Morgunblaðið - 25.02.1993, Side 43
'fiOf HATJf?93T? HTJOAQIJTMMN QIQA.ISVIUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993
43
„Ber er hver að baki nema
bróður eigi“
Frá Jóhanni F. Guðmundssyni:
„Það er reynt að hlífa aldraða
fólkinu, öryrkjunum og börnunum
svo sem kostur er.“
Viðtal við heilbrigðisráðherra,
Sighvat Björgvinsson. Morgun-
blaðið 27. jánúar 1993.
Ráðherra segist reyna að hlífa
m.a. öldruðum og þeim sem minna
mega sín, en í hveiju er sú hlíf
fólgin? Er mögulegt að ráðherrann
telji að við þetta fólk sé hægt að
segja eitt.en meina annað? Hver
er gapuxi og hver ekki? Það er
vegið þyngst að þeim, sem ráð-
herra segist vera að hlífa. Er ver-
ið að hlífa þessu fólki, þegar til-
skipun kemur um að ekki skuli
lengur greiddur helmingur tann-
læknaþjónustu? Er ekki hætt við
að aldraðir, foreldrar barna og
öryrkjar fresti tannviðgerðum, að
ekki sé talað um tannsmíðar? Er
verið að hlífa bömum, öldruðum
og öryrkjum, þegar þeir greiða
lyf, m.a. fúkalyf, að fullu, sem
áður voru niðurgreidd? Þau rök
að íslendingar noti meira af fúka-
lyfjum en nágrannaþjóðir okkar
er ekki þessu fólki að kenna, mein-
ið liggur annars staðar.
Lífeyrissjóðirnir
Fó!k sem byijar að taka lífeyris-
sjóðsgreiðslur stendur frammi fyrir
því vandamáli, að tekjur þess
minnka oft um einn þriðja, en gjöld-
in, þau hækka ef eitthvað er, eins
og dæmin sanna.
Tekjutryggingin byijar að skerð-
ast við sameiginlegar tekjur, þ.m.t.
lífeyrissjóðstekjur hjóna við kr.
24.615 á mánuði og smáeyðist og
hverfur við sameiginlegar tekjur
sem nema kr. 125.434 á mánuði.
Tekjutryggingin virkar því eins
og skattur á þá sem hafa greitt af
launum í lífeyrissjóð tugi ára. Mál-
TAPAÐ/FUNDIÐ
Dúnúlpa tapaðist
Dökkblá dúnúlpa með
fuglsmynd á bakinu tapaðist sl.
helgi í námunda við
Lindarbraut á Seltjarnarnesi.
Finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 611354.
LEIÐINLEGAR
SPILADÓSIR
Mig langaði að vekja athygli
forráðamanna fyrirtækja á því
að það er ákaflega hvimleitt
fyrir fólk sem hringir til þeirra
að þurfa að hlusta á spiladósir
eða annan hávaða á símalínunni
á meðan beðið er eftir sam-
bandi við deildir innanhúss.
efni þau sem kreíjast leiðréttingar
eru þessi: Að ekki sé um þrísköttun
að ræða þegar fyrst er tekinn tekju-
skattur af tillagi sjóðfélaga, aftur
er tekjuskattur tekinn þegar greidd-
ur er lífeyrir úr sjóðnum, svo kemur
til niðurfelling hluta tekjutrygging-
ar hjá langflestum þeirra sem fá
lífeyrissjóðsgreiðslur.
I leiðbeiningum með skattafram-
tali 1993 má lesa á síðu 33: Ríkis-
stjórn íslands hefur gert samning
við stjórnir eftirfarandi ríkja um að
koma í veg fyrir tvísköttun tekria
og eigna. (Upptalin 10 lönd.) Er
ekki eins hægt að semja um þetta
mál við þá sem hafa starfað og lifa
á íslandi en búa við margsköttuð
laun?
Lífeyrissjóðsþegar greiða fullan
tekjuskatt af vöxtum meðan aðrir
geta átt milljónir í bönkum og ríkis-
skuldabréfum, fá fulla tekjutrygg-
ingu, niðurgreidd símaafnot,
áskriftir fjölmiðla, læknis og lyfja-
fríðindi, greiða enga tekjuskatta af
vaxtatekjum, sama hve háar þær
eru.
Skorað er á alþingismenn að
samþykkja tillögu til þingsályktun-
ar (368) um afnám tvísköttunar af
lífeyrisgreiðslum, sem nú liggur
fyrir Alþingi.
Menn voru njörvaðir fastir og
háðir greiðslum í lífeyrissjóði í tugi
ára og það sem meira er, það er
viðurkennt að í samningum um laun
opinberra starfsmanna hefur verið
tekið mið af lífeyrissjóðnum og þá
að hann beri í sér forréttindi, sem
talin eru til launakjara. Sá tími er
liðinn með nýjum álögum.
Opinberir starfsmenn og aðrir
hljóta að huga alvarlega að þessu
óréttlæti og veija lífeyrisþega og
um leið eigin framtíð með samtaka-
mætti sínum.
Þetta fer um hugann á nýbyijuðu
ári aldraðra, það er fallegt að hlífa
öldruðum, öryrkjum og börnum, en
Flestir sem ég hef talað við
um þetta mál eru mér sammála
og ég held að fyrirtæki ættu
að endurskoða þessa „þjónustu"
við viðskiptavini sína.
ffildur
GÆLUDÝR
Kettlingar
Tvo kassavana kettlinga,
svarta læðu og blágráan högna,
vantar gott heimili.
Upplýsingar í síma 651126 eftir
kl. 15.00
Páfagaukur týndist
Lítill blár páfagaukur flaug
út um glugga á Sæbólsbraut
28 í Kópavogi sl. mánudags-
kvöld. Upplýsingar í síma
44876.
er nú ekki komið nóg af því í bili.
Vökumenn, hvað líður nóttinni?
Þetta er spurning okkar til þeirra,
sem með samninga fara, við treyst-
um því að þeir gæti réttar bræðra
og systra, veiji rétt þeirra lægst-
launuðu á kostnað þeirra sem meira
bera úr býtum; í ykkur sjáum við
og finnum að „ber er hver að baki
nema bróður eigi“.
Senn mun birta af degi í íslensku
þjóðlífi, okkar er að biðja Guð um
að leiða og styðja þá sem með samn-
inga fara og gefa þeim vit og visku
inn í allar kringumstæður, hvoru
megin borðs sem þeir sitja.
Þökkum Drottni fyrir að mega
búa á íslandi, fjarri harkmiklum
hermannastígvélum og blóðstorkn-
um skikkjum.
JÓHANN F. GUÐMUNDSSON,
Látraströnd 8, Seltjamarnesi.
Pennavinir
Kanadískur eftirlaunaþegi vill
skiptast á frímerkjum:
G. E. Brunelle,
2302-20th Street,
Vernon,
British Columbia,
Canada VIT 4C2.
Tvítug Ghanastúlka með áhuga
á dansi, kvikmyndum og körfubolta:
Celestina Ama Woods,
P.O. Box 835,
Cape Coast,
Ghana.
Þýskur 22 ára piltur sem starfar
á ferðaskrifstofu, hefur mikinn
áhuga á íslandi, einnig ferðalögum,
tónlist, kvikmyndum, stjórnmálum
o.fl.:
Jens Miissigbrodt,
Sch.-Deutzsch-Str. 21,
3000 Hannover 61,
Germany.
Þrettán ára bandarískur piltur
með áhuga á homabolta, bandarísk-
um fótbolta og körfubolta, safnar
íþróttamannamyndum:
Jimmy Grantham Jr.,
6652 Belwood Dr. W,
Theo. Al. 36583,
U.S.A.
LEIÐRÉTTINGAR
Kokkurinn rangt
feðraður
Á baksíðu Versins í gær er rammi
um „Soðninguna", þar sem rætt er
um matreiðslu á gjölni, físki, sem
íslendingar hafa lítt snætt til þessa.
Yfirmatreiðslumaður á Hótel Holti
leggur þar til uppskrift, hvemig
matreiða skuli þennan fisk. Hann
er þar rangt feðraður, en hann heit-
ir Eiríkur Ingi Friðgeirsson. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
Nafn höfund-
ar féll niður
Á eftir síðustu minningargrein-
inni um Örn S. Agnarsson í Morg-
unblaðinu í gær féll niður nafn
höfundarins, Páls Garðarssonar.
Eru hlutaðeigandi innilega beðnir
afsökunar á mistökunum.
VELVAKANDI
Ókeypis lögfræðiaöstoð
ó hverju fimmtudagskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í simu 11012.
ORATOR, élag laganema.
-
Helgamdmskeið 5-7. mars
■ Upplifðu hver þú ert.
■ Stígðu yfir þröskuldinn sem takmarkar sjálfstjáningu þína.
■ Lærðu nýjar ieiðir tii að vera í samskiptum við aðra
án þess að missa eigið jafnvægi.
Leiðbeinandi: Sandra Schererfrá Kripalumiðstöðinni.
Verð: 7.000 kr. - Upplýsingar í síma 679181 (kl. 17-19).
Jógastööin Heimsljós,
Kripalujóga á íslandi.
NO NAME
COSMETICS —
Förðunarnámskeið
Nú hefjast að nýju hin geysivinsælu
förðunarnámskeið Kristínar Stefánsdóttur.
- Eitt kvöld.
- Dag- og kvöldförðun.
- Persónuleg ráðgjöf.
- Aðeins 8 í hóp.
Hárgreiðslumeistari veitir hverri og einni
persónulega ráðgjöf um eigið hár og hárgreiðslu.
____NÝJUNG_____
KENNSLA í FÖRÐUN
Loks bjóðast tveggja kvölda námskeið í tísku- og
sýningarförðun fyrir fagfólk jafnt sem áhugafólk, t.d.
fatahönnuði, hárgreiðslufólk,
snyrtifræðinga og fyrirsætur.
Allir þátttakendur ljúka áfanga með
viðurkenningarskjali (Diploma).
Kennari: Kristín Stefánsdóttir,
snyrti- og förðunarmeistari,
íslandsmeistari í dag- og kvöldförðun.
Félag íslenskra
förðunarfræðinga
I t.LAU ISLHNSKHA
SNYkYlFKÆDlNGA
Innritun og núnari upplýsingar í síma 26525
milli kl. 10 og 17 alla virka daga.
íþrótta- Síðustu dagar útsölunnar Ledur- stígvél
skór Allir skór kr. 995.
kr. 995. 1oppskórinn 1 VELTUSUNDI • SÍMl: 21212 kr. 1.995.