- um ofarlega í huga og það tók á hann að horfa upp á vaxandi at- vinnuleysi, sem ekki síst bitnaði á hans fólki. Hann ræddi atvinnumál- in oft við okkur sveitarstjórnarmenn og kom á framfæri hugmyndum sín'um, er mættu verða til þess að skapa fleiri störf. Við þökkum hon- um óeigingjamt starf í okkar þágu, því það var fyrst og síðast velferð samferðafólksins sem hann bar fyr- ir bijósti, en ekki eigin metorð. Borgames hefur misst mætan son, sem með störfum sínum hefur lagt dijúga skerf til uppbyggingar sveitarfélagsins. Ég votta fjölskyldu Jóns dýpstu samúð. Ég bið Guð að gcfa eigin- konu og sonum styrk á kveðju- stund. Blessuð sé minning hans. Eyjólfur T. Geirsson. í dag er kvaddur einn ötulasti og traustasti verkalýðsforastumað- ur landsins, Jón Agnar Eggertsson, aðeins 47 ára gamall. Andlát hans er mikið áfall. Við vissum að Jón barðist síðustu árin við illkynja sjúkdóm sem lagðist með ofurþunga á hann. En svo oft hafði hann unn- ið baráttuna við vágestinn að í lengstu lög trúðum við því og von- uðum að hin mikla bjartsýrti hans og þrautseigja væra dauðanum sterkari, mennirnir álykta en Guð ræður. Jón Agnar var fæddur að Bjargi í Borgarnesi hinn 5. janúar 1946, sonur merkishjónanna Aðalheiðar Jónsdóttur og Eggerts Guðmunds- sonar er þar bjuggu í áratugi og komu víða við til góðra verka í uppbyggingu Borgamesbæjar. Eggert faðir Jóns lést 1979 en Aðalheiður lifír son sinn. Jón Agnar var yngstur 5 systkina. Jón Agnar var ekki gamall þegar samborgarar hans fóra að treysta honum fyrir ýmsum trúnaðarstörf- um og þrátt fyrir að Jón væri að eðlisfari hlédrægur og langt frá því að ota sér fram, þá fundu menn að hann var eldhugi sem átti sér hugsjónir og hafði vit og vilja tl að framkvæma þær, aldrei með bram- bolti og hávaða heldur elju, yfírveg- un og fyrst og fremst næmum skiln- ingi og þekkingu á kjöram fólksins i kringum hann. Hann sýndi það með lífí sínu og starfí að það þarf ekki langar og háværar ræður til að ná árangri á sviði félagsmála. Málflutningur Jóns Agnars vakti hvívetna athygli fyrir hógværð og rökfestu, en hnitmiðuð markmið leyndu sér aldr- ei í máli hans. Hann var sannur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, sagði fátt en framkvæmdi því meira. Fyrir Framsóknarflokkinn vann hann mikið og óeigingjamt starf bæði sem miðstjórnarmaður til margra ára og fulltrúi flokksins á ýmsum vettvangi, einkum á sviði verkalýðsmála. Hann var hrepps- nefndarmaður í Borgamesi á áran- um 1974-1986 fyrir Framsóknar- flokkinn og þar sem annars staðar munaði um vérkin hans. Hann hafði mikið persónulegt fylgi sem skilaði sér jafnan þegar talið var upp úr kjörkössunum. Sama ár og hann 28 ára gamall tók sæti í hrepps- nefnd var hann kjörinn formaður Verkalýðsfélags Borgamess og gegndi því starfi til dauðadags. Jón Agnar var enginn venjulegur foringi í verkalýðsfélagi, enda sýna verkin merkin. Hann byggði upp öflugt félagsstarf þannig að hús Verkalýðfélagsins, sem hann hafði forgöngu um að félagið eignaðist, Félagsbær, iðar af lífi og starfi alla daga. Jákvæður baráttuvilji Jóns Agnars sveif yfír vötnum og sífellt vora nýjar og nýjar hugmyndir að vakna, stofnað var tii nýrra upp- byggjandi námskeiða sem komið gætu umbjóðendum hans til góða. Hann byggði upp fastar hefðir varð- andi 1. maí hátíðarhöld í Borgar- nesi þar sem þátttaka er langt umfram það sem menn eiga að venjast. Þar fléttaði hann á snilldar- legan hátt saman menningarvið- burðum og verkalýðsbaráttu. Hin almenna þátttaka í hátíðarhöldum dagsins er fyrst og fremst að þakka þeim einstaka hæfileika Jóns Agn- ars að fá fólk til að vinna með sér. Það var ekki aðeins á heimaslóð sem Jón Agnar vann. Hann gegndi mörgum veigamiklum störfum fyrir Alþýðusamband íslands og var þar sem annars satðar virtur og vel látinn. Hann var einn af framkvöðl- um útgáfu héraðsfréttablaðsins Borgfírðings sem komið hefur út allt frá árinu 1987 og er einstak- lega myndarlegt blað, eitt síðasta verk hans var að fara yfir nýútkom- ið blað og leggja drög að því næsta. Þá var hann orðinn mjög veikur. En eljan og áhuginn éntust honum til síðustu stundar. Neytendamál lét hann mikið til sín taka og bryddaði upp á nýjung- um varðandi samvinnu neytendafé- lagsins og verkalýðsfélags í Borgar- nesi, sem síðan var forskrift fyrir starfsemi annarra verkalýðsfélaga. Ég hef aðeins talið fátt eitt upp af verkum Jóns Agnars, en hann hefur komið víða við og hvarvetna skilur hann eftir sig störf sem varða veginn til framtíðar. Ég sem þessar línur rita ræddi oft við Jón um erf- ið viðfangsefni. Ég fór alltaf bjart- sýnni af hans fundi. Það var mann- bætandi að vera í návist hans. Hann var ráðhollur og réttsýnn. Ég heyrði hann aldrei leggja slæmt orð til nokkurs manns, en umburðarlyndi hans var ávallt viðbragðið. Þegar ég hugsa til hans verður mér minn- isstæðust ró hans og festa. Þessir tveir eðliskostir gerðu honum kleift að sigrast á hverri þrautinni eftir annarri. Síðastliðin 10 ár hefur hann átt traustan lífsföranaut, Ragnheiði Jóhannsdóttur kennara. Saman eignuðust þau tvo sólargeisla, Egg- ert Sólberg, 8 ára, og Magnús Elv- ar, 6 ára. Það er erfítt fyrir svo unga drengi að skilja hvers vegna pabbi fær ekki lengur að vera hjá þeim, en þeir eiga fagrar minningar um góðan föður. Þegar ég mætti Jóni Agnari nýorðnum föður í fyrsta sinn þá sá ég hann kátastan. Hann geislaði af hamingju og þrátt fyrir það að hann hafði oft staðið frammi fyrir margs konar viðurkenningum fyrir störf sín kom ekkert í staðinn fyrir þá miklu hamingju að eiga góða konu og mannvænlega sjmi. Ég hef fylgst með því úr fjarlægð hversu vel Ragnheiður hefur reynst manni sínum í langri og strangri baráttu við erfiðan sjúkdóm. Hún stóð ávallt sem klettur. Henni og drengjunum sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur, einnig aldr- aðri móður og systkinum. Gott mannorð er gulli betra. Mannorð Jóns Agnars var gott. Hann átti traust og virðingu sam- ferðamanna sinna. Framsóknar- menn á Vesturlandi þakka Jóni Agnari öll hans störf, góða leiðsögn og þau jákvæðu áhrif sem frá hon- um streymdu. Megi líf hans og störf vera öðram hvatning til góðra verka. Guð styðji og styrki ástvini hans alla. Ingibjörg Pálmadóttir. Jón Agnar Eggertsson, formaður Verkalýðsfélags Borgamess, er fallinn frá, langt um aldur fram, aðeins 47 ára að aldri. Minningar koma upp í hugann um samskipti liðinna ára, minningar sem lýsa smitandi eldmóði og félagslegum áhuga Jóns Agnars sem einkenndu allt hans líf. Eitt það fyrsta sem Jón Agnar benti mér á, þegar hon- um fannst ég treg til að koma á fund upp í Borgames, var að það væri jafnlangt frá Reykjavík til Borgamess og frá Borgamesi til Reykjavíkur. Upp frá því setti ég ekki fjarlægðina fyrir mig. Þau vora ófá símtölin sem við áttum, þar sem hann hvatti og leiðbeindi um verkefnin hér á skrifstofu Al- -þýðusambandsins, en flest erindin vora tengd réttindamálum launa- fólks í Borgarnesi. Vfst er að Jón Agnar var meira en venjulegur formaður í félagi. Til hans leitaði fólk með hin margvís- legustu vandamál og allra vanda vildi Jón leysa. Eitt síðasta samtal- ið sem við áttum nú um áramót tengdust rétti félagsmanns á slysa- bótum, en þá var Jón sjálfur orðinn mjög veikur og hafði aðeins litið inn á skrifstofuna. Jón Agnar var snjall /

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.